Morgunblaðið - 02.04.2008, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 02.04.2008, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 89. TBL. 96. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 2008 LANDSPRENT EHF. mbl.is HÆFILEIKARÍK MARGRÉT DÓTTIR JÓNS GNARRS ER MEÐ EFNILEGUSTU SÖNGKONUM LANDSINS >> 36 FRÉTTASKÝRING Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is ÞEGAR verðbreytingar eru miklar stuðlar það að því að verðvitund fólks skerðist. Það er eitt af því slæma við verðbólguna.“ Þetta segir Henný Hinz, verkefnisstjóri verðlagseft- irlits ASÍ. Verðbólga mælist nú 8,7% sem er mesta verðbólga sem mælst hefur hér á landi í fjögur ár. Forsvarsmenn stórfyrirtækja hafa lýst því yfir í fjöl- miðlum síðustu daga að verð á mat- vöru muni hækka um tugi prósenta. Henný segir að verðbreytingar séu almennt tíðar í lágvöruverðs- verslunum, í báðar áttir, og það auð- veldi neytendum ekki að átta sig á hvað sé eðlilegt verð. Hún segir að þetta kunni að vera ein ástæða þess að verðskyn Íslendinga sé almennt ekki gott. Náttúrulögmál Á árum áður mældist verðbólga í tugum prósenta hér á landi og segja má að fólk hafi þá litið á verðhækk- anir svipuðum augum og vetrarlægð- irnar. Hvort tveggja væri slæmt en óviðráðanlegt. Henný segir að þegar búið sé að koma því inn hjá fólki að verðhækk- anir séu óhjákvæmilegar sé hætt við að ýmsir aðilar gangi á lagið og hækki verð án þess að fyrir því séu mikil rök. „Við höfum séð að und- anförnu ótrúlegar tölur,“ segir Henný. Hún segir að sem betur fer átti sumir kaupmenn sig á því að gengislækkun krónunnar kalli ekki þegar í stað á verðhækkun. Það hafi t.d. verið afar ánægjulegt að sjá rök framkvæmdastjóra IKEA í Morg- unblaðinu í gær, en fyrirtækið ætlar ekki að breyta verði á vörum fyrr en nýr vörulisti kemur í ágúst. Viðskiptaráðherra kallaði fulltrúa ASÍ, Neytendasamtakanna og talsmann neytenda á sinn fund í gær þar sem fjallað var um verðbreyt- ingar og leiðir til að efla verðlags- eftirlit. | 12 Morgunblaðið/ÞÖK Verð Verðbólgan mælist nú 8,7% sem er mesta verðbólga í fjögur ár. Sjáum ótrúlegar tölur Verðbólga skerðir verðvitund fólks FERÐAKLÚBBURINN 4x4 efndi í gær til umfangsmikilla mót- mæla vegna hækkunar eldsneyt- isverðs. Á þriðja hundrað ökutækja var ekið frá Klettagörðum um Sæ- braut og framhjá Alþingishúsinu þar sem flautur og lúðrar voru þeytt af miklum krafti. Þegar þangað var komið var forseta Alþingis afhent áskorun til ríkisstjórnarinnar, þar sem farið var fram á að álögur rík- isins á eldsneytisverð yrðu tekn- ar til endurskoðunar. Nokkur fjöldi fólks safnaðist saman á Austurvelli til að sýna bílstjórunum samstöðu. Viðbún- aður og skipulagning lögreglu var nokkuð mikil en allt gekk áfallalaust fyrir sig. | 4Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Þeyttu flaut- ur og lúðra hjá Alþingi Bílstjórar efndu í gær til mótmæla vegna hækkunar á eldsneytisverði Kommúnan >> 37 Öll leikhúsin á einum stað Leikhúsin í landinu Lau kl. 10.00-17.00 Sun kl. 12.00-16.00 Við frumsýnum 2008 árgerðina af stórglæsilegum Rockwood fellihýsum helgina 5.-6. apríl í verslun okkar að Fosshálsi 5-7. Rockwood fellihýsin 2008 Fossháls 5-7 • 110 Reykjavík Sími 551 5600 • Fax 551 5601 www.utilegumadurinn.is Eftir Steinunni Ásmundsdóttur steinunn@mbl.is ÍAV hefur ákveðið að bjóða ekki í fleiri verk á Austurlandi. Ástæðan er kólnun á íbúðamarkaði og minnkandi umsvif í verklegum framkvæmdum í fjórðungnum. Aðflutningur nýrra íbúa til Austurlands hefur ekki orðið eins mikill og talið var að yrði, en þar eru ekki öll kurl komin til grafar enn. „ÍAV hefur markað sér þá stefnu að afla ekki frekari verkefna á Aust- urlandi og er að draga saman seglin,“ segir Guðgeir Sigurjónsson, verkefn- isstjóri á mannvirkjasviði og stjórn- andi ÍAV á Austurlandi. Fyrirtækið hefur velt á milli 500 og 1.100 milljóna árlega vegna verkefna sinna á Austurlandi. Meiri hluti fram- kvæmda hefur falist í tilboðsverkum, þ.m.t. stækkun Lagarfossvirkjunar. Einnig íbúðabyggingum, en um 70 íbúðir hafa verið byggðar af ÍAV á Mið-Austurlandi á undanförnum ár- um. Mikið hefur verið notað af und- irverktökum en fyrirtækið hefur um 20 starfsmenn á launaskrá á Austur- landi. „Við erum að byggja vélaverkstæði fyrir Vélsmiðju Hjalta Einarssonar við Mjóeyrarhöfn á Reyðarfirði, fjór- tán íbúða blokk fyrir sama fyrirtæki á Reyðarfirði og íbúðir í Votahvammi á Egilsstöðum og á Breiðamel á Reyð- arfirði,“ segir Guðgeir um stærstu verkefnin á Austurlandi. ÍAV gerði sér fimm ára áætlun þegar ákveðið var að fara í verkefni á Austurlandi árið 2003. Guðgeir segir eigendum nú þykja kominn tími til að stokka upp, því íbúðamarkaðurinn á Austurlandi sé lakari en menn von- uðust til. Þær væntingar sem fyrir- tækið gerði sér um verkefnastöðu nú hafi ekki gengið eftir. Þrátt fyrir að íbúðamarkaðurinn eystra sé lakur virðist talsvert vera af smærri verk- efnum framundan í annarri uppbygg- ingu. Styrkur ÍAV liggi í stærri verk- efnum og því kjósi fyrirtækið að halda að sér höndum. Reiknað er með að þeim verkum sem ÍAV er með á sinni könnu nú ljúki í september á þessu ári. Uppsagnir eru þegar byrj- aðar og framhald verður þar á fram á haustið. Austurland óvænlegt  ÍAV mun ekki taka fleiri verkefni á Austurlandi og lýkur verkefnum þar í haust  Væntingar um íbúðasölu og fólksfjölgun vegna álvers hafa ekki gengið eftir Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Til sölu ÍAV hættir á Austurlandi. Í HNOTSKURN »ÍAV mun ekki leita frekariverkefna á Austurlandi og lýkur framkvæmdum við fyr- irliggjandi verk í haust. 20 starfsmenn missa vinnuna. STIMPILGJÖLD vegna kaupa á fyrstu íbúð verða af- numin ef frumvarp sem Björgvin G. Sigurðsson við- skiptaráðherra lagði fram á Alþingi í gær verður sam- þykkt. Skilyrði fyrir niðurfellingu stimpilgjaldanna er að kaupandi hafi ekki áður verið skráður þinglýstur eig- andi að fasteign. Eigi maki viðkomandi kaupanda íbúð verður helmingur stimpilgjalda felldur niður en með því er horft til þess að hjón eða sambúðarfólk kaupi fast- eignir í sameiningu. Niðurfellingin nær aðeins til lán- töku vegna kaupa á íbúðarhúsnæði til eigin nota en t.d. ekki til atvinnuhúsnæðis eða húsnæðis til útleigu. Stimpilgjöld af fyrstu íbúð burt Björgvin G. Sigurðsson Helmingur felldur niður ef maki á íbúð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.