Morgunblaðið - 02.04.2008, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 02.04.2008, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 2008 21 stinga þeim beint í skottið á bílnum ef vildi. Þau ræddu mál- in, skoðuðu ýmsa kosti og síðan prentaði hann út upplýsingar. Í samtali þeirra kom fram að hreyfing væri á verði í ljósi þess að krónan væri á hraðri niðurleið og viti menn, þegar útprentið kom var vélin enn á tilboði með 20% afslætti en var komin upp í 174.945. Sölumaðurinn varð kindarlegur og augljóst að ekki hafði tekist að koma upplýs- ingum nógu hratt til hans – aug- ljóst var að vélin hafði verið á kr. 154.000 í dymbilvikunni en nú um miðjan dag á þriðjudegi eftir páska hafði verðið hækkað um 20 þús- und. Sölumaðurinn nefndi að það liti út fyrir að krónan væri að styrkjast og aldrei að vita nema vélin lækkaði næsta dag. Vinur Víkverja hafði fulla samúð með honum enda var hann kurteis og vildi allt fyrir viðskiptavininn gera – en vinur Víkverja sneri sér ann- að og nú gleðst fjölskyldan yfir vel unnum störfum glæsilegrar upp- þvottavélar sem ekki var háð sömu gengislögmálum heldur kom af lager á sama verði og fyrir páska. Vinafjölskylda Vík-verja lenti í und- arlegum þvottavéla- viðskiptum fyrir skemmstu. Í kjölfar minniháttar hamfara á heimilinu stóð fjöl- skyldan frammi fyrir því að uppþvottavél fjölskyldunnar var ónýt. Þar sem þetta er eitt mest notaða heimilistækið var ekki um annað að ræða en halda af stað og kaupa nýtt þrátt fyrir orðróm um hækkanir og óhagstætt gengi. Fjölskyldan var reyndar ekki í vafa um að eitthvað hlyti að vera til af tækjum sem þegar væru greidd og tolluð inn í landið og þar af leiðandi á „gamla verðinu“. x x x Höfuð fjölskyldunnar hélt beintí búðina sem selt hafði henni uppþvottavélina sem þjónað hafði fjölskyldunni ágætlega um nokk- urn tíma. Sölumaður tók vel á móti vini Víkverja og benti honum á vél sem væri á tilboði með 20% aflætti og kostaði 154.000 – prýðisgóð vél en hann átti aðra betri sem hann vildi kynna mér. Báðar vélarnar voru til á lager og var hægt að         víkverji skrifar | vikverji@mbl.is Eftir Björgu Sveinsdóttur Og veistu hvað, konan viðhliðina á mér fór ekkertí sturtu, var í sundföt-unum innanundir og fór beint út í. Svo fór ég út í eftir mitt skrúbb og byrjaði að synda, tand- urhrein. Þá kom vörðurinn. Ein- hverra hluta vegna labbaði hann allan hringinn til að tala við mig og benti mér að koma upp á bakk- ann. Hann klóraði sér í höfðinu. Ef til vill var hann að reyna að hugsa upp orð á ensku. Hann sagði eitt- hvað á spænsku og togaði í hárið á sér. Svo benti hann á hina sem voru að synda. Ég yppti öxlum. Hann togaði eins og ímyndaða húfu á hárið á sér og ég skildi. Úpps, allir með sundhettu og ekki ég. Ó, eskúse, comprendo, e,e,e, hvar kaupir maður svoleiðis? Ég mátti ganga eftir mílulöng- um göngum og stigum niður í af- greiðsluna á blautum bolnum. Þar tók á móti mér kona sem með vor- kunnarblik í auga lét mig hafa sundhettu, á fjórar evrur. Þessir útlendingar, ekkert vita þeir um þrifnað þessi grey. Já og allir eru á sundtöfflum í sama útlandi, það þykir snyrtimennska. Ég las nýverið grein eftir konu í Félagi íslenskra fótaaðgerðar- fræðinga sem hélt því fram að sundtöfflur væru góð vörn gegn fótsvepp en sumir segja að aðal- atriðið sé að fara með fæturna al- veg þurra í sokkana. Bæði í Vest- urbæjarlaug og Seltjarnarneslaug eru rafdrifnar táþurrkur sem er um að gera að nota. Kona sem hefur búið í Noregi mjög lengi segir mér að fjölmenn- ing hafi í ákveðnum bæjarhlutum náð fram breytingum á almenn- ingsbaði. Einn veturinn tóku tvö börn hennar á barnaskólaaldri upp á því að koma með nærfötin blaut heim úr skólanum þá daga sem var leikfimi. Hverju sætir þetta? Fyrsta svar var: Jú, nú verða allir að fara í sturtu, það má ekki lengur sleppa því … og eng- inn fer nakinn í sturtu. Enginn, og þá ekki við. Mín blés til fundar í foreldra- félaginu og þar voru málin rædd. Það gustaði milli austræns karls sem var líklegast að ræða kúltúr og trúarbrögð og íslenskrar frúar sem var að tala um „þrif“. „Men kultur kan man ikke göre noget med,“ segja Norðmenn og nið- urstaðan var: Sturta án bols en í nærjum. Hélt það ýkjur þegar mér var sagt að baðverðir í Toyen- sundlauginni í Ósló hefðu áhyggj- ur af björgunarsundi ef þeir lentu í að reyna að bjarga konum í búrkum upp úr lauginni. Fer ein- hver að synda í svo efnismiklum sundfötum? Þarsíðasta sumar var ég að synda í Toyen badet og ég sá enga í búrku. Hins vegar sá ég konu sem ég taldi með sundhettu í síðum sokkabuxum og kjól með síðum ermum á sundi. Burkini? (http://www.ahiida.com/) Í volga barnapottinum sátu indverskar konur með litlu börnin sín og höfðu það mjög skemmtilegt. Þær voru að pakka saman nestinu og ég sá marglit hrísgrjónin fljóta í vatninu. Ég kann vel við okkar sundbað- staðareglur. Þrátt fyrir að allir viti að klórvatnið er svo sótt- hreinsandi að það er alveg sama hvað fer í það þá er þetta góð regla sem líklegast minnkar álag á síur og er bara partur af þrifn- aði. Upp kemst um hvern sem gleymir forsturtunni því lykt, t.d. af hárlakki eða rakspíra, magnast upp á hreina lyktlausa sundlaug- arsvæðinu. Það gengur betur þegar allir fara eftir sömu reglum, skrifuðum og óskrifuðum. Eins og til dæmis að þurrka sér á þurrksvæðinu og ganga ekki rennblautum fótum inn að skápunum, eins og Víkverji skrifaði um, en ástæðan fyrir því er að gestir geyma handklæðin í læstum skáp nema hvað og ekki vanir öðru. Í ljósi reynslunnar álykta ég sem svo að nýjum sundgestum þætti fengur að vita af þessum óskrifuðu reglum. Morgunblaðið/Jóra Þrifnaður eða kúltúr? Rúnar Kristjánsson á Skaga-strönd orti vísur um Vilhjálm Vilhjálmsson 28. mars síðastlið- inn: Þó úr heimi horfinn sértu, hlýjar perlur minna á sig. Vinur kær og valinn ertu Vilhjálmur – við munum þig. Okkur gafstu söngvaseiðinn, sem að gildi aldrei dvín. Það var vinar vænsti greiðinn, vinargjöfin stærsta þín. Rödd þín vermir, rödd þín laðar, röddin þín er öllum kær. Hún á leið til hjartastaðar heilsar okkur ljúf og tær. Hún í okkar hjörtum syngur, hún ber þennan rétta keim. Það er enginn Íslendingur ósnortinn af hljómi þeim. Þökkum vafinn þjóðar sértu, þær um framtíð kynna sig. Vinur kær og valinn ertu, Vilhjálmur – við elskum þig. pebl@mbl.is VÍSNAHORNIÐ Til Vil- hjálms AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is, sími 569 1111 GULRÆTUR geta hjálpað ef sjónin er slæm vegna A-vítamínskorts, en þær laga hvorki nærsýni né fjar- sýni. Gulrætur eru ríkar af beta- karótíni, sem gefur þeim appels- ínugulan lit. Frumur í smáþörmum og í lifur geta klofið beta-karótín í A-vítamín. A-vítamín er nauðsynlegt til að viðhalda hornhimnu augans tærri og það tekur þátt í umbreytingu ljósorku í taugaboði í sjónhimnu. Skortur á A-vítamíni leiðir m.a. til náttblindu, samkvæmt upplýs- ingum Rannsóknastofu í næring- arfræði. Eru gulrætur góðar fyrir sjónina? Morgunblaðið/Ásdís Framsækið samfélag með álver á Bakka Opinn borgarafundur um verkefnið Framsækið samfélag með álver á Bakka, verður haldinn fimmtudaginn 3. apríl, kl. 20:00-22:00 á Fosshótelinu, Ketilsbraut 22, Húsavík. Fulltrúar Norðurþings, Alcoa, HRV, Landsvirkjunar og Landsnets kynna á fundinum undirbúning og stöðu þessa mikilvæga verkefnis og svara fyrirspurnum íbúa. Dagskrá Fundarsetning Bergur Elías Ágústsson, sveitarstjóri Norðurþings Norðurþing, staða mála og næstu verkefni Tryggvi Finnsson, framkvæmdastjóri Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga Svæðisskipulag háhitasvæða í Þingeyjarsýslu Gaukur Hjartarson, skipulags- og byggingarfulltrúi Norðurþings Orkuflutningar Árni Jón Elíasson, sérfræðingur, Landsneti Orkuöflun Árni Gunnarsson, forstöðumaður jarðhita, Landsvirkjun Power Undirbúningsrannsóknir vegna álvers Arnór Þórir Sigfússon, HRV Grunnur að styrkingu atvinnulífs á Norðausturlandi – álver á Bakka Kristján Þ. Halldórsson, verkefnisstjóri samfélagsmála hjá Alcoa á Norðurlandi Spurningar og svör Samantekt og fundarslit Bergur Elías Ágústsson Fundarstjóri: Erna Björnsdóttir, sveitarstjórnarfulltrúi Norðurþings NORÐURÞING

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.