Morgunblaðið - 13.02.2008, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 2008 9
FRÉTTIR
KÖNNUN á vegum Barnaverndar-
stofu, svonefnd afdrifakönnun, hjá
unglingum sem dvöldu á Meðferðar-
og skólaheimilinu Háholti frá 1999-
2004 leiðir í ljós að eftir aðlögunar-
tíma sætta flestir unglingarnir sig
allvel við dvölina þar, þótt þeir vistist
þar langoftast gegn vilja sínum og af
illri nauðsyn.
Könnunina vann Jón Björnsson
sálfræðingur. Á Háholti fer fram
mesta gæsla allra meðferðarheimila
á vegum Barnaverndarstofu og þar
eru að öllu jöfnu erfiðustu ungling-
arnir sem Barnaverndarstofa ann-
ast. Unglingar á Háholti eiga oft að
baki langa sögu vandamála á borð
við vandræði í skóla, ósamkomulag á
heimili, fíkniefnaneyslu og afbrot.
Verulegur hluti þeirra á við athygl-
isbrest og ofvirkni að stríða. Könn-
unin leiðir í ljós að eftir aðlögunar-
tíma láta þeir yfirleitt vel af
starfsfólki, viðmóti í sinn garð, aga
og dagskrá.
Þá finnst foreldrum og unglingum
í flestum tilvikum að gagn hafi verið
að dvölinni. Þetta gagn fólst í ýmsu,
m.a. að unglingurinn var tekinn úr
umferð/neyslu og fékk tóm til að
taka út þroska og persónuleg tengsl.
Þá eru nefnd atriði á borð við ramma
og fastar skorður, auk þess sem
áfanga var lokið í skólanámi.
Flestir unglinganna töldu ekki að
þeir hefðu orðið fyrir slæmum áhrif-
um af öðrum unglingum sem voru
samtímis þeim á Háholti. Þetta töldu
hinsvegar margir unglingar að hefði
verið tilfellið í fyrri meðferðardvöl að
Stuðlum. Þegar unglingarnir voru
spurðir í könnuninni hvað/hver hefði
hjálpað best í erfiðleikum þeirra,
skipuðu þeir fagfólki ofar en fjöl-
skyldunni.
Sætta sig flestir við með-
ferðardvölina að Háholti
Í HNOTSKURN
»Könnunin náði til 51 ung-lings. Dvöl á Háholti ein og
sér varð ekki þess valdandi að
unglingarnir sneru frá villu síns
vegar, heldur tóku flestir upp
fyrri hætti fljótlega eftir út-
skrift. Margir leituðu þó ítrekað
eftir öðrum meðferðarúrræðum.
»Einn hluti hópsins náði góð-um árangri en brugðið gat til
beggja vona með annan hópinn.
Sá þriðji var í slæmum málum.
„VIÐ unnum ferð til Vegas. Í fyr-
irtækinu sem ég er að vinna hjá
var smákeppni í því hver gæti
hermt best eftir Elvis Presley,“
sagði Sveinbjörn Grétarsson, sem
í fyrradag var útnefndur Skyndi-
hjálparmaður ársins, ásamt syni
sínum Tómasi.
„Ég vil nú sérstaklega taka það
fram að ég hef hvorki fyrr né síð-
ar leikið Elvis,“ sagði Sveinbjörn
og hló við, „þetta var svona „one
time only“.“
Í verðlaun fyrir bestan Elvis
var sem sagt vikuferð með öllu til
Las Vegas og þar er hann núna
ásamt eiginkonu sinni, Guðrúnu
Hauksdóttur, en hann bjargaði
einmitt lífi hennar í september sl.
eftir að hún fékk hjartastopp.
Ferðalagið hófst í gær, morg-
uninn eftir að hann fékk útnefn-
inguna Skyndihjálparmaður árs-
ins.
„Við ákváðum að drífa okkur
bara í þetta áður en einhver ann-
ar fengi hjartaslag,“ sagði hann
glettinn. „Og við ætlum að gera
okkar besta í að tæma alla spila-
kassana.“ Sveinbjörn var þó ekki
í fyrsta sinn á sviði með gítarinn
þegar hann hermdi eftir Elvis í
fyrsta, og væntanlega síðasta,
sinn því hann er gamall Greifi,
var í húsvísku hljómsveitinni
Greifunum í árafjöld, og ætti því
að kunna tökin á gítarnum.
Elvis-eftir-
herma á leið
til Vegas
Innlifun Sveinbjörn Grétarsson, Skyndihjálparmaður ársins, hefur hvorki fyrr né síðar leikið Elvis.
Sveinbirni Grétarssyni, Skyndihjálparmanni ársins, er ýmislegt til lista lagt
SJÖ réttindalausir ökumenn, allt
karlar, voru stöðvaðir á höfuðborg-
arsvæðinu um helgina. Fimm
þeirra reyndust hafa verið sviptir
ökuleyfi og tveir höfðu aldrei öðlast
ökuréttindi. Ökumennirnir eru á
ýmsum aldri en sá elsti í hópnum er
á níræðisaldri og hefur áður gerst
sekur um umferðarlagabrot.
Þá voru 12 ökumenn teknir fyrir
ölvunarakstur á höfuðborgarsvæð-
inu. Þetta voru allt karlmenn á
aldrinum 17-50 ára. Fjórir í þessum
hópi eru undir tvítugu og jafn-
margir eru á þrítugsaldri.
Réttindalaus
ökumaður á
níræðisaldri
ÞÓRARINN Ingi Pétursson í Lauf-
ási hefur jörðina til 15. nóvember
samkvæmt ákvörðun stjórnar prests-
setra. Í samtali við Morgunblaðið
sagði Þórarinn of snemmt að ákveða
hvort hann myndi bregða búi en hann
er með 600 fjár. Þórarinn kvaðst helst
af öllu vilja geta farið annað með bú-
skapinn, en varnarlínur sauðfjárvei-
kivarna valda því að hann getur ekki
flutt hvert sem er með kindurnar sín-
ar.
Lárus Ægir Guðmundsson, for-
maður stjórnar prestssetra, sagði að
Þórarinn hefði óskað eftir því við
stjórn prestssetra að fá að sitja jörð-
ina til loka sláturtíðar og að færanlegt
hús sem hann býr í fengi að standa
þann tíma. Lárus sagði að stjórn
prestssetra hefði samþykkt að verða
við þessu og að tímamörk miðuðust
við 15. nóvember næstkomandi.
Lárus sagði að beiðnin hefði borist
fyrir nokkrum dögum og stjórn
prestssetra samþykkt hana síðastlið-
inn föstudag. „Ég veit ekki annað en
að mál séu í góðum farvegi núna,“
sagði Lárus.
Þórarinn
flytur úr
Laufási
Situr jörðina til 15.
nóvember í haust
ÞAÐ er góður siður að moka gang-
stéttir þannig að gangandi vegfar-
endur þurfi ekki klofa snjóinn eða
hrekjast út á götur, með tilheyr-
andi hættu á að verða fyrir bíl.
Það er því fremur öfugsnúið að
við leikskólann Grænuborg á Skóla-
vörðuholti hafi einhver tekið sig til
og rutt snjó í haug uppi á miðri
gangstétt og þar með gert gang-
stéttina ófæra fyrir flesta. Þarna
hefur skaflinn staðið í nokkra daga.
Gangandi vegfarendur hafa því
þurft að sneiða fram hjá skaflinum
með því að ganga út á götu. Gang-
stéttin er á hinn bóginn ágætlega
greiðfær beggja vegna skaflsins.
Hjá Reykjavíkurborg fengust
þær upplýsingar síðdegis í gær að
málið yrði skoðað.
Svo er bara að sjá hvort hlákan
sem er í veðurkortunum verði fljót-
ari til að bræða skaflinn en borgin
að færa hann.
Gangstéttin ófær
en gatan er greið
Árvakur/Frikki
VEGNA frétta um smásöluverð á
lyfjum á Íslandi árétta SVÞ – Sam-
tök verslunar og þjónustu að Lyfja-
greiðslunefnd ríkisins ákveður smá-
söluverðið en ekki smásalarnir.
Lyfsalar hafa líka hvatt til aukins
innflutnings samheitalyfja til að
auka samkeppni og lækka lyfja-
kostnað, segir m.a. í tilkynningu frá
samtökunum.
Samanburður lyfjagreiðslunefnd-
ar á verði lyfja á Íslandi og annars
staðar á Norðurlöndum sýnir að
smásöluálagning á Íslandi er hærri
hér á landi en ytra þó að heildsölu-
álagning sé svipuð.
Sum umfjöllun fjölmiðla hefur
verið þannig að ætla má að apótek
ákveði sér háa álagningu og skirrist
við að kaupa inn samheitalyf sem eru
ódýrari en frumlyf. Hið rétta er að
það er nefnd á vegum ríkisins, lyfja-
greiðslunefnd, sem ákveður bæði
heild- og smásöluverð lyfja. Lyfsalar
flytja ekki inn lyf sjálfir og myndu
gjarnan vilja sjá fleiri samheitalyf á
markaði hér. Einnig skal áréttað að
kannanir hafa sýnt að lyfjaverð út úr
apótekum er að meðaltali 8% lægra
hér en í Danmörku, svipað hér og í
Svíþjóð en 5-6% hærra hér en í Nor-
egi og Finnlandi, segir ennfremur.
Nefndin
ákveður
verðið
Opið virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• Sími 581 2141
Verðhrun
minnst 60% afsláttur
Rýmingarsala í 3 daga
Allt að 90% afsláttur
Freemans/Clamal • Reykjavíkurvegi 66 • Hafnarfjörður • S: 565 3900
Fyrstir
koma
fyrstir
fá!
Laugavegi 63 • S: 551 4422
ÚTSÖLULOK
VERÐHRUN
♦♦♦