Morgunblaðið - 13.02.2008, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 2008 17
Reykjanesbraut | Starfsmenn
Vegagerðarinnar eru að laga
merkingar og þrengingar við fram-
kvæmdasvæði Reykjanesbraut-
arinnar. Reiknað er með að útboð á
þeim hluta framkvæmdanna við
tvöföldun sem eftir er verði auglýst
í byrjun næsta mánaðar.
Umferðin hefur gengið illa um
framkvæmdasvæði Reykjanes-
brautarinnar í óveðursköflunum að
undanförnu, óhöpp hafa orðið og
vegurinn lokast vegna blindu og
snjósöfnunar. Vegagerðin tók yfir
umsjón með merkingum í desember
þegar verktaki tvöföldunarinnar
sagði sig frá verkinu. Jónas Snæ-
björnsson, svæðisstjóri Vegagerð-
arinnar, segir að steinsteypublokk-
irnar sem notaðar eru í
þrengingum við framkvæmdasvæð-
ið safni að sér snjó og valdi erf-
iðleikum fyrir umferðina. Vega-
gerðin vildi létta merkingarnar
með því að færa blokkirnar lengra
frá og koma upp léttari skiltum.
Verið sé að vinna að því.
Að sögn Jónasar verður lögð
áhersla á það þegar framkvæmdir
hefjast að nýju að lokið verði við
gatnamótin við Vogaafleggjara og
býst hann við að á vormánuðum
verði hægt að hleypa umferð á tvö-
falda kaflann alveg að Grindavík-
urvegi.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Létta merk-
ingar á
brautinni
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
Reykjanesbær | „Grunnskólanem-
um sem þurfa aðstoð við íslensku
sem annað mál hefur fjölgað mikið,
sérstaklega í vetur enda hefur fjölg-
að mikið í bænum,“ segir Dröfn
Rafnsdóttir sem tók til starfa sem
kennsluráðgjafi hjá sérfræðiþjón-
ustu Fræðsluskrifstofu Reykjanes-
bæjar um áramótin. Hlutverk henn-
ar er að skipuleggja móttöku og
íslenskukennslu barna innflytjenda.
Nú fá liðlega 140 nemendur
grunnskóla Reykjanesbæjar
kennslu í íslensku sem öðru tungu-
máli. Eru það um 7% allra grunn-
skólanemenda sem eru liðlega tvö
þúsund talsins. Á undanförnum ár-
um hafa flest börn innflytjenda ver-
ið í Myllubakkaskóla þar sem rekin
hefur verið sérstök deild fyrir ís-
lenskunám og lögun að samfélaginu.
Dröfn Rafnsdóttir tók þátt í að
byggja upp þessa deild eftir að
Reykjanesbær tók við hópi flótta-
manna frá ríkjum fyrrum Júgóslav-
íu. Flestir innflytjendurnir settust
að í miðbænum og börnin sækja því
nám í Myllubakkaskóla.
Dreifast meira um bæinn
Dröfn segir að sú breyting hafi
nú orðið að börn innflytjenda dreif-
ist meira á alla skóla bæjarins. Í
skólum þar sem áður voru örfáir
einstaklingar sem þurftu aðstoð við
íslenskuna séu þeir nú orðnir yfir
tuttugu. Í yngsta og fámennasta
skóla bæjarins, Akurskóla, eru nú
fimmtán börn sem fá aðstoð við ís-
lensku sem annað mál. Nemend-
urnir sem þurfa aðstoð við íslensk-
una eru ekki endilega börn úr
hefðbundnum fjölskyldum innflytj-
enda sem eru að flytjast til lands-
ins. Dröfn segir að talsvert sé um
að fólk af erlendu bergi brotið sé að
flytja úr öðrum landshlutum og svo
sé áberandi mikið um að fólk sem
sé að snúa heim úr námi eða starfi
erlendis setjist að í Reykjanesbæ.
„Þetta lífgar upp á samfélagið og
eykur fjölbreytnina. En börnin
þurfa aðstoð, sérstaklega þau börn
sem hafa verið í skóla erlendis í
nokkur ár,“ segir Dröfn. Sjálf hefur
hún kynnst þessu með sín börn eftir
að fjölskyldan flutti heim frá
Bandaríkjunum þar sem maður
hennar var í framhaldsnámi. „Börn-
in kunna ekki skólamálið og ekki
leikmálið og þótt íslenska sé töluð
heima hefur hún sínar takmarkan-
ir,“ segir hún.
Hentar mér vel
Dröfn hefur verið aðstoðarskóla-
stjóri Akurskóla og unnið að upp-
byggingu hans með skólastjóranum.
„Það er skelfilega leiðinlegt að
stökkva frá skólanum um miðjan
vetur en þetta nýja verkefni er svo
spennandi og hentar mér svo vel að
ekki var hægt annað en að sækja
um,“ segir Dröfn um vistaskiptin.
Hún segist vera að koma á sam-
bandi við starfsfólk skólanna og afla
upplýsinga frá öðrum stöðum og
vinna að mótun stefnunnar með
hópi kennara og skólastjórnenda.
Vonast hún til að út úr þessari
vinnu komi samræmt og skilvirkt
móttökukerfi fyrir öll innflytjenda-
börn og unglinga á skólaaldri.
140 fá aðstoð við ís-
lensku sem annað mál
Ljósmynd/Dagný Gísladóttir
Kennsluráðgjafi Dröfn Rafnsdótt-
ir skipuleggur íslenskukennslu.
Í HNOTSKURN
»Sex grunnskólar eru íReykjanesbæ með samtals
rúmlega 2000 nemendur. Þeim
hefur fjölgað ört.
»Nemendum sem þurfa aðstoðvið íslensku sem annað mál
hefur fjölgað mjög og eru nú lið-
lega 140. Fimmtíu eru í einum
skólanum og um tuttugu í nokkr-
um.
»Ráðinn hefur verið kennslu-ráðgjafi við sérfræðiþjónustu
fræðsluskrifstofu Reykjanes-
bæjar til að sinna þessum málum
sérstaklega.
Reykjanesbær | Bæjarstjórn
Reykjanesbæjar hefur ákveðið að
tvöfalda framlag bæjarsjóðs til
Manngildissjóðs Reykjanesbæjar.
Hækkar framlagið úr 500 milljónum
kr. í einn milljarð.
Manngildissjóðurinn var stofn-
aður árið 2003 og eru fjármagns-
tekjur höfuðstóls hans notaðar til að
styrkja ýmis verkefni, auk frjálsra
framlaga.
Hlutverk sjóðsins er að styðja
verkefni á sviði fræðslu-, fjölskyldu-
og forvarnarmála, menningar og
lista, umhverfismála, tómstunda- og
íþróttamála, einnig að styðja verk-
efni í þágu mannræktar og aukins
manngildis í Reykjanesbæ. Á árinu
2007 voru veittir styrkir samtals að
fjárhæð 40 milljóna kr.
Höfuðstóll
Manngildissjóðs
tvöfaldaður
Hornafjörður |
Þrjú erlend og
sex íslensk
blúsbönd leika
á árlegri
blúshátíð á
Höfn í Horna-
firði, Norðurljósablús, sem nú verð-
ur haldin dagana 28. febrúar til 2.
mars. Að þessu sinni var ákveðið að
gefa heimamönnum og ungu ís-
lensku blústónlistarfólki tækifæri til
að koma fram og jafnframt að kynna
tónlistarmenn frá Norðurlöndunum.
Þrjár erlendar hljómsveitir koma
fram, Øernes blues band frá Dan-
mörku, Street Cowboys frá Smá-
löndunum í Svíþjóð og Emil & the
Ecstatics frá Svíþjóð. Þeir síðast-
nefndu voru aðalgestir Norður-
ljósablúss fyrir tveimur árum.
Íslensku sveitirnar eru Grasrætur
úr Hafnarfirði, Johnny and the rest
frá Reykjavík, Blúsbrot frá Stöðv-
arfirði og Vax frá Egilsstöðum. Tvö
hornfirsk bönd leika á hátíðinni,
Mæðusveitin Sigurbjörn og Hulda
Rós og rökkurtríóið og svo munu
Hornfirðingarnir Ómar og Óskar
Guðjónssynir ásamt hljómsveit opna
Norðurljósablús 2008 á fimmtudags-
kvöldið. Á hátíðinni verður blús-
djamm þar sem allir geta fengið að
grípa í hljóðfæri eða syngja.
Aðaltónleikarnir hvert kvöld há-
tíðarinnar verða á Hótel Höfn. Eftir
þá verður blúsað samtímis á tveimur
öðrum stöðum í bænum, Kaffi Horn-
inu og Veitingahúsinu Víkinni. Þann-
ig geta gestir gengið milli staða og
hlustað á margs konar blús.
Hornfirska skemmtifélagið hefur
veg og vanda af Norðurljósablús í
samstarfi við veitingamenn og ferða-
þjónustufólk á Hornafirði. Félagið
fékk Menningarverðlaun Horna-
fjarðar á síðasta ári og er styrkt af
Menningarráði Austurlands.
Þrjú erlend bönd
koma fram á
Norðurljósablús
LANDIÐ
Eftir Hafþór Hreiðarsson
Húsavík | Hann var þjóðlegur and-
inn sem sveif yfir vötnum í sal Borg-
arhólsskóla þegar þorrablót 8.
bekkjar var haldið þar.
Það er fyrir löngu komin hefð á
það í skólanum að nemendur í 8.
bekk haldi þorrablót. Til blótsins
bjóða þau foreldrum sínum eða öðr-
um skyldmennum ásamt þeim
starfsmönnum skólans sem koma að
bekknum.
Foreldrarnir slógu í gegn
Þorrablótsgestir komu með sín
trog á blótið og meðan á borðhaldi
stóð voru skemmtiatriði nemenda og
foreldra. Það ríkir alltaf töluverð
eftirvænting þegar að þeim kemur
og ekki síst eftir atriði foreldra. Það
er skemmst frá því að segja að þeir
slógu í gegn. Atriðið gekk út á að
kynna þjóðlegar íþróttir eins og
glímu, sjómann og krumlu og þá
flutti hljómsveit þjóðleg lög undir.
Að öðrum ólöstuðum var Björgvin
R. Leifsson stjarna kvöldsins þegar
hann söng lag Þursaflokksins, Jón
var kræfur karl og hraustur. Krakk-
arnir hafa á undanförnum vikum
æft gömlu dansana undir stjórn
Halldórs Valdimarssonar skóla-
stjóra og að borðhaldi loknu voru
gömlu dansarnir dansaðir áður en
diskóið tók völdin.
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Þorrablót Þau voru þjóðlega búin veislustjórarnir Sindri Ingólfsson og
Heiðdís Hafþórsdóttir á þorrablóti áttunda bekkjar í Borgarhólsskóla.
Þjóðlegur andblær
í Borgarhólsskóla
Blönduós | Rúnar Þór Njálsson fékk
afhenta viðurkenningu frá Rauða
krossi Íslands (RKÍ) fyrir einstakt
björgunarafrek á 112-deginum sem
haldin var hátíðlegur á Blönduósi.
Rúnar Þór vann ótrúlegt afrek á
síðasta ári þegar hann kom til bjarg-
ar vini sínum sem fékk sykursýkis-
kast og ók Rúnar honum meðvitund-
arlitlum á hjólastól sínum nokkuð
langa leið í söluskála N1 á Blönduósi
en þaðan var kallað eftir lækni.
Einar Óli Fossdal frá RKÍ sagði
að hefði Rúnar ekki brugðist með
jafnyfirveguðum hætti hefði getað
farið illa fyrir vini hans. Rúnar Þór
var á dögunum valinn maður ársins á
fréttavefnum huni.is fyrir þetta
björgunarafrek.
Fékk viðurkenningu
fyrir björgunarafrek
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Björgunarafrek Rúnar Þór Njáls-
son tók við viðurkenningu úr hendi
Einars Óla Fossdal frá RKÍ.
Ólafsvík | Slökkvilið Snæfells-
bæjar veitti Lenu Örvarsdóttir
verðlaun fyrir þátttöku í getraun
vegna eldvarnarátaks sem Lands-
samband slökkviliðs- og sjúkra-
flutningamanna efndi til fyrr í vet-
ur. Hún var ein þeirra 34 barna
landinu sem dregin voru út.
Slökkviliðsmenn heimsóttu nær
alla grunnskóla landsins og
fræddu átta ára börn um eldvarnir
og öryggismál og gáfu þeim kost
að taka þátt í eldvarnargetraun-
inni. Svanur Tómasson slökkvilið-
stjóri afhenti Lenu viðurkenning-
arskjal, MP3-spilara,
reykskynjara og fleira í verðlaun
og að því loknu fékk Lena ásamt
Gylfa, bróður sínum, að skoða
slökkviliðsbílana og tæki slökkvi-
liðsins.
Eldvarnaverðlaun afhent
Morgunblaðið/Alfons
Verðlaun Lena fékk vegleg verð-
laun og er hún hér ásamt Sigurði
Guðmundssyni varaslökkviliðs-
stjóra, Gylfa, bróður sínum, og
móðir hennar, Barbara, þakkar
Svani Tómassyni slökkviliðsstjóra.
SUÐURNES
Garður | Sagnakvöld verður haldið
í veitingahúsinu Fösinni á Garð-
skaga annað kvöld, fimmtudag,
klukkan 20. Samkoman er haldin í
tilefni af 100 ára afmæli Garðs.
Ætlunin er að skyggnast inn í
mannlífið í Garðinum en margt hef-
ur breyst þar á skömmum tíma.
Þeir Ásgeir Hjálmarsson frá Nýja-
landi, Hörður Gíslason frá Sól-
bakka og Gylfi Guðmundsson sem
bjó í Gerðaskóla um tíma munu
segja sögur af fólki, skemmtilegum
uppákomum og lífinu í Garði. Sögu-
menn eiga það sameiginlegt að
hafa alist upp í Garðinum og búið
þar í einhvern tíma. Sagnakvöldið
er annar afmælisatburður ársins en
Garðbúar geta fagnað hundrað ára
afmæli bæjarins á viðburðum í
hverjum mánuði ársins.
Segja frá lífinu
fyrr á tímum