Morgunblaðið - 13.02.2008, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 13.02.2008, Qupperneq 16
16 MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Reykjavík | Mislæg gatnamót Kringlumýrarbrautar og Miklubraut- ar eru aftur komin á dagskrá borg- aryfirvalda eftir nýjustu meirihluta- skiptin. Engar ákvarðanir hafa verið teknar en í haust lágu fyrir frumdrög að skýrslu um gatnamót á þremur hæðum og aðliggjandi stokka. Hug- myndin er að setja hluta umferðar um Kringlumýrarbraut í stokk frá því sunnan við Listabraut og norður fyrir Miklubraut en nærumferð verður á yfirborði. Lagt er til að Miklabrautin verði í stokki frá Stakkahlíð og vestur fyrir Rauðarárstíg. Ofan á stokknum verður gata á yfirborði með gatnamót við Stakkahlíð, Lönguhlíð, Reykjahlíð og Rauðarárstíg. Á gatnamótum Kringlumýrar- brautar og Miklubrautar er gert ráð fyrir þriggja hæða gatnamótum þar sem bæði Kringlumýrarbraut og Miklabraut eru í fríu flæði, en allir beygjustraumar um hringtorg. Kringlumýrarbraut liggur neðst, allt að 10 m neðan við núverandi land, í lokuðum stokki. Miklabraut er niður- grafin um u.þ.b. 4 m og efst er hring- torgið í 2 til 2,5 m hæð yfir núverandi landi. Heildarlengd stokksins í Kringlu- mýrarbraut verðu um 650 m og lengd stokks í Miklubraut, sem hugmyndin er að nái allt vestur fyrir Rauðarár- stíg, verður um 700 m. Reiknað er með litlum hringtorgum við Reykja- hlíð og Rauðarárstíg og e.t.v. gatna- mótum við Eskihlíð og/eða Skógar- hlíð. Framkvæmdirnar skiptast sam- kvæmt frumdrögum í þrjá aðskilda áfanga. Stærsti áfanginn er mislægu gatnamótin ásamt stokknum í Kringlumýrarbraut til suðurs ásamt breiðgötunni á yfirborði. Næsti áfangi er gerð stokks í Miklubraut milli Stakkahlíðar og Lönguhlíðar með tengingu við núverandi Miklu- braut við Miklatún. Einnig gerð yf- irborðsgötu og gatnamóta við Stakkahlíð og Lönguhlíð. Síðasti áfanginn er svo að lengja stokkinn í Miklubraut vestur fyrir gatnamótin við Rauðarárstíg og yfirborðsgata sem tengist vestur á Bústaðaveg. Einnig gatnamót við Reykjahlíð, Rauðarárstíg og e.t.v. Eskihlíð og Skógarhlíð. Aðgerðir á framkvæmdatíma eru mjög viðamiklar, m.a. þarf að flytja Kringlumýrarbrautina inn á bíla- stæðin við Hús verslunarinnar á með- an stokkurinn er gerður og færa gatnamótin við Miklubraut til. Heildarkostnaður við framkvæmd- ina hefur gróflega verið áætlaður 12,2 milljarðar króna. Mislæg gatna- mót á dagskrá Mynd/Línuhönnun hf. – Onno ehf. Hringtorg Samkvæmt tillögu verður gata ofan á Miklabrautarstokki og hringtorg á gatnamótum við Lönguhlíð. Heildarkostnaður við framkvæmdina er áætlaður 12,2 milljarðar króna Í HNOTSKURN »Gatnamót Miklubrautar ogKringlumýrarbrautar eru fjölförnustu gatnamót landsins með um 80-85 þús. bíla umferð á sólarhring. »Þar hefur einnig kostnaðurvegna umferðaróhappa verið einna hæstur á höfuðborg- arsvæðinu. Þrjár hæðir Samkvæmt tillögu að mislægum gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar verður hring- torgið 2,5 m hærra en núverandi gatnamót. Umferðin verður svo í frjálsu flæði til allra átta neðanjarðar. Eftir Skapta Hallgrímsson skapti@mbl.is FÓLKIÐ í Stærri-Árskógi í Dalvík- urbyggð brosti breitt í gærmorgun þegar mjólkurbíll kom þangað í fyrsta skipti eftir stórbrunann í haust. Hjónin Guðmundur Jónsson og Freydís Inga Bóasdóttir af- greiddu þar með mjólk í fyrsta skipti síðan þá og við sama tækifæri afhenti MS þeim hjónum viðurkenn- ingu fyrir stórhug og dugnað við uppbyggingu í kjölfar brunans, en rösklega þriðjungur af fyrirhugaðri aðstöðu hefur þegar verið byggður upp. Stór stund „Já, þetta er stór stund. Mér líður mjög vel í dag,“ sagði Guðmundur bóndi í samtali við Morgunblaðið í gær. Líf mjólkurbóndans snýst um að geta afgreitt mjólk, eins og hann sagði, og dagurinn var því langþráð- ur. Samt er ekki svo langt liðið frá brunanum – „eiginlega alveg ótrú- lega stutt,“ sagði Guðmundur. Hann er nú með 23 mjólkandi kýr í fjósi, og alls 33 gripi. „Ég verð kominn með 55 kýr í fjós strax í næstu viku og verð þá með 40 mjólkandi fljótlega.“ Allir gripirnir í fjósinu nú eru „aðfluttir“ en sá fyrsti „innfæddi“ leit dagsins ljós um síðustu helgi. Það er kvíga sem skírð var Sokka, enda er hún er kolsvört nema snjó- hvít neðst á tveimur löppum. Guðmundur sagði næsta hús komið á teikniborðið og stefnir að því að byggja það í sumar. Fyrir brunann var hann með 55-60 mjólk- urkýr og 70 alls, en stefnir að því að þær verði 110 í framtíðinni. „Ég var líka í nautakjötsframleiðslu en er að hugsa um að hætta því og snúa mér alfarið að mjólkurframleiðslunni,“ sagði hann í gær. Það væri reyndar ekki alveg öruggt en hugur hans stæði til þess. En hvað hægt yrði að framkvæma færi eftir ýmsu. „Til dæmis því hvað ég fæ mikið út úr tryggingunum og hvernig mér gengur að afla frekara fjár. Það er frekar erfitt að fara í bankana núna.“ Sigurður R. Friðjónsson, sam- lagsstjóri MS á Akureyri, var ánægður í gær eins og aðrir við- staddir. Afrek „Þetta er sannarlega stór dagur og ánægjulegur, fyrst og fremst fyr- ir ábúendur í Stærri-Árskógi og um leið fyrir íslenska mjólkurfram- leiðslu. Hér hafði verið byggt upp af krafti þegar bruninn varð hinn 17. nóvember síðastliðinn og því var það stór ákvörðun að leggja í upp- byggingu að nýju. Það að standa hér í dag, innan við þremur mán- uðum eftir brunann og taka við fyrstu mjólk til vinnslu sýnir mikið afrek af hálfu ábúendanna. Fyrir þennan kraft, dug og áræði veitum við þeim Guðmundi og Freydísi Ingu viðurkenningu í dag, bæði fyrri hönd MS og ég veit að ég tala um leið fyrir hönd annarra íslenskra mjólkurframleiðenda,“ sagði Sig- urður þegar hann ávarpaði við- stadda í bráðabirgðamjólkurhúsi þeirra hjóna við hlið nýja fjóssins. „Okkur hjá MS er mikilvægt að hafa að baki fyrirtækinu öfluga framleiðendur, líkt og hér í Stærri- Árskógi. Okkar ósk er sú að hér dafni blómleg mjólkurframleiðsla sem lengst í höndum áhugasamra og metnaðarfullra bænda,“ sagði Sigurður Rúnar. Hann afhenti síðan þeim hjónum listaverk í tilefni dags- ins, postulínskú með árituðum silf- urskildi. Ánægjulegur dagur í Stærri-Árskógi Árvakur/Skapti Hallgrímsson Sá fyrsti „innfæddi“ Hjónin og bændurnir Guðmundur Jónsson og Freydís Inga Bóasdóttir og dóttirin Bríet Una í nýja fjósinu í gærmorgun ásmt Sokku; fyrsta kálfinum sem fæddist þar. Aðrir gripir í húsinu eru aðfluttir. Af stað Sigurður R. Friðjónsson samlagsstjóri, Guðmundur Steindórsson ráðunautur, Kristján Gunnarsson mjólkureftirlitsmaður, Eiður Stein- grímsson mjólkurbílstjóri, Freydís og Guðmundur og dóttirin Bríet Una. Í HNOTSKURN »Öll útihúsin á Stærri-Árskógieyðilögðust í stórbruna laug- ardagskvöldið 17. nóvember síð- astliðinn. Guðmundur Jónsson keypti búið 1999 og hafði byggt það upp smám saman og fjósið var mjög tæknivætt. Megnið af bústofni hans drapst, hátt í 200 nautgripir. Mjólk afgreidd í fyrsta skipti eftir stórbrunann AKUREYRI

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.