Morgunblaðið - 13.01.2008, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. JANÚAR 2008 B 21
Félagsráðgjafi óskast á Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins
• Um er að ræða framtíðarstarf á fagsviði þroskahamlana. Starfshlutfall er
70% eða eftir samkomulagi.
• Félagsráðgjafi starfar í þverfaglegu teymi sem sinnir greiningu og ráðgjöf
vegna barna með þroskararaskanir, auk þátttöku í fræðslu og rannsóknum.
Um er að ræða fjölbreytt verkefni, s.s. þátttöku í snemmtækri íhlutun fyrir
ung börn með fatlanir og þjónustu við unglinga. Starfið fer fram í nánu
samstarfi við aðra fagaðila, fjölskyldur barnanna og þjónustuaðila.
• Umsækjendur þurfa að hafa réttindi sem löggiltir félagsráðgjafar og reynslu
af starfi með börnum og fjölskyldum. Nauðsynlegt er að viðkomandi búi yfir
hæfni í mannlegum samskiptum og sé tilbúinn til þátttöku í þverfaglegu
samstarfi.
• Laun greiðast skv. kjarasamningi og stofnanasamningi viðkomandi stéttarfélags
við ríkissjóð.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf, berist Greiningar- og
ráðgjafarstöð ríkisins, Digranesvegi 5, 200 Kópavogi, eða í tölvupósti á
greining@greining.is, fyrir 28. janúar nk.
Upplýsingar um starfið veitir sviðsstjóri fagsviðs þroskahamlana eða forstöðumaður
í síma 5108400 eða á tölvupósti tryggvi@greining.is eða stefan@greining.is
Félagsráðgjafi
Meginhlutverk Greiningar- og ráðgjafar-
stöðvar ríkisins er að stuðla að velferð
barna með fatlanir og önnur frávik í
taugaþroska og fjölskyldna þeirra í nútíð
og framtíð, m.a. með þverfaglegri
greiningu, ráðgjöf, fræðslu og rann-
sóknum á sviði fatlana.
Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins er
framsækin stofnun með fjölskylduvæna
starfsmannastefnu sem býður m.a. upp
á sveigjanlegan vinnutíma.
Nýir starfsmenn fá handleiðslu á
aðlögunartíma og er lögð áhersla á þróun
í starfi og tækifæri til sí- og endur-
menntunar.
Skrifstofa AA
Skrifstofumaður/kona
AA samtökin, Tjarnargötu 20, Reykjavík óska
eftir að ráða starfsmann í fullt starf frá 1. mars
2008. Í starfinu felast m.a. almenn skrifstofu-
störf, einfalt bókhald, samskipti við AA deildir
og erlend samskipti.
Leitað er eftir umsækjanda sem er óvirkur
alkahólisti með a.m.k. 5 ár samfellt án áfengis.
Viðkomandi þarf að hafa reynslu af skrifstofu-
störfum, tölvukunnáttu og nokkra bókhalds-
kunnáttu.
Einnig þarf umsækjandi að vera góður í mann-
legum samskiptum, vera vel ritfær á íslensku
og hafa góða enskukunnáttu.
Nánari upplýsingar í síma 899 0241.
Umsóknir með upplýsingum um menntun og
fyrri störf sendist í lokuðu umslagi til afgreiðslu
Mbl. fyrir 25. janúar n.k. merktar: ,,AA - 21065”
Stígamót vantar
starfskraft
Starfið á Stígamótum felst bæði í ráðgjöf við
fólk sem beitt hefur verið kynferðisofbeldi og í
pólitískri samfélagsvinnu. Boðið er upp á einka-
viðtöl og þátttöku í lokuðum sjálfshjálpar-
hópum.
Starfsemi Stígamóta er krefjandi, gefandi og
fjölbreytt grasrótarstarf sem byggir á kynjaðri
sýn á samfélagið. Samábyrgð, frumkvæði og
traust eru forsendur farsæls starfs með vanda-
söm mál. Í starfshópnum ríkir bæði áhugi og
starfsgleði sem mikilvægt er að varðveita.
Viðkomandi verður að hafa góða samskipta- og
samstarfshæfileika. Nám í félagsráðgjöf, lög-
fræði, kynjafræði eða skyldum fræðum er eftir-
sóknarvert, en reynsla af kynferðisofbeldi
veitir jafnframt dýrmætan skilning.
Við hvetjum alla með áhuga á starfsemi
Stígamóta til að sækja um.
Umsóknir sendist til Stígamóta, Hverfisgötu
115, 105 R., fyrir 25. janúar, merktar ”Starfs-
umsókn”. Öllum umsóknum verður svarað.