Morgunblaðið - 02.04.2008, Síða 25

Morgunblaðið - 02.04.2008, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 2008 25 MAÐUR situr hnípinn fyrir framan sjónvarpsskerminn og fylgist með darraðardansinum á fjármálamarkaðnum. Úrvals- vísitölunni, genginu, stýrivöxt- unum. Maður hlustar á sérfræð- ingana lýsa atburðarásinni og botnar stundum ekki neitt í neinu. Hver hefur rétt fyrir sér um skýringar á þess- um hrunadansi? Hver er með skyn- samlegustu úrræðin til að rétta skútuna af? Ef almenningur er ruglaður í ríminu, þá eru háttvirtir al- þingismenn ekkert betri. Það suðar í hausnum á okkur öll- um. Líka hagfræðingunum, banka- stjórunum og öllum spákaupmönn- unum. Það er enginn með töfralausnina. Ekki það að himinn og haf séu að farast. Af mínu litla hyggjuviti dreg ég þá einföldu en augljósu ályktun, að hvað sem ólgusjónum líður á fjármálamarkaði umheims- ins, sem auðvitað hefur sitt að segja, þá er niðurstaðan sú að ís- lenska krónan er of lítill bátur fyr- ir þennan ólgusjó. Hún á ekkert í þetta óveður. Hendist upp og nið- ur og áhöfnin veit að þetta er von- laus lífróður. En það er önnur Ella. Ég hef auðvitað áhyggjur af fjárfestum sem hafa lagt mikið undir. Áhyggjur af bönkunum og atvinnufyrirtækjunum og jafnvel öllu ríka fólkinu og svona er mað- ur góður í sér, að þrátt fyrir alla öfundina, er samúð mín er hjá þeim fjármálaspekúlöntum sem hafa ekki varað sig á markaðnum og frelsinu sem býður bæði upp á gróða og tap. Svo ekki sé minnst á meðaljóninn og millistéttina sem þarf að þreyja þorrann og góuna í hærri vöxtum og verðlagi hvert sem litið er. Þetta verður krappur dans í heimilisbókhaldinu og ekki á vísan að róa. Aðilar vinnumarkaðarins eru ný- búnir að ganga frá kjarasamn- ingum og einhentu sér í að greiða fyrir hækkunum á lægstu launum. Það var ekki seinna vænna og hafi þeir allir þökk fyrir. En með verð- bólguholskeflu og verðhækkunum á öllum lífsnauðsynj- um verður útkoman því miður sú, að allt það góða fólk, sem hlotnaðist kjarabætur, var ekki fyrr búið að fagna samningunum en framfærslan hækk- aði í kjölfarið og það stendur í besta falli í stað. Eða jafnvel verr en áður. Kjarabótin sem fékkst dugar ekki einu sinni fyrir þeim hækkunum sem nú þegar eru í pípunum. Það var stutt gaman meðan það stóð. Og samúð mín er ekki síður hjá þessu fólki. En svo eru það smáfuglarnir sem stundum vilja gleymast. Fólk- ið sem kemst aldrei að neinu samningaborði og hefur engan verkfallsrétt. Ég leyfði mér á dög- unum að varpa fram þeirri spurn- ingu á Alþingi, hver væri hlutur aldraðra og öryrkja þegar gengið var frá samningunum og í fyr- irheitum ríkisvaldsins við gerð þeirra. Það var ekki alveg út í hött að bera fram þá spurningu í ljósi þess að fulltrúar þessara tveggja hagsmunahópa eru ekki aðilar að samningum vinnumarkaðarins og hljóta því að reiða sig á að rík- isstjórnin passi upp á að kjör þeirra sem fyrst og fremst hafa framfærslu af örorku- og lífeyr- isbótum, fylgi með þegar verið er að semja um kjör þeirra lægst settu. Því miður var fátt um svör. Sem þýðir vonandi samt að rík- isstjórnin standi sína plikt. Lífeyr- isbætur eru langt fyrir neðan framfærsluvísitöluna og eins og nú árar og ef efnahagserfiðleikarnir halda áfram getur enginn skotið sér undan ábyrgð eða skyldu til verja þá sem minnst bera úr být- um. Ég er stuðningsmaður þessarar ríkisstjórnar. Ég vil að hún sitji. En ég get ekki sagt henni fyrir verkum að öðru leyti en því að koma sjónarmiðum mínum á fram- færi. Þau eru skýr og afdrátt- arlaus. Í þeirri efnahagskreppu sem við upplifum heldur hver utan um sitt, en það er hlutverk rík- isstjórnarinnar að gæta hagsmuna þeirra hópa, sem ekki geta samið um lífskjör sín og verða að treysta á mannsæmandi bætur af hálfu hins opinbera. Það er þetta hlut- verk sem ríkisvaldið verður að taka alvarlega. Ef við vildum bæta kjör hinna lægst settu á hinum al- menna vinnumarkaði, þá má ekki gleyma öryrkjum og öldruðum. Hækkun framfærslukostnaðar bitnar á þeim sem öðrum. Og finna fyrir honum meir en aðrir. Verð- fall krónunnar bitnar líka og öllu fremur á þeim sem fæstar krón- urnar hafa milli handanna. Ég geng út frá því að bætur hækki í samræmi við bætt laun samkvæmt nýgerðum kjarasamn- ingum en með haustinu verði síðan gerð bragarbót á lífeyrisbótum. Ég skil vel að fjármálakreppan veldur samdrætti í þjóðarbúskapn- um og ríkissjóður verður fyrir bú- sifjum eins og aðrir. En þá má það ekki bitna á þeim sem minnst mega sín og eiga allt undir skiln- ingi og stuðningi ríkisvaldsins. Ekki gleyma öryrkjum og öldruðum Ellert B. Schram minnir á eldri borgarana og öryrkjana »Ég leyfði mér á dög- unum að varpa fram þeirri spurningu á Al- þingi, hver væri hlutur aldraðra og öryrkja þegar gengið var frá samningunum og í fyr- irheitum ríkisvaldsins við gerð þeirra. Ellert B. Schram Höfundur er alþingismaður. Á ÞINGI Sambands ungra sjálf- stæðismanna í byrjun nítugarins urðu vatnaskil í afstöðu Sjálfstæð- isflokksins til Evrópusambandsins. Fyrir þinginu lágu til- lögur frá forystu SUS, sem hvöttu til um- sóknar Íslands um að- ild að ES. Að þingi loknu hafði allt kúvent og Evrópunálgun var hafnað eftir inngrip formanns flokksins. Síðan hefur Sjálfstæð- isflokkurinn haft þá sérstöðu meðal bræðraflokka í Evrópu að vera neikvæður til aðildar að ES. Þessi afstaða er sterk í stofnunum flokksins svo sem þingflokki og miðstjórn en hefur ekki náð að sama skapi í grasrótina þar sem Evrópujákvæðni er meiri. Umræður í flokknum hafa þó verið litlar enda málið til þessa ekki svo brýnt. EES samningurinn hefur virkað vel og gjörbreytt íslensku samfélagi til hins betra á fáum ár- um. Hagkerfið hefur opnast, stjórn- sýsla hefur batnað, lagabætur gerð- ar og rekstrarumhverfi viðskiptalífsins orðið eins og hjá öðrum. Allt þetta hefur leitt til meiri hagsældar almennings en dæmi eru um á Íslandi áður. En nú er áfanga náð og komið að næstu skrefum, að berja í bresti gjaldmiðils og tryggja peningalegt jafnvægi og að gera verðlag til neytenda eðlilegt. Hvort tveggja yf- irgnæfir önnur nauð- synjamál næstu ára. Hvorugt verður þó gert án aðildar að ES, sem svo getur varla orðið án forystu Sjálf- stæðisflokksins. Nú er nauðsynlegt að endurmat fari fram meðal þingmanna og annarra forystumanna flokksins á aðild að ES en slíkt endurmat verður ekki auðvelt. Sumir hafa verið ein- lægir andstæðingar aðildar að ES og fært fyrir því gild rök. Meira áberandi hafa þó verið „af því bara“ rök, sem oft hafa fengið meðalhugsandi fólk til að svitna. Nú er tími að láta af slíkum rökum, svo sem að við missum stjórn á fiskimiðunum, að kostnaður verði meiri en ávinningur, að evr- ópsk stjórnsýsla sé verri en íslensk, að landbúnaður fari í rúst, að Ís- land sé öðruvísi, að við fáum ekki áhrif, að við getum ekki gert við- skiptasamning við Kína, að ferlið sé svo tímafrekt að það breyti engu að bíða og að ekki sé ræðandi um að- ildarumsókn fyrr en búið sé að breyta stjórnarskránni. Það er auð- velt að hverfa frá mörgum svona rökum því þau lúta ekki að kjarn- anum. Afstaðan til ES getur þó ekki verið svarthvít. Rök eru með og gegn. Hagsmunir rekast á. Margt bendir þó til að sú vogarskálin, sem ber rökin fyrir Evrópu þyngist stöðugt og að stjórnum við ekki at- burðarásinni stjórni hún okkur. Nú verður formaður Sjálfstæðisflokks- ins að leggjast undir feld, líkt og Ljósvetningagoðinn forðum og finna þá lausn, sem sameinar ekki bara Sjálfstæðismenn heldur sem flesta landsmenn um ES umsókn og sem tryggir raunverulega hagsmuni Íslendinga næstu áratugina. Sjálfstæðisflokkurinn verður að endurmeta afstöðuna til Evrópu Landsmenn verða að sameinast um ES umsókn segir Pétur J. Eiríksson »Nú verður formaður Sjálfstæðisflokksins að finna þá lausn sem bæði sameinar Sjálf- stæðismenn og sem flesta landsmenn um Evrópusambands- umsókn. Pétur J. Eiríksson Höfundur er framkvæmdastjóri. Opið hús í Árakri frá kl. 17–19 miðvikudaginn 2. apríl Frábær staðsetning – einstök þægindi www.arnarnes.is Sjáðu húsin á Hæðinni Húsakaup | Sími 530 1500 | Suðurlandsbraut 52 | Guðrún Árnad. löggiltur fasteignasali

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.