Morgunblaðið - 02.04.2008, Side 9

Morgunblaðið - 02.04.2008, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 2008 9 FRÉTTIR Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is VÖRUBÍLSTJÓRAR hafa undan- farna daga mótmælt háu eldsneyt- isverði og gert um leið lögreglunni heitt í hamsi með því að stöðva um- ferð á mikilvægum umferðaræðum Reykjavíkur. Og helsti leiðtogi þeirra er Sturla Jónsson. En hver er mað- urinn sem menn ýmist gagnrýna fyr- ir að hefta för almennings eða hrósa fyrir að taka upp hanskann fyrir sama almenning? „Ég er 41 árs, fæddur í Reykjavík og alinn upp í Breiðholtinu en bý nú með eiginkonu og þremur sonum í Grafarvoginum,“ segir Sturla. „Ég hef alltaf þurft að vinna hörðum höndum fyrir mínu og fæddist ekki með silfurskeið í munninum. Maður þurfti að naga rifbein þegar maður var krakki!“ Sturla er ekki með mikla skóla- menntun, segist ekki einu sinni hafa lokið við grunnskólann. Bækur og hann hafi ekki átt samleið. En hann hefur unnið ýmis störf um ævina, meðal annars verið til sjós, unnið við járnsmíði, múrverk, rafvirkjun og fleira en hefur nú verið verktaki í tíu ár og rekur vörubíl og stóra belta- gröfu. Bílana og tækin flytur hann inn sjálfur, Volvo-vörubílinn nýja frá Kanada, vélavagninn frá miðríkjum Bandaríkjanna og hann er nú að láta smíða fyrir sig malarvagn vestra. Þannig sleppur hann við að borga umboðunum álagninguna sem hann segir geysimikla. Sturla nýtur þess í viðskiptunum að vestanhafs búa frændur hans sem hafa verið honum innan handar og er hann í nánast daglegum samskiptum við þá. „Ég hef aldrei verið hræddur við að hringja, enginn hefur verið laminn gegnum síma,“ segir hann hlæjandi. Sturla er oft með fleiri bíla í vinnu, oft sjö eða átta. Hann segist taka að sér margvísleg verk en hefur mest unnið við gatnagerð og mokað fyrir húsgrunna, mest á höfuðborgar- svæðinu. Bönkunum er skítsama Sturla segir vinnudaginn oft lang- an hjá sjálfstæðum verktökum, 12-14 stundir, jafnvel líka um helgar en síð- an um miðjan janúar hefur verið minna að gera en á undanförnum ár- um. „Það hefur ekki verið neitt að gera. Það á eftir að ljúka við mörg verk sem menn voru byrjaðir á en jarð- vinnugeirinn, sem ég er í, hefur hrap- að. Þessi endi er alltaf verst settur þegar fer að hægja á. Maður mokar kannski fyrir einhvern, honum geng- ur illa að fá fjármagn til að byggja húsið. Bankinn setur skilyrði um að búið sé að steypa allavega sökklana áður en lán verði veitt. Þá borgar bankinn jafnvel sökklana til að hús- byggjandinn geti haldið áfram en jarðvinnuverktakinn situr eftir. Bankarnir stýra því hvert pening- arnir fara og þeim er skítsama um þann sem gróf grunninn að húsinu sem þeir ætla jafnvel að hirða af hús- byggjandanum. Það er þeirra gróði að fá þetta frítt.“ – Ykkur er illa við reglurnar um hvíldarskyldu bílstjóra, vökulögin eins og þið nefnið þau … „Já, alla forræðishyggjuna. Ég man eftir samtali við gamla konu, 94 ára held ég. Hún sagði að eitt það versta sem búið væri að gera þjóðinni væri að krökkum hefði verið bannað að vinna fram til 13-14 ára aldurs. Í hnignandi þjóðfélagi er svona orku- miklu fólki bannað að gera nokkurn skapaðan hlut. Það er ekkert að því að 13 eða 14 ára gamall gemlingur sé í byggingavinnu.“ – En þú veist að stundum var krökkum þrælað út, ekki satt? „Auðvitað en það hefur varla verið nokkur þrældómur hér á Íslandi síð- ustu áratugina. Hér ríkir forræðis- hyggja, alltaf einhver andandi ofan í hálsmálið á þér.“ Sturla Jónsson, vörubílstjóri og verktaki, berst gegn hækkandi eldsneytisverði „Hér ríkir for- ræðishyggja“ Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Skeleggur Sturla Jónsson, vörubílstjóri og verktaki í Reykjavík: „Hef allt- af þurft að vinna hörðum höndum fyrir mínu.“ Eftir Sunnu Ósk Logadóttur sunna@mbl.is „ÞETTA var það sem við stefndum að og var bæði gleðilegt og að sumu leyti óvænt,“ segir Snorri Magnússon, sem hefur verið kjör- inn formaður Landssambands lög- reglumanna. Hann tekur við starf- inu á Landssambandsþingi í lok mánaðarins. Listinn sem Snorri fór fyrir fékk 70% atkvæða í kosningu sem fram fór nýverið. Tveir listar voru í framboði og var listi upp- stillingarnefndar felldur. Snorri hefur verið í stjórn Lög- reglufélags Reykjavíkur og starfað sem lögreglumaður í Reykjavík frá árinu 1984. Hann er nú rannsókn- arlögreglumaður hjá lögreglu höf- uðborgarsvæðisins. „Þannig að ég þekki alla innviði lögreglunnar, hef starfað í öllum deildum lögregl- unnar að umferðardeildinni undan- skilinni,“ segir Snorri. Eftirlaun og öryggi Spurður um áherslur hjá Lands- sambandinu á næstunni segir Snorri tvennt standa upp úr: Launa- og öryggismál. Af nógu öðru sé einnig að taka. „Það er al- veg kristaltært að við munum sækjast eftir verulegri hækkun grunnlauna og leggja áherslu á lækkun eftirlaunaaldurs lögreglu- manna,“ segir Snorri. Þegar hafi áfangar náðst hvað varðar eftirlaunaaldurinn og er hann nú 65 ár. „En við viljum halda þeirri baráttu áfram,“ segir hann. „Svo viljum við að það verði tekið af alvöru á ofbeldisbrotum gegn lögreglunni. Við sættum okkur ekki við að sjá viðlíka dóma og þegar ráðist var á fíkniefna- lögregluna nýverið,“ og vísar Snorri þar til þess er tveir karl- menn voru sýknaðir í héraðsdómi af ákæru fyrir ofbeldi gegn lög- reglumönnum á Laugaveginum í janúar sl. en félagi þeirra var sak- felldur og dæmdur í 60 daga skil- orðsbundið fangelsi. Þá segir Snorri að gera þurfi bragarbót á menntunarmálum lög- reglumanna. „Við munum beita okkur fyrir fjölgun lögreglumanna og einnig leggja sérstaka áherslu á menntunarmál.“ Snorri segir að tryggja þurfi rekstrargrundvöll Lögregluskóla ríkisins. Er m.a. áhugi á því að lengja námið og auka möguleika á framhaldsmenntun. „Skólinn hefur verið með mjög metnaðarfullt starf í framhaldsdeild þó hann hafi ekki fengið sérstakar fjárheimildir til þess,“ segir Snorri og vill leiðrétt- ingu þar á. Kjarasamningar lögreglumanna eru lausir í haust. Launa- og öryggismál verða sett á oddinn í framtíðinni Morgunblaðið/Ómar Á vaktinni Snorri Magnússon tekur við formennsku í Landssambandi lög- reglumanna í lok mánaðarins en hann hefur áratuga starfsreynslu. STJÓRN Félags sumarhúsaeigenda í landi Kárastaða við Þingvallavatn lýsir yfir stuðningi við Pétur Jón- asson og fleiri líffræðinga um mik- ilvægi þess að varðveita lífríki Þing- vallavatns. Lagning fyrirhugaðs þjóðvegar yfir Lyngdalsheiði muni auka mjög umferðarþunga í gegnum þjóðgarð- inn með aukinnimengun og röskun á lífríki vatnsins. Ítrekaðar eru ábend- ingar um að hámarkshraði á Þing- vallavegi um Mosfellsheiði þoli ekki meiri hámarkshraða en 80 km og að hámarkshraði innan vatnsverndar- sviðs Þingvallavatns verði 60 km. Styðja Pétur Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigur 5 • Sími 581 2141 Hörkjólar og -jakkar Laugavegi 63 • S: 551 4422 Glæsileg sparidress Mikið úrval - góð verð Sundaborg 11-15 • Verslunar-, skrifstofu- og lagerhúsnæði • Heildarstærð 2000 m2. • Afar góð staðsetning í næsta nágrenni við Sundahöfn • Frábært útsýni • Malbikuð bílastæði og gott athafnasvæði • Gott ásigkomulag jafnt utan sem innan • Til greina kemur að selja í tveimur hlutum Afmælisþakkir Sendi kveðjur og þakklæti til allra sem glöddu mig á 95 ára afmælinu 26. mars síðastliðinn. Kær kveðja, Valgerður Sóley Ólafsdóttir frá Jörfi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.