Vikublaðið - 07.04.1997, Qupperneq 10

Vikublaðið - 07.04.1997, Qupperneq 10
liiilDJU 7. apríl 1997 Réttarbót til samkynhneigðra Þingmenn allra þingflokka hafa lagt fram frumvarp á Alþingi sem tryggja á samkynhneigðum í stað- festri samvist sama rétt til stjúpætt- leiðingar barna og fólki í hefðbundn- um hjónaböndum. I greinargerð með frumvarpinu segir að börn samkyn- hneigðra í staðfestri samvist njóti enn ekki fulls jafnræðis við böm gagn- kynhneigðra og sé fmmvarpinu ætlað að tryggja öllum bömum sömu stöðu. Þverpólitísk samstaða er um þetta mál á Alþingi, þó það komi ekki í ljós fyrr en við atkvæðagreiðslu um frum- varpið hvort einhverjir greiða at- kvæði gegn þvf. Flutningsmenn eru Ólafur Orn Haraldsson, Framsóknar- flokki, Einar K. Guðfmnsson, Sjálf- stæðisflokki, Svavar Gestsson, Al- þýðubandalagi, Össur Skarphéðins- son, þingflokki jafnaðarmanna og Guðný Guðbjörnsdóttir, Kvennalista. Ef frumvarpið nær fram að ganga getur sá sem er í staðfestri samvist ættleitt bam maka síns, með sama hætti og gildir um stjúpættleiðingu gagnkynhneigðra hjóna. „Stjúpætt- leiðing þjónar öðm fremur því mark- miði að skapa ákveðna festu um fjöl- skylduböndin, stuðla að samheldni og tryggja rétt barna til að njóta alls þess sem ættleiðingartengsl bjóða upp á frá báðum þeim aðilum sem gegna hlutverki foreldris,” segir í greinar- gerð með frumvarpinu. I greinargerðinni segir ennfremur að stjúpættleiðing sé að sumu leyti mikilvægari en sameiginleg forsjá, því ættleiðing af þessu tagi komi kannski helst til álita þegar lítil tengsl séu milli bamsins og hins forsjárlausa kynforeldris. Markmiðið verði að tryggja baminu raunvemlegan stuðning tveggja í stað eins foreldris. I núgildandi lögum um staðfesta samvist sem tóku gildi þann 27. júní 1996, var bömum sam- kynhneigðra tryggður réttur til að njóta forsjár beggja aðila í staðfestri samvist. Það er því verið að ganga lengra í þessum efnum með frumvarpinu sem nú liggur fyrir Alþingi. Þar með hefðu íslendingar stigið enn eitt skrefið framar öðmm þjóðum í að tryggja réttindi samkynhneigðra. I greinargerð fmmvarpsins er tekið fram að við stjúpættleiðingu fólks í staðfestri samvist verði litið til þess hvað verði baminu fyrir bestu og muni sömu reglur gilda og nú er stuðst við hjá gagnkynhneigðum. Flutningsmenn frumvarpsins telja að fmmvarpið sé í anda 65. greinar stjómarskrárinnar, þar sem segir að allir skuli vera jafnir fyrir lögum og njóta mannréttinda án tillits til stöðu sinnar. Þá segja flutningsmenn að það brjóti einnig í bága við mannréttinda- sáttmála Evrópu að mismuna bömum með þeim hætti sem nú er gert, en sáttmálinn hefur lagagildi á Islandi. „Síðast en ekki síst eru skýr ákvæði í samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi bamsins frá 20. nóvember 1989 sem full- gildur var að hálfu íslands ár- ið 1992,” segir í greinargerð- inni. En í sáttmálanum segir meðal annars: „Aðildarríki skulu gera allar viðeigandi ráðstafanir til að sjá um að bami sé ekki mismunað eða refsað vegna stöðu eða at- hafna foreldra þess, lögráðamanna eða fjöl- skyldumeðlima, eða sjónar- miða sem þeir láta í ljós eða skoðana þeirra.” -hmp Lög bralín á föngum Margrét Frímannsdóttir: Verðum að gera það upp við okkur hvort fangelsin eigi bara að vera geymslustaðir. Ríkið greiðir ekki launa- tengd gjöld af vihnu ~ Margrét Frímannsdóttir, formaður Alþýðubandalagsins, segir að log séu brotin á föngum á IslandL í svörum” dómsmálaráðherra til Margrétar sem lögð vom fram á Alþingi nýlega, kemur m.a. fram að ekki eru greidd lögboðin gjöld af launum fanga. Margrét spurði Þorstein Pálsson, dómsmálaráðherra, m.a. um það hvemig væri staðið að framkvæmd laga um að fangi skuli eiga kost á námi. í svari ráðherra kemur fram að reglubundið nám fer aðeins fram í_ fangeisinu á Litla-Hrauni, en þar era: 87 fangáþláss af 138 fangaplássum í landinu. Ráðherra segir alla karlfanga sem vilja stunda nám eiga kost á því, en þá verði þeir að taka það fram áður en afplánun hefst, svo hægt verði að vista þá á Litla- Hrauni. „Við verðum að svara því hvaða hlutverki fangelsin eiga að gegna. Eiga þau að vera geymslustaðir staður þar sem afbrotamerin horfast í augu við brot sín og eiga kost á því að byggja sig upp til að verða á ný nýtirþjóðfélags- þegnar,” segir Margrét. Það sé klárt samkvæmt lögum að fangi eigi rétt á námi, en það sé ekki víst að hann sé í stakk búinn til að gera það upp við sig áður en afplánun hefst hvort hann vilji það eða treysti sér til þess. Margrét segir að það hafi ver- ið mikið framfaraspor þegar nám var tekið upp á Litla- Hrauni, síðar í samvinnu við Fjölbrauta- skólann á Selfossi. Það verði hins vegar að gera betur og þá sérstaklega hvað varðar meðferð ungra fanga. Þar þurfi líka að huga að aðstandendum þeirra. Margrét segir ljóst áð einn sál- fræðingur geti ekki sinnt þeirri nauðsynlegu sálfræðiþjónustu sem þurfi að bjóða upp á í fang- elsum landsins. En nú er aðeins Margrét: Ég á mér þann draum að einn sálfræðingur við störf hjá fangeisj a íslandi verði manneskju- legri og að þeir sem vinna í fangelsun- um geti betur sinnt þeim vandamálum sem afbrotamenn eiga við að stríða. Margrét. Það þurfi að stækka og efla réttargeðdeildina á Sogni þannig að hægt sé að bjóða upp á fjölbreyttari Fangelsismálastofnun og sinnir hann öllum fangelsunum. Það var til mikilla bóta þegar Fang- elsismálastofnun var komið á legg. En það hefur aldrei verið staðið við fjárframlög til stofnunar- innar né til fangelsa landsins”, segir læknisþjónustu en nú er. Hún telur að taka verði upp nánara samstarf við réttargeðdeildina á Sogni varðandi geðheilbrigðismeðferð fanga. í svömm dómsmálaráðherra kemur fram að laun fanga fyrir vinnu sem þeir stunda innan fangelsanna em frá 175 krónum til 700 króna á tímann. „í fangelsum em ekki staðin skil á launatengdum gjöldum, en á Kvía- bryggju er greitt gjald til verkalýðsfé- lagsins á staðnum,” segir í svömm ráðherra. Þama segir Margrét að um hreint lögbrot sé að ræða. Þar sem ekki séu greidd launatengd gjöld, öðl- ist fanginn heldur engin réttindi sem komi honum til góða, þegar hann hef- ur lokið refsivist sinni og byrjar að reyna að fóta sig utan fangelsisins. Þá segir Margrét undarlegt að við ákvörðun launa fanga sé stuðst við „verðmætamat vinnunnar”, án þess að það sé skilgreint nánar. Fangar hafa aðeins aðgang að góðri aðstöðu til líkamsþjálfunar á Litla- Hrauni. Annars staðar skortir vem- lega þar á. í heild er aðstaða fanga hvað vinnu, menntun, líkamsþjálfun og læknisþjónustu verst í Hegningar- húsinu og í fangelsinu á Akureyri. „Það er alveg ljóst að svör ráðherra staðfesta að það eru brotin lög á föng- um á íslandi, þó margt hafi verið fært til betri vegar á undanförnum ámm og vissulega tekið á hvað varðar upp- byggingu húsnæðis. Ég á mér þann draum að fangelsi á fslandi verði manneskjulegri og að þeir sem vinna í fangelsunum geti betur sinnt þeim vandamálum sem afbrotamenn eiga við að strfða. Það þarf að éfla mennt- un fangavarða og greiða þeim hærri laun. Þetta kostar peninga en skilar árangri til lengri tíma. Það er líka dýrt að fá niðurbrotna menn út úr fangels- unum. Menn sem koma jafnvel verri þaðan en þeir voru þegar þeir fóm inn,” segir Margrét Frímannsdóttir. -hmp Legstaður horf- inna manna Kristinn H. Gunnarsson, Einar Oddur Kristjánsson, Margrét Frí- .mannsdóttir og Hjálmar Jónsson hafa lagt fram fmmvarp um kirkju- garða, greftmn og líkbrennslu. I gildandi lögum er ekki að finna ákvæði er varða lík týndra eða horfinna manna. Þau teljast utan kirkjugarðs og þar með ekki í vígð- um reit. Með frumvarpi þessu er lagt til að úr þessu verði bætt og á þann hátt að legstaður horfinna manna teljist hluti af lögmætum kirkjugarði. Aðstandendum er þá sú huggun harmi gegn að líkin hvíla í vígðum reit og unnt verður að koma upp minnismerki um hinn látna innan kirkjugarðs. Finnist lík verður heimilt að færa það til greftmnar eða brennslu innan þess kirkjugarðs sem það liggur í. Gert er ráð fyrir því að finnist lík horfins manns á íandi verði það undantekningarlaust fær til greftr- unar, en sé það á hafsbotni verði ekki skylt heldur fari eftir aðstæð- um hvort svo verði gert og geti þá legstaður verið áfram vígður reitur þótt fundinn sé. Sjómenn og gæsluskip Kristinn H. Gunnarsson hefur beint fyrirspum til samgönguráð- herra um endurskoðun slysabóta sjómanna. 1. Hvenær var skipuð nefnd samkvæmt ályktun Alþingis frá 7. maí 1994 til þess að endurskoða ákvæði siglingalaga, nr. 34/1985, um bótarétt sjómanna á íslenskum skipum vegna líf- eða líkamstjóns og hverjir em í nefndinni? 2. Hvert er verkefni nefndárinnar sam- j kvæmt erindisbréfi? 3. Hvað líðuri störfum nefndarinnar og hvenær er áætlað að hún skili af sér? 4. Ligg-; ur fyrir á þessari stundu hvert verði,! meginefni.tillagna nefndarinnar og ef svo er, hvert er' það? Þá hefur Steingrímur J. Sigfús- son beint fyrirspurn til dómsmála- ráðherra um endumýjun skipakosts Landhelgisgæslunnar. 1. Hváð líður undirbúningi að endurnýjun skipakosts Landhelgis- gæslunnar? 2. Ef þess að vænta að samið verði um smíði á nýju varð- skipi á þessu ári? 3. Hefur verið eða verður kannað sérstaklega hvort innlendar skipasmíðastöðvar geti annast smíði á nýjum gæslu- og björgunarskipum fyrir Land- helgisgæsluna? OKKAR FÓLK Ingunn Anna Jónas- dóttir kennari á Akranesi Ingunn er bæjar- fulltrúi og kennari við Fjölbrauta- skólann á Akranesi. Hún er gift Engilberti Guðmundssyni og eiga þau þrjú börn. Hún situr í mið- stjóm Alþýðubandalagsins og er fyrir þess hönd í stjóm Þróunar- 1 samvinnustofnunarinnar. „Allar lausar stundir hjá mér fara í Al- þýðubandalagið. Reyndar má segja að málefni þriðja heimsins séu númer eitt - ég bjó lengi í Afr- íku - og að Alþýðubandalagið komi í öðra sæti.” Þessa dagana er henni efst í huga að geta ekki leyft sér að vera á móti álveri vegna atvinnuleysis- ins. „Ég hef samúð með þeim sem era á móti álverinu, en mér er hugsað til atvinnumöguleika þeirra sem mér þykir vænt urn. Síðan hvílir þungt á mér þessi einkavæðingargeggjun og hinn vaxandi launamunur í þjóðfélag-

x

Vikublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.