Morgunblaðið - 13.02.2008, Síða 41

Morgunblaðið - 13.02.2008, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 2008 41 Mánudagur 4. febrúar Við erum nú stödd á eyjunniBalí í Indónesíu. Við kom-um hingað í gær eftir rúm- lega þriggja tíma flug frá Ástr- alíu, en þar höfum við verið í þrjár vikur, nú síðast í Perth. Ástralía er á suðurhveli jarðar og þar er sumar þegar vetur er á Íslandi. Ég hef aðeins fylgst með fréttum frá fósturjörðinni og get ekki annað sagt en að ég sé feginn að losna við endalaust óveðrið. Á Balí er veðrið frábært, um þrjátíu stiga hiti þegar heitast er í kringum hádegið. Balí er svo gott sem á miðbaug jarðar og á hádegi er sólin nánast beint fyrir ofan mann. Þá er best að halda sig inn- andyra. Við erum í fríi núna, næstu tón- leikar verða í Jakarta eftir viku. Með réttu hefðum við átt að fara til Íslands, en það er dýrara að fara heim og fljúga svo út aftur. Í staðinn erum við því á yndislegu hóteli á ströndinni og það verður gott að slaka aðeins á eftir strangt tónleikaferðalag. Talandi um peninga: Ég skipti um hundrað og fimmtíu pundum á flugvellinum í Balí í kvöld og varð milljónamæringur á svipstundu, fékk rúmlega þrjár milljónir af rúpíum! Ein króna er um 1.500 rúpíur. Þriðjudagur 5. febrúar Í kvöld var leiksýning á einumaf matsölustöðunum á hót- elinu. Undir sýningunni spilaði hljómsveit á ýmis indónesísk hljóðfæri, þar sem gamelan var mest áberandi. Gamelan er áslátt- arhljóðfæri sem gefur frá sér nokkurs konar bjölluhljóm. Tónlistin sem leikin var hafði dáleiðandi áhrif, enda alltaf í sömu tóntegund og aðeins fimm nótur greinanlegar. Hún var samt aldrei leiðinleg og leiksýningin, einskonar dans sem ég kann því miður ekki að nefna, var kostuleg. Miðvikudagur 6. febrúar Í dag fór ég ásamt velflestum úrbrasssveit Bjarkar að skoða musteri. Musterið er helgað guð- inum Shiva, en hann er einn af heilagri þrenningu hindúa. Hinir guðirnir eru Brahma og Vishnu, sá fyrrnefndi táknar sköpunina eða fæðinguna, en Vishnu táknar lífið. Vishnu viðheldur lífinu og verndar það, en Shiva eyðir því. Eyðing er samt ekki alltaf nei- kvæð; Shiva mun vera guð jóg- anna, sem þrá að eyða blekking- unni er kemur í veg fyrir að þeir skynji heiminn eins og hann er í raun og veru. Shiva hjálpar þeim að gera það. Ferðin í musterið tók um einn og hálfan tíma og gafst gott færi á að sjá Balí aðeins betur en úr hót- elglugganum. Við stoppuðum á leiðinni og fengum okkur að borða á matsölustað nálægt hrís- grjónaakri. Mér er sagt að í hverri hrísgrjónaplöntu séu um fimmtíu grjón. Hvað ætli séu mörg grjón á venjulegum mat- ardiski? Þegar við komum að musterinu sá ég fullt af litlum, gráum öpum spígsporandi út um allt. Ég hafði heyrt af því að aparnir á Balí geti verið illkvittnir og séu sér- staklega vondir við fólk með gler- augu. Ég hélt því dauðahaldi í gleraugun mín. En aparnir voru voða góðir og létu mig alveg í friði. Ein úr hópnum var samt ekki eins heppin, því lítill api reyndi að borða sjalið hennar, sem var grænt og leit girnilega út. Föstudagur 8. febrúar Eftir mikinn letidag í gærákvað ég að gerast aftur túr- isti og fór á fílsbak með nánast öllum úr brasssveitinni. Það var einhvers staðar úti í frumskóg- inum, sem var í talsverðri fjar- lægð frá hótelinu. Að vera á fílsbaki er sérstök upplifun, maður hossast gríð- arlega og var ekki laust við að ég yrði hálfsmeykur í fyrstu, enda lofthræddur og fíll ekkert smá- dýr. Við Harpa Jóhannsdóttir bás- únuleikari, sem var sessunautur minn, héldum dauðahaldi hvort í annað fyrstu mínúturnar. En við jöfnuðum okkur fljótt. Sunnudagur 10. febrúar Síðustu tvo daga hef ég baraslakað á og það er gott að liggja í leti á hótelinu og á strönd- inni við hliðina. Best að safna kröftum fyrir tónleikaferðalagið, sem hefst aftur á morgun. Meira um það síðar. Höfundur leikur á píanó, sel- estu, orgel og önnur hljómborðs- hljóðfæri í hljómsveit Bjarkar Guðmundsdóttur. Á fílsbaki á Balí Í HEIMSREISU MEÐ BJÖRK Jónas Sen »Ég skipti um hundr-að og fimmtíu pund- um […] og varð millj- ónamæringur á svipstundu, fékk rúm- lega þrjár milljónir af rúpíum! Á baki Greinarhöfundur ásamt Hörpu Jóhannsdóttur básúnuleikara á fíl á Bali. Á hinum fílnum eru Bergrún Snæbjörnsdóttir hornleikari og Sigrún Kristbjörg Jónsdóttir básúnuleikari. senjonas@gmail.com KÁNTRÍSÖNGKONAN Dolly Parton segir að brjóstin á sér séu frægari en hún. Parton, sem er nú 62 ára, heldur því fram að hinar stóru DD-skálar hafi stutt tónlistarferil hennar í gegnum árin. „Brjóstin á mér hafa þjónað mér vel, ég veit ekki hvort ég styð þau eða þau mig. En auðvitað hef ég látið laga þau aðeins til. Þau eru hluti af persónu minni og hafa alltaf tekið smáálag af mér,“ sagði Parton sem hefur farið í nokkrar brjóstaaðgerð- ir um ævina. Hún hefur samt ekki alltaf verið jafnjákvæð í garð barms- ins því árið 2004 hugleiddi hún að fara í brjósta- minnkun til að létta álaginu af bakinu. „Brjóstin eru að drepa mig og ég veit ekki hvort ég þoli sársauk- ann lengur. Þau hafa verið merki mitt en ég hef þurft að greiða það dýru verði,“ lét Parton hafa eftir sér þá. Studd af eigin barmi Brjóstgóð Dolly Part- on hefur ávallt flaggað barminum stolt. JOHNNY DEPP BESTI LEIKARISIGURVEGARI GOLDEN GLOBE® SÖNGLEIKUR/ GAMANMYND BESTA MYND / SELFOSSI/ KEFLAVÍK/ AKUREYRI DIANE LANE Í ÓVÆNTASTA SÁLFRÆÐITRYLLI ÁRSINS. SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI HVERNIG FINNURÐU RAÐMORÐINGJA SEM SKILUR EKKI EFTIR SIG NEINA SLÓÐ? P.S. I LOVE YOU kl. 8 LEYFÐ CHARLIE WILSON'S WAR kl. 10:10 B.i. 12 ára CLOVERFIELD kl. 10:30 B.i. 14 ára THE GAME PLAN kl. 8 LEYFÐ BRÚÐGUMINN Sýnd föstudag B.i. 7 ára eeee „...EIN SKEMMTILEGASTA GAMANMYND SEM ÉG HEF SÉÐ Í LANGAN TÍMA...“ „...HENTAR FÓLKI Á ÖLLUM ALDRI - FRÁBÆR SKEMMTUN!“ HULDA G. GEIRSDÓTTIR – RÚV/RÁS2 VERSLAÐU MIÐA Á NETINU Á NO COUNTRY FOR OLD MEN kl. 8 B.i.16 ára MEET THE SPARTANS kl. 8 B.i.16 ára UNTRACEABLE kl. 10 B.i.16 ára THE MIST SÍÐUSTU SÝNINGAR kl. 10 B.i.16 ára SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI MEET THE SPARTANS kl. 8 - 10 LEYFÐ DEATH AT FUNERAL kl. 8 B.i.12 ára CLOVERFIELD kl. 10:10 B.i. 16 ára SÝND Í ÁLFABAKKA OG KEFLAVÍK "VEL SPUNNINN FARSI" "...HIN BESTA SKEMMTUN." HEIÐA JÓHANNSDÓTTIR eee S.V., MBL eee EITTHVAÐ SKELFILEGT ER Á SVEIMI! SÝND Í KEFLAVÍK OG SELFOSSISÝND Í ÁLFABAKKASÝND Í ÁLFABAKKA eee - S.V. FRÉTTABLAÐIÐ DWAYNE „THE ROCK“ JOHNSON eee - S.V, MBL SÝND Í KRINGLUNNI OG SELFOSSI „Hressandi hryllingur“ „...besta mynd Tim Burton í áraraðir.“ R.E.V. – FBL. eee eeee „Sweeney Todd er sterkasta mynd þessa ágæta leikstjóra í háa herrans tíð...“ H.J. MBL O S C A R ® T I L N E F N I N G A R ÞAR Á MEÐAL3BESTI LEIKARI - JOHNNY DEPP

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.