Morgunblaðið - 13.02.2008, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 2008 41
Mánudagur 4. febrúar
Við erum nú stödd á eyjunniBalí í Indónesíu. Við kom-um hingað í gær eftir rúm-
lega þriggja tíma flug frá Ástr-
alíu, en þar höfum við verið í
þrjár vikur, nú síðast í Perth.
Ástralía er á suðurhveli jarðar
og þar er sumar þegar vetur er á
Íslandi. Ég hef aðeins fylgst með
fréttum frá fósturjörðinni og get
ekki annað sagt en að ég sé feginn
að losna við endalaust óveðrið.
Á Balí er veðrið frábært, um
þrjátíu stiga hiti þegar heitast er í
kringum hádegið. Balí er svo gott
sem á miðbaug jarðar og á hádegi
er sólin nánast beint fyrir ofan
mann. Þá er best að halda sig inn-
andyra.
Við erum í fríi núna, næstu tón-
leikar verða í Jakarta eftir viku.
Með réttu hefðum við átt að fara
til Íslands, en það er dýrara að
fara heim og fljúga svo út aftur. Í
staðinn erum við því á yndislegu
hóteli á ströndinni og það verður
gott að slaka aðeins á eftir
strangt tónleikaferðalag.
Talandi um peninga: Ég skipti
um hundrað og fimmtíu pundum á
flugvellinum í Balí í kvöld og varð
milljónamæringur á svipstundu,
fékk rúmlega þrjár milljónir af
rúpíum! Ein króna er um 1.500
rúpíur.
Þriðjudagur 5. febrúar
Í kvöld var leiksýning á einumaf matsölustöðunum á hót-
elinu. Undir sýningunni spilaði
hljómsveit á ýmis indónesísk
hljóðfæri, þar sem gamelan var
mest áberandi. Gamelan er áslátt-
arhljóðfæri sem gefur frá sér
nokkurs konar bjölluhljóm.
Tónlistin sem leikin var hafði
dáleiðandi áhrif, enda alltaf í
sömu tóntegund og aðeins fimm
nótur greinanlegar. Hún var samt
aldrei leiðinleg og leiksýningin,
einskonar dans sem ég kann því
miður ekki að nefna, var kostuleg.
Miðvikudagur 6. febrúar
Í dag fór ég ásamt velflestum úrbrasssveit Bjarkar að skoða
musteri. Musterið er helgað guð-
inum Shiva, en hann er einn af
heilagri þrenningu hindúa. Hinir
guðirnir eru Brahma og Vishnu,
sá fyrrnefndi táknar sköpunina
eða fæðinguna, en Vishnu táknar
lífið. Vishnu viðheldur lífinu og
verndar það, en Shiva eyðir því.
Eyðing er samt ekki alltaf nei-
kvæð; Shiva mun vera guð jóg-
anna, sem þrá að eyða blekking-
unni er kemur í veg fyrir að þeir
skynji heiminn eins og hann er í
raun og veru. Shiva hjálpar þeim
að gera það.
Ferðin í musterið tók um einn
og hálfan tíma og gafst gott færi á
að sjá Balí aðeins betur en úr hót-
elglugganum. Við stoppuðum á
leiðinni og fengum okkur að
borða á matsölustað nálægt hrís-
grjónaakri. Mér er sagt að í
hverri hrísgrjónaplöntu séu um
fimmtíu grjón. Hvað ætli séu
mörg grjón á venjulegum mat-
ardiski?
Þegar við komum að musterinu
sá ég fullt af litlum, gráum öpum
spígsporandi út um allt. Ég hafði
heyrt af því að aparnir á Balí geti
verið illkvittnir og séu sér-
staklega vondir við fólk með gler-
augu. Ég hélt því dauðahaldi í
gleraugun mín. En aparnir voru
voða góðir og létu mig alveg í
friði. Ein úr hópnum var samt
ekki eins heppin, því lítill api
reyndi að borða sjalið hennar,
sem var grænt og leit girnilega út.
Föstudagur 8. febrúar
Eftir mikinn letidag í gærákvað ég að gerast aftur túr-
isti og fór á fílsbak með nánast
öllum úr brasssveitinni. Það var
einhvers staðar úti í frumskóg-
inum, sem var í talsverðri fjar-
lægð frá hótelinu.
Að vera á fílsbaki er sérstök
upplifun, maður hossast gríð-
arlega og var ekki laust við að ég
yrði hálfsmeykur í fyrstu, enda
lofthræddur og fíll ekkert smá-
dýr. Við Harpa Jóhannsdóttir bás-
únuleikari, sem var sessunautur
minn, héldum dauðahaldi hvort í
annað fyrstu mínúturnar. En við
jöfnuðum okkur fljótt.
Sunnudagur 10. febrúar
Síðustu tvo daga hef ég baraslakað á og það er gott að
liggja í leti á hótelinu og á strönd-
inni við hliðina. Best að safna
kröftum fyrir tónleikaferðalagið,
sem hefst aftur á morgun. Meira
um það síðar.
Höfundur leikur á píanó, sel-
estu, orgel og önnur hljómborðs-
hljóðfæri í hljómsveit Bjarkar
Guðmundsdóttur.
Á fílsbaki á Balí
Í HEIMSREISU MEÐ BJÖRK
Jónas Sen
»Ég skipti um hundr-að og fimmtíu pund-
um […] og varð millj-
ónamæringur á
svipstundu, fékk rúm-
lega þrjár milljónir af
rúpíum!
Á baki Greinarhöfundur ásamt Hörpu Jóhannsdóttur básúnuleikara á fíl á
Bali. Á hinum fílnum eru Bergrún Snæbjörnsdóttir hornleikari og Sigrún
Kristbjörg Jónsdóttir básúnuleikari.
senjonas@gmail.com
KÁNTRÍSÖNGKONAN Dolly
Parton segir að brjóstin á sér séu
frægari en hún.
Parton, sem er nú 62 ára, heldur
því fram að hinar stóru DD-skálar
hafi stutt tónlistarferil hennar í
gegnum árin.
„Brjóstin á mér hafa þjónað mér
vel, ég veit ekki hvort ég styð þau
eða þau mig. En auðvitað hef ég látið
laga þau aðeins til. Þau eru hluti af
persónu minni og hafa alltaf tekið
smáálag af mér,“ sagði Parton sem
hefur farið í nokkrar brjóstaaðgerð-
ir um ævina. Hún hefur samt ekki
alltaf verið jafnjákvæð í garð barms-
ins því árið
2004 hugleiddi
hún að fara í
brjósta-
minnkun til að
létta álaginu
af bakinu.
„Brjóstin eru
að drepa mig
og ég veit
ekki hvort ég
þoli sársauk-
ann lengur.
Þau hafa verið merki mitt en ég hef
þurft að greiða það dýru verði,“ lét
Parton hafa eftir sér þá.
Studd af eigin barmi
Brjóstgóð Dolly Part-
on hefur ávallt flaggað
barminum stolt.
JOHNNY DEPP
BESTI LEIKARISIGURVEGARI
GOLDEN GLOBE®
SÖNGLEIKUR/
GAMANMYND
BESTA MYND
/ SELFOSSI/ KEFLAVÍK/ AKUREYRI
DIANE LANE Í
ÓVÆNTASTA
SÁLFRÆÐITRYLLI
ÁRSINS.
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI
HVERNIG
FINNURÐU
RAÐMORÐINGJA
SEM SKILUR EKKI
EFTIR SIG NEINA
SLÓÐ?
P.S. I LOVE YOU kl. 8 LEYFÐ
CHARLIE WILSON'S WAR kl. 10:10 B.i. 12 ára
CLOVERFIELD kl. 10:30 B.i. 14 ára
THE GAME PLAN kl. 8 LEYFÐ
BRÚÐGUMINN Sýnd föstudag B.i. 7 ára
eeee
„...EIN SKEMMTILEGASTA
GAMANMYND SEM ÉG HEF SÉÐ
Í LANGAN TÍMA...“
„...HENTAR FÓLKI Á ÖLLUM ALDRI
- FRÁBÆR SKEMMTUN!“
HULDA G. GEIRSDÓTTIR – RÚV/RÁS2
VERSLAÐU MIÐA Á NETINU Á
NO COUNTRY FOR OLD MEN kl. 8 B.i.16 ára
MEET THE SPARTANS kl. 8 B.i.16 ára
UNTRACEABLE kl. 10 B.i.16 ára
THE MIST SÍÐUSTU SÝNINGAR kl. 10 B.i.16 ára
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
MEET THE SPARTANS kl. 8 - 10 LEYFÐ
DEATH AT FUNERAL kl. 8 B.i.12 ára
CLOVERFIELD kl. 10:10 B.i. 16 ára
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KEFLAVÍK
"VEL SPUNNINN FARSI"
"...HIN BESTA SKEMMTUN."
HEIÐA JÓHANNSDÓTTIR
eee
S.V., MBL
eee
EITTHVAÐ SKELFILEGT ER Á SVEIMI!
SÝND Í KEFLAVÍK OG SELFOSSISÝND Í ÁLFABAKKASÝND Í ÁLFABAKKA
eee
- S.V.
FRÉTTABLAÐIÐ
DWAYNE „THE ROCK“ JOHNSON
eee
- S.V, MBL
SÝND Í KRINGLUNNI OG SELFOSSI
„Hressandi hryllingur“
„...besta mynd
Tim Burton
í áraraðir.“
R.E.V. – FBL.
eee
eeee
„Sweeney Todd er
sterkasta mynd þessa
ágæta leikstjóra
í háa herrans tíð...“
H.J. MBL
O S C A R
®
T I L N E F N I N G A R
ÞAR Á MEÐAL3BESTI LEIKARI - JOHNNY DEPP