Morgunblaðið - 02.04.2008, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 02.04.2008, Qupperneq 30
30 MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Antík Antík á Selfossi Komnar nýjar vörur frá Danmörku og Svíþjóð - kíkið í búð og á heimasíðu! www.maddomurnar.com Opið mið-fös. kl. 13-18 og lau. kl. 11-14. Langur lau. 5. apríl. Dýrahald Ungverskur Vizsla Hvolpar til sölu. Vizsla er frábær veiði- og fjölskylduhundur. Ættbók frá HRFÍ, heilsufarsskoðaðir, örmerktir. upplýsingar í s.6915034 vizsla.blog.is Heilsa Vilt þú missa 5-7 kíló á 9 dögum? Clean & Lean er næringarleg hreinsi- meðferð sem er hönnuð til þess að eyða óvissuþáttum í heilsusamlegu fæðuvali og hafa stjórn á mataræð- inu. Kolbrún s. 692-4056. Húsnæði í boði Til leigu flott einbýlishús í Grindavík. 115 fm hús og 39 fm bílskúr. Húsið er á góðum stað, stutt í skóla og aðra þjónustu. Aðeins skilvísir og traustir koma til greina. Upplýsingar í síma 866 1976. 2 Skrifstofuhúsnæði til leigu Til leigu 80 fm skrifstofuhúsnæði við Austurstræti 3 og 118 fm við Tjarnar- götu 10, 101 Reykjavík, með glæsilegu útsýni 4-5 herb. Upplýsingar í síma 690 3031. Húsnæði óskast Herbergi m/húsgögnum 32 ára gamall karlmaður, regl., reykir ekki, í fullri vinnu, óska eftir herb. m/húsgögnum frá 1. júni. S. 857 3446 eða kantofalis@hotmail.com Sumarhús Falleg og vönduð sumarhús frá Stoðverk ehf. í Ölfusi. Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup- enda, sýningarhús á staðnum. Einnig til sölu lóðir á Flúðum. Símar: 660 8732, 660 8730, 892 8661, 483 5009. stodverk@simnet.is Iðnaðarmenn Múrverk, flísalagnir, utanhúsklæðningar, viðhald og breytingar. Sími 898 5751. Byggingar Vinnuskúrar 10 & 20 ft Hef til sölu nokkra nýja vinnuskúra á góðu verði, uppl. í síma 896 9319. Ýmislegt 580 7820 PLÖSTUN BOÐSKORT tækifæri Við öll 580 7820 Triumph sundbolir og bikini í úrvali. Stærðir frá 38 – 50 og skálastærðir B, C og D. Útsölustaðir: Musik og Sport, Nana Hólagarði. Aqua Sport ehf., Hamraborg 7, 200 Kópavogi, sími 564 0035. gengið inn frá Hamrabrekku. www.aquasport.is Mikið úrval af herraskóm úr leðri. Breiðar gerðir. Stærðir: 40 - 48 verð frá: 6.785.- 12.540.- Misty skór, Laugavegi 178, sími 551 2070. Opið mán.-föst. 10-18, og laugardaga 10-14 Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. Veiði Veiðferðir til S-Grænlands í sumar. Stangveiði, sauðnaut og hreindýr. Leitið upplýsinga Ferðaskrifstofa Guðmundar Jónassonar ehf. S.: 511 1515 www.gjtravel.is Vélar & tæki Steypuhrærivél til sölu Atika Profi 145 til sölu. Mjög lítið not- uð og vel með farin 120L vél. Verð 43 þ.kr. Nánari upplýsingar í síma 663-3600. Bílar Subaru Legacy árg. '96 Til sölu vínrauður Subaru Legacy árg. ´96, nýskr. ´97. Ek. 216 þús. km. Með dráttarkúlu. Skoðaður ´09. Frábær bíll með góða sál. Tilboð óskast. Arnór s. 891-7389. Ökukennsla Bilaskoli.is Bókleg námskeið - ökukennsla - akstursmat - kennsla fatlaðra Ævar Friðriksson Toyota Avensis '06. 863 7493/557 2493. Gylfi Guðjónsson Subaru Impreza '06. 696 0042/566 6442. Sigurður Jónasson Toyota Rav4 ‘06. Bifhjólakennsla. 822 4166. Snorri Bjarnason Nýr BMW 116i ´07. Bifhjólakennsla. 892 1451/557 4975. Sverrir Björnsson Volkswagen Passat '06 . 892 4449/557 2940. Kerrur Sturtukerra til sölu Á góðu verði, st.á palli 4.0m x 1.8m. heitgalv. m/sliskjum og rafmagns- sturtu.Verð: 695.000.-m/vsk. ATH. kerran er óskráð. Uppl. í s. 896 9319. Elsku amma Didda. Okkur systkinin langaði að rita nokkur orð um hana ömmu okkar sem féll skyndilega frá þann 15. mars síðastliðinn. Það var að morgni laugardags sem við fengum þær frétt- ir að amma Didda væri látin. Við ætl- uðum vart að trúa því þar sem andlát hennar hafði ekki gert nein boð á und- an sér, og því var erfiðara að sætta sig við það eða trúa því að hún væri í raun farin frá okkur. En það sem eftir stendur nú þegar hún er farin er minning um afar fallega konu í öllum mögulegum merkingum þess orðs. Við systkinin eigum öll margar góðar minningar um þessa yndislegu og hlýju konu sem okkur þótti öllum mjög vænt um, enda vorum við það heppin að búa í næsta nágrenni við hana öll uppvaxtarár okkar og vorum tíðir gestir á heimili hennar. Þegar við vorum að ræða um hvers við minnt- umst í sambandi við hana komu upp margir hlutir, svo sem bakkelsið sem hún útbjó til að hafa með í kartöflu- garðana þegar maður var barn, hversu ættrækin hún var og ótrúlega minnug – minni hennar virtist aðeins styrkjast með árunum –hve hæfi- leikaríkur listamaður hún var og auð- vitað matseldin hennar sem við feng- Sigurjóna Sigurjónsdóttir ✝ Sigurjóna Sig-urjónsdóttir fæddist á Hóli á Stöðvarfirði 28. ágúst 1930. Hún lést á heimili sínu 15. mars síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Þykkva- bæjarkirkju 28. mars. um að njóta sem börn. Elsku amma Didda, við söknum þín sárt og vitum að lífið verður fá- tæklegra án þín, en minningin um þig mun lifa með okkur alltaf. Takk fyrir allt saman, elsku amma. Drottinn minn réttu sorg- mæddri sál svala líknarhönd. Og slökk þú hjartans harma- bál slít sundur dauðans bönd. Svo vaknar hann með sól að morgni svo vaknar hann með sól að morgni. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni svo vöknum við með sól að morgni. (Höf: Ásbjörn Morthens.) Þín barnabörn, Sindri Snær, Sölvi Borgar, Sig- urborg Sif og Sigurjón Fjalar. Elsku vinkona. Þegar dóttir þín hringdi í mig og sagði mér lát þitt fóru strax að renna gegnum huga minn ljúfar myndir frá bernsku- og æsku- árum okkar austur á Stöðvarfirði. Það var skammt á milli okkar þá, þú á Borg en ég á Einarsstöðum, næsta bæ. Á Borg naustu mikils ástríkis fóst- urforeldra þinna, heiðurshjónanna Kristborgar og Sighvats sem allt vildu fyrir þig gera. Þessa elsku auðn- aðist þér síðar að launa þeim með ýmsum hætti. Virðingu þína og þökk sýndir þú þeim er þú gafst tveimur börnum þínum nöfn þeirra. Það var skammt á milli í þá gömlu góðu daga og þótt síðar hafi vega- lengdir milli okkar teygst finnst mér sem alltaf hafi verið stutt bæjarleið milli okkar. Vináttuböndin slitnuðu aldrei. Ekki leyndu sér miklir listrænir hæfileikar þínir sem fengu ef til vill aldrei að njóta sín til fulls vegna amst- urs daglegs lífs á stóru heimili. Þú málaðir frábærar myndir sem marg- ar hverjar prýða nú heimili þinna nánustu og skáldskaparhæfileikar þínir voru ótvíræðir. Á þessum tímamótum er mér samt efst í huga kærleikur þinn og góðvild. Þú varst fyrst og fremst góð mann- eskja. Ég kveð þig nú, vinkona mín, með sonnettu eftir sjálfa þig, um hringrás alls sem fær að lifa hér skamma stund, deyja og endurfæðast síðan. Nú haustar að og húmið tekur völdin og hægir senn á grósku alls sem lifir. Og minningarnar merla enn um kvöldin en minna um leið á æviklukku tifið. Svo kom það loksins vorið yfir voginn með vonarneista innst í sínu hjarta. Og langa vegu fuglinn að var floginn til fyrirheitna landsins okkar bjarta. Þá yfir öllu lifnar sem að lifir og langur vetur horfinn okkar sjónum en blómin vilja brjótast upp úr snjónum sem breiðir ennþá hulu jörðu yfir. Og ástin vaknar ennþá þeim er lifir – öllum þeim sem hrærast hér á mónum. Borghildur Þórðardóttir. Vinkona okkar og félagi Sigurjóna Sigurjónsdóttir er fallin frá. Kallið kom snöggt og óvænt. Kynni okkar félaganna hófust fyrir nokkrum árum,er við stofnuðum ljóðahópinn Skapandi skrif í Gjá- bakka í Kópavogi. Sigurjóna var ein af stofnendunum, og starfaði með okkur þar til hún flutti til Hellu. Sígurjóna átti ljóð í bókum, sem hópurinn gaf út og heita Gjábakka- þulur. Hún var mjög listræn, og var líka félagi í myndlistarhópnum í Gjá- bakka. Þegar þessir tveir hópar tóku höndum saman og gáfu út bókina Ljóð og litir, þá átti hún þar bæði ljóð og myndir. Sigurjóna var mjög lítillát hvað varðar listfengi sitt, og hún var góður og glaðlyndur félagi, sem við söknum. Í einu ljóði hennar segir: Og minningarnar merla enn um kvöldin, en minna um leið á æviklukkutifið. Nú hefur æviklukka Sigurjönu þagnað. Við biðjum henni blessunar og þökkum henni samfylgdina, sem varð allt of stutt. Innilegar samúðarkveðjur til fjöl- skyldu hennar og vina. Fyrir hönd félaga í Skapandi skrif- um Gjábakka. Sigurlaug Ólöf Guðmundsdóttir. Það er margs að minnast er ég sest niður og minnist Sig- urbjörns Sigurpáls- sonar fyrrverandi verkstjóra hjá Sláturfélagi Suðurlands. Við tengdumst fjölskylduböndum fyrir hartnær fjórum áratugum og kynntist ég fljótt hvílíkum mann- kostum hann var búinn, traustur vel og yfirvegaður í framkomu með góða nærveru. Slíkum mönnum eru gjarnan falin mannaforráð sem hann hafði með höndum í áratugi og var Sigurbjörn afar vel látinn af samstarfsmönnum sínum. Við Sigurbjörn vorum í hlutverki afa og langafa og nutum við þess í Sigurbjörn Sigurpálsson ✝ Sigurbjörn Sig-urpálsson fædd- ist á Egg í Hegra- nesi í Skagafirði 15. janúar 1917. Hann lést á Eir, hjúkr- unarheimili, 18. mars síðastliðinn og var jarðsunginn frá Grafarvogskirkju 31. mars. ríkum mæli. Sigur- björn og Guðrún Helga voru einkar samhent hjón og skil- uðu sínu hlutverki sem foreldrar, afi og amma með miklum sóma. Síðustu ævi ár Guðrúnar Helgu voru þeim erfið en Sigur- björn hlúði að henni með mikilli natni og umhyggju. Síðustu ár hefur Sigurbjörn bú- ið á dvalarheimilinu Eir þar sem hann lést þann 18. mars síðastliðinn 91. árs að aldri. Með honum er geng- inn einn af þessum tryggu sam- ferðamönnum sem unnu störf sín af trúmennsku og heilindum og skiluðu til afkomenda sinna góðu eftirdæmi. Að leiðarlokum þakka ég Sig- urbirni fyrir hans vegferð og votta Hafdísi og Kristjáni, Hildi og Haf- steini, börnum og barnabörnum mína innilegustu samúð. Veri hann að eilífu Guði falinn. Aðalsteinn Dalmann Októsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.