Morgunblaðið - 02.04.2008, Side 28

Morgunblaðið - 02.04.2008, Side 28
28 MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Þórunn Guð-mundsdóttir fæddist í Reykjavík 21. ágúst 1920. Hún lést á sjúkrahúsi í Danmörku 27. mars síðastliðinn, á 88. aldursári. Var hún þriðja í röð sex barna hjónanna Ingibjargar Guð- rúnar Björnsdóttur, f. 1886, d. 1973, af þingeysku bergi brotin, við versl- unarstörf í Reykja- vík og húsfreyja þar frá 1917 og Guðmundar Sveinssonar, f. 1886, d. 1952, frá Hvilft í Önundarfirði, skipstjóra og síðar aðstoð- arskipaskoðunarstjóra í Reykja- víkurumdæmi. Hin systkinin eru: Ása skrifstofumaður, f. 1918 d. 2000, Jóhannes verslunarmaður, f. 1919 d. 1991, Harald rafverktaki, f. 1921 d. 2002, Sigríður snyrti- fræðingur, f. 1923 og Sveinn verk- fræðingur, f. 1929. Þórunn ólst upp í foreldra- húsum að Bárugötu 17 í Reykjavík og lauk barnaskólanámi og gagn- fræðaprófi en lagði síðan stund á myndlist. Fyrst í kvöldskóla hjá Finni Jónssyni og Jóhanni Briem og síðan í Myndlista- og hand- íðaskóla Íslands 1941-1944, hjá kennurunum Kurt Zier og Þor- valdi Skúlasyni. Þegar seinni (hennar heimabæ) og ári síðar í borginni Phoenix í Arizonaríki vestanhafs. Listaverk hennar hafa verið sýnd í Kunstnerens Hus í Gothersgade í Khöfn öðru hverju frá 1978; hún var þátttakandi í samsýningu í Møstings Hus á Frið- riksbergi 1994 og einnig öðru hverju í Kvarterscenterets Kult- urhus Nordvest Khöfn (m.a.1998). Allt frá alþjóða kvennaárinu 1975 hafa íslenskar listakonur sýnt fimmta hvert ár í Húsi Jóns Sig- urðssonar í Khöfn og hefur Þór- unn jafnan fyllt þann flokk. Einnig hefur hún haldið þar einkasýn- ingar í áranna rás og eitt sinn, eða 1985, ásamt annarri konu. Árið 1950 giftist Þórunn danska listmálaranum Vagn Aa. Jensen. Þau reistu sér íbúðarhús í bænum Allerød á Sjálandi, nokkru norðar en Kaupmannahöfn, og þar hefur heimili þeirra staðið. Þeim varð tveggja barna auðið, þau eru: Ing- olf, f. 1951, tæknifræðingur starf- andi á dönsku veðurstofunni og Birgit, f. 1957, avspændings- pædagog, var gift Egon Berngru- ber fasteignasala, börn þeirra eru Jonas, Nicolaj og Nanna. Börn og barnabörn Þórunnar og Vagns hafa lengst af verið búsett í næsta nágrenni við þau svo þar hefur jafnan verið dálítil Íslend- inganýlenda. Útför Þórunnar fer fram frá kirkjunni í Allerød í dag. heimsstyrjöldinni lauk árið 1945 fór Þórunn til fram- haldsnáms í listgrein sinni í Danmörku. Þar var hún í fyrstu á teikniskóla P. Rost- rup Böyesen (í Sta- tens museum for kunst) og 1946-1950 í Kunstakademiet í Kaupmannahöfn. Í fyrstu var hún þrjá mánuði í leiðsögn prófessors Axels Jörgensen, þá eitt ár hjá prófessor Kræsten Iversen en síðan undir leiðsögn prófessors Wilhelm Lundström. Frá árinu 1946 hefur Þórunn verið búsett í Danmörku og jafnan gefið sig að myndlistinni. Aðeins í eitt skipti hélt hún sýningu á verk- um sínum heima á Íslandi, þegar hún efndi til stórrar einkasýn- ingar þar árið 1991. Voru það einkum vatnslitamyndir, en þeirri grein myndlistar sinnti Þórunn mjög eftir því sem leið á ævina, einnig sýndi hún í það sinn teikn- ingar og olíumyndir. Hún tók þátt í sýningum á Kunstakademiet Charlottenborg 1948 og á haust- sýningu í „Den Frie“ í Khöfn 1956. Hún var einn stofnenda „De Ni“ í borginni 1965 og hefur sýnt með þeim síðan. Árið 1973 sýndi Þór- unn hjá Listafélaginu í Allerød Eftir því sem æviárum fjölgar má fólk reyna hversu raðir vina og vandamanna þynnast. Undirrituð mátti þetta reyna við andlát Þórunn- ar Guðmundsdóttur Jensen mynd- listarmanns. Hún var heilsteyptur og traustur vinur frá fyrstu kynnum árið 1946. En einnig mágkona allt frá 1950 er við Harald bróðir hennar gengum í hjónaband. Þegar leið mín lá til Danmerkur eftir lok heimsstyrjaldarinnar síðari stóð verðandi mágkona mín í hópi Ís- lendinga á hafnarbakkanum í Kaup- mannahöfn og tók á móti mér heim- alningnum. Hún átti að baki ársdvöl ytra í myndlistarnámi, var öllum hnútum kunnug í „stór“-borginni og virkur nemandi á Kunstakademiet; ung og falleg, frísk og frjálsleg, reiðubúin að takast á við listgrein sína til framtíðar. Mín skoðun var að Þórunn væri efni í góðan listamann sem tæki viðfangsefni sitt föstum tökum og af fullri alvöru. Tel ég að þau verk sem eftir hana liggja stað- festi það. Árið 1974 komu hjónin Þórunn og Vagn sem oftar hingað til lands, tóku þátt í þjóðhátíð á Þingvöllum og fóru í hálendisferð, alla leið til Kverk- fjalla. Bæði voru heilluð af öræfa- dýrðinni á Íslandi og hvort um sig skóp síðar listaverk er upptök áttu í ferðinni. Sumarið 2006 eyddum við Þórunn mörgum stundum saman er ég var um skeið í Danmörku. Hún rifjaði fjallaferðina upp í rituðu máli: „Panorama er málverk sem ég mál- aði 1975 eftir ferðalag sumarið áður til fjallanna norðan Vatnajökuls. Það heillaði mig að standa hátt uppi á fjöllum og líta yfir hálendið, frá vestri til norðurs og austurs. Gerði ég skissur og tók ljósmyndir til betri undirstöðu þegar ég ætlaði að mála mynd af þessum sterku áhrifum sem landslagið hafði á mig.“ Myndin er þrískipt, alls 360 cm á lengd og 90 cm á hæð. Árið 2006 afréð Þórunn að ánafna Húsi Jóns Sigurðssonar í Kaup- mannahöfn myndina Panorama og veitti stjórn hússins listaverkinu móttöku af þakklæti og gleði yfir svo metnaðardulum gerningi lista- manns. Hangir myndin uppi í mót- tökusal Jónshúss. Bálför Þórunnar verður gerð 2. apríl 2008 að lokinni útfararathöfn í kirkjunni í Alleröd á Sjálandi. Jarð- neskum leifum hennar verður síðar komið í íslenska mold að hennar ósk. Íslendingurinn er þá horfinn til upp- runa síns. Megi Þórunn þar vel hvíl- ast en fjölskyldunni er vottuð dýpsta samúð vegna fráfalls hennar. Björg Einarsdóttir og fjölskylda. Þórunn Guðmundsdóttir Jensen ✝ Jónína HelgaGuðmunds- dóttir fæddist í Folafæti í Súðavík- urhreppi í Norður- Ísafjarðarsýslu 29. september 1923. Hún andaðist á dvalar- og hjúkr- unarheimilinu Hlíð 25. mars síðastlið- inn. Foreldrar hennar voru hjónin Guðrún Sigurð- ardóttir, f. 16. maí 1901, d. 21. júní 1999, og Guðmundur Sal- ómonsson, f. 3. ágúst 1894, d. 9. apríl 1963. Systkini Jónínu eru Ásgeir, f. 1919, d. 1997, Þórður Bjarni, f. 1922, d. 1978, Kristján Björn, f. 1924, d. 2004, Elías Hólmgeir, f. 1927, Jón Valgeir, f. 1929, Sigurður Þorberg, f. 1931, Árni, f. 1933, d. 1999, Sig- ríður Sigurborg, f. 1934, Sig- urður Borgar, dó sex ára gam- all, og tvíburar, drengir, sem dóu í fæðingu. Jónína giftist hinn 15. janúar 1949 Stefáni V. Aðalsteinssyni, f. 17. ágúst 1919, d. 1. mars 1996. Börn þeirra urðu átta og sex komust á legg, þau eru: Guðrún Sigríður, f. 1949, gift Sig- urjóni Eðvarðsyni, búsett á Spáni, hún á fjögur börn; Guð- mundur Að- alsteinn, f. 1950, í sambúð með Önnu Lilju Valdimars- dóttur, hann á fjögur börn; Kristín Helga, f. 1951, hún á fjögur börn; Kolbrún, f. 1954, gift Friðriki Adolfssyni, þau eiga fjögur börn; Ómar Þór, f. 1957, kvæntur Huldu Vigfús- dóttur, búsett í Svíþjóð, þau eiga þrjú börn; og Stefán Heim- ir, f. 1961, kvæntur Önnu Hall- dórsdóttur, þau eiga þrjú börn. Langömmubörnin eru 25. Jónína verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Elsku, elsku, mamma, loksins fékkstu að sofna svefninum langa sem þú varst búin að þrá ansi lengi og þú hlakkaðir til að hitta pabba og aðra ættingja áður gengna. Nú vitum við að þér líður betur og ert ánægð. Mamma okkar var yndisleg mamma, hlý og góð og vildi allt fyrir okkur gera. Eftir að við fluttum að heiman komum við, makar og börn í sunnudagskaffi til mömmu og pabba í vöfflur og fleira. Þetta var fastur liður á sunnudögum. Mamma og pabbi voru yndisleg- asta fólk sem til var. Guð varðveiti þig, elsku mamma, og líði þér vel í fangi pabba. Börnin. Það er með söknuði að ég kveð systur mína. Hún hefur nú fengið hvíldina eftir nokkurra ára heilsu- leysi. Það var alltaf tilhlökkun að koma við hjá Nínu og Stebba á ferðalögum og alltaf var tekið vel á móti okkur með alls kyns kræs- ingum. Í för með okkur var oft barnabarn sem hlakkaði alltaf mikið til að koma við hjá Nínu frænku og fá bestu tartalettur í heimi. Það fækkar óðum í systkina- hópnum, nú erum við aðeins fjögur eftir af tólf en svona er lífsins gangur. Á yngri árum þegar ég passaði börnin fyrir Nínu og Stebba var oft glatt á hjalla og mikið gert að gamni sínu enda einstaklega geð- góð og glöð alla tíð þau hjónin. Ég veit að Stebbi tekur vel á móti systur minni á kveðjustundu. Hafðu þökk fyrir allt elsku Nína og góður Guð styrki ástvini þína. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (Vald. Briem) Sigríður Sigurborg Guðmundsdóttir. Jónína Helga Guðmundsdóttir ✝ Elskuleg eiginkona mín, móðir, stjúpmóðir, tengda- móðir, dóttir og systir, ANNA JÓNSDÓTTIR, Vallargötu 18, Vestmannaeyjum, verður jarðsungin frá Landakirkju föstudaginn 4. apríl kl. 13.00. Karl Björnsson, Björn Ívar Karlsson, Katla Snorradóttir, Hreinn Pétursson, Berglind Karlsdóttir, Elfa Karlsdóttir, Jón S. Óskarsson, Hrefna Sighvatsdóttir, Orri Jónsson, Hulda Birgisdóttir, Már Jónsson, Margrét Jónsdóttir, Jóhanna Magnúsdóttir, Steingrímur Benediktsson, Guðmunda Magnúsdóttir, Ólafur Bragason, Hrafnhildur Magnúsdóttir, Guðmundur Hárlaugsson. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÁSGEIR KRISTINSSON frá Höfða, Stórasvæði 4, Grenivík, sem lést fimmtudaginn 20. mars, verður jarðsunginn frá Grenivíkurkirkju laugardaginn 5. apríl kl. 14.00. Elísa Friðrika Ingólfsdóttir, Heimir Ásgeirsson, Ólöf Bryndís Hjartardóttir, Ingólfur Kristinn Ásgeirsson, Álfheiður Karlsdóttir, afa- og langafabörn. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, ÓLAFUR RAGNARSSON bókaútgefandi, Bjarmalandi 16, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi fimmtudaginn 27. mars. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni föstudaginn 4. apríl kl. 11.00. Þeim sem vilja minnast Ólafs er bent á líknardeild Landspítalans í Kópavogi eða MND-félagið. Elín Bergs, Ragnar Helgi Ólafsson, Margrét Sigurðardóttir, Kjartan Örn Ólafsson, Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir og barnabörn. ✝ Minningarathöfn um ástkæra dóttur mína, systur og mágkonu, BIRNU HÉÐINSDÓTTUR CARVALHO, áður Hafnarfirði, Rhode Island, USA, fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði fimmtudaginn 3. apríl kl. 13.00. Kristín Magnúsdóttir, R. Rósa Héðinsdóttir, Gils Stefánsson, Karl Sigurðsson, Þorbjörg Magnúsdóttir, Örn Sigurðsson, Ásta Ástmundsdóttir, Ingibjörg Ögmundsdóttir. ✝ Elsku BIRGIR VILHJÁLMSSON okkar, sem lést af slysförum 29. mars, verður jarðsunginn í Egilsstaðakirkju laugardaginn 5. apríl kl.12.00. Birna Sigbjörnsdóttir, Sesselía Birgisdóttir, Ragnar Fjalar Sævarsson, Jónatan Logi Birgisson, Valdís Valgeirsdóttir, Sigbjörn Þór Birgisson, Heiðrún Brynja Birgisdóttir, Örvar Ásmundsson, Oddrún Sigurðardóttir, Sakarías Nói Fjalar og Ragnheiður Birna Ragnarsbörn, bræður og aðrir vandamenn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.