Morgunblaðið - 13.02.2008, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 13.02.2008, Blaðsíða 21
hollráð um heilsuna | lýðheilsustöð MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 2008 21 Unglingsárin geta reynst erfiðog ekki eiga foreldrar alltafauðvelt með að fylgjast með því sem gengur á í lífi eigin barna. Hér er því birtur útdráttur úr nið- urstöðum nýlegra erlendra rann- sókna á unglingum, en flestar þeirra er að finna í Journal of Adolescent Health og eru þær birtar hér í ein- faldari mynd. Vinir og umhverfið  Jákvæð reynsla unglinga af fram- haldsskólanum snemma á skólaferl- inum, ásamt þeim góðu samböndum sem þeir mynda við aðra í skóla- umhverfinu, hafa uppbyggileg áhrif á almenna líðan þeirra í námi síðar meir, draga úr líkum á áfengis- og vímuefnaneyslu og auka líkurnar á því að þeir klári námið. Góð tengsl við skólann og jákvæð vinasambönd hafa mest að segja í þessu samhengi.  Til þess að auka áhuga unglinga á íþróttum þurfa aðstæður til íþrótta- iðkunar að vera þægilegar og að- gengilegar en einnig skiptir íþrótta- áhugi vina og skólafélaga máli.  Börn og unglingar eru líkleg til að ofmeta hversu margir í þjóðfélaginu reykja. Þar sem slíkt ofmat getur haft áhrif á hvort að þau byrji sjálf að reykja er mikilvægt að upplýsa ungt fólk um þá staðreynd að einn af hverjum fimm Íslendingum reykir nú að staðaldri.  Þeir unglingar sem byrja að reykja fá langoftast fyrstu sígarett- urnar hjá vinum eða kunningjum. Sjónvarp og tölvur  Fjölþjóðleg rannsókn sýnir að tengsl eru á milli þess að horfa mikið á sjónvarp (meira en tvo tíma á dag) og vera gerandinn í eineltistilfellum.  Börn sem fá ekki að horfa á bann- aðar myndir heima hjá sér eru síður líkleg til að byrja að reykja.  Af þeim börnum og unglingum sem spila ofbeldisfulla tölvuleiki eru strákar í meirihlutanum. Þeir spila jafnframt meira en aðrir, eru líklegri til spila á móti ókunnugum á vefn- um, eiga gjarnan eigin tölvu í svefn- herbergi sínu og segjast frekar nota tölvuleiki til að hafa stjórn á reiði sinni. Geðheilsa  Þunglyndi snemma á unglings- árum er líklegt til að hafa neikvæðar afleiðingar fyrir líkamlegt heilsufar á fullorðinsárum og vinnuafköst. Ef foreldrar verða varir við einkenni þunglyndis hjá barni sínu er brýnt að leita fljótlega aðstoðar hjá fag- aðila. Áhrif af þunglyndi versna með tímanum ef ekkert er gert.  Áfengisneysla unglinga er áhættuþáttur hvað sjálfsvígstilraun- ir snertir, á þetta sérstaklega við ef börn byrja að drekka mjög snemma. Hlutverk foreldra  Gott samstarf foreldra við fram- haldsskólann og virkni í foreldra- félögum hefur jákvæð áhrif á náms- árangur barnsins. Jafnframt sýna rannsóknir að þegar foreldrar eru virkir öll námsárin (t.d. með því að sýna náminu áhuga og eiga regluleg samskipti við kennara), þá er fram- haldsskólaneminn mun líklegri til að klára einnig háskólanám síðar meir.  Þegar unglingar afla sér upplýs- inga um vandamál sem ekki eru lík- amlegs eðlis (t.d. geðræn vandamál eða upplýsingar um skaðsemi áfeng- is og tóbaks) eru þeir líklegri til að leita til vina og foreldra en til fag- aðila. Það er því góð ástæða fyrir foreldra að kynna sér málin og hafa svör við hugsanlegum spurningum á reiðum höndum. Nánari upplýsingar og heimilda- skrá má finna á heimasíðu Lýð- heilsustöðvar (www.lydheilsu- stod.is). Reuters Tölvunotkun Drengir gera meira af því að spila ofbeldisfulla tölvuleiki en stúlkur. Þeir eru líka líklegri til að vera með eigin tölvu í svefnherbergi sínu og segjast frekar nota tölvuleiki til að hafa stjórn á reiði sinni. Unglingar og umhverfið Héðinn Svarfdal Björnsson, verkefnisstjóri fræðslumála hjá Lýðheilsustöð. Dagskrá og tillögur fyrir aðalfund Skipta hf. Aðalfundur Skipta hf. verður haldinn miðvikudaginn 27. febrúar 2008 á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlands- braut 2, og hefst fundurinn kl. 17 DAGSKRÁ 1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins á liðnu ári. 2. Skýrsla forstjóra um rekstur félagsins og endurskoðaður reikningur fyrir liðið starfsár lagður fram til samþykktar. 3. Breytingar á samþykktum: - Ákvörðun um hækkun hlutafjár 4. Ákvörðun um greiðslu arðs. 5. Kosning stjórnar félagsins. 6. Kosning endurskoðunarstofu. 7. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna félagsins fyrir störf þeirra. 8. Tillaga félagsstjórnar um starfskjarastefnu. 9. Ákvörðun um heimild til kaupa á eigin hlutum. 10. Tillaga félagsstjórnar um að Skipti hf. verði skráð í Kauphöll. 11. Önnur mál. Tillögur frá hluthöfum sem bera á upp á aðalfundi þurfa að berast stjórn eigi síðar en sjö dögum fyrir aðalfund. Dagskrá fundarins, endanlegar tillögur svo og ársreikningur félagsins munu liggja frammi á skrifstofu félagsins hluthöfum til sýnis sjö dögum fyrir aðalfund. Sjá einnig heimasíðu félagsins: skipti.is Fundargögn og atkvæðaseðlar verða afhent hluthöfum á aðal- fundardaginn frá kl. 16 á fundarstað. Stjórn Skipta hf. SKEIFAN 3E-F · SÍMI 581-2333 · WWW.RAFVER.IS gel-arnar ...enginn reykháfur Einnig til fyrir rafmagn! Viður eða gler Ýmsir litir í boði Auðveld uppsetning Hægt að staðsetja nánast hvar sem er Lyktarlaus bruni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.