Morgunblaðið - 02.04.2008, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 02.04.2008, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 2008 23 Með grein þessari viljum viðundirrituð fylgja eftirskrifum okkar sem birtustmeð sömu fyrirsögn í mið- opnu Morgunblaðsins 14. mars sl. Síð- an sú grein var rituð og lokahönd lögð á efnahagstillögur Vinstrihreyfing- arinnar – græns framboðs hefur ým- islegt gengið á. Sveiflur bæði á gjald- eyris- og hlutabréfamarkaði urðu meiri en nokkru sinni fyrr síð- ustu virka daga fyrir páska og í kjölfarið og áður en markaðir voru opnaðir bak páskum greip Seðlabankinn til þess ráðs að hækka stýrivexti um 125 punkta, einstæð og harkaleg aðgerð í landi þar sem stýrivextir voru fyrir einhverjir þeir hæstu sem þekkjast í vestrænu hagkerfi. Eng- um þarf að dyljast að ein ástæða þessara harka- legu aðgerða Seðlabank- ans var að skömmu fyrir páska gaf forsætisráð- herra út þá yfirlýsingu að loknum ríkisstjórn- arfundi að ríkisstjórnin sæi ekki ástæðu til að aðhafast og var þó sá fundur haldinn í ólgu- sjónum miðjum, á sama tíma og sveiflurnar voru meiri á markaði en nokkru sinni fyrr. Með ríkisstjórnina áfram á hliðarlínunni og yfirlýsingu frá henni um að hún hygðist ekki grípa til aðgerða hefur Seðlabankinn án efa gripið til enn harkalegri ráðstafana en ella. Ýms- ar tengdar hlið- arráðstafanir voru kynntar sama dag og miðuðu flestar að því að rýmka nokkuð aðgang fjármálafyrirtækja að lausafé og mæltust al- mennt vel fyrir. Hluti af þeim var að auka útgáfu skuldabréfa til að virkja betur og dýpka skulda- bréfamarkaðinn hér inn- anlands og má segja að þar sé einum lið í efnahagstillögum Vinstri grænna hrint í framkvæmd en þar er sérstaklega mælt fyrir um að- gerðir til að efla innlenda skuldabréfa- útgáfu og örva þann markað. Stýrivaxtahækkun uppurin á viku Alvarlegast er hins vegar að þrátt fyrir mjög jákvæð viðbrögð við ákvörð- un Seðlabankans þriðjudaginn eftir páska entust aðgerðirnar ótrúlega stutt. Í lok vikunnar má segja að geng- is- og hlutabréfavísitölur hafi aftur ver- ið komnar á svipaðar slóðir og þær voru fyrir aðgerðir Seðlabankans, þrátt fyrir að hafa hækkað hressilega daginn sem aðgerðirnar voru kynntar og daginn þar á eftir. Með öðrum orð- um fjöruðu áhrifin nokkurn veginn út innan viku. Þannig var staðan þegar helstu ráðamenn efnahagsmála komu saman til ársfundar Seðlabankans sl. föstu- dag. Fátt var þar óvæntra tíðinda mið- að við aðstæður. Helst að athygli vektu endurteknar yfirlýsingar seðla- bankastjóra um óprúttna atlögu ónefndra aðila að krónunni og íslenska fjármálakerfinu. Reyndar ber að fagna því að í fyrsta sinn vottaði fyrir því að forsætisráðherra væri að komast til meðvitundar. Hann talaði um að í at- hugun væri að ríkissjóður tæki þátt að styrkja gjaldeyrisvaraforðann með lántöku fyrir Seðlabankann. Á svipaða strengi sló formaður Samfylking- arinnar á flokksstjórnarfundi um helgina. Við undirrituð fögnum því að rík- isstjórnin sé nú komin inn á það spor að skoða í alvöru nauðsyn þess að styrkja gjaldeyrisforða Seðlabankans. Það var ein af megintillögum okkar sem við lögðum fram fyrir páska. Þessu lífsmarki ríkisstjórnarinnar ber að fagna. Hitt yrði dapurlegra ef viðbrögð þeirra ættu eftir að fá einkunnina: Of lítið, of seint – en á því er umtalsverð hætta. Þegar svo er komið að aðgerð- arleysi og doði ríkisstjórnarinnar er beinlínis farinn að vekja athygli er- lendra aðila sem fjalla um íslensk efna- hagsmál segir það sína sögu. Það er reyndar einnig saga til næsta bæjar og til umhugsunar fyrir innlenda fjölmiðla að það skuli þurfa erlent blað til að vekja athygli á hagnaði bankanna af geng- islækkun krónunnar. En nóg um það. Þegar lokahönd var lögð á efnahagstillögupakka okkar Vinstri grænna fyr- ir um það bil mánuði var það mat okkar og þeirra sem við ráðfærðum okkur við að þær aðgerðir sem við boðuðum til að styrkja Seðlabankann og til að ná tökum á innra jafnvæg- isleysi í þjóðarbúinu og aðrar aðgerðir sem felast í frumvarpinu ættu að vera fullnægjandi eða a.m.k. mjög myndarlegar ráð- stafanir til að ná tökum á ástandinu. En síðan þá hefur ástandið einungis versnað. Í frumvarpinu var lagt til að styrkja gjaldeyrisvaraforðann um 80 milljarða króna og styrkja til viðbótar eigið fé Seðlabankans um aðra 40 milljarða með innlendu skuldabréfaútboði. Í ljósi aðstæðna þá litu þetta út fyrir að vera dugandi og marktækar aðgerðir en það er með öllu óvíst að þær dugi nú eins og ástandinu hefur hrakað. Aðstæður hafa undanfarið versnað til að ráðast í slík- ar aðgerðir og líklegur kostnaður þeim samfara vex. Einstöku hagfræð- ingar tala nú jafnvel um miklu hærri fjárhæðir og fleiri hundruð milljarða í gjaldeyrisvaraforða til að ná tökum á ástandinu. Af þessu má fyrst og fremst draga þann lærdóm að með hverri viku sem líður hefur ástandið versnað og óumflýjanlegar aðgerðir til að ná tök- um á því verða erfiðari og dýrari. Sof- andaháttur ríkisstjórnarinnar er því að reynast þjóðarbúinu ærið dýr. Þá er ónefnt að margir telja ríkisstjórnina ekki taka hættuna á því nógu alvarlega að aðrir og enn verri hlutir geti átt eftir að gerast. Tíminn er dýrmætur Við Vinstri græn setjum okkar til- lögur fram með því hugarfari að Ís- lendingar ætli sér að vinna sig saman út úr vandanum og sigrast á erfiðleik- unum og það munum við að sjálfsögðu gera. En sofandaháttur ríkisstjórn- arinnar er því miður hluti af vandanum. Dýrmætur tími fer til spillis og er illa eða ekkert notaður. Nú er mál að linni. Við höfum ekki lengur efni á tali út og suður. Liður í efnahagsaðgerðunum gæti vel verið sá að Samfylkingin féllist á að hætta að tala um efnahagsmál og sérstaklega um evru, ef hún hefur ekki annað fram að færa, a.m.k. næstu sex mánuði, á meðan menn ná tökum á ástandinu. Tal ráðamanna sem gerir ekkert annað en að trufla stöðuna og veikja tiltrú manna á gjaldmiðlinum er ekki lengur aðhlátursefni, það er skað- legt og með öllu fráleitt. Vinstri græn munu hér eftir sem hingað til leggja sitt af mörkum til upp- byggilegrar umræðu og tillögugerðar á sviði efnahagsmála. Við fögnum því að ýmsir liðir í okkar aðgerðaáætlun njóta nú greinilega vaxandi stuðnings og eru jafnvel komnir til skoðunar hjá rík- isstjórn. En betur má ef duga skal. Tökum á efna- hagsvandanum Eftir Steingrím J. Sigfússon og Katrínu Jakobsdóttur »… aðgerð- arleysi og doði ríkisstjórn- arinnar er bein- línis farinn að vekja athygli er- lendra aðila sem fjalla um íslensk efnahagsmál – segir það sína sögu. Höfundar eru formaður og varaformaður Vinstri-grænna. Katrín Jakobsdóttir Steingrímur J. Sigfússon annars staðar nema þeir telji að hann sé í lagi. Bílstjórarnir komi með búnaðinn til baka og hann sé flokkaður á staðnum til frekari nota þar eða sendur á aðra staði. Á svæðinu sé búnaður sem sýni hvort farm- ur sé undir hámarkshæð og fullnægi hann ekki þeim kröfum fái bíllinn ekki að fara með farminn fyrr en búið sé að fullnægja settum reglum. Standi farmur út af palli séu líka gerðar viðeigandi ráðstafanir með t.d. nauðsynlegum merkingum. Signý segir að hún hafi verið í flutn- ingabransanum í 20 ár og því sé ekki að leyna að öryggismál hafi ekki alltaf verið eins og best verði á kosið, en undanfarin misseri hafi orðið alger viðhorfsbreyting. Bechtel hafi til dæmis haft mjög mikil áhrif með öryggisreglum sínum við bygg- ingu álversins í Reyðarfirði. Eyþór tekur í sama streng. Hann segir að þó unnið hafi verið markvisst að því að breyta hugsunarhættinum og ástand sé víða gott séu alltaf einhverjir sem komi óorði á starfsemina. Hann áréttar að bíl- stjórar Eimskips séu mjög meðvitaðir um mikilvægi þess að ganga rétt frá farmi hverju sinni enda geri þeir sér grein fyrir eigin ábyrgð. Í þessu sambandi nefnir hann að reglulega séu haldnir fundir með bílstjórunum þar sem farið sé yfir allt sem viðkomi öryggismálum og snerti starf þeirra. Morgunblaðið/Ómar gný Sigurðardóttir, forstöðumaður flutningasviðs SVÞ, og Eyþór H. Ólafsson, öryggisstjóri hjá Eimskip, á athafna- ækisins, þar sem allur búnaður til að ganga frá farmi er aðgengilegur þeim sem á þurfa að halda. tningasvið SVÞ leggur áherslu á að farmur sé festur tryggilega með við- búnaði, s.s. klossum, loftpúðum, borðum og keðjum, eins og Eimskip notar. póstinn í notkun með því að hlaða annan REVA-rafbíl Orkuveitunnar. Við það tækifæri kom fram að Reykjavíkurborg og Orkuveitan stefna að aukinni notkun um- hverfisvænni orkugjafa í bifreiðar sínar og er markmið Orkuveitunnar að meira en helmingur bílaflota fyrirtækisins verði knúinn slíkum orkugjöfum 2013, en auk rafbílanna tveggja er Orkuveitan með fimm vetnisbíla og sjö metanbíla. Mikill munur Í tilkynningu frá Orkuveitunni kemur fram að sparnaður bifreiðaeiganda af því að reka rafmagnsbíl eins og Orkuveitan sé með miðað við algengan fjölskyldubíl nemi um 190 þúsund krónum á ári. Þá sé ótalinn minni útblástur gróðurhúsalofttegunda. Rafmagnsnotkun hérlendis valdi ekki út- blæstri koltvísýrings en smábíll með 1.300 cm³ vél, sem eyði 551 bensínlítrum á ári, blási út 3,4 tonnum af koltvísýringi. Rafgeymar rafmagnsbílanna eru frá- brugðnir rafgeymum hefðbundinna bif- reiða. Þeir eru framleiddir til að tæmast, ólíkt rafgeymum sprengihreyfilsbíla, og gefa lengur frá sér orku. Rafgeymarnir átta í REVA-bílnum endast að meðaltali í tvö og hálft til fjögur ár. Þeir eru endur- unnir að 95% og eru hannaðir til hleðslu við 220V, 10 eða 16 Amper. bíla í orkupóstum  Mikið ódýrara að reka rafmagnsbíl en algengan fjölskyldubíl Morgunblaðið/RAX umhverfis- og samgönguráðs Reykjavíkur, og Kjartan Magnússon, stjórn- num í stæði og taka fyrsta orkupóstinn formlega í notkun í Bankastræti.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.