Morgunblaðið - 13.02.2008, Page 36
Grunnurinn verður
skrítinn á Organ í
kvöld … 40
»
reykjavíkreykjavík
„VIÐ höfum ekki hugmynd um
hvernig þetta er komið til og heyrð-
um fyrst af þessu í morgun [gær-
morgun],“ segir Hallur Baldursson,
framkvæmdastjóri Ennemm auglýs-
ingastofu sem sér um auglýsingamál
Símans. Stuttu fyrir hádegi í gær-
morgun fór af stað á netinu mynd af
forráðamönnum kínverska stálfram-
leiðandans Sutor við skrásetningu á
Nasdaq-verðbréfamarkaðinn í
Bandaríkjunum en fyrir aftan
stjórnendurna sést vörumerki sem
lítur nákvæmlega út eins og vöru-
merki Símans.
Merki Símans
hannað árið 2003
Hallur segir að vörumerki Símans
hafi verið hannað árið 2003 af hönn-
uði sem þá starfaði hjá Góðu fólki en
starfi nú hjá Ennemm.
Frá Símanum bárust þær upplýs-
ingar að merki Símans hefði verið
hannað í árslok 2003 og kynnt í árs-
byrjun 2004. Sutor hafi hins vegar
ekki verið stofnað fyrr en tveimur
árum síðar hinn 15. Ágúst 2006.
Vörumerki forvera Sutors beri þar
að auki engan keim af vörumerki
Símans. Síminn mun ásamt hönnuði
vörumerkisins óska skýringa frá Su-
tor um merki fyrirtækisins.
Eitt og sama vörumerkið
Á Nasdaq Stjórnendur Sutor við
skrásetningu fyrirtækisins á Nas-
daq-markaðinn á dögunum. Til
hægri má sjá merki Símans.
Kvikmynda-
gerðarmaðurinn
Hrafn Gunn-
laugsson verður
viðstaddur sýn-
ingu á kvikmynd-
inni Emblu í Há-
skólanum í Massachusetts í
Bandaríkjunum nú á föstudag. Frá
þessu greinir stúdentablað skólans
en það mun vera deild þýskra og
skandinavískra fræða sem stendur
að sýningunni og komu Hrafns. Í
greininni er farið fögrum orðum
um leikstjórann og hann sagður
hafa hlotið mikið lof fyrir aðferðir
sína við að blanda saman sögu-
legum staðreyndum og goðsögnum.
Hrafn mun kynna myndina áður en
sýningin hefst en að myndinni lok-
inni mun hann ræða við nemendur
skólans um verkið. Þá segir blaðið
að Hrafn muni einnig ávarpa leik-
listardeild Amherst Regional High
School í Massachusetts.
Hrafn flýgur
til Bandaríkjanna
Tónlistarmenn og aðrir tengdir
bransanum voru ekki lengi að taka
við sér í gær í kjölfar fréttar
Fréttablaðsins um að hugmyndir
væru uppi innan borgarinnar um að
breyta NASA í glæsihótel. Kári
Sturluson, umboðsmaður skrifaði
harðort bréf til fjölmiðla, tónlist-
arfólks og skipulagsráðs og gagn-
rýndi þessar hugmyndir sem hann
sagði að ynnu gegn hagsmunum
Reykjavíkur. Síðar um daginn svar-
aði Hanna Birna Kristjánsdóttir
formaður skipulagsráðs, Kára í
tölvvupósti og tjáði honum að málið
hefði ekki enn fengið formlega af-
greiðslu í borginni og áhersla yrði
lögð á að tónleikasalurinn fái að
vera áfram í húsinu þó svo farið
verði fram á breytingar á salnum.
Tónlistarmenn ósáttir
Eftir Gunnhildi Finnsdóttur
gunnhildur@mbl.is
FLESTA daga vinnur Bjarni Konráðsson
hörðum höndum við að halda MR-ingum í
skikkanlegu formi, hvetja þá áfram hring eft-
ir hring í kringum Tjörnina og sjá til þess að
þeir kunni fótum sínum forráð á dansgólfinu.
Í frítíma sínum syngur hann og semur ljóð og
nú er hann að skipuleggja tónlistarviðburð
sem um 140 manns taka þátt í.
„Söngurinn er mér í blóð borinn og það
hlýtur að hafa þroskað tilfinninguna fyrir
takti. Ég kenni dans í leikfiminni og þá hjálp-
ar til að hafa taktinn,“ segir Bjarni. „Íþrótta-
kennslan er mitt aðalstarf og ég hef starfað
sem knattspyrnuþjálfari líka og starfað fyrir
KSÍ. Það er fótboltinn, söngurinn og kveð-
skapurinn, það er þetta þrennt sem er stóra
málið.“
Innblásturinn gengur líka í hina áttina og
íþróttatímar í MR geta orðið efni í ljóð. „Ég
fæ oft ágætar hugmyndir í íþróttunum og
yrki stundum í tímum. Ég yrki stundum um
það sem þau eru að gera og hvernig þau bera
sig að.“
Tveir fimmtíu manna kórar
Bjarni hefur samið tvær kantötur, Jörð og
Solveigu, í samvinnu við Björgvin Þ. Valdi-
marsson söngstjóra Skagfirsku söngsveit-
arinnar. Verkin verða frumflutt um helgina
og þeir tónleikar verða ekki smáir í sniðum.
„Það verða tveir fimmtíu manna kórar, Óp-
erukórinn og Skagfirska söngsveitin í Reykja-
vík. Garðar Cortes stjórnar og það verða þrír
einsöngvarar, Nanna María Cortes, Aron Axel
Cortes og Hlöðver Sigurðsson tenór. Við er-
um með þrjátíu manna hljómsveit með hljóð-
færaleikurum úr Sinfóníuhljómsveit Íslands
og svo verður kór skipaður þrjátíu stúlkum
úr unglingadeild Söngskólans í Reykjavík,“
segir Bjarni og verða flytjendur því samtals
hátt í 140 talsins.
Verkin fjalla um sögu og náttúru landsins,
það fyrra nefnist Jörð og fjallar um það þeg-
ar Ísland varð til í eldgosi á hafsbotninum og
hvernig það hefur meðhöndlað íbúana og
mótað þá. „Lengra verkið er byggt á sögunni
um Solveigu á Miklabæ, ég veit ekki hvort þú
kannast við hana?“ spyr Bjarni og það er
greinilega grunnt á kennaranum í honum.
Blaðamaður játar því að hafa heyrt hennar
getið og Bjarni heldur áfram. „Hún var ráðs-
kona hjá séra Oddi á Miklabæ í Blönduhlíð í
Skagafirði. Þau urðu ástfangin en máttu ekki
eigast því að hún var bara ráðskona. Honum
var fengin kona sem þótti honum samboðin
og þá gerðist Solveig sinnisveik og endaði á
því að skera sig á háls.“
Solveig fékk ekki að hvíla í vígðri mold og
var sögð ganga aftur og hrella íbúa á Mikla-
bæ þar til bein hennar voru tekin upp 160 ár-
um síðar, árið 1937 og jarðsett í kirkjugarði.
Bjarni segir að samúð hans og tónskáldsins sé
með Solveigu. „Við lítum hinsvegar á hana
sem fórnarlamb sögunnar en ekki sem draug.
Við tökum í höndina á Solveigu og tökum
hennar málstað.“
Tónlistin að báðum verkunum varð til á
undan ljóðunum og samvinna tónskáldsins
Björgvins og ljóðskáldsins Bjarna var mjög
náin. „Hann spilaði fyrir mig hugmynd að
verkinu og spurði mig hvað mér dytti í hug.
Ég giskaði á Solveigu í annarri tilraun og það
segir nú nokkuð um það hvað við náum vel
saman.“
Jörð og Solveig verða fluttar í Langholts-
kirkju laugardaginn 16. febrúar klukkan 15
og 17.
Hjálpar að hafa taktinn
140 manns flytja tónverk eftir Bjarna Konráðsson, íþróttakennara í MR
Árvakur/Árni Sæberg
Íþróttakennarinn „Það er fótboltinn, söngurinn og kveðskapurinn, það er þetta þrennt sem er stóra
málið,“ segir Bjarni Konráðsson sem er að fara að frumflytja 140 manna tónverk um helgina.
■ Lau. 16. febrúar kl. 17
Kristallinn – kammertónleikaröð Þjóðmenningarhúsinu
Fransk rússneskur kammersirkus. Litrík verk með fjölbreyttri
hljóðfæraskipan. Claude Debussy: Sónata fyrir flautu, víólu og
hörpu. Sergei Prókofíev: Kvintett fyrir óbó, klarinett, fiðlu, víólu og
kontrabassa. Maurice Ravel: Inngangur og allegró fyrir hörpu,
flautu, klarinett og strengjakvartett.
■ Fim. 21. febrúar kl. 19.30 – Nokkur sæti laus
Sellósnillingur í toppformi
Daniel Müller-Schott, ein skærasta stjarna sellóheimsins í dag,
leikur einleik í byltingarkenndum konsert Haydns. Einnig eru á
dagskrá forleikur eftir Mozart og Sveitasinfónía Beethovens.
■ Fim. 28. febrúar kl. 19.30
Liszt og Bruckner
Tveir stórmeistarar hvor á sínu sviði. Flutt verða píanókonsert eftir
Liszt og sinfónía eftir Bruckner.
Miðasala
S. 545 2500
www.sinfonia.is