Morgunblaðið - 13.01.2008, Síða 26

Morgunblaðið - 13.01.2008, Síða 26
26 B SUNNUDAGUR 13. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ Fagmannleg skrif Textaskrif á ensku fyrir fyrirtæki á uppleið; viðskiptabréf, auglýsingar, almannatengslatexti og nákvæmur prófarkalestur. Fagmannleg og skjót vinnubrögð. Padraig Mara s. 846 5804. Viltu starfa hjá traustu fyrirtæki? Korngörðum 12 | 104 Reykjavík | sími 570 9800 | fax 570 9801 Lagermaður Við leitum að samviskusömum einstaklingi til fjölþættra starfa á lagernum okkar í Korngörðum. Lyftararéttindi æskileg. Bílstjóri Vegna aukinna verkefna þurfum við að bæta við okkur bílstjóra til að sinna útkeyrslu á höfuðborgarsvæðinu. Meiraprófs krafist. Fóðurblandan hf. var stofnuð árið 1960 og hefur um áratuga skeið verið leiðandi fyrirtæki í framleiðslu og sölu á kjarnfóðri fyrir íslenskt búfé. Á síðustu árum hefur fyrirtækið fært út kvíarnar og flytur nú einnig inn ýmsar rekstrarvörur fyrir landbúnað, og auk þess áburð sem er seldur undir merkjum Áburðarverksmiðjunnar. Höfuðstöðvar Fóðurblöndunnar eru við Korngarða í Reykjavík en á landsbyggðinni rekur fyrirtækið fjórar verslanir sem sérhæfa sig í sölu á vörum fyrir búrekstur. Nánari upplýsingar veitir Sverrir Baldursson í síma 896-3769 eða 570-9817. Umsóknir sendist á sverrir@fodur.is eða til Fóðurblöndunnar, Korngörðum 12, 104 Reykjavík. Starfsfólk óskast í afgreiðslu Vinnutími frá kl. 9-17:30. Einnig vantar skólafólk, eldra en 16 ára í létt hlutastörf. Umsóknir berist til augl.deildar Mbl. eða á box@mbl.is merktar: ,,Afgreiðsla - 21060 ’’. Útlendingar á heimleið  Einar Skúlason, for- stöðumaður Alþjóðahúss, segist hafa á tilfinningunni að meiri hreyfing sé á útlend- ingum sem hér hafa stundað vinnu en verið hefur und- anfarin ár. Margir séu á heim- leið, ekki bara útlendingar, sem starfað hafa við upp- byggingu álvers og virkjunar á Austurlandi. Einar segist ekki heyra frá útlendingum að þeir eigi erfiðara með að fá vinnu hér á landi þrátt fyrir umrót í efnahagsmálum. Hann segist hafa á tilfinning- unni að það séu fleiri að fara héðan en koma hingað og rek- ur það til þess að tækifærin séu kannski ekki eins mikil og áður var. Einar segir að tæki- færi séu að aukast fyrir fólk í Póllandi og það geti haft áhrif á fólk sem bundið er heima- högum sínum. Undanfarin ár hafa átján þúsund útlend- ingar komið til landsins, en oft gleymist það hins vegar í umræðunni að meirihluti þessa fólks er hér bara tíma- bundið og snýr síðan aftur eft- ir nokkurra mánaða eða miss- era vinnu. Í fyrrasumar voru fréttir í Póllandi um að hægt væri að fá vinnu á Íslandi við ýmis störf og voru þær að sögn Einars nokkuð ýktar. Það hefði til dæmis ekki fylgt sög- unni hvernig húsnæðisverð og almennt verðlag á Íslandi væri. Dýrari Sundagöng  Athugun Vegagerðarinnar á þeim kosti að Sundabraut verði lögð í jarðgöng hefur leitt í ljós að sú lausn er tæknilega möguleg en kostnaðurinn er hins vegar mun meiri en áður var talið, eða 24 milljarðar króna með vegtengingum. Jarðgangalausnin væri því um níu milljörðum króna dýrari kostur en svokölluð eyja- lausn. Þetta kemur fram á vef- síðu Vegagerðarinnar en þar segir að fyrir þennan mismun megi gera mislæg gatnamót Miklubrautar og Kringlumýr- arbrautar, leggja Miklubraut- ina í stokk vestur fyrir Löngu- hlíð og Kringlumýrarbraut í stokk suður fyrir Listabraut. Auk þess yrði rekstrarkostn- aður ganganna töluverður og mun meiri en til dæmis af Hvalfjarðargöngum, enda er í raun um tvenn Sundagöng að ræða og öryggiskröfur yrðu ríkari vegna margfalt meiri umferðar. Vegagerðin áætlar að rekstur Sundaganga myndi kosta að minnsta kosti 200 milljónum króna meira á ári en eyjalausnin. Vegagerðin segir afstöðu sína alveg skýra og nú sé komið að stjórn- málamönnum að taka af skar- ið um hvaða lausn verði valin og hvernig skipta eigi kostn- aðinum. Mikil fjölgun útkalla  Útköllum á þyrlur og flugvél Landhelgisgæslunnar fjölgaði verulega milli áranna 2006 og 2007. Árið 2007 voru útköll á loftför Landhelgisgæslunnar samtals 182 en voru 142 árið 2006. Þetta er um 28% heild- araukning milli ára, sem er töluvert meiri aukning en árin á undan. Frá árinu 2004 og fram til síðasta árs fjölgaði út- köllum flugdeildar jafnt, um 11% á ári. Af þessum 182 út- köllum voru 76 á láglendi, 54 útköll í óbyggðir, 52 útköll á sjó, þar af sex lengra út en 150 sjómílur. 121 ein- staklingur var fluttur í þess- um 182 útköllum í fyrra. Flutningur fólks er ekki nauð- synlegur í öllum útköllum þar sem oft er um að ræða leit- arflug eða annars konar að- stoð. Aukningin er nokkuð jöfn í leit og björgun annars vegar og sjúkraflutningi hins vegar. Óvíst um Reykjanesbraut  Ekki er enn komið í ljós hvort Eykt tekur að sér fram- hald verkefnis við tvöföldun Reykjanesbrautar, sem Jarð- vélar sögðu sig frá skömmu fyrir jól. Að sögn Jónasar Snæbjörnssonar, svæð- isstjóra suðvestursvæðis hjá Vegagerðinni, var Eykt ekki aðili að samningunum við Vegagerðina um verkið, held- ur undirverktaki hjá Jarð- vélum. Jónas segir ekki komið í ljós hvernig verkinu verði skilað og að það komi til álita að undirverktakarnir taki yfir. Að öðrum kosti verði efnt til nýs útboðs. Til stóð að verk- inu yrði skilað 15. júlí í sumar og Jónas segir ljóst að skila- fresturinn muni lengjast eitt- hvað. Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsd. Hreyfing Erlent vinnuafl virðist vera á heimlieið þótt ekki stafi það af slæmu atvinnuástandi hérlendis. Morgunblaðið/Rax Aukning Fleiri útköll voru hjá landhelgisgæslunni í fyrra en nokkru sinni áður. ATVINNA ÞETTA HELST ...

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.