Morgunblaðið - 02.04.2008, Page 12

Morgunblaðið - 02.04.2008, Page 12
12 MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ ALÞINGI MEIRIHLUTI utanríkismála- nefndar Alþingis leggur til tals- verðar breytingar á varnarmála- frumvarpi utanríkisráðherra, sem felur m.a. í sér stofnun Varnar- málastofnunar. Með frumvarpinu er reynt að skilja alfarið milli borgaralegra og hernaðarlegra verkefna en í nefndarálitinu segir að ekki reynist auðvelt að draga skýr skil þar á milli. M.a. þurfi borgaralegar stofnanir, á borð við lögreglu, Fjármálaeftirlitið og sóttvarnarlækni, að geta komið að hættumati. Nefndin telur ekki að starfsmenn Varnarmálastofnunar eigi einir að taka þátt í starfi nefnda og undirstofnana Atlants- hafsbandalagsins og í álitinu er tekið dæmi um að embætti ríkis- lögreglustjóra eigi aðkomu að al- mannavarnarnefnd bandalagsins. Taka þurfi af allan vafa um að slík þátttaka verði áfram möguleg. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að utanríkisráðherra móti stefnu um framkvæmd varnarmála en í áliti nefndarinnar segir hins veg- ar að hafa þurfi samráð við utan- ríkismálanefnd í þessum efnum. Þá telur nefndin ekki ástæðu til að ráða forstjóra Varnarmála- stofnunar áður en stofnunin verð- ur til, eins og frumvarpið gerir ráð fyrir, og leggur til að skýrt verði kveðið á um að hann hafi lokið háskólaprófi en í frumvarps- textanum er talað um háskóla- menntun. Ekki skýr skil milli borgara- og hernaðarlegra verkefna Eftir Höllu Gunnarsdóttur halla@mbl.is MIKLAR efasemdir virðast vera innan Samfylking- arinnar um boðaða uppstokkun lögregluembættisins á Suðurnesjum en þrír þingmenn flokksins, Árni Páll Árnason, Helgi Hjörvar og Lúðvík Bergvinsson, stigu í pontu Alþingis í gær og töldu ekki hafa komið fram nægjanleg rök fyrir áformunum. Sögðu þeir starfsemi embættisins hafa verið árangursríka og að ekki væri ástæða til að „gera við það sem ekki er bilað“. Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, kom áformum dómsmálaráðherra í þessum efnum til varnar og sagði tollgæslu og löggæslu almennt vera að- skildar í landinu. Þetta væri liður í að afnema sérstakar reglur sem giltu um Keflavíkurflugvöll. Það útiloki hins vegar ekki áframhaldandi gott og náið samstarf. Lúðvík Bergvinsson sagði hins vegar að meginregl- an væri að sami maðurinn væri lögreglustjóri og toll- stjóri. „Sú breyting sem hér er verið að boða er und- antekning frá meginreglunni á landinu,“ sagði Lúðvík. Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknar, var ekki hrifin af áformunum og vildi fá skýr svör um hvort Samfylkingin styddi þau eða ekki. „Það er afar hættu- legt að gefa lögreglumönnum og tollvörðum sem hafa unnið afar gott starf falskar vonir,“ sagði Siv og Grétar Mar Jónsson, þingmaður Frjálslyndra, var ósáttur við framkomu dómsmálaráðherra. „Við höfum orðið vitni að því í þessu máli að við fáum tilkynningu frá dóms- málaráðherra um það að hann ætli að breyta lögum. Hann kemur fram við Alþingi eins og hann ráði því einn og geti stjórnað því einn,“ sagði Grétar. Morgunblaðið/Kristinn Samfylkingin lítt hrifin Ekkert bil Engin ástæða er til að gera við það sem ekki bilar, sagði Lúðvík Bergvinsson á Alþingi í gær. Breytingar á lögregluembættinu á Suðurnesjum útiloka ekki gott og náið samstarf, segir Birgir Ármannsson ALMA Lísa Jóhanns- dóttir, sem nú situr á þingi fyrir VG, hefur ásamt þremur flokks- systkinum sínum lagt fram þingsályktun- artillögu þess efnis að mótuð verði stefna í málefnum kvenfanga og að undirbúningur að byggingu deildaskipts fangelsis fyrir konur verði hafin. Í greinargerð er vitnað til nið- urstöðu nefndar um framtíðarrekstur Litla-Hrauns og bent á mikilvægi þess að konur geti afplánað refsivist í sérstöku kvennafangelsi. „Þarfir kven- og karl- fanga eru ólíkar. Konur eru í ýmsum til- vikum verr staddar en karlar vegna and- legra eða líkamlegra sjúkdóma þegar þær koma til vistunar,“ segir jafnframt í tillög- unni og lögð er áhersla á að hlúa vel að heilsufari kvenna í fangelsum. Kvennafangelsi mikilvægt Alma Lísa Jóhannsdóttir HÁTT í sjö milljónum króna hefur verið varið úr ríkissjóði til athugunar á bygg- ingu olíuhreinsunarstöðvar á Vest- fjörðum. Þetta kemur fram í svari iðn- aðarráðherra fyrir fyrirspurn Álfheiðar Ingadóttur, þingmanns Vinstri grænna. Í svarinu kemur einnig fram að þó að haldgóðar upplýsingar um losun liggi ekki fyrir sé ljóst að hún rúmist ekki innan los- unarheimilda. „Því þyrfti annað tveggja að koma til, förgun/nýting koltvísýrings eða aðkeypt losunarheimild erlendis frá af hálfu framkvæmdaraðila,“ segir í svarinu. Sjö milljónir í athugun á olíu- hreinsunarstöð Allt í plati 1. apríl setti svip sinn á Alþingi í gær. Þingmenn höfðu sumir látið blekkjast af aprílgöbbum fjölmiðla og m.a. svelgst á morgunkaffinu vegna meintra ritstjóraskipta 24 stunda og óstaðfestra fregna um að núverandi ritstjóri ætti að hafa eitt- hvað með borgarstjórn Reykjavíkur að gera. Þingverðir létu sitt heldur ekki eftir liggja og blaðamaður Morg- unblaðsins átti undarlegt samtal við þingmann þar sem hvor um sig þótt- ist hafa fengið símboð frá hinum. Flautur þandar Mótmæli bílstjóra fóru heldur ekki framhjá neinum í Alþingishúsinu enda glumdu bílflautur um allan miðbæinn síðdegis. Um tíma var nánast óvinnufært í húsinu en eftir að stóru mótmæladekki hafði verið rúllað inn í anddyrið þögnuðu flaut- urnar smám saman og aftur varð ökufært um stræti miðborgarinnar. Lægri sektir Viðskiptavinir banka landsins munu ekki þurfa að óttast háar sektir vegna yfirdráttar á debetkortinu ef nýtt frumvarp viðskiptaráðherra verður að lögum. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að slík gjaldtaka (FIT- kostnaður) eigi að vera hófleg og endurspegla kostnað vegna yfirdrátt- arins. Bönkum mun einnig verða skylt að láta neytendur vita ef kemur til hækkana á gjaldskrá. Þingið ráði Kristinn H. Gunnarsson, Frjálslyndum, og fleiri þing- menn fjögurra flokka hafa lagt fram frum- varp þess efnis að Alþingi velji ríkisend- urskoðanda en ekki forsæt- isnefnd þings- ins eins og nú er. Í greinargerð er bent á að samkvæmt lögum eigi for- seti Alþingis að skera úr ef ágrein- ingur verður í forsætisnefndinni. „Þetta þýðir að í raun er það vilji for- seta sem ávallt ræður, því að þótt allir varaforsetar séu á einu máli dugir það ekki til ef ágreiningur er við forseta Alþingis,“ segir jafnframt í greinargerðinni. Dagskrá þingsins Þingfundur hefst kl. 13.30 í dag og á dagskrá eru þrettán fyrirspurnir, m.a. um virkjunarkosti á Vestfjörðum og lagningu vegar yfir Grunnafjörð. Kristinn H. Gunnarsson FRÉTTIR ÁKVEÐIÐ hefur verið að fylgjast sérstaklega náið með verðlagsþróun á næstunni og verður gert tímabundið átak í verðlagseftirliti af þeim sökum. Þetta var meðal annars niðurstaðan af fundi viðskiptaráðherra, Björgvins G. Sigurðs- sonar, með Alþýðusambandinu, Neytenda- stofu og Neytendasamtökunum í gær. Björgvin sagði að marmiðið með fundinum hefði verið að efna til samstöðu stjórnvalda, að- ila vinnumarkaðar og frjálsra félagasamtaka til að sporna eins og kostur væri gegn boð- uðum verðlagshækkunum. Í framhaldinu myndi hann einnig funda með stórkaupmönn- um og Samtökum verslunar og þjónustu á föstudaginn kemur og síðan aftur með þessum hóp eftir helgina. Hann myndi síðan skila minnisblaði til ríkistjórnarinnar um stöðuna í þessum efnum. „Við ætlum strax að stórefla verðlagseftirlit og gerð verðkannana bæði á markaði með mat- væli, fatnað, rafmagnstæki og fleira til að fylgj- ast ýtarlega með verðlagsbreytingum og veita strangt aðhald að því að það sé verið að hækka umfram tilefni, án þess að við séum að ætla nokkrum það. Hins vegar er það sjálfsagður réttur neytenda að við veitum alla þá við- spyrnu sem hægt er að veita gegn verðhækk- unum sem vonandi eru tímabundnar vegna veikingar krónu og stöðu á erlendum fjármála- og hrávörumörkuðum,“ sagði Björgvin. Hann sagði að það væri ástæða til þess að brýna alla til samstöðu til að standa vörð um verðlag og andæfa gegn þessari verðhækkana- hrinu eins og nokkur sé kostur, svipað og gert hafi verið árið 2001 þegar samstarf stjórn- valda, verkalýðshreyfingar og annarra hafi skilað miklum árangri hvað það snerti að fá menn til að standa saman til að halda aftur af verðbólguþróuninni. IKEA til fyrirmyndar „Ég fagna sérstaklega yfirlýsingu frá IKEA sem lýsti því yfir að þeir ætli að ekki að breyta verðlagi næsta hálfa árið og höndla þeir þó ein- ungis með innfluttar vörur. Mér finnst það til fyrirmyndar,“ sagði Björgvin einnig. Tímabundið átak í verðlagseftirliti Viðskiptaráðherra átti fund með Alþýðusambandi Íslands, Neytendastofu og Neytendasamtökunum þar sem ákveðið var að stórefla verðlagseftirlit og gerð verðkannana á næstu vikum og mánuðum Morgunblaðið/Valdís Thor Verðlagsþróun Fulltrúar ASÍ, Neytendastofu og Neytendasamtaka á fundi viðskiptaráðherra. ÞETTA HELST … SAMGÖNGURÁÐHERRA lagði í gær fram lagafrumvarp á Alþingi um Land- eyjahöfn en þar er lagt til að byggð verði ferjuhöfn í Bakkafjöru á Landeyjum sem alfarið verður í eigu ríkisins, fjármögnuð úr ríkissjóði og rekin af ríkinu. Er höfn- inni ætla að styrkja samgöngur milli lands og Vestmannaeyja. Í frumvarpinu er m.a. eignarnámsheim- ild vegna þess lands, sem þarf undir höfn- ina, varnargarða, efnistöku og vegagerð henni tengda. Er m.a. kveðið á um, að ekki þurfi að leita samninga við landeigendur áður en eignarnámið fer fram og helgist það af því, að þegar hafi verið fullreyndir samningar við landeigendur um land fyrir höfnina. Engin niðurstaða hafi orðið af þeim samningaviðræðum og ekki við því að búast, að hún fáist. Kostnaður er áætl- aður um 3,1 milljarðar. Landeyjahöfn í ríkiseigu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.