Morgunblaðið - 02.04.2008, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 02.04.2008, Qupperneq 14
14 MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF ÞETTA HELST ... ● ÚRVALSVÍSTIALA kauphallarinnar lækkaði um 0,19% í gær og er 5.041 stig en um tíma í gær var lækkunin töluvert meiri. Gengi bréfa Eikar Banka hækkaði um 3,5% og Century Aluminum um 1,41%. Bréf Eimskip lækkuðu um 4,32% og Ice- landic Group um 3,3%. Krónan veiktist um 0,9% í gær, en mikil velta var á millibankamarkaði, um 93 milljarðar króna. Gengis- vísitalan er nú 154,70 stig en var 153,40 við opnun markaða í gær- morgun. Skuldatryggingarálag á skuldabréf bankanna var óbreytt í gær. Lækkun í kauphöllinni ● STJÓRN Icelandic Group mun óska eftir heimild aðalfundar félags- ins til útgáfu víkjandi, breytanlegs skuldabréfs að andvirði 41 milljón evra, jafngildi tæplega 5 milljarða króna miðað við núverandi gengi. Samkvæmt tilkynningu til kaup- hallar mun lánið verða til fjögurra ára og bera 23% vexti á ári. Að lánstím- anum liðnum getur lánardrottinn svo breytt skuldabréfinu í hlutafé í Ice- landic Group á genginu 1. Sam- kvæmt tilkynningunni skal féð sem fæst með skuldabréfaútgáfunni not- að til þess að styrkja innviði félags- ins frekar og lækka hlutfall skamm- tímafjármögnunar. Fallið er frá fyrri tillögu um heimild til útgáfu nýs hlutafjár. Vilja gefa út breyt- anleg skuldabréf ● TAP FL Group á síðasta árs- fjórðungi 2007 og fyrsta árs- fjórðungi 2008 vegna fjárfest- inga í finnska flugfélaginu Finnair nam samtals um 4,5 milljörðum króna. Á mánudag var greint frá því að FL Group hefði selt afganginn af eign sinni í Finnair fyrir um 13,6 milljarða króna og að gengistap það sem af væri þessu ári hefði numið 1,7 milljörðum króna. Skömmu fyrir áramót seldi FL Group 11,7% hlut í Finnair fyrir um 11 milljarða króna, en geng- istap félagsins af sölunni nam 2,8 milljörðum króna. Fyrir söluna í desember átti FL Group 24,4% hlut í Finnair og var næststærsti hluthafinn í félaginu. Tapaði 4,5 milljörðum á Finnair SAMSON eignarhaldsfélag tapaði 5,7 milljörðum króna á síðasta ári, borið saman við 13,2 milljarða króna hagn- að árið 2006. Eignarhluti félagsins í Landsbankanum var 4.559 milljónir að nafnverði í árslok 2007 og nam hann 40,73% af heildarhlutafé bank- ans. Markaðsverð hlutarins nam 161,8 milljörðum í árslok. Bókfært virði hans er 78,4 milljarðar en í til- kynningu til kauphallar kemur fram að beitt sé hlutdeildaraðferð við bók- un eignarhlutans. Gengi hlutafjár í Landsbankanum hækkaði um 34% á síðasta ári. Í tilkynningu Samsonar segir m.a. að sem alþjóðlegt fjárfest- ingafélag beiti það gengisvörnum til að styðja við eign félagsins í Lands- bankanum og dragi úr gengisáhrifum á eignir félagsins í evrum talið. Þar sem félagið beiti hlutdeildaraðferð á eign sína í bankanum sé hækkun á markaðsverði eignarinnar ekki færð að fullu á móti þessu tapi. Mikil sveifla hjá Samson MATSFYRIRTÆKIÐ Fitch Rat- ings greindi frá því í gær að horfum fyrir lánshæfismat ríkissjóðs Íslands vegna langtímaskuldbindinga hefði verið breytt í neikvæðar úr stöðug- um. Lánshæfiseinkunn ríkissjóðs var hins vegar staðfest, hún er A+ fyrir erlendar langtímaskuldbind- ingar. Þá greindi matsfyrirtækið Standard & Poor’s frá því í gær að það hefði tekið til athugunar láns- hæfiseinkunnir ríkissjóðs fyrir lang- tímaskuldbindingar með neikvæðum vísbendingum. Segir í rökstuðningi Fitch að breytingar á horfum ríkissjóðs end- urspegli það að lánshæfiseinkunnir Glitnis, Kaupþings banka og Lands- banka séu nú til neikvæðrar athug- unar hjá fyrirtækinu, en tilkynning þess efnis barst einnig í gær. „Ef Fitch kemst að þeirri niður- stöðu að lánastaða stærstu bank- anna á Íslandi hafi versnað gæti myndast neikvæður þrýstingur á lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs,“ segir Paul Rawkins sérfræðingur Fitch. Matsfyrirtækið ítrekar að láns- hæfi ríkissjóðs Íslands standi á sterkum grunni þar sem hreinar skuldir hins opinbera séu aðeins 8% af vergri landsframleiðslu, afgangur af fjárlögum hefur verið samfelldur frá árinu 2004 og greiðslubyrði mjög lítil. Engu að síður sé stærð íslenska fjármálakerfisins á samstæðugrunni í lok júní 2007 næstum 900% af vergri landsframleiðslu og því gefi það til kynna mikilvægi þess að við- brögð stjórnvalda við vanda í fjár- málakerfi séu viðeigandi og yfirveg- uð og feli í sér stuðning og efli traust á bönkunum án þess að grafa undan lánshæfi ríkissjóðs. Í tilkynningu Standard & Poor’s segir að ákvörðun fyrirtækisins end- urspegli það mat að skort hafi á upp- lýsingar um hvernig íslensk stjórn- völd ætli að takast á við aukin efnahagsleg viðfangsefni. Þessi við- fangsefni komi að mestu til vegna þrýstings í tengslum við lánsfjár- mögnun Íslands í erlendum gjald- miðli sem gæti leitt til beins opinbers stuðnings við þrjá stærstu bankana. Kemur ekki á óvart Ákvörðun Fitch varðandi Kaup- þing kemur bankanum í sjálfu sér ekki á óvart, að sögn Guðna Níelsar Aðalsteinssonar, forstöðumanns fjárstýringar Kaupþings. „Þarna er Fitch ekki að fella neinn áfellisdóm yfir grunnstöðu bankans heldur kemur ákvörðunin til vegna ytri að- stæðna. Eina hættan er sú að mark- aðurinn taki svona fréttum óskap- lega illa, sem hann virðist ekki hafa gert. Áhrifin hafa verið lítil á mörk- uðum í kjölfar tilkynningarinnar.“ Ingvar Ragnarsson, fram- kvæmdastjóri Fjárstýringar hjá Glitni segir ákvörðunina í takti við það sem verið hafi að gerast erlend- is. „Í ljósi markaðsaðstæðna erlendis og annarra ákvarðana matsfyrir- tækja gagnvart bönkum almennt á undanförnum vikum mátti búast við ákvörðuninni,“ segir hann. Bendir hann á að Fitch meti stoðir og eig- infjárstöðu bankanna sterkar. Lánshæfiseinkunnir teknar til athugunar Fitch ítrekar að lánshæfi ríkisins standi á sterkum grunni Í HNOTSKURN » Lánshæfiseinkunn ríkissjóðshjá Fitch er A+ fyrir lang- tímaskuldbindingar í erlendri mynt og AA+ í krónum. » Hjá Standard og Poor’s erueinkunnir ríkissjóðs A+ fyrir langtímaskuldbindingar í er- lendri mynt og AA í krónum. » Standard & Pooŕs tók í gæreinnig til athugunar einkunn- ir Íbúðalánasjóðs og Landsvirkj- unar með neikvæðum vísbend- ingum. Eftir Bjarna Ólafsson bjarni@mbl.is SVO virðist sem fjárfestar erlendis séu komnir á þá skoðun að nú sjái fyrir endann á lausafjárkreppu þeirri sem einkennt hefur fjármála- markaði undanfarin misseri. Hluta- bréfavísitölur í erlendum kauphöll- um hækkuðu flestar í gær og segir í frétt Wall Street Journal að fjárfest- ar hafi yfirgefið öruggari fjárfesting- ar eins og ríkisskuldabréf og gull og flutt sig á ný í hlutabréf. Ýmist í ökkla eða eyra Hefur blaðið eftir Todd Salmone, forstöðumanni rannsóknardeildar Schaeffer’s Investment Research, að ýmist sé í ökkla eða eyra hvað varði áhættusókn og -fælni fjárfesta und- anfarið. Annað hvort stökkvi þeir á áhættusamar fjárfestingar eða þeir flytji allt sitt fé í örugga peninga- markaðsreikninga. Breska FTSE-vísitalan hækkaði um 2,64% og þýska DAX hækkaði um 2,84% í gær. Í Bandaríkjunum hækkaði Dow Jones vísitalan um 3,19% og Nasdaq um 3,67%. Svipaða sögu var að segja á Norðurlöndum, þar sem íslenska Úrvalsvísitalan var ein um að lækka. Samnorræna vísitalan hækkaði um 4,03%, danska vísitalan um 1,61% og sú sænska um 3,06%. Bjartsýni á mörkuðum Reuters Glaðhlakkalegur Þessi miðlari í kauphöllinni í New York var ánægður í lok viðskiptadags, enda hækkuðu hlutabréfavísitölur vestra umtalsvert. FORSÆTISRÁÐHERRA, Geir H. Haarde segir ríkisstjórnina í miklu samstarfi við Seðlabankann til að meta það ástand sem skapast hafi í efnahagsmálum, sem sé mjög óvenjulegt og alvarlegt. Kom þetta m.a. fram í máli hans í Kast- ljósþætti Ríkissjónvarpsins í gær. „Við rösum ekki um ráð fram í þessu efni. Það er mjög mikilvægt að misstíga sig ekki og þá er betra að gera ekki neitt heldur en að gera einhverja bölvaða vitleysu,“ sagði Geir þegar hann var inntur svara um meint aðgerðaleysi ríkisstjórn- arinnar í efnahagsmálum. Minnti hann á að fyrir sex vikum hefði hann nefnt að lántaka til að auka gjaldeyrisforða kæmi til greina og verið væri að skoða mál- ið. Þá útilokaði hann ekki að ríkið keypti skuldabréf bankanna, eins og Merrill Lynch lagði til í gær, en benti á að ef til þess kæmi væri um háar fjárhæðir að ræða. Keypti rík- ið öll þriggja ára bréf yrði kaup- verðið um 2.900 milljarðar. Morgunblaðið/Ómar Kaup Forsætisráðherra segir skuldabréfakaup ekki útilokuð. Rösum ekki um ráð fram ♦♦♦ Hluthafar með 44,2% hluta- fjár í Skiptum hafa nú þegar gengið að yfir- tökutilboði Ex- ista í félagið, sem tók gildi 27. mars síð- astliðinn og gildir í átta vikur. Þetta var tilkynnt til kauphallar í gær. Alls er um 3,2 milljarða hluta að ræða og miðað við tilboðsverðið, 6,64 krónur á hlut, er andvirði þeirra um 21,6 milljarðar króna. Fyrir átti Exista 43,7% hlut í Skipt- um og er því nú komið með 87,9% hlut í móðurfélagi Símans. Með 88% í Skiptum   * '+ #, #    % &%+ ,* # #'        &, * &, # #%     &+  ,&% #, #+   & ' & * &'  #*   4&  # 5 +"%  + " + # 5 13 678  9"& : ; % $&  () *+! !*     !"#$ %& !"#$ '("#$ ) !"#$ *( (+ ("#$ ,#$(-(!#.*/0*  12 * ( !"#$ 3 !4( / "#$ ) + (0* "#$  *"#$ 56  - 7 89 :9#$+$"#$ ;-("#$ < "#$ ,)  -    =>"#$ *# 2"#$ * (2( ; * (25  * -5? ( ( */ !"#$ @ ;  12 * (2 !"#$ A" :("#$ (!("#$ ;//( /-(8&8( "#$ B( * &8( "#$ ( '. /  C  ;* -( - , ("#$ ,-!(8: "#$  0 !  %* *  * ,* %  * +  ' '+ *% % *% '  ,+ '% *  %  ++   +  , *% +   ,         ! "    #  " $% $ #$ $     #" "  #"  " # #!%    ##   B(8(!( /(  (*+ 8D*  /E 3 !* >$=F$= FG$H$IF ==$HF$IH= $>GH$GHH$H H$>$>=>$GH =G$FGF$ H>$FHF$H H$I=$I$= $HG$GH$==F G$=II$FGG F>$=$> =H$=G$F>H F$=F$I $IG$=> 7   $I=$GG I$>I G$G =$I=$H= I$ 7 H$>$HF$= 7 7 $II$= G$ 7 FJ=F JH J >JHI FJ HHJ HJ= GHJ HIJ IJG JH> J>> JF IHJ J= >JF> IGJ J =>J JGF GJ JI HHJ >JH> 7 7 HJ J 7 FJ> J J> >J= FJH HHJH HJ G=J HIJ IHJF JHI JFH J= I=JH J=H >JG HJ FJ =FJ JGG J HJH HHJ >J== 7 7 J HJ >J :&* ( %(8(! F H>  == GG   I FH  > HG G I 7 7 7 G   H  7  7 7 >  7 /  ( / %(8$% 8 $$HG $$HG $$HG $$HG $$HG $$HG $$HG $$HG $$HG $$HG $$HG $$HG $$HG $$HG =$=$HG =$=$HG =$=$HG $$HG $$HG $$HG $$HG $=$HG G$H$HG $$HG >$H$HF HH$G$HF $$HG $$HG F$=$HG ♦♦♦ Net12 er rakin leið fyrir þau fyrirtæki og félög sem vilja fara í alvöru vaxtarækt með Byr. FYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA Notaðu vextina strax Sími 575 4000 | www.byr.is // Hleyptu vexti í reksturinn // Fáðu háa ávöxtun // Reiknaðu dæmið til enda Þú færð vaxtavexti af þeim vöxtum sem ekki eru greiddir jafnóðum út.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.