Morgunblaðið - 02.04.2008, Síða 13

Morgunblaðið - 02.04.2008, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 2008 13 ÚR VERINU NÚ ER þorskurinn kominn í fæðingarorlof. Veiðar á hrygningarslóðinni hafa verið bannaðar meðan hrygn- ing stendur sem hæst. Þurfa bátarnir því að sækja utar en ella og það gera stóru bátarnir. Hinir smærri bíða meðan sá guli klárar að hrygna. Annars er víða langt komið með þorskkvótann, en í gær var búið að veiða 60%, þegar reyndar um 60% eru búin af fiskveiðiárinu. Það má því segja að veiðin dreifist þokkalega á árið. Reynar var hún lítil lengst af framan af en tók svo mik- inn kipp þegar vertíðin hófst í febrúar. Staðan í ýsunni er svipuð, það er búið að veiða tæp 60% kvótans. Magnús Jónsson, skipstjóri á Sæstjörnunni SH 63, hefur fiskað vel á Breiðafirðinum í vetur, en nú er hann kominn í tímabundið orlof eins og þorskurinn. Ljósmynd/Sverrir Karlsson Sá guli kominn í fæðingarorlof BÓKIN „Arctic-Subarctic Ocean Fluxes: Defining the Role of the Northern Seas in Climate um haf- rannsóknir í Norðurhöfum er ný- komin út hjá Springer-forlaginu. Bókin fjallar um rannsóknir síðustu ára á flæði sjávar milli heimskauta- svæðanna í norðri og suðlægari svæða í víðum skilningi. Mjög um- fangsmiklar rannsóknir hafa farið fram á þessu á síðustu árum undir yfirumsjón ASOF-verkefnisins. Alls koma um 100 höfundar að gerð bókarinnar sem skiptist í 28 kafla sem spanna svæðið frá Ber- ingssundi til Labradorhafs og þaðan austur til Barentshafs. Íslendingar hafa gegnt veigamiklu hlutverki í þessum rannsóknum á hafsvæðinu í kringum Ísland, m.a. með þátttöku Hafrannsóknastofnun- arinnar í mörgum Evrópuverkefn- um. Steingrímur Jónsson, prófessor við Háskólann á Akureyri og sér- fræðingur við Hafrannsóknastofn- unina, er meðhöfundur að þrem köfl- um í bókinni en Héðinn Kynnt á ráðstefnu Valdimarsson, sérfræðingur við Hafrannsóknastofnunina, er með- höfundur að tveim köflum bókarinn- ar. Útkoma bókarinnar var kynnt í tengslum við ráðstefnuna „Ocean Sciences meeting“ sem haldin var í Orlando 2.-7. mars 2008 þar sem haldin voru mörg erindi sem tengj- ast efni hennar. Kanna flæði sjávar milli heimskauta Hundrað höfundar koma að gerð bókar „FISKIFÉLAGIÐ er sameiningar- samtök í sjávarútvegi. Að félaginu eiga aðild öll samtök sem tengjast greininni. Stærsta verkefni okkar í dag er vinna að um- hverfismerki fyrir sjávaraf- urðir,“ segir Helgi Laxdal, nýkjörinn for- maður Fiski- félags Íslands. Helgi Laxdal var á síðasta aðalfundi kjörinn formaður í stað Péturs Bjarnason- ar, sem gaf ekki kost á sér til áframhaldandi formennsku hjá Fiskifélaginu. Hann hafði gegnt formennsku í félaginu um nálega tíu ára skeið. Jóhannes Pálsson kom nýr inn í stjórnina. Stjórn Fiskifélags Íslands skipa nú: Helgi Laxdal formaður, Krist- ján Þórarinsson varaformaður, Elínbjörg Magnúsdóttir ritari, Að- alsteinn Baldursson, Árni Bjarna- son, Gunnar Tómasson, Kristján Loftsson, Jóhannes Pálsson, Sævar Gunnarsson og Örn Pálsson. Helgi segir að jafnframt vinnu að gerð umhverfismerkisins hafi félagið vaktað starfsemi erlendra samtaka sem tengjast sjávar- útvegi. Það hafi bæði verið gert með því að sækja fundi þeirra og vakta heimasíður þeirra á netinu. Síðan hafi verið ýmis önnur, kannski smærri verkefni, en mikilvæg eins og útgerð skóla- bátsins. Skiplagning fyrir náms- ferðir nemenda úr grunnskólum landsins út á sjó og fræðsla um ís- lenzkan sjávarútveg. Þá sé mikið leitað til Fiskifélagsins varðandi upplýsingar af ýmsu tagi um sjávarútveginn. Miklar breytingar „Starfsemi Fiskifélagsins hefur breytzt geysilega mikið. Það er ekki lengur eins sjáanlegt og það var á árum áður. Félag eins og þetta er sameiginlegt öllum sam- tökum í sjávarútvegi. Þar eru hagsmunirnir mjög mismunandi, þar eru sjómenn, þar er útgerð og fiskverkafólk. Eðlilega verða hagsmunamálin breytileg. Það þarf því kannski að stíga varlega til jarðar. Kannski hafa menn stig- ið fulllétt til jarðar að undanförnu. Hugsunin hjá okkur er að reyna að sinna þeim verkefnum, sem greinin í heild getur verið sam- mála um. Það er víðtækt sam- komulag um umhverfismerkið. Við erum að vinna í því og höfum aug- lýst eftir sérfræðingi til aðstoða okkur við þá vinnu. Við vonum að við ljúkum því á þessu ári. Það hefur komið mjög skýrlega fram á aðalfundi félagsins að það sé lyk- ilatriði að hægt sé að vísa til þess að hér séu stundaðar sjálfbærar veiðar. Þetta er það sem mestu máli skipti núna,“ segir Helgi Lax- dal. Stærsta verkefnið að vinna að umhverfismerki Helgi Laxdal Í HNOTSKURN »Það hefur komið mjög skýr-lega fram á aðalfundi félags- ins að það sé lykilatriði að hægt sé að vísa til þess að hér séu stundaðar sjálfbærar veiðar. Þetta er það sem mestu máli skiptir núna. »Vinna að umhverfismerki ermikilvægasta vinnan um þessar myndir og mjög brýnt að ljúka henni. »Jafnframt skipuleggur félag-ið námsferðir grunn- skólanema á skólaskipinu Dröfn og vaktar starfsemi erlendra samtaka í sjávarútvegi.                    !" $ %&' ( )  *&**+ (    #$ $ &+ ( )  & ' (   %&' $ &, ( )  &  (   (& $ ,&,' ( )  &,' (  )( " $  &,% ( )  *,&,, (  * &'+ $ ,&*,, ( )  & '% (  ,  $ ,&++ ( )  %&** (  - &' $ &** ( )  &%, (  (& $ &,+, ( )  &' ( ." $ '& ( )  +&  (   " & $ &,* ( )  & ( )/ &' $ & ( )  &*'' (  01 " 23 $ +& ' ( )  %&%% (   -(+ $  %& ,   )  +&**+       SKIPUM Fisk Seafood á Sauðár- króki hafa að sögn Gylfa Guðjóns- sonar, útgerðarstjóra hjá Fisk Sea- food, aflað ágætlega það sem af er þessu ári. Lögð er áhersla á að veiða ufsa, karfa og ýsu en fyrirtækið á talsverðan kvóta í þessum teg- undum. Hins vegar er reynt að sneiða hjá þorskinum eins og kostur er enda farið að saxast á þorskkvót- ann. Alls veiddu skip Fisk Seafood á Sauðárkróki 20.331 tonn af fiski á árinu 2007. Frystitogarinn Arnar HU 1 aflaði mest eða 6.657 tonn. Hinn frystitogarinn Málmey SK 1 veiddi 5.705 tonn. Örvar HU 2 var með 4.437 tonn og Klakkur SH 510 3.532. Verðmæti þessa afla var tæpir 2.9 milljarðar, þar af voru frystiskip- in með liðlega 1,8 milljarða sem er fob-verð. Morgunblaðið/Örn Þórarinsson Sneiða hjá þorski Í einkasölu flott íbúð á jarðhæð í góðu húsi í Grafarvogi. Stæði í góðu bílsk. fylgir. Parket, vandaðar innréttingar, útg. úr stofu á afgirta góða verönd. V. 23,9 m. Kristján sími 856-3466 tekur á móti áhugasömum í dag frá kl. 17:30-18. Berjarimi 24 – íbúð 107, m. bílskýli – Laus strax Opið hús í dag miðvikudag frá kl. 17:30-18:00

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.