Morgunblaðið - 02.04.2008, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 2008 11
FRÉTTIR
B.Ed. í grunnskólakennarafræði
B.Ed. í leikskólakennarafræði
B.S. í iðjuþjálfunarfræði
B.S. í líftækni
UMSÓKNARFRESTUR
ER TIL 5. JÚNÍ
B.S. í sjávarútvegsfræði
B.S. í umhverfis- og orkufræði
B.S. í viðskiptafræði
Háskólinn á Akureyri býður upp á fjarnám sem fer að mestu fram í gegnum netið en
til stuðnings eru myndfundir, lotur og aðrar samskiptaaðferðir.
Kynntu þér málið!
KYNNINGARFUNDUR Á NORDICA
MIÐVIKUDAGINN 2. APRÍL KL. 17-18
Í boði er eftirfarandi nám:
Nánari upplýsingar eru á www.unak.is eða í síma 460 8000.
Allir velkomnirwww.unak.is
Fjarnám á háskólastigi
LÖGREGLAN á höfuðborgarsvæð-
inu óskar eftir upplýsingum um tvo
menn sem brutust inn í skartgripa-
verslun í miðborg Reykjavíkur að-
faranótt fimmtudagsins 27. mars sl.
Mynd náðist af öðrum þjófnum en
rannsókn hefur enn sem komið er
ekki leitt til handtöku mannanna.
Saman höfðu þeir á brott með sér
á annan tug armbandsúra af Ray-
mond Weil- og Revue Thommen-
gerð. Þeir sem telja sig þekkja
manninn eða búa yfir upplýsingum
um málið eru vinsamlegast beðnir
um að hafa samband við lögregluna á
höfuðborgarsvæðinu í síma 444 1100.
Þekkist hann? Mynd náðist af öðrum þjófnum í skartgripaversluninni.
Lýst eftir
stórtækum
úraþjófum
BANDALAG háskólamanna hefur
mótmælt auglýsingu um stöðu vega-
málastjóra og krefst þess í bréfi til
samgönguráðherra að auglýsingin
verði dregin til baka og ný auglýsing
birt þar sem fram komi með skýrum
hætti hvaða menntunarkröfur séu
gerðar vegna ráðningar nýs vega-
málstjóra.
Í bréfinu kemur fram að nokkrir
félagsmenn aðildarfélaga BHM hafi
vakið athygli bandalagsins á auglýs-
ingu um stöðu vegamálstjóra sem
birtist á Starfatorgi 19. mars sl „Þar
er gerð krafa um háskólamenntun í
verkfræði eða sambærilega mennt-
un. Alls óljóst er hvað átt er við með
sambærilegri menntun; er átt við
sambærilega lengd menntunar eða
menntun í skyldum greinum og þá
hverjum? Sé litið til verkefna stofn-
unarinnar eins og þau eru skilgreind
í lögum í 5 gr. laga nr. 80/2007 felast
þau helst í aðstoð við ráðherra vegna
stefnumótunar, skiptingu fjármuna,
rekstur og umsjón tilgreindra mála-
flokka. Á fjárlögum 2008 er gert ráð
fyrir um 35 milljarða króna umsvif-
um Vegagerðarinnar og starfsmenn
munu vera um 320. Í lögum um
Vegagerðina er ekki gerð krafa um
að vegamálstjóri hafi verkfræði-
menntun. Með vísan til þess, verk-
efna hennar og umsvifa fer Bandalag
háskólamanna fram á að auglýsingin
verði dregin til baka og staðan aug-
lýst að nýju með skýrum kröfum um
menntun umsækjenda,“ segir í bréf-
inu.
Mótmæla auglýsingu um
stöðu vegamálastjóra
ÁSTHILDUR
Helgadóttir
verkfræðingur
og knattspyrnu-
kona hefur tekið
sæti í stjórn Ís-
lenskra get-
rauna. Ásthildur
er skipuð af
menntamála-
ráðherra í stjórn-
ina fyrir hönd
íþróttanefndar ríkisins.
Ásthildur Helgadóttir er aðeins
önnur konan sem skipuð er í stjórn
Íslenskra getrauna í 52 ára sögu
fyrirtækisins. Hin var Líney Rut
Halldórsdóttir sem nú gengur úr
stjórn eftir að hafa tekið við starfi
framkvæmdastjóra Íþrótta- og
ólympíusambands Íslands.
Ásthildur í
stjórn Getrauna
Ásthildur
Helgadóttir
SJÁVARÚTVEGSRÁÐHERRAR
Íslands og Færeyja gengu í gær frá
fiskveiðisamningi milli landanna,
sem felur m.a. annars í sér að Fær-
eyingar fá að veiða 30 þúsund lestir
af loðnu við Ísland á næstu loðnu-
vertíð svo fremi að útgefinn kvóti
verði a.m.k. 500 þúsund lestir. Sé
gefinn út minni kvóti fá Fær-
eyingar 5% í sinn hlut.
Samkomulag er um að þjóðirnar
fái áfram að veiða kolmunna og
norsk-íslenska síld innan lögsögu
hvorrar annarrar.
Botnfiskveiðiheimildir Fær-
eyinga við Ísland verða óbreyttar á
árinu 2008. Færeysk skip hafa því
heimild til að veiða 5.600 lestir af
botnfiski, en heildarafli þorsks
verður þó aldrei meiri en 1.200 lest-
ir og lúðuafli aldrei meiri en 45 lest-
ir sem er um helmings skerðing
milli ára.
Þá hafa íslensk skip heimild til að
veiða 2.000 lestir af Hjaltlandssíld
við Færeyjar og 1.300 lestir af
makríl.
Samningur
um fiskveiði
♦♦♦