Morgunblaðið - 02.04.2008, Qupperneq 4
4 MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur
elva@mbl.is
TAKA þarf fastar á eigendum
mannlausra húsa í miðborginni sem
láta húsin drabbast niður. Huga
þarf að viðurlögum eins og dagsekt-
um og hefur byggingarfulltrúi slíkar
aðgerðir til skoðunar. Þetta kom
fram í máli meirihlutans á borg-
arstjórnarfundi í gær. Þar var efnt
til umræðu um málefni miðborg-
arinnar að ósk allra flokka.
Ólafur F. Magnússon borgarstjóri
sagði að á næstunni verði stofnaður
átakshópur um bætta umgengni í
miðborginni, undir forystu borg-
arstjóra. Í hópnum verða helstu
embættismenn borgarinnar sem
koma að málunum, auk slökkviliðs-
stjóra höfuðborgarsvæðisins. „Enn-
fremur verður lögregla kölluð til og
fulltrúar íbúasamtaka og hags-
munaaðila,“ sagði Ólafur og sagði að
hópurinn myndi hittast mjög ört.
Jafnframt stæði til að leggja aukna
fjármuni í verkefnið, en ekki kom
fram í máli Ólafs hversu há sú upp-
hæð er. Strax verði hafist handa og
sagði Ólafur að á næstu vikum og
mánuðum myndu íbúar sjá mun á
miðborgarbragnum. „Ég get lofað
borgarbúum að þegar þeir mæta til
hátíðahaldanna 17. júní í miðborg-
inni okkar allra koma þeir í hreina
og fallega miðborg sem við getum
öll verið stolt af,“ sagði borgarstjóri.
Unnið að myndun kjarnasvæða
Þá skal stefna að því að svonefnd
kjarnasvæði verði í miðbænum, að
því er Hanna Birna Kristjánsdóttir,
formaður skipulags- og bygging-
arráðs, sagði á fundinum. Hún sagði
að þegar væri farið að huga að
þessu. „Þá draga menn hring í
kringum svæði sem talin eru sér-
staklega verðmæt í skipulagslegu
tilliti, mikilvæg fyrir höfuðborgir og
talin hafa sögu- og menningarlegt
gildi sem okkur finnst sérstakt og
einstakt. Flestar metnaðarfullir
borgir hafa löngu dregið hring utan
um sinn kjarna,“ sagði Hanna
Birna. Tímabært væri að draga slík-
an hring hér. „Það kjarnasvæði er
Laugavegurinn, Kvosin, Þingholt og
Hverfisgata,“ sagði Hanna Birna.
Setja ætti skýrar grunnreglur um
að á þessum svæðum ætti að gera
meiri kröfur um byggða- og borg-
arvernd og um virðingu fyrir því
sem fyrir er, heldur en annars stað-
ar er. Þetta væri í góðu samræmi
við vinnu sem unnin hefði verið á
tímum 100 daga borgarstjórn-
arinnar í haust.
Hanna Birna sagði að bygging-
arfulltrúi borgarinnar myndi í dag
kynna tillögur á fundi skipulagsráðs
að lausn mála á reitnum sem mark-
ast af Hverfisgötu, Laugavegi og
Klapparstíg og hefur verið hvað
mest í umræðunni. Þar hefðu verið
mikið í umræðunni tvö hús sem ekki
hefði fengist heimild til að rífa
vegna þess að ekki lægi fyrir bygg-
ingarleyfi. „Mér finnst ekki að við
eigum að skapa það fordæmi að
veita heimild fyrir niðurrifi húsa án
þess að fyrir liggi heimild til bygg-
ingar.“ Mikilvægt væri að ekki
mynduðust skörð í miðborgina án
þess að fyrir lægi hvað koma ætti í
staðinn.
Óskar gagnrýndi Ólaf
Við upphaf fundarins gagnrýndi
Óskar Bergsson, fulltrúi Framsókn-
arflokks, borgarstjóra, sem hann
sagði þrisvar hafa veist að Fram-
sóknarflokknum. Óskaði hann skýr-
inga á þessu við upphaf borg-
arstjórnarfundar í gær, en sagði í
samtali við mbl.is að borgarstjóri
hefði ekki svarað þessu. Sagði Ósk-
ar nýjasta dæmið vera ummæli
borgarstjóra í kvöldfréttum Rík-
issjónvarpsins í fyrrakvöld um að
Framsóknarflokkurinn væri sá
flokkur sem lengst hefði gengið í
þjónustu við verktaka og auðmenn.
Lofar hreinni miðborg 17. júní
Undirbúningur hafinn að myndun sérstakra kjarnasvæða í miðborginni
Á kjarnasvæðunum verða m.a. gerðar ríkar kröfur um byggða- og borgarvernd
ÁKVEÐINN subbuskapur er af bílum í miðborginni. Þetta kom fram í máli
Gísla Marteins Baldurssonar, formanns umhverfis- og samgönguráðs í gær.
Gísli Marteinn sagði á undanförnum mánuðum og árum hefði sigið mjög á
ógæfuhliðina. „Við höfum misst stjórn á því hvernig og hvar bílum væri lagt í
miðborginni,“ sagði hann. Mjög víða væri erfitt fyrir gangandi vegfarendur
að komast um.
Gísli sagði að borgin hefði sofið á verðinum þegar ákveðið var að setja
1.600-1.800 bílastæði undir nýja tónlistarhúsið án þess að ákveða að fækka
stæðum ofanjarðar. Hann sagði nauðsynlegt að merkja betur þá staði sem
ekki mætti leggja á. Í dag legðu t.d. margir bílum á Lækjartorgi, refsilaust,
enda væri þar ekkert skilti um að bannað væri að leggja þar.
Subbuskapur af bílum
Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur
jmv@mbl.is
„ÞEGAR fremstu bílarnir voru við
Seðlabankann voru þeir síðustu ekki
lagðir af stað úr Klettagörðum, það
var samfelld röð alla leið, margir
bættust í hópinn og þetta tókst mjög
vel í dag. Við höldum ótrauð áfram
þar til við fáum viðbrögð,“ sagði
Hjörtur Jónsson, fulltrúi sendibíl-
stjóra, um mótmæli atvinnubílstjóra
vegna hækkana á eldsneytisverði,
sem fram fóru í gær.
Á þriðja hundrað ökutækja ók frá
Klettagörðum um Sæbraut og inn á
Austurvöll, þar sem Sturlu Böðv-
arssyni, forseta Alþingis, var afhent
áskorun til ríkisstjórnarinnar um
lækkun eldsneytisverðs. Mótmælin
voru skipulögð af Ferðaklúbbnum
4x4 og voru þau umfangsmestu sem
haldin hafa verið síðustu daga.
Að sögn lögreglu höfuðborg-
arsvæðisins var viðbúnaður nokkur
við Alþingi og á götum borgarinnar,
en allt gekk áfallalaust fyrir sig.
Minniháttar lokanir voru á gatna-
mótum Miklubrautar og Kringlu-
mýrarbrautar eftir að bílarnir fóru
úr miðbænum. Einnig var lokað á
Gullinbrú og hægaakstur var á
Kringlumýrarbraut til suðurs.
Vonandi það sem til þarf
Hávaðinn var ærandi er trukkar
og jeppar renndu fram hjá Alþing-
ishúsinu og bílstjórar þeyttu flautur
og þokulúðra í mótmælaskyni.
Blaðamaður hafði tal af nokkrum
bílstjóranna og var mikill hugur í
mönnum: „Þetta er vonandi það sem
til þarf svo eitthvað breytist, ég
ferðast gjarnan innanlands þar sem
ég er leiðsögumaður en það fer að
verða erfitt eins og verðlagið er orð-
ið,“ sagði meðlimur í Ferðaklúbbn-
um 4x4 og Jeppavinum sem hefur
það að atvinnu að aka ferðamönnum
um landið.
Áætlað er að á fimmta hundrað
manns hafi safnast saman á Aust-
urvelli til að sýna bílstjórum sam-
stöðu. Heyra mátti nokkur vonbrigði
hjá viðmælendum Morgunblaðsins
sem töldu þátttökuna alltof slaka og
var mörgum heitt í hamsi.
„Löngu tímabært“
„Fólk ætti að skammast sín, það
hefðu miklu fleiri mátt sýna sam-
stöðu og mæta hingað í dag,“ sögðu
hjónin Helga og Einar sem gerðu
sér far í bæinn til að taka þátt í mót-
mælunum, „það er löngu tímabært
að fólk láti í sér heyra, landsmenn
hafa alltof lengi látið valta yfir sig.“
Það var breiður hópur sem mætti
á Austurvöll og var barnafólk þar á
meðal. „Við þurfum að koma börn-
unum í leikskóla, komast í vinnu og
sækja börnin og það getum við ekki
án þess að vera á tveimur bílum.
Þetta verð er fólki ekki bjóðandi,
hvað þá barnafólki,“ sagði heim-
ilisfaðir sem kom gagngert til að
vera viðstaddur mótmælin „það
mætti líka gera manni auðveldara
fyrir að kaupa vistvæna bíla.“
Mótmælin fóru átakalaust fram þó
að einhverjir hefðu viljað meiri has-
ar og var unglingsstúlka elt uppi af
lögreglu eftir að hafa kastað eggi í
Alþingishúsið.
„Þetta hefur gengið ágætlega, það
sem skipti sköpum er að við vorum
vel undirbúin og gátum skipulagt
okkur. Við erum svo bara viðbúin að
mæta framhaldinu,“ sagði Geir Jón
Þórisson, yfirlögregluþjónn höf-
uðborgarsvæðisins.
Mótmæli víðar um landið
Um sjötíu ökutækjum, aðallega
flutningabílum og vinnuvélum, var
ekið um götur Akureyrar í gær og
urðu nokkrar tafir á umferð.
Vörubílstjórar og félagar í Aust-
urlandsdeild Ferðaklúbbsins 4x4
mótmæltu á Egilsstöðum og þeyttu
flautur. Um áttatíu vörubílar, rútur,
jeppar og önnur ökutæki tepptu
Fagradalsbraut með hægaakstri.
„Höldum ótrauð áfram“
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Áskorun Sturla Jónsson, talsmaður vörubílstjóra, ræðir við Sturlu Böðvarsson, forseta Alþingis, eftir að honum
hafði verið afhent áskorun til ríkisstjórnarinnar um að eldsneytisverð verði tekið til endurskoðunar.
Umfangsmestu
mótmæli atvinnu-
bílstjóra til þessa
fóru fram í gær
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Akureyri Um sjötíu bílum var ekið löturhægt um götur Akureyrar í gær og
flautur þeyttar í mótmælaskyni. Hér heldur flotinn upp Dalsbraut.
Í HNOTSKURN
»Í áskoruninni til ríkisstjórn-arinnar var farið fram á
lækkun álagna ríkisins á elds-
neytisverð.
»Búist er við áframhaldandimótmælum og hyggjast bíl-
stjórar ekki gefast upp fyrr en
kröfum þeirra verður svarað.
Á TÍMABILINU mars 2007 til febr-
úar 2008 hækkaði matvælaverð á
Íslandi um 6,5%, í Danmörku um
7,2%, í Svíþjóð um 6,0%, í Noregi
um 3,3% og í Finnlandi um 6,1%.
Meðaltalshækkun á matvælum á
Norðurlöndunum á þessu tímabili
nam því 5,8%. Þetta kemur fram í
nýrri samantekt Rannsóknarseturs
verslunarinnar.
Teknar voru saman ýmsar upp-
lýsingar um verðlagsþróun á mat-
vörum síðasta árið. Samantektin
var gerð til að varpa ljósi á að verð-
hækkanir eru hvorki einskorðaðar
við íslenska verslun eða framleið-
endur matvæla. Viðmiðunartíma-
bilið var frá 1. mars 2007 þegar
virðisaukaskattur á matvæli var
lækkaður og vörugjöld afnumin.
Svipaðar
verðhækkanir
á matvælum
HAFNARFJARÐARBÆR hefur
tekið erlent lán upp á um þrjá millj-
arða króna, en umsjón og ráðgjöf
vegna lántökunnar var í höndum
Aska Capital.
Um er að ræða fjölmynta veltu-
lán til þriggja ára, en að teknu tilliti
til núverandi markaðsástæðna þótti
ráðlegra að semja ekki við lánveit-
anda til langs tíma, m.a. til að festa
sveitarfélagið ekki í þeim láns-
kjörum sem nú ríki á lánsfjármörk-
uðum. Álag á lánið var tiltölulega
lágt, eða frá 75 grunnpunktum á
evru upp í 85 grunnpunkta á Kan-
adadal.
Hafnarfjarðarbær leitaði tilboða
hjá innlendum og erlendum fjár-
málastofnunum, en gekk til samn-
inga við hinn írska DEPFA bank.
Er lánið tekið til að fjármagna þær
framkvæmdir sem fram koma í
fjárhagsáætlun 2008-2011.
Taka lán með
lágu álagi
Morgunblaðið/Árni Sæberg
GEIR H. Haarde forsætisráðherra
segir að ekkert sé athugavert við það
að hann og utanríkisráðherra fari
með einkaþotu til Búkarest í Rúmen-
íu á fund Norður-Atlantshafsbanda-
lagsins, 2.-4. apríl, þar sem kostn-
aðurinn sé svipaður og við það að
fara með áætlunarflugi. Að auki sé
mikill tímasparnaður af þessum
ferðamáta samanborið við að fara
með áætlunarflugi. Þetta kom fram í
Kastljósi Ríkisútvarpsins í gær-
kvöldi. Meðal annars kom fram að
hann hefði ekki getað setið fyrir
svörum í Kastljósi í gær hefði hann
farið með áætlunarflugi þar sem
hann hefði þurft að vera lagður af
stað.
Ekkert at-
hugavert við
einkaþotuferð
ÖKUMAÐUR fólksbíls sofnaði und-
ir stýri og hitti ekki á brúna yfir
Seljadalsá í Reykjadal skammt frá
Laugaskóla klukkan 3.30 í gær.
Framendi bílsins braut gat á ísinn
en ísinn hélt og að sögn lögreglunnar
á Húsavík var hinn 19 ára ökumaður
heppinn að fara ekki niður úr ísnum.
Ökumaðurinn slapp ómeiddur.
Sofnaði og hitti
ekki á brúna
♦♦♦
♦♦♦