Morgunblaðið - 02.04.2008, Síða 20

Morgunblaðið - 02.04.2008, Síða 20
heilsa 20 MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ Þjáningar kvenna hafa löngum veriðmönnum hugleiknar, allt frá því aðdrottinn lagði á Evu að fæða börnsín með kvöl í refsingarskyni fyrir að hafa boðið Adam upp á eplið forðum. Mörg þúsund árum síðar söng Bob Marley „No Woman, No Cry“ og nú endurómar stef hans í yfirskrift átaksverkefnis Alþjóða Verkja- fræðafélagsins (IASP) sem er „Real Women, Real Pain.“ En er það svo að alvöruverkir fylgi alvöru- konum? „Já, konur finna meira til, lengur til, víðar til og nota önnur bjargráð en karlar,“ segir Karl Örn Karlsson, tannlæknir og kenn- ari við Tannlækningastofnun Háskóla Ís- lands. „Þá erum við ekki að tala um bráða verki sem standa tvo þrjá daga heldur lang- vinna verki og þráláta sjúkdóma sem eru mun algengari hjá konum en körlum. Þetta er t.d. mígreni, vöðvabólga, vefjagigt, iðraóeirð, liða- og slitgigt, kjálkakvillar og fleira slíkt. Rann- sóknir hafa sýnt að þrátt fyrir þetta eru minni líkindi á því að konur fái viðhlítandi meðferð við þessum verkjum en karlar. Þröskuldurinn hjá karlinum virðist vera hærri – hann tefur svolítið að leita til læknis – en þegar hann kemur fær hann dúndrandi meðferð og það er strax tekið mark á honum. Konan leitar sér fyrr lækninga, er sér meira meðvitandi um líkama sinn og tekur meira mark á einkennum. Hún leitar sér því með- ferðar fyrr en þá er síður tekið mark á henni.“ Konur hafa gjarnan kvartað undan þessu og segja að litið sé á þær sem móðursjúkar í læknisheimsóknum. „Já, og bara orðið „móð- ursýki“ segir sína sögu,“ segir Karl Örn. „Enska orðið er „hysteria“ en „hysterium“ er latneska heitið yfir leg. Þetta endurspeglar kannski viðhorfin gagnvart verkjum kvenna.“ Endorfínið er sem verkjalyf Hann segir fræðimenn vinna með tvö lyk- ilhugtök í sambandi við verki. „Annars vegar tölum við um kyn (e. sex) um líffræðileg ein- kenni sem lúta að æxlun og viðhaldi tegund- arinnar. Undir það fellur líkamsbygging, líf- eðlisfræði, hormónastarfsemi og fleira. Hitt hugtakið er kyngervi (e. gender) en það nær yfir umhverfið, þ.e. sjálfsímynd, menningu, félagsþætti, kynhlutverkin og fleira í þeim dúr.“ Að sögn Karls Arnar er vissulega ekki hægt að alhæfa um einstaklinga út frá öllum konum eða öllum körlum. „Hins vegar hefur hvort kyn um sig ákveðna líkamsbyggingu og hormóna og þannig stýra hormónasveiflur kvenna svolítið verkjunum sem þær upplifa. T.d. hafa margar konur erfðafræðilega til- hneigingu til að fá mígrenihöfuðverk, og þá fá ófáar þeirra einkum mígreniköst dagana fyrir blæðingar. Þetta kemur til af því að estrógen- ið í líkamanum minnkar en estrógen tengist framleiðslu á endorfíni sem slær á verki. Þannig að þegar estrógenið fellur niður er konan ekki með jafn mikið af verkjastillandi í kroppnum og annars. Margar getnaðarvarn- arpillur eru þannig samsettar að þær inni- halda estrógen í þrjár vikur en svo er ein vika frí. Þá verða konurnar sem eru á þeim virki- lega aumar í öxlum og hnakka og fá frekar höfuðverk. Þetta sé ég gjarnan hjá ungum konum sem koma á stofuna til mín, en ég er sérfræðingur í kjálkakvillum sem eru álags- tengd vandamál í kjálkum, eiginlega vöðva- bólga í andlitinu. Um leið og þessar ungu stúlkur átta sig á samhenginu hættir þetta að vera svo mikið vandamál.“ Tilfinningaleg upplifun síður tekin alvarlega Almennt segir Karl Örn konur hafa lægri sársaukaþröskuld en karlar, við flest áreiti. „Ef tilraunahópur er píndur gefast konurnar fyrr upp en að vísu fer það svolítið eftir því hvers kyns sá er sem er að gera tilraunina því konurnar kvarta síður ef það er karlmaður.“ En hvað þá um þá rómuðu vitneskju kvenna að karlar séu hinir mestu vælukjóar þegar eitthvað bjátar á – þeir megi varla fá svo mik- ið sem kvef áður en þeir fara að kveina? Karl Örn kannast við þessi rök. „Þetta gell- ur alltaf við þegar ég er með fyrirlestur um þessi mál: „Þegar karlar verða veikir þá verða þeir svo voðalega veikir og kvarta manna mest!“ Þar erum við þó að tala um bráð vandamál og ég held að karlar bregðist verulega við þeim, t.d. ef þeir fá bráðatann- pínu. Það er þó allt annað en þrálát verkja- vandamál eins og vefjagigt eða mígreni sem hefst við kynþroskaaldur og stendur fram yfir fimmtugt.“ Hann segir að komið hafi í ljós að karlar byrgi slíka sjúkdóma frekar og lengur inni í sér en konur og tefji að leita sér lækninga og geri það þá oft fyrir áeggjan kvenna. „Hjá konum tengjast verkir meira inn í vinstra heilahvel þar sem tilfinningasvæðin eru enda lýsa konur oft verkjunum út frá tilfinningum sem aftur gerir þá minna áþreifanlega. Í læknavísindum er hefð fyrir því að allt eigi að vera áþreifanlegt og mælanlegt og því er til- finningaleg upplifun síður tekin alvarlega en önnur. Verkir eru náttúrlega tilfinning – vond tilfinning vel að merkja – og ef meiningin er að lina verki hljótum við að taka á því líka.“ Meiri krókaleiðir hjá konum Konur og karlar nota líka mismunandi að- ferðir til að ná bata. „Þrátt fyrir meiri króka- leiðir hjá konunum breytir það ekki svo miklu um endaniðurstöður,“ segir Karl Örn og bæt- ir við að ýmsar ástæður séu fyrir því að konur leggi á sig slíkar krókaleiðir. „Ég held að það sé bæði líffræðilegur munur og kyngervið, þ.e. umhverfið – að það sé ekki tekið mark á þeim. Konur eru ekki aðeins næmari fyrir verkjum, heldur fyrir öðrum skynhrifum svo sem sjón, heyrn og lykt. Kynbundinn verk- jamunur getur því verið ein birtingarmynd þess að konur séu næmari á nánasta umhverfi sitt en karlar og því betur í stakk búnar til að vernda afkvæmi sín. Endorfín og streitu- hormón gagnast körlum betur en konum við verkjastjórn vegna þess að þessi efni draga úr egglosi og þar með viðhaldi tegund- arinnar.“ Sem fyrr segir hefur Alþjóða Verkjafræða- félagið ákveðið að tileinka þetta ár verkjum kvenna og í tilefni af því stendur Tannlækn- ingastofnun Háskóla Íslands fyrir málstofu um konur og verki og kynbundinn verkjamun á laugardag. Málstofan er haldin í samvinnu við lyfjafyrirtækið Pfizer, Verkjafræðafélag Íslands og Tannlæknafélag Íslands en tveir heimsþekktir verkjasérfræðingar frá Banda- ríkjunum, dr. William Maixner tannlæknir og dr. Roger C. Fillingim sálfræðingur munu verða þar með erindi. „Tilgangurinn er að ná til lækna, uppalenda lækna, nemenda í heilbrigðisvísindum og sjúklinga því viðeigandi fræðsla er alltaf mik- ilvægur hluti af meðferð. Það getur ekki verið rétt að það sé sjúkdómur að vera kona en því miður er oft tekið á því þannig.“ ben@mbl.is Alvöruverkir hjá alvörukonum © Mika/zefa/Corbis Kvennakvalir Konur finna meira til, lengur og víðar og nota önnur bjargráð en karlar að sögn Karls Arnar Karlssonar, lektors við HÍ. Morgunblaðið/Ómar Málþing „Það getur ekki verið rétt að það sé sjúkdómur að vera kona,“ segir Karl Örn Karls- son lektor en Tannlæknastofnun HÍ stendur fyrir málþingi um kynbundna verki á laugardag. Langvinnir og þrálátir verkir eru frekar fylgifiskar kvenna en karla að sögn Karls Arnar Karlssonar, lektors við tannlæknadeild HÍ. Þrátt fyrir þetta er minna mark tekið á kvölum þeirra en karlanna. En hvers vegna? Bergþóra Njála Guðmunds- dóttir leitaði svara. Bara orðið „móðursýki“ segir sína sögu – enska orðið er „hysteria“ en „hysterium“ er latneska heitið yfir leg. Þetta endurspeglar kannski viðhorfin gagnvart verkjum kvenna. Málþingið Konur og verkir – kynbundinn verk- jamunur verður haldið næstkomandi laug- ardag á Háskólatorgi milli kl. 9 og 12 www.iasp-pain.org.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.