Morgunblaðið - 02.04.2008, Qupperneq 10
10 MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Grimm veröld, eitt allsherjar samsæri.
VEÐUR
Hugh Hendry, yfirmaður fjár-festingasviðs breska vog-
unarsjóðsfyrirtækisins Electica
Asset Management sagði í samtali
við breska dagblaðið Times fyrir
tæpum tveimur árum að hann
vildi láta minnast sín sem manns-
ins sem gerði Ísland gjaldþrota.
Þetta varrifjað upp
í frétt í
Morgun-
blaðinu í gær
þar sem kom
jafnframt
fram að einn
sjóða Elec-
tica, the Elec-
tica Fund,
væri sjóður
sem fjárfesti í hlutabréfum og
gjaldmiðlum. Sjóðurinn er um
19,1 milljarðs króna virði.
Þar kemur fram að í yfirliti yfirstöðu sjóðsins í febrúar-
mánuði hafi um 10% af fjárfest-
ingum sjóðsins í gjaldeyri verið
skortstaða í íslensku krónunni.
Ekki er gefið upp um hve mikla
fjármuni ræðir, en væntanlega er
þar um innan við tveggja millj-
arða króna eign í krónum að
ræða, þegar litið er á heild-
arstærð sjóðsins.
Það er því annaðhvort mont eðahreinræktuð heimska sem
ræður orðum ofangreinds Hugh
Hendry, þegar hann gerir sér
vonir um að „verða þekktur sem
maðurinn sem gerði Ísland gjald-
þrota“, nema hvort tveggja sé.
Tveir milljarðar til eða frá ogþótt þeir væru miklum mun
fleiri, skipta engum sköpum fyrir
íslenskt efnahagslíf – sem betur
fer.
Vill einhver hafa mann í vinnusem hefur það að köllun að
gera eitt örríki norður í Atlants-
hafi gjaldþrota?
STAKSTEINAR
Hugh Hendry
Mont eða heimska
SIGMUND
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
! "# $
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
:
3'45 ;4
;*<5= >?
*@./?<5= >?
,5A0@ ).?
*$BC
! "#
$$
%& '
(
! )
* +
*!
$$B *!
%& '#
&
# ( )#* )
<2
<! <2
<! <2
%(#'
+$,-" ).
C
$
/
!,, )
' <7
*% -
.
'
+
<
-
%
/
# ! * %
/0 )11
)# 2) ")+$
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
Björgvin Guðmundsson | 1. apríl
Ólöglegt að hvetja
til verðhækkana
„Hagsmunaaðilar á
markaði þurfa að fara
gætilega í opinberri um-
fjöllun um verðhækk-
anir. Í slíkri umfjöllun
kunna að felast brot á
samkeppnislögum.“
Þetta segir Páll Gunnar Pálsson, for-
stjóri Samkeppniseftirlitsins, en að
undanförnu hafa m.a. forsvarsmenn
Bændasamtakanna og fram-
kvæmdastjóri Félags íslenskra stór-
kaupmanna fjallað …
Meira: gudmundsson.blog.is
Ólína Þorvarðardóttir | 1. apríl
Naktir vegagerð-
armenn …
Vestfirskir vegagerð-
armenn hafa ákveðið að
mótmæla með afar at-
hyglisverðum hætti af-
leitum vegasamgöngum
í fjórðungnum. Þeir
segja að nú sé mælirinn
fullur, þeir geti ekki lengur setið að-
gerðarlausir með hendur í skauti.
Vegasamgöngur á Vestfjörðum séu
klárt brot á mannréttindum. Og hvað
ætla mennirnir að gera? Haldið ykkur!
Þeir ætla að láta mynda sig …
Meira: olinathorv.blog.is
Gísli Tryggvason | 1. apríl
Aprílgabb í garð
háskólafólks?
Í dag hittist í fyrsta
skipti tvíhöfðanefnd for-
sætisráðherra um þró-
un Evrópumála; þar
eiga sæti fulltrúar allra
stjórnmálaafla, atvinnu-
rekenda og launafólks –
eða hvað? Þau tæpu sjö ár sem ég
var framkvæmdastjóri Bandalags há-
skólamanna (BHM) leit ég að vísu svo
á – og hegðaði mér eftir því – að
BSRB væri eins og eldra systkini í
hópi samtaka opinberra …
Meira: neytendatalsmadur.blog.is
Jón Magnússon | 1. apríl
Vörubílstjórar njóta
samúðar en mega
ekki ganga of langt
Aðgerðir vörubílstjóra
undanfarna daga hafa
vakið verðskuldaða at-
hygli og notið almennrar
velvildar almennings
þrátt fyrir að aðgerð-
irnar hafi hingað til bitn-
að á almennum borgurum í umferð-
inni. Bæði vörubílstjórum og
venjulegum bifreiðaeigendum finnst
ríkið leggja of miklar álögur á olíu og
bensín.
Mikilvægt er fyrir vörubílstjóra að
hafa almenning með sér í baráttunni.
Aðgerðir eins og vörubílstjórarnir
standa fyrir eru jú til þess að fá al-
menning til liðs við sig og gera ráða-
mönnum grein fyrir því hvað málið er
alvarlegt. Það hefur vörubílstjórum
tekist.
Vörubílstjórar mega vita það að
ýmsir sem sitja á Alþingi þar á meðal
ég telja nauðsynlegt að draga úr álög-
um ríkisins á bensín og olíur og við
eigum þannig fulla samstöðu með
Vörubílstjórum. Ríkisstjórnin hefur …
Meira: jonmagnusson.blog.is
BLOG.IS
FRÉTTIR
Kristín M. Jóhannsdóttir | 1. apríl
Frekari fréttir af
Dziekanski-málinu
Munið þið ennþá eftir
Robert Dziekanski-
málinu, pólska mann-
inum sem lést á flugvell-
inum í Vancouver? Eitt af
því sem maður skildi
aldrei var hvernig stóð á
því að hann var á flugvellinum í marga
klukkutíma áður en hann lést. Nú hafa
yfirvöld birt myndbönd úr eftirlitsvélum
flugvallarins og þar má fylla svolítið inn
í myndina þótt aldrei verði hægt að
skýra til fulls hvað fór fram í huga
mannsins þennan síðasta dag hans.
Svo virðist sem hann hafi aldrei skilið
almennilega hvað hann átti að gera.
Hann kom inn í flugvallarbygginguna
með öðrum en var sendur í innflytj-
endaeftirlitið þar sem hann var að
flytja til landsins. Líklega hefur hann
aldrei almennilega skilið það því hann
fór í áttina að innflytjendaeftirlitinu
(hefur líklega verið bent þangað) en fer
aldrei inn. Þannig líða margir klukku-
tímar þar sem hann heldur sig …
Meira: stinajohanns.blog.is
STÆRÐFRÆÐIKEPPNI grunn-
skólanema í Breiðholti fór fram 4.
mars sl. Fjölbrautaskólinn í Breið-
holti sér um framkvæmd keppninnar
með styrk Reykjavíkurborgar. Í ár
voru þátttakendur 201 úr 8., 9. og 10.
bekk grunnskólanna fimm í Breið-
holti. Þetta er í 11. sinn sem keppnin
fer fram.
Allir keppendur fá viðurkenningu
fyrir þátttöku. Stigahæstu keppend-
um var boðið til sérstakrar verð-
launaafhendingar í Fjölbrautaskól-
anum í Breiðholti 13. mars. Glitnir,
Heimilstæki og VÍS gáfu verðlaun til
keppninnar. Stigahæstu keppendur í
hverjum árgangi voru:
10. bekkur
1. Atli Guðlaugsson, Hólabrekkuskóla.
2. Una Sólveig Jóakimsdóttir,
Breiðholtsskóla.
3. Þorsteinn Halldórsson,
Hólabrekkuskóla.
4. Sindri Snær Magnússon, Seljaskóla.
5.-7. Jón Bjarki Oddsson, Seljaskóla.
5.-7. Ívar Kristinn Jasonarson,
Hólabrekkuskóla.
5.-7. Rebekka Helga Pálsdóttir,
Seljaskóla.
9. bekkur
1.-2. Viktor Pajdak, Ölduselsskóla.
1.-2. Arnór Gunnar Gunnarsson,
Ölduselsskóla.
3.-4. Hlynur Freyr Jónsson, Ölduselsskóla.
3.-4. Guðrún Margrét Viðarsdóttir,
Breiðholtsskóla.
5.-6. Álfur Birkir Bjarnason, Seljaskóla.
5.-6. Linh Thuy Vu Duong,
Fellaskóla.
8. bekkur
1. Fanney Hrund Jónasdóttir,
Ölduselsskóla,
2. Katrín Blöndal, Breiðholtsskóla.
3. Jóna Valdís Benjamínsdóttir,
Ölduselsskóla.
4. Kristín Hulda Þórhallsdóttir,
Hólabrekkuskóla.
5. Elín Björk Hallsteinsdóttir,
Breiðholtsskóla.
Ungir Breiðhylt-
ingar kepptu í
stærðfræði