Morgunblaðið - 13.02.2008, Side 14
14 MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
MARGT af fátækasta fólkinu víða
um heim hefur ekki lengur efni á að
kaupa sér mat vegna þess hve verðið
hefur hækkað mikið. Eru fyrir því
ýmsar ástæður, meðal annars minni
uppskera vegna mikilla veðurskaða,
aukin ásókn í alls konar jarðargróða
til eldsneytisframleiðslu og vaxandi
eftirspurn eftir matvælum.
„Hungruðu fólki hefur fjölgað
mikið,“ segir Josette Sheeran, fram-
kvæmdastjóri Matvælaáætlunar
Sameinuðu þjóðanna, WFP. „Í
fyrsta sinn hefur það beinlínis verið
verðlagt út af markaðnum.“ Sagði
hún, að horfurnar væru ekki bjartar.
Fyrir utan einstaklega erfitt tíðarfar
víða hefði verðhækkun á olíu þau
áhrif að allur tilkostnaður við mat-
vælaframleiðslu hefði stórhækkað
og ætti líklega eftir að hækka mikið
enn. Reksturinn væri allur dýrari og
verð á áburði hefði rokið upp úr öllu
valdi.
Sheeran sagði að hlutfallslega
sama aðstoð WFP nú, hrykki ekki
nema fyrir 60% af því, sem hún dugði
fyrir 2003.
Hjá WFP er nú verið að meta
ástandið í 30 ríkjum þar sem hung-
urvofan er hvað ágengust en í sum-
um þeirra er að skapast neyðar-
ástand vegna þess, að stjórnvöld
hafa ekki lengur fjármagn til að
flytja inn næg matvæli. Minnti
Sheeran á, að meðal afleiðinga hung-
ursins væri vaxandi ókyrrð, upp-
reisnir og átök.
Erfitt tíðarfar er oft rakið til gróð-
urhúsaáhrifanna svokölluðu, hækk-
andi hitastigs um allan heim, og nú
er því spáð, að aukinn lofthiti muni
margfalda skordýraplágur með al-
varlegum afleiðingum fyrir alla
ræktun. Rannsóknir á laufi og öðrum
gróðurleifum frá hlýskeiði fyrir 56
millj. ára beri glögglega merki um
mikinn skaða af völdum skordýra.
Verðhækkanir auka á
hungur víða um heim
BRÚÐIR fara með bæn í fjöldabrúðkaupi í Karachi í
Pakistan í gær. Yfirvöld skipulögðu og greiddu fyrir
athöfnina til að hlaupa undir bagga með fátæku fólki
sem hefur ekki efni á brúðkaupi.
AP
Fátæku fólki hjálpað í hjónaband
DANSKA lögreglan handtók í
gærmorgun í Árósum og ná-
grenni þrjá menn, múslíma, sem
grunaðir eru um að hafa lagt á
ráðin um að myrða danska teikn-
arann Kurt Westergaard, einn af
höfundum hinna umdeildu Mú-
hameðsmynda.
Haft er eftir Jakob Scharf, yf-
irmanni PET, dönsku leyniþjón-
ustunnar, að fylgst hafi verið
með mönnunum í alllangan tíma
en nú hafi verið látið til skarar
skríða til að koma í veg fyrir, að
þeir létu verða af áformunum.
Westergaard er einn af 12 höf-
undum teikninga af Múhameð,
spámanni múslíma, sem birtar
voru í Jyllands-Posten 30. sept-
ember 2005. Lét lögreglan hann
vita af ráðabrugginu fyrir þrem-
ur mánuðum og síðan hafa hann
og kona hans notið sérstakrar
gæslu og oft þurft að skipta um
aðsetur, sem reynt er að halda
leyndu.
Í Jyllands-Posten kemur fram,
að búið hafi verið að útfæra
morðáætlunina mjög nákvæmlega
en til stóð að myrða Westergaard
á heimili sínu. Segir blaðið, að í
samsærishópnum hafi verið
danskir og erlendir ríkisborg-
arar.
Múhameðsmyndirnar ollu heil-
miklu uppnámi í mörgum löndum
múslíma og miklum hatursáróðri
gegn Dönum. Fór teikning West-
ergaards ekki síst fyrir brjóstið á
þeim en hún var af spámanninum
með sprengju í túrbaninum. Með
því vildi hann segja, að margir
notuðu hann og trúna til að rétt-
læta hryðjuverk en múslímar
skildu teikninguna þannig, að
verið væri að stimpla Múhameð,
spámann þeirra, sem hryðju-
verkamann.
Hugðust myrða einn af höf-
undum Múhameðsmynda
PÓLSKI presturinn Andrzej Trojanowski hyggst koma
upp „andlegum griðastað“ sem hann lýsir sem einu evr-
ópsku miðstöðinni sem helguð sé særingum.
Pólskur erkibiskup hefur lagt blessun sína yfir sær-
ingamiðstöðina. Trojanowski segir að markmiðið sé að
hjálpa fólki sem haldið sé illum öndum eða jafnvel djöfl-
inum sjálfum.
Um 70 kaþólskir prestar stunda særingar í Póllandi
og þeim hefur fjölgað um helming á fimm árum. Talið er
að um 300 særingamenn starfi innan kaþólsku kirkj-
unnar á Ítalíu.
Kaþólskur háskóli í Róm hóf kennslu í særingum árið
2005. Um sex árum áður gaf Páfagarður út fyrstu helgisiðabókina um
andasæringar frá árinu 1614.
„Fólk fer ekki lengur með bænir, fer ekki í kirkju og skriftar ekki. Það
er djöflinum auðveld bráð,“ sagði Gabriele Amarth, 82 ára prestur sem
rekur út illa anda á hverjum degi í Róm.
Kaþólskum særingamönnum
vex fiskur um hrygg
Andrzej
Trojanowski
MANNRÉTTINDASAMTÖK hafa
gagnrýnt fyrirkomulag rétt-
arhalda yfir sex föngum sem
bandaríska varnarmálaráðuneytið
ákærði í tengslum við hryðjuverk-
in í Bandaríkjunum 11. september
2001.
Fangarnir eiga að koma fyrir
sérstakan herrétt, sem sætt hefur
gagnrýni samtakanna. Þau efast
um að rétturinn verði hlutlaus og
sanngjarn og óttast að lagðar
verði fram upplýsingar sem knún-
ar hafi verið fram með pynt-
ingum.
Bandaríska leyniþjónustan CIA
hefur viðurkennt að hafa beitt
vatnspyntingum við yfirheyrslur
yfir einum fanganna, Khalid
Sheikh Mohammed, sem játaði að
hann hefði skipulagt hryðjuverkin.
Mannréttindasamtökin Human
Rights Watch sögðu að sækja bæri
meinta skipuleggjendur hryðju-
verkanna til saka en ekki með fyr-
irkomulagi sem væri ekki trúverð-
ugt. „Lausnin getur ekki falist í
því að dæma mann til dauða á
grundvelli upplýsinga sem fengust
með vatnspyntingum,“ sagði lög-
fræðingur samtakanna, Jennifer
Daskal.
Efast um að herrétturinn
verði hlutlaus og sanngjarn
9 ) :;
* 48/'
)
' 2:
'
+'
:: : <" '
,)=
:
:
') = '
:
')
9 )
( 2+(
' 2 3 4 5 2 6 ( ' 7
!"#
$$ % !&'
(
)
%*
+ ,
-". ))
)/!,"
+
+
)
!
0
%
1*
+
,
2
*
3
)
* !
4
607>5?@A0
STUTT