Morgunblaðið - 13.02.2008, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 13.02.2008, Qupperneq 8
8 MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR HÁSKÓLAR landsins kynna laug- ardaginn 16. febrúar námsframboð sitt fyrir næsta skólaár. Kynningin fer fram á tveimur stöðum í borg- inni. Háskóli Íslands og Kenn- araháskóli Íslands verða á Há- skólatorgi Háskólans og í Ráðhúsi Reykjavíkur verða Háskólinn á Ak- ureyri, Háskólinn á Bifröst, Háskól- inn á Hólum, Háskólinn í Reykja- vík, Landbúnaðarháskóli Íslands og Listaháskóli Íslands. Í Norræna húsinu verður á sama tíma boðið upp á kynningu á framhaldsnámi í Danmörku. Nemendur háskólanna, kennarar og námsráðgjafar, taka á móti gest- um, miðla af reynslu sinni og veita allar upplýsingar um námsleiðir í boði. Einnig verður kynnt margs- konar þjónustustarfsemi við nem- endur. Búast má við því að yfir þrjú þúsund gestir sæki námskynningu háskólanna þennan dag því fjöl- margir óski eftir því að fá þá per- sónulegu ráðgjöf sem þarna býðst. Margir gestanna eru að taka ein- hverja stærstu ákvörðun ævinnar, segir í tilkynningu. Möguleikarnir eru margir og máli skiptir að vanda valið. Gott tækifæri gefst til þess á þessum sameiginlega kynning- ardegi þar sem kynntar verða yfir fimm hundruð námsleiðir. Allir háskólar landsins kynna námsframboð næsta skólaárs Árvakur/Þorkell Yfir 500 námsleiðir Margir mögu- leikar eru í boði í háskólunum. BÆJARRÁÐ Álftaness samþykkti á síðasta fundi sínum að beina þeim til- mælum til samgöngu- nefndar Alþingis að mæla með að í lögum um sam- gönguáætlun verði fé til lag- færinga og breytinga þjóð- vega sem liggja að miðsvæði Álftaness í samræmi við til- lögur sveitarfélagsins sem kynntar hafa verið Vega- gerðinni. Tillögurnar miða að því að Norðurnesvegur og Suð- urnesvegur verði lagaðir að kröfum sem gerðar eru um vegi við miðbæ. Áhersla verði lögð á umferðaröryggi og frágang sem uppfyllir kröfur um um- hverfismál, að því er fram kemur á heimasíðu bæjarins. Vegir á Álftanesi lagaðir að kröfum um vegi við miðbæ Árvakur/Kristinn ORKUSPARNAÐUR með aukinni tækni er þema nátt- úru- og umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs árið 2008. Verðlaunin, sem eru jafnvirði rúmlega 4,5 milljón króna eru ein af fjórum sem Norðurlandaráð veitir á hverju ári, önnur eru bókmenntaverðlaunin, kvikmyndaverðlaun og tónlistarverðlaun. Umhverfisverðlaunin eru veitt fyrir norræna fram- leiðslu, uppfinningu eða þjónustu sem stuðlar að orku- sparnaði. Verðlaunin eru veitt fyrirtæki, stofnun, samtökum eða einstaklingi. Allir geta sent tilnefningu til verðlaunanna. Frestur til þess rennur út 25. apríl næstkomandi. Norræn umhverfisverðlaun RÖÐ erinda um ástina hefst á morgun, fimmtudag, í Bókasafni Kópavogs, Hamraborg 6. Nokkrir þekktir einstaklingar tala um ástina hver frá sínu sjónarhorni. Erindin verða flutt á fimmtudögum kl. 17.15 og eru u.þ.b. klukkustund með fyrirspurnum og umræðum. Sólveig Anna Bóasdóttir hefur leikinn 14. febrúar, á degi heilags Valentínusar, og talar um ýmsar myndir ástarinnar. 21. febrúar talar Guðfinna Eydal um ást- ina í samböndum, 28. febrúar fræðir Þorgrímur Þrá- insson um hvernig á að gera makann hamingjusaman, 6. mars birtir Katrín Jónsdóttir svipmyndir úr ást- arsögu samkynhneigðra og 13. mars lýkur Óttar Guð- mundsson röðinni og talar um ástina og dauðann. Er- indin verða flutt í Kórnum, sal á 1. hæð Bókasafnsins í Hamraborg 6a. Aðgangur er ókeypis. Röð erinda um ástina Ást Í einu erindanna verður brugðið upp svipmyndum úr ástar- sögu samkynhneigðra. DANIEL Sävborg flytur opinn fyr- irlestur í fyrirlestrarsal Þjóðminja- safnsins fimmtudaginn 14. febrúar, kl. 16.15 á vegum Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræð- um. Fyrirlesturinn fjallar um til- finningar í Íslendingasögum og verður fluttur á sænsku. Daniel Sävborg (f. 1965) lauk doktorsprófi árið 1997 og ber dokt- orsritgerð hans heitið Sorg och elegi I Eddans hjältediktning. Hann gegnir um þessar mundir rann- sóknarstöðu Sigurðar Nordals við Stofnun Árna Magnússonar þar sem hann vinnur að rannsóknum á Íslendingasögum. Nánar á: www.arnastofnun.is Tilfinningar í Íslendingasögum FÉLÖGUM og hópum stendur til boða að taka að sér umsjón með hreinsun á átta skilgreindum svæð- um í Hafnarfirði. Hvert svæði skal hreinsað 10 sinnum á árinu og er áhersla lögð á hreinsun opinna svæða, sameignar bæjarbúa. Fyrir framlag sitt og þátttöku fá hópar styrk til starfseminnar. Leitast verður við að velja hópa með fjöl- breytilega starfsemi til verksins. Frekari upplýsingar og kort er að finna á www.hafnarfjordur.is/ umhverfisvaktin. Frestur til að skila inn umsóknum er til 15. febr- úar. Hópar standa umhverfisvakt í Hafnarfirði STUTT Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is NÝSTOFNAÐ einkafyrirtæki, Að- stoð og öryggi, hefur skrifað undir samning við Sjóvá um að veita við- skiptavinum tryggingafélagsins að- stoð við að fylla út tjónaskýrslur, lendi þeir í umferðaróhappi. Þetta á þó aðeins við ef ekki hafa orðið slys á fólki og þjónustan verður einungis í boði á höfuðborgarsvæðinu, a.m.k. til að byrja með. Þjónusta félagsins stendur öðrum tryggingafélögum til boða en Sjóvá er fyrsta félagið til að skrifa undir samstarfssamning. Engu máli skipt- ir hvort viðskiptavinur Sjóvár varð valdur að óhappinu eða ekki, þjón- ustan stendur honum til boða án endurgjalds. Fyrrverandi lögreglumenn Forstöðumaður Aðstoðar og ör- yggis er Ómar Þ. Pálmason sem hef- ur verið lögreglumaður í 20 ár, þar af 6½ ár í umferðardeild og 1½ ár í slysarannsóknardeild. Hann segir að reynslan sýni að fólki geti brugðið mjög mikið við að lenda í árekstri, jafnvel þótt engin meiðsl hafi orðið á fólki. Sumir séu fljótir að jafna sig og eigi ekki í nokkrum vanda við að fylla út tjónaskýrslu á réttan hátt en skýrslugerðin geti vafist töluvert fyrir öðrum. „Oft er það sterkari að- ilinn sem tekur stjórnina á vettvangi og getur með lagni haft áhrif á þann sem er ekki eins öruggur með sig,“ segir Ómar. Þannig geti hinn sterk- ari breytt atvikalýsingu sér í hag með þeim afleiðingum að hinn aðil- inn ber skarðan hlut frá borði, í það minnsta getur allt endað í hávaða- deilum. Með því að hringja í Aðstoð og öryggi sé hægt að komast hjá slíkum vandamálum. „En ég ítreka það að ef fólk er í einhverjum vafa um hvort lögregla þurfi að koma á staðinn, þá á að hringja í 112 og fá samband við Fjarskiptamiðstöð lög- reglunnar sem sker úr um hvort þörf sé á aðstoð lögreglu,“ segir hann. Til að byrja með verður Aðstoð og öryggi með tvo bíla á sínum snærum og í þeim báðum verða reyndir, fyrr- verandi lögreglumenn. Ómar kveðst leggja mikla áherslu á að einungis menntaðir lögreglumenn sinni starf- inu. Þeir hafi reynslu af því að meta ástæður slysa, teikna slysavettvang og tryggja öryggi vegfaranda. Þá verði þeir algjörlega hlutlausir – engu skipti hvaða ökumaður sé við- skiptavinur Sjóvár og hver sé í við- skiptum við keppinauta. Spurður hvort Aðstoð og öryggi sé ekki að fara inn á starfssvið lögreglu, segir Ómar að það sé ekki meðal lög- bundinna verkefna lögreglu að sinna minni háttar umferðaróhöppum. Þá hafi lögreglan á höfuðborgarsvæðinu á síðustu misserum verulega dregið úr þessari þjónustu og þess í stað einbeitt sér að alvarlegri málum. Raunar hafi hugmyndin að því að stofna fyrirtækið kviknað þegar hann varð þess var að yfirmenn í lög- reglunni vildu reyna að fækka út- köllum vegna minni háttar umferð- aróhappa. Með því að semja við Aðstoð og öryggi gefi Sjóvá lögreglu ákveðið svigrúm til að sinna mikil- vægari störfum. Sigurjón Andrésson, markaðs- stjóri Sjóvár, segir það hag félagsins og viðskiptavina að tjónaskýrslur séu sem allra best úr garði gerðar. Félagið vilji með samningum við Að- stoð og öryggi bæta þjónustuna og öryggi viðskiptavina sinna. Aðstoð og öryggi við að fylla út tjónaskýrslu Árvakur/Júlíus Hjálplegir Aðstoð og öryggi tekur til starfa 15. febrúar nk. Þjónustan er í boði á höfuðborgarsvæðinu, a.m.k. til að byrja með. Síminn er 578 9090. Í HNOTSKURN » Starfsmenn Aðstoðar og ör-yggis skrifa upp tjónaskýrslu á rafrænt form og taka ljós- myndir af vettvangi. » Skýrslan er síðan send tilviðkomandi tryggingafélaga með rafrænum hætti. » Tafir vegna þess að annarhvor aðilinn skilar ekki skýrslu eða skilar henni seint eru því úr sögunni. Deilur vegna mis- skilnings við útfyllingu á skýrsl- unni ættu einnig að minnka. Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is VGK-HÖNNUN hefur kynnt starfs- mönnum sínum samgöngustefnu fyrirtækisins þar sem starfsmenn eru hvattir til að velja sér annan ferðamáta en að aka einir í bíl til og frá vinnu með það að leiðarljósi að bæta umhverfi, borgarbrag og heilsu íbúa höfuðborgarsvæðisins sem og annars staðar. Markmiðið er að uppfylla ferðaþörf starfsmanna á hagkvæman og vistvænan hátt. Þorsteinn B. Hermannsson, um- ferðarverkfræðingur og sviðsstjóri umferðar og skipulags hjá VGK- Hönnun segir að hugmyndin sé að bandarískri fyrirmynd. VGK-Hönn- un sé verkfræðistofa og ráðgjafafyr- irtæki sem hafi meðal annars unnið fyrir Reykjavíkurborg að sam- gönguskipulagi og greiningu á stöðu og stefnu í samgöngumálum í Reykjavík. Meðal annars hafi svo- nefndar mjúkar aðferðir verið skoð- aðar til að breyta ferðavenjum og minnka umferðarálag og fyrirtækið hafi viljað sýna gott fordæmi. Tæplega 300 manns starfa hjá fyrirtækinu og þar af um 220 í Reykjavík, en til að framfylgja stefnunni hefur verið ákveðið að gera tilraun með samgöngustyrki til starfsmanna fyrirtækisins í Reykja- vík. Ef starfsmenn, sem nýta sér vist- vænan ferðamáta, þurfa óvænt að ferðast í einkaerindum á vinnutíma, t.d. vegna veikinda barna, endur- greiðir VGK-Hönnun viðkomandi leigubílakostnað. Fyrirtækisbílar sem notaðir eru í innanbæjarakstri verða á ónegldum hjólbörðum. Auk þess fá starfsmenn fræðslu um vistakstur. Þorsteinn segir að viðbrögð hafi verið mjög jákvæð og hugmyndin fái fólk til þess að hugsa. Margir hafi skoðað sín mál og áberandi sé að fólk sé farið að samnýta bíla betur en áður. Þorsteinn bendir á að kostnaður sé ekki mikill miðað við það hvað kosti að byggja bílastæði, en sá kostnaður sé á bilinu frá hálfri milljón upp í 3,5 milljónir hvert stæði. Mörg strætókort megi kaupa fyrir þann pening. Starfsmennirnir ferðist ekki einir í bíl Morgunblaðið/Golli

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.