Morgunblaðið - 13.02.2008, Side 26

Morgunblaðið - 13.02.2008, Side 26
26 MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Páll V. Daní-elsson fæddist á Flatnefsstöðum á Vatnsnesi í Vestur- Húnavatnssýslu 3. apríl 1915 en ólst upp á Bergsstöðum á Vatnsnesi við al- menn sveitastörf og sjóróðra. Hann lést á Hrafnistu í Hafn- arfirði sunnudaginn 3. febrúar síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Daníel Teits- son, bóndi á Bergs- stöðum, f. 28.11. 1884, d. 22.2. 1923 og Vilborg Árnadóttir, f. 31.3. 1895, d. 11.2. 1993. Seinni maður Vilborgar og fósturfaðir Páls var bróðir Daníels, Pétur Teitsson, f. 30.3. 1895, d. 24.8. 1991. Systkini Páls: Fanney, f. 3.12. 1913, d. 2.10. 1968; Davíð, f. 28.12. 1917, d. 17.9. 1930; Guðni, f. 5.7. 1920, d. 19.11. 1992; og Ingibjörg, f. 3.3. 1922. Hálfsystkini Páls og sammæðra: Ólöf, f. 23.9. 1924; Daníel, f. 27.8. 1928; og Vilborg, f. 11.2. 1932. Páll kvæntist 23.5. 1942 Guð- rúnu Jónsdóttur, f. 6.3. 1913. For- eldrar hennar voru Jón Brynjólfs- deildar Pósts og síma 1961-1976 og framkvæmdastjóri fjár- máladeildar Pósts og síma 1976- 1980. Páll átti sæti í stjórn SUS 1945- 1949, var í stjórn Landsmála- félagsins Fram í Hafnarfirði og í fulltrúaráði Sjálfstæðisfélaganna í Hafnarfirði. Hann átti sæti í flokksráði Sjálfstæðisflokksins, var í skipulagsnefnd flokksins og sat landsfundi um árabil. Hann sat í stjórn Málfundafélagsins Magna í Hafnarfirði, var formaður 1968- 1970, sat í stjórn Skógrækt- arfélags Hafnarfjarðar, í Áfeng- isvarnarráði 1965-66 og 1974-87, formaður áfengisvarnarnefndar Hafnarfjarðar um árabil og for- maður Landssambandsins gegn áfengisbölinu 1968-90. Páll var bæjarfulltrúi í Hafnar- firði 1958-66 og skoðunarmaður reikninga kaupstaðarins 1990-94. Hann sat í fræðsluráði Hafn- arfjarðar 1954-62 og 1974-86 og var formaður þess 1978-86. Þá átti Páll sæti í útgerðarráði 1962-74, var formaður atvinnumálanefndar 1968-69 og formaður útgáfu- stjórnar sögu Hafnarfjarðar 1980- 84. Útför Páls fer fram frá Víði- staðakirkju í Hafnarfirði í dag og hefst athöfnin klukkan 15. son, bóndi í Austurkoti í Flóa, síðar á Grafarbakka í Hrunamannahreppi og Katrín Guðmunds- dóttir húsfreyja. Börn Páls og Guð- rúnar eru: Vilborg, f. 26.8. 1943, gift Þráni Kristinssyni, þau eiga þrjú börn og eitt barnabarn; Katrín, f. 16.10. 1944, hún á einn son; Anna María, f. 22.8. 1946, gift Per Landrö, þau eiga þrjú börn og tvö barnabörn; og Páll Gunnar, f. 15.1. 1952, kvæntur Ólínu Birgisdóttur, þau eiga þrjú börn og eitt barnabarn. Páll fluttist til Hafnarfjarðar 1940. Hann lauk stúdentsprófi frá MR 1944 og viðskiptafræði frá HÍ 1957. Páll var einn af stofnendum Skipasmíðastöðvarinnar Drafnar hf. 1941 og framkvæmdastjóri þar 1942-1948. Hann var fram- kvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði og ritstjóri Hamars 1949-1956, starfsmaður hag- deildar Framkvæmdabanka Ís- lands 1956-1960. Forstjóri hag- Við eigum eftir að sakna afa, sjá hann á röltinu um bæinn í frakk- anum með hattinn. Afi var alltaf í jakkafötum og skipti þá ekki máli hvað var á dagskrá, göngutúr í bæn- um eða ferð í berjamó á Þingvöllum með fjölskyldunni. Hatturinn var líka alltaf á sínum stað og við pöss- uðum vel upp á að afi tæki hattinn með þegar við vorum að útrétta eitt- hvað með honum. Það hefur alltaf verið fastur liður að fara til ömmu og afa á stórhátíð- um, eyða deginum saman, öll fjöl- skyldan, og borða góðan mat. Það mátti ganga að því vísu að alltaf var sami matseðillinn. Þetta varð til þess að þegar við urðum eldri urðum við jafn fastheldin á venjurnar og afi og ef einhver reyndi að breyta ein- hverju eða sleppa þá var það nokkuð víst að eitthvert okkar myndi mót- mæla. Það eru jú engin jól nema að fá heitt súkkulaði með rjóma. Hon- um fannst það alltaf gott að fá súkkulaði með rjóma og væna sneið af alvöru rjómatertu með. Afi var alltaf að bauka eitthvað og hann eyddi miklum tíma fyrir fram- an tölvuna, að skrifa greinar í Mogg- ann um helstu málefni dagsins, hann hafði skoðanir á flestu og var ófeim- inn að taka afstöðu. Afi átti viðburðaríka ævi, fæddur og uppalinn í torfbæ og að sitja síð- an iðinn fyrir framan tölvu og senda tölvupóst segir allt sem segja þarf um þær gífurlegu breytingar sem hann upplifði. Afi var ekki hræddur við nýjungar, hann sóttist eftir því að kynnast nýjum hlutum. Við eigum eftir að sakna þessara samverustunda með afa í framtíð- inni. Greta María og Pétur. Afi var prinsipp maður, með sterkar skoðanir á öllum hlutum, setti sér skýr markmið og var fullur af eldmóði. Hann var ekki maður sem lá í leti heldur maður fram- gangs og breytinga á ýmsum svið- um. Ég flutti til ömmu og afa á Suður- götuna þegar ég var við nám í Flens- borg og bjó hjá þeim í rúmlega þrjú ár á meðan foreldrar mínir bjuggu í Þýskalandi. Tíminn hjá ömmu og afa hafði sterk áhrif á mig, eitthvað sem að ég hefði ekki vilja missa af. Þarna kynntist ég ömmu og afa vel, það var gott að vera hjá þeim, allt hafði sína röð og reglu, hádegismatur akkúrat á réttum tíma til þess að hlusta á fréttirnar, alltaf eitthvað gott með kaffinu, ró og næði til þess að leggja sig í friði hvenær sem var. Um helg- ar fórum við þrjú stundum í bíltúra þegar ég var komin með bílpróf á bílnum hans afa sem varð alltaf að vera rauður, því að rauðir bílar eru öruggastir í umferðinni. Við keyrð- um oftast út fyrir bæinn, til dæmis í útsýnistúr um Krísuvík sem endaði í kaffi á Eyrarbakka. Afa fannst ekk- ert betra en að fá sér heitt súkkulaði og eitthvað gott bakkelsi með. Þjón- ustan og gæði veitinganna var yf- irleitt mæld í gæðum súkkulaðisins og magni rjómans, því meira, því betra. Þó að afi elskaði rjóma þá held ég að fáir hafi hugsað jafnmikið um heilsuna og hann. Afi hafði mjög sterkar skoðanir á öllu sem tengdist heilsu, bjó til sitt eigið músli, gerði leikfimisæfingar alltaf á morgnana og á föstudögum var það afi sem eldaði mísósúpu í forrétt og á eftir fylgdi ofnbakaður eplaréttur, örugglega með hollari máltíðum sem ég hef látið ofan í mig. Þau amma og afi ræktuðu næstum allt sitt grænmeti sjálf á Suðurgöt- unni, drukku mysudrykki og tóku alltaf inn lýsi. Eftir að sjónin hans afa fór að svíkja hann gekk hann á alla þá fundi sem hann sótti, ef að þeir voru innan bæjarmarkanna. Ég lærði mikið á því að ræða málin við afa, við sátum oft í kaffitímanum á Suðurgötunni og ræddum öll heims- ins málefni. Allt frá pólitík, mataræði, femínisma, gerilsneyðingu yfir í arki- tektúr, Halldór Laxness, Gunnar Gunnarson, húsafriðun og manna- nöfn. Yfirleitt vorum við algjörlega ósammála og kaffitíminn nálgaðist oft óðum kvöldmatartímann. Afi tók þessum umræðum alvarlega og gaf sér tíma, þó að ég væri 17 ára æstur nýliði í ungliðahreyfingu Alþýðu- bandalagsins. Málin voru rædd fram og til baka þótt að engin niðurstaða fengist því við bæði algjörlega ósam- mála. Þessar umræður gáfu mér mik- ið og eru mér mjög mikilvægar, það er vissulega lærdómsríkt að vera á annarri skoðun. Krafturinn og stað- festan hans hefur verið mér ákveðinn innblástur. Afi setti sér markmið og stefndi ótrauður að þeim. Ég verð alltaf æv- inlega þakklát fyrir að hafa fengið að sitja og rökræða hlutina við afa og að hafa upplifað kraftinn sem dreif hann alltaf áfram. Brynhildur Pálsdóttir. Stóri bróðir minn er látinn. Hann var tæpum 17 árum eldri en ég og því eðlilegt að ég liti upp til hans. Það var mannmargt á Bergsstöðum, æskuheimili okkar og fjölgaði æv- inlega á sumrin, því að mörg börn voru send þangað í sumardvöl. Það var líka oft glatt á hjalla t.d þegar búið var að ná saman góðum hey- feng, þá var hægt að gefa sér tíma til að ærslast hresssilega og lét Páll ekki sitt eftir liggja í gleðskapnum. Það var mikið mál á þeim árum að verða sér út um góða menntun en Páll var ákveðinn í að læra og þá varð bara að slá lán og hefja skóla- gönguna, fyrst á Laugum í Þingeyj- arsýslu. Þar kynntist hann meðal annarra frábærum kennurum. Eink- um mun Leifur Ásgeirsson skóla- stjóri hafa reynst Páli vel varðandi framhaldsmenntun sem hann svo aflaði sér. En þegar háskólanámi lauk var Páll reyndar löngu búinn að stofna heimili í Hafnarfirði með sín- um trausta lífsförunaut Guðrúnu Jónsdóttur eða Rúnu eins og vinir nefna hana. Öll námsárin sín hér syðra varð Páll því að stunda fulla vinnu auk námsins, til að afla heim- ilinu tekna. Gestrisni var þeim hjón- um í blóð borin og þeirra myndar- lega heimili stóð ævinlega opið mér og mínum þegar á þurfti að halda eftir að ég var flutt í Hafnarfjörð. Páll var ráðhollur þegar til hans var leitað og á meðan Guðni minn var með fyrirtæki og mannaforráð var Páll okkur innan handar með bók- haldið. Það voru nákvæm vinnu- brögð og nutu fleiri þjónustu hans í þeim efnum. Ég kveð nú kæran bróður og þakka ómælda aðstoð og allar góðu stundirnar á heimili þeirra hjóna. Guð verndi og styrki mágkonu mína, börnin og ástvini alla. Vilborg Pétursdóttir (Bogga). Látinn er Páll móðurbróðir minn, 92ja ára að aldri. Hann hefur ásamt systkinum sínum og mökum þeirra ávallt verið einn af föstu punktunum í tilveru minni. Þar sem hann var elstur þeirra sem voru á lífi í mínu minni var hann jafnframt eins konar höfuð stórfjölskyldunnar enda var þar maður á ferð sem ekki var hægt annað en bera virðingu fyrir. Sem barn leit ég mjög upp til hans og sá hann sem skemmtilegan, stór- an, reffilegan og virðulegan mann með hatt. Jólaboð og afmæli hjá þeim hjónum voru mér ætíð til- hlökkunarefni, hlýjar móttökur, rausnarlegar veitingar, spil, grín og gaman. Páll var mjög barngóður, sóttist eftir félagsskap okkar barnanna ekki síður en hinna full- orðnu og átti það til að stríða frænku sinni og öðrum frændsystkinum góðlátlega. Í lok áttunda áratugar síðustu aldar fórum við mæðgur með Páli, Rúnu, dætrum þeirra og fjölskyldum í ferðalag um Noreg. Það var mér ógleymanleg ferð, ekki bara vegna þess að það var mín fyrsta utanlandsferð heldur vegna þess að þar vorum við hluti af skemmtilegri heild. Margar sögur voru sagðar, mikið spilað og hlegið á kvöldin og ég fékk að vaka jafn lengi og fullorðna fólkið. Á fullorðinsárum jókst virðing mín enn fremur fyrir Páli. Hann hafði mjög ákveðnar og opnar skoð- anir á mönnum og málefnum, var rökfastur og stóð fast á sínu. Hann hafði mjög ríka réttlætiskennd og barðist ötullega fyrir því sem hann hafði trú á. Fjölskyldan var honum afar hjartfólgin og fylgdist hann grannt með öllum afkomendum sín- um og afrekum þeirra. Gladdist hann mjög þegar langafabörnin tóku að fæðast og sagði stoltur frá þeim. Æskuslóðir hans á Vatnsnesinu voru honum einnig mjög kærar og heim- sótti hann þær reglulega meðan heilsan leyfði. Að leiðarlokum þakka ég Páli innilega fyrir samfylgdina. Rúnu, börnum þeirra og öðrum aðstand- endum votta ég dýpstu samúð mína. Blessuð sé minning þess mæta manns, Páls V. Daníelssonar. Magnea Gunnarsdóttir. Við ævilok Páls V. Daníelssonar er margs að minnast í samskiptum við sterkan persónuleika, sem ein- kenndist af mannúð og hugsjónum. Við þekktum Pál rúmlega hálfa öld, eða frá því að við sjö ára gamlar bundumst vináttuböndum við Önnu Maríu dóttur hans. Frá þeim tíma var heimili Páls og Guðrúnar eig- inkonu hans okkur opið og tengd- umst við allri fjölskyldunni náið. Hafði Páll iðulega á orði að við ætt- um ekki að hringja dyrabjöllunni, við værum ekki gestir. Vissulega lit- um við ekki þannig á okkur á því heimili. Í mörg ár ók Páll okkur úr Hafnarfirði að dyrum Kvennaskól- ans í Reykjavík á leið sinni til vinnu. Slík greiðvikni var sjálfsögð í hans augum. Það þurfti ekki að ræða. Þegar við höfðum tekið bílpróf lán- aði hann Önnu Maríu bílinn sinn, svo að við gætum ferðast um landið á eigin spýtur með tjald og svefnpoka. Þannig fylgdi Páll okkur af einu þroskastigi á annað. Hann fylgdist ávallt vel með námi okkar, fram- gangi og áhugamálum sem værum við hans eigin börn. Hann hlustaði á vangaveltur okkar vinkvennanna, lagði sitt til málanna og var jafnan nálægur ef á þurfti að halda. Okkur þótti mikið til um visku hans og mát- um hann mikils. Það breyttist ekki þegar fram liðu stundir. Páll og Guðrún hafa alltaf verið hluti af lífi okkar og við höfum notið góð- mennsku þeirra hjóna og velvildar. Í kringum Pál V. Daníelsson ríkti aldrei lognmolla. Ekki þurfti að fara í grafgötur um skoðanir hans á ýms- um málum, sem honum var umhug- að um. Hann lét enda til sín taka í þeim málefnum sem hann taldi far- sæl fyrir Hafnarfjörð og ekki síður þjóðina alla. Allt fram á síðustu daga skrifaði Páll í Morgunblaðið um þau málefni, sem honum voru hugleikin og lét það ekki aftra sér þótt nær blindur væri síðustu árin. Engum sem Páli kynntist duldist, að þar var stórhuga maður á ferð. Við munum alltaf minnast hans með hlýhug. Við vottum Guðrúnu og börnum þeirra Páls samúð okkar og þökkum af ein- lægni þátt Páls í uppvexti okkar. Guðríður Sigurðardóttir, Kristín Magnúsdóttir. Með Páli V. Daníelssyni er geng- inn góður vinur og samherji úr starfi Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði. Páli kynntist ég sérstaklega þau ár sem ég gegndi formennsku fulltrúa- ráðs sjálfstæðisfélaganna í bænum og mörg síðkvöldin átti hann til að slá á þráðinn og við spjölluðum lang- tímum saman um málefni líðandi stundar. Páll sótti ötullega lands- fundi Sjálfstæðisflokksins í hópi Hafnfirðinga og síðustu árin voru líklega fáir, ef nokkrir, sem setið höfðu fleiri landsfundi en hann. Þrátt fyrir háan aldur og hrakandi sjón fylgdist Páll vel með, hann hafði skýrar skoðanir á þeim málum sem voru uppi hverju sinni og brennandi áhugi hans á stjórnmál- um var ferskur og lifandi fram á síð- asta dag. Ekki eru nema nokkrar vikur síð- an Páll mætti með okkur til að kveðja Sjálfstæðishúsið í Hafnar- firði, áður en starf flokksins flytti í nýtt húsnæði. Þar átti hann góða Páll V. Daníelsson ✝ Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og lang- amma, RÓSA JÓHANNSDÓTTIR, hjúkrunarheimilinu Eir, áður til heimilis að Hvassaleiti 153, Reykjavík, lést mánudaginn 11. febrúar. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 15. febrúar kl. 13.00. Skúli J. Björnsson, Anna S. Garðarsdóttir, Þórhallur Skúlason, Unnur A. Einarsdóttir, Elva Rósa Skúladóttir, Sigrún Kristín Skúladóttir, Hlynur Skúli Skúlason og langömmubörn. ✝ Elskuleg eiginkona mín og móðir okkar, REBEKKA INGVARSDÓTTIR starfsmannastjóri, Smárarima 69, andaðist á Landspítalanum við Hringbraut þriðjudaginn 12. febrúar. Einar Ágúst Kristinsson, Ingvar Örn Einarsson, Anna Kristrún Einarsdóttir. ✝ Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir, amma og langamma, MARGRÉT SIGURVEIG SIGURÐARDÓTTIR frá Valhöll, síðast til heimilis Austurvegi 5, Grindavík, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 11. febrúar Hafsteinn Sigurðsson, Olga Siggeirsdóttir, Svanfríður Sigurðardóttir, Ásgeir Magnússon, Birgir Sigurðsson, Kristín Arnberg, Þórður M. Sigurðsson, Kristín Sigurjónsdóttir, Ólína Herdís Sigurðardóttir, Steinunn S. Sigurðardóttir, Ísak Þórðarson, ömmubörn og langömmubörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.