Morgunblaðið - 02.04.2008, Side 17

Morgunblaðið - 02.04.2008, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 2008 17 LANDIÐ Ritstjóri Magnús Hlynur Hreiðarsson er stoltur ritstjóri útbreiddasta hér- aðsfréttablaðsins á Suðurlandi og ánægður með viðbrögð lesenda. Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is Selfoss | „Þetta er staðfesting á þeirri stefnu sem við höfum fylgt, að leggja áherslu á fréttirnar, enda eru það þær sem gefa lífinu lit. Við ætlum að sækja meira fram á því sviði,“ segir Magnús Hlynur Hreiðarsson, rit- stjóri Dagskrárinnar á Selfossi. Eins og nafnið bendir til var blaðið fyrst gefið út sem sjónvarpsdagskrá en nú hefur sjónvarpstækið verið fjarlægt úr haus þess og í staðinn kominn und- irtitill: Fréttablað Suðurlands. Dagskráin hefur verið gefin út í fjörutíu ár og er því með elstu héraðs- fréttablöðum landsins og það er út- breiddast sunnlensku blaðanna. Í af- mælisblaði er birt skoðanakönnun sem sýnir að þrír fjórðu sem spurðir voru lesa blaðið eða fletta því í viku hverri. Magnús segir að þetta komi ekki á óvart, fólk bíði eftir blaðinu á hverjum fimmtudagsmorgni. Hann þekkir það vel því auk þess að skrifa blaðið ekur hann því glóðvolgu út á bensínstöðvar, verslanir og stóra vinnustaði á Selfossi og segir að fólk bókstaflega rífi blaðið úr höndum sér og vinna stöðvist á meðan fólk er að lesa það. Dagskránni er dreift án end- urgjalds á öll heimili í Árnes-, Rang- árvalla- og Vestur-Skaftafellssýslum auk þess sem það liggur frammi á op- inberum stöðum. Dagskráin er gefin út í níu þúsund eintökum. Blaðaútgáfa er öflug á Selfossi. Auk Dagskrárinnar er gefið út áskriftarblað, Sunnlenska fréttablað- ið, og tvö önnur fríblöð, Glugginn og Sjónvarpsvísir Suðurlands. Búfræðingur í ritstjórastól Magnús Hlynur er búfræðingur frá Bændaskólanum á Hvanneyri og garðyrkjufræðingur frá Garðyrkju- skólanum á Reykjum og vann í Garð- yrkjuskólanum í tíu ár. Hann fór fljót- lega að vinna við fjölmiðla í aukavinnu, skrifaði fréttir í Dag- skrána og gerðist fréttaritari Sjón- varpsins á Suðurlandi. Þegar nýir eigendur komu að prentsmiðju- rekstrinum og þar með útgáfunni fyrir hálfu öðru ári var Magnús Hlyn- ur ráðinn ritstjóri í fullt starf. Hann fékk fyrst ársleyfi hjá Landbúnað- arháskólanum en ákvað um áramót að snúa ekki til baka. Hann heldur sér þó við í faginu með því að klippa tré fyrir fólk. Hins vegar segist hann fyr- ir löngu vaknaður upp af gamla bú- skapardraumnum. Fréttirnar gefa lífinu lit Í HNOTSKURN »Dagskráin hóf göngu sínasem sjónvarpsdagskrá með auglýsingum 1. mars 1968. Blaðið hefur þróast út í það að vera héraðsfréttablað og er að efla sig á því sviði. »Prentmet gefur blaðið út eft-ir að fyrirtækið keypti Prent- smiðju Suðurlands, 1. ágúst 2006. Magnús Hlynur Hreið- arsson er þriðji ritstjóri blaðsins. Fyrirrennarar hans í starfi eru Haraldur Hafsteinn Pétursson og Örn Grétarsson. » Í tilefni 40 ára afmælis erDagskráin með sögusýningu í anddyri Hótels Selfoss. Sýn- ingin verður þar fram yfir miðj- an maímánuð. Þar eru meðal annars sýndar gamlar forsíður og ljósmyndir. Sjónvarpsdagskrá orðin að Frétta- blaði Suðurlands Eftir Birki Fanndal Haraldsson Mývatnssveit | Þeir sem leið hafa átt um þjóðveg 1 á Norðausturlandi undanfarið hafa undrast að sjá gangandi ferðamann dragandi á eft- ir sér tjaldkerru ekki stóra. Að- stæður, hvorki færð né veður, hafa verið þannig að venjulegur Íslend- ingur hefði lagt sig í slíkt. Satt best að segja hefur varla verið hundi út sigandi nú í nokkrar vikur, svellaðir vegir, stormur og skafrenningur. En hver er það þá sem ögrar svo rækilega íslenskri marsveðráttu? Hún heitir Rosie Swale Pope og hef- ur verið á göngu um heiminn nú í á fimmta ár. Kerran sem hún dregur er sérhönnuð hjá Amish-fólkinu í Bandaríkjunum og er bæði létt og sterk, er á þremur hjólum og með einangruðu tjaldi yfir. Sjálf tengir svo Rosie sjálfa sig fyrir þennan agnarsmáa „húsvagn“ með tveimur kjálkum, axlaböndum og belti. Hvernig Rosie hefur tekist að draga vagninn á eftir sér á sinni löngu för um heiminn er erfitt að skilja, því Rosie er hvorki stór né þung, heldur miklu fremur smávax- in og létt. En það sem einkennir hana er hversu glöð, kát og bjartsýn hún er. Hún segir hlæjandi frá því að hún sé eiginlega nokkurs konar dráttarklár og því sé ekki undarlegt að Amish-fólkið hafi helst kunnað að gera henni vagn við hæfi því þar í sveit nota menn mikið hestvagna enn í dag. Fyrir nokkrum dögum þegar Ros- ie var að búa um sig undir nóttina í kerrunni kom Ásdís Jóhannesdóttir í Sel-hóteli þar að, bankaði á tjaldið og bauð henni að koma með sér og hvílast á hótelinu. Þar hefur Rosie dvalið nokkra daga, hvílst og safnað þreki til að halda áfram yfir öræfin til Seyðisfjarðar. Það styttist nú í leiðarlok á heimsreisu hennar, því frá Íslandi stefnir hún heim til Wales þar sem hún á afkomendur en eig- inmann sinn hafði Rosie misst áður en hún lagði upp í sína löngu för. Reyndar safnar hún áheitum í ferð- inni til styrktar krabbameins- félögum í heimalandinu. Rosie er ekki alveg ókunnug Ís- landi, hún hljóp eitt sinn Reykjavík- urmaraþon og hún hefur gengið um landið að sumarlagi. Nú vildi hún kynnast íslenskum vetri og það hef- ur hún svo sannarlega fengið. Þessi kvenhetja lét vel af þeim kynnum öllum og ber landi og þjóð vel sög- una. Vonandi farnast henni vel ferðalag síðustu dagana á Íslandi í átökum við erfið veður á Öræfum. Morgunblaðið/BFH Langförul Rosie Swale Pope er bú- in að vera á göngu í ein fimm ár. Á hest- um post- ulanna SUÐURNES Reykjanesbær | Umhverfissamtök- in Blái herinn hafa hreinsað vel yfir 300 tonn af alls kyns rusli og drasli úr umhverfi Reykjanesskagans á þeim tíu árum sem liðin eru frá því samtökin voru stofnuð. Auk þess hafa samtökin fjarlægt um 20 tonn af rusli annars staðar á landinu. Blái herinn fagnar nú tíu ára af- mæli sínu. Samtökin eiga upphaf sitt í því að nokkrir sportkafarar komu saman ásamt Stefáni Bjarka- syni, framkvæmdastjóra íþrótta- og tómstundamála hjá Reykjanesbæ, til að stofna áhugaklúbb sportkaf- ara. Sá hópur myndar kjarnann í Bláa hernum. Hópurinn hefur unnið að um- hverfismálum frá upphafi. Þótt mikið hafi áunnist á þessum árum er af nógu að taka, að mati Tóm- asar J. Knútssonar, formanns Bláa hersins og yfirhershöfðingja, og verður áfram unnið að þessum mál- um. Hafa fjar- lægt yfir 300 tonn Grindavík | Fræðslukvöld verður í Saltfisksetrinu í Grindavík annað kvöld, fimmtudag kl. 20. Meðal ann- ars verður fjallað um Reykjanes- fólkvang. Sigrún Helgadóttir, líf- og um- hverfisfræðingur, fjallar um Reykjanesfólkvang sem er stærsta friðlýsta svæðið sinnar tegundar á Íslandi. Ármann Höskuldsson eld- fjallafræðingur segir frá rann- sóknum sem fram fóru á Reykja- neshrygg sumarið 2007. Fræðsla um fólkvanginn ♦♦♦ H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 0 7 – 2 2 9 2 Fyrri umsóknarfrestur er til mánudagsins 7. apríl, seinni umsóknarfrestur er til föstudagsins 30. maí. Alþjóðlegur hópur framúrskarandi kennara frá viðskiptaháskólum beggja vegna Atlantshafsins sem raða sér í efstu sæti í alþjóðlegum samanburði á MBA-námi Áhersla á sérfræðiþekkingu, persónulega færni og alþjóðlega færni Námið fer fram á ensku Sterk tengsl við atvinnulífið ALÞJÓÐLEGT MBA-NÁM Í HÁSKÓLANUM Í REYKJAVÍK *Samkvæmt könnun meðal allra útskrifaðra nemenda frá 2002 til 2007. Allar nánari upplýsingar og rafrænt umsóknar- eyðublað er að finna á www.ru.is/mba. Tökum við umsóknum núna INNOVATECHANGE LEAD 95% MBA-nemenda við HR segja að námið hafi gert þá hæfari og betri í starfi. 91% MBA-nemenda við HR segja að námið hafi aukið möguleika þeirra á vinnumarkaðnum.*

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.