Morgunblaðið - 13.02.2008, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 13.02.2008, Qupperneq 44
MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 44. DAGUR ÁRSINS 2008 »MEST LESIÐ Á mbl.is »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2800 HELGARÁSKRIFT 1700 PDF Á MBL.IS 1700 SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana ÞETTA HELST» Samningar að nást?  Yfirstandandi sólarhringur getur ráðið úrslitum um framhald kjara- samninga ASÍ og SA. Mögulegt er að þeim ljúki fyrir helgi. Samráðs- fundur forystu ASÍ og SA var hald- inn síðdegis í gær. » Forsíða Eldsneytisverð í hámarki  Núverandi eldsneytisverð er það hæsta hingað til hérlendis. Fram- kvæmdastjóra FÍB þykir heims- markaðshækkunin skila sér fljótt miðað við að lækkun síðustu vikna skilaði sér ekki til neytenda. » 2 Aðstoð við tjónaskýrslur  Nýtt einkafyrirtæki býður upp á aðstoð við að fylla út tjónaskýrslur eftir umferðaróhöpp. Með því verði komið í veg fyrir að sterkari aðili breyti atvikalýsingu sér í hag. » 8 Vildu myrða teiknara  Skopmyndamálið hefur kviknað á ný í Danmörku. Þrír menn voru handteknir, grunaðir um að hafa lagt á ráðin um að myrða teiknarann Kurt Westergaard. » 14 Ferjuflug eykst  Allt að tíu flugvélar sem verið er að ferja frá Bandaríkjunum til Evr- ópu lenda á Reykjavíkurflugvelli daglega. Starfsemin telst áhættu- söm og er mikillar reynslu og þekk- ingar krafist af flugmönnum. » Forsíða SKOÐANIR» Staksteinar: Hin heilaga vandlæting Forystugreinar: Hver er álstefna ríkisstjórnarinnar? | Jafnréttis- fordæmi KSÍ Ljósvaki: Beðið í tóminu UMRÆÐAN» Hættum að ota óhollustu að börnum Bændur, varist gylliboð Framhaldsskólarnir fimm Eiga ekki Geir og Árni … ábyrgð? %&9$ 9 %&9 9 9$& 9 %9 9%&% $9% ''9' <  =(  /  ,  > " # /  %&9 9 %&9 9 9 9% %9' 9% $9' ''9$ 9 . 4 !2 (  %&9%' 9$ %&9$ 9& 9 9' %9% 9% &9 ''9$ ?@AA5BC (8;BACD>(EFD? 45D5?5?@AA5BC ?GD(44BHD5 D@B(44BHD5 (ID(44BHD5 (3C((D#6B5D4C J5E5D(48J;D (?B ;3B5 >;D>C(3,(C85A5 Heitast 6°C | Kaldast -4°C Austan 13-18 metrar á sekúndu og víða rigning eða slydda, en þó úrkomulítið norð- austanlands. » 10 Kærasti Keira Knightley bauð henni til Íslands og þau verja Valent- ínusardeginum hér- lendis. » 36 FÓLK » Knightley kemur TÓNLIST» Íslenskir þungarokkarar vekja athygli. » 38 Ný tónlistarstefna gæti verið í smíðum hjá raftónlistarfólk- inu sem spilar á Organ í kvöld. » 40 TÓNLIST» Áttu ekki orð FÓLK» Féll í yfirlið við koss á kinn. » 37 KVIKMYNDIR» Kötturinn snýr aftur með Truffaut » 38 reykjavíkreykjavík VEÐUR» 1. Knightley á Íslandi 2. Óttast íslenska kollsteypu 3. Bjargaði eiginkonu í hjartastoppi 4. Leit við erfiðar aðstæður  Íslenska krónan styrktist um 1,2% ÍÞRÓTTAKENNARINN við Menntaskólann í Reykjavík, Bjarni Konráðsson, hefur mörg járn í eldinum. Á milli þess sem hann lætur menntskælinga hlaupa og dansa í leikfimi syngur hann og semur ljóð. Stundum sækir hann inn- blástur í kennsl- una og sömuleið- is getur listræn færni reynst vel í skólanum. „Söngurinn er mér í blóð borinn og það hlýtur að hafa þroskað til- finninguna fyrir takti. Ég kenni dans í leikfiminni og þá hjálpar til að hafa taktinn,“ segir Bjarni sem er nú að sjá sitt stærsta sköp- unarverk á listasviðinu verða að veruleika. | 36 Listrænn kennari Bjarni Konráðsson „MEÐ þessu móti viljum við heiðra minningu hins fallna meistara,“ segir Einar S. Einarsson, formaður RJF-hópsins, um minningarbók um skáksnillinginn Bobby Fischer sem liggja mun frammi í Þjóðmenn- ingarhúsinu út næstu viku. Fyrstur til að rita nafn sitt í bókina var að sjálfsögðu Sæmundur Pálsson, vinur Fischers til fjölmargra ára. Að sögn Einars munu vinir Fischers einnig standa fyrir minningarstund í Laugardælakirkju í Flóa- hreppi, þar sem hinn látni hvílir, á laugardaginn kemur kl. 11 og verður sú athöfn, að sögn Einars, öll- um opin meðan húsrúm leyfir. „Þetta verður hátíðleg en látlaus athöfn sem sr. Gunnþór Ingason og sr. Kristinn Ágúst Friðfinnsson munu annast. Guð- mundur G. Þórarinsson mun flytja minningarorð um skákmeistarann auk þess sem flutt verða lög sem Fischer voru kær.“ Aðspurður segir Einar að boð um minning- arathöfnina hafi verið send vinum og velunnurum Fichers bæði hér- og erlendis, en ekki sé á þessari stundu vitað hvort t.d. Boris Spasskí, fyrrverandi heimsmeistari í skák, og John Bosnitch, sem var hjálparhella Fischers í Japan á árunum 2004-2005, hafi tök á að mæta. Heiðra fallinn skákmeistara Minningarbók og -stund til heiðurs Bobby Fischer Árvakur/Ómar Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is KONA á níræðisaldri handleggsbrotnaði eftir að þrír ungir piltar ruddust inn í íbúð hennar í Reykjavík um helgina. Piltarnir munu hafa rugl- ast á íbúðum. Málavextir eru þeir að piltarnir töldu sig eiga óuppgerðar sakir við stúlku sem þeir leituðu að. Þeir bönkuðu upp á hjá konu á níræðisaldri sem býr í blokk í Vogahverfi í Reykjavík og spurðu um stúlkuna. Konan neitaði að hleypa mönn- unum inn, en þeir tóku orð hennar ekki trúanleg um að stúlkan væri ekki í íbúðinni. Þeir lögðust því á hurðina og ruddust inn. Við það datt konan og slasaðist. Hún var í framhaldi flutt á slysa- deild og kom þá í ljós að hún var handleggs- brotin. Lögregla kom á staðinn og handtók piltana. Þeir gáfu þá skýringu á því sem gerðist að um óviljaverk hefði verið að ræða og þeir hefðu bankað upp á hjá konunni fyrir mistök. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu mun málið ekki tengjast fíkniefnamálum. Lögreglan hefur ekki upplýsingar um að piltarnir hafi kom- ið áður við sögu lögreglu. Rannsókn lögregl- unnar á höfuðborgarsvæðinu á máli piltanna er ekki að fullu lokið. Mjög fullorðið fólk sem beinbrotnar getur ver- ið lengi að jafna sig á eftir. Þrír ungir piltar ruddust inn í íbúð konu á níræðisaldri  Konan féll við og handleggsbrotnaði í átökunum  Piltarnir áttu erindi í aðra íbúð FÉLAGAR í hjálparsveitinni Dal- björg voru kallaðir út í gær til að leita að tveimur gönguskíðamönnum sem voru í vandræðum á hálendinu ofan Eyjafjarðar. Vonskuveður var á svæðinu. Höfðu mennirnir samband við tengilið sinn og báðu um hjálp þar sem þeir treystu sér ekki út úr tjald- inu. Auk manna frá Dalbjörg voru björgunarsveitarmenn frá Súlum á Akureyri kallaðir út. Sleðamenn Dalbjargar fundu mennina á miðjum Urðarvötnum við GPS-punkt sem skíðamennirnir höfðu gefið upp. Þeir voru þá orðnir ískaldir eftir veruna í tjaldinu en hresstust fljótlega eftir að þeir komu í heitan bíl. Skíðamenn lentu í vanda ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.