Morgunblaðið - 02.04.2008, Side 33

Morgunblaðið - 02.04.2008, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 2008 33 árnað heilla ritstjorn@mbl.is Félagsstarf 40+ félagsstarf fyrir fólk með þroskahömlun | Bíóferð í Smárabíó kl. 18.15, borðað og farið í bíó. Heimferð frá Smáralind, útgangi C kl. 22.20. Aflagrandi 40 | Leikfimi kl 8.30, vinnustofa kl. 9- 16.30, postulínsmálning kl. 9-12 og 13-16.30 Árskógar 4 | Bað kl. 8.15-16, handavinna, smíði/ útskurður kl. 9-16.30, heilsugæsla kl. 10-11.30. Uppl. í síma 535-2700. Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðsla, böðun, glerlist, al- menn handavinna, morgunkaffi/dagblöð, fótaað- gerð, hádegisverður, spiladagur, kaffi. Dalbraut 18-20 | Vinnustofa í handmennt opin kl. 9-16, leiðb/Halldóra við frá kl. 13, leikfimi kl. 10, leiðb/Guðný. Hársnyrting Guðrúnar sími: 553- 3884/893-3384. Félag eldri borgara í Kópavogi | Skrifstofan Gull- smára 9 er opin kl. 10-11.30, sími 554-1226. Skrif- stofan í Gjábakka er opin kl. 15-16, sími 554-3438. Félagsvist er í Gjábakka kl. 13. Félag eldri borgara, Reykjavík | Göngu-Hrólfar ganga frá Ásgarði, Stangarhyl 4, kl. 10, söngvaka kl. 14, umsjón Sigurður Jónsson og Helgi Seljan. Söng- félag FEB æfing kl. 17. Félagsheimilið Gjábakki | Bossía og glerlist kl. 9.30, handavinnustofan opin, leiðbeinandi við til kl. 16, fé- lagsvist og glerlist kl. 13, viðtalstími FEBK kl. 15-16, bobb kl. 16.30 og dansæfing undir stjórn Sigvalda kl. 18-20. Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Vatnsleikfimi kl. 8, kvennaleikfimi kl. 9, 9.45, og 10.30, brids kl. 13, bútasaumur kl. 13. Miðar í bæjarferð nk. mánudag, seldir í Jónshúsi í dag, á morgun og á föstudag. 1.500 kr. Félagsstarf Gerðubergs | Vinnustofur opnar kl. 9- 16.30, m.a. tréútskurður og fjölbreytt handavinna. Sund og leikfimiæfingar í Breiðholtslaug kl. 9.50, dansæfing kl. 10. Frá hádegi er spilasalur opinn. Alla föstud. kl. 10.30 er fjölbreytt leikfimi (frítt) o.fl. í ÍR heimilinu v/Skógarsel, á eftir er kaffi. Hallveigarstaðir | Afmælisfundur Hvítabandsins verður að Hallveigarstöðum Túngötu 14, kl. 20. Dag- skrá: Hugleiðing, félagsmál, Guðrún Ásmundsdóttir segir frá merkri islenskri konu, kaffiveitingar. T Hvassaleiti 56-58 | Opin vinnustofa kl. 9-16 hjá Sigrúnu, keramik, taumálun o.fl. Jóga kl. 9-12, Sóley Erla. Samverustund kl. 10.30, lestur og spjall. Böðun fyrir hádegi, hádgisverður kl. 11.30. Hæðargarður 31 | Fastir liðir eins og venjulega. Listasmiðjan opin. Félagsvist, skapandi skrif, Bör Börsson, Müllersæfingar, brids, þegar amma var ung, leikfimi, sönghópur Hjördísar Geirs, Stef- ánsganga o.fl. Bókmenntaferð til Akureyrar 14.-16. Uppl.568-3132 Íþróttafélagið Glóð | Pútt í Sporthúsinu í Dalsmára kl. 9.30-11.30, ringó í Smáranum kl. 12 og kynning á ringó í Snælandsskóla kl. 19-20, línudans í Húnabúð, Skeifunni 11, kl. 17. Uppl. í síma 564-1490. Korpúlfar Grafarvogi | Keila í Keiluhöllinni við Öskjuhlíð á morgun, fimmtudag, klukkan 10 og Listasmiðjan opin á Korpúlfsstöðum kl. 13-16. Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Hjúkrunarfræðingur frá Heilsugæslunni kl. 10.30, bankaþjónusta kl. 10-11, leikfimi kl. 11, handverksstofa opin, námskeið í myndlist kl. 13, kaffiveitingar, bingó kl. 15, 100 kr. spjaldið Norðurbrún 1 | Smíðastofan opin kl. 9-16, fé- lagssvist kl. 14, hárgreiðslustofa Erlu Sandholt sími 588-1288. Sjálfsbjörg | Félagsvist kl. 19 í félagheimili Sjálfs- bjargar á höfuðborgarsvæðinu, Hátúni 12. Vesturgata 7 | Hárgreiðsla og fótaaðgerðir kl. 9-12. Aðstoð v/böðun kl. 9.15-16, handavinna kl. 10-12, sund kl. 11.45, hádegisverður, verslunarferð í Bónus kl. 13-16, tréskurður kl. 14.30, kaffiveitingar. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 8.30, morg- unstund kl. 10, handavinnustofan opinn, hárgreiðslu og fótaaðgerðarstofan opinn allan daginn, upp- lestur kl. 12.30, bókband kl. 13, dans kl. 14. Uppl. í síma 411-9450. Þórðarsveigur 3 | Handavinna kl. 9, salurinn opinn og ganga kl. 13, boccia kl. 14, kaffiveitingar. Kirkjustarf Áskirkja | Hreyfing og bæn í neðri safnaðarsal kl. 11. Bessastaðasókn | Foreldramorgunn kl. 10 í Holta- koti, farið í heimsókn á foreldramorgunn í Vídal- ínskirkju Garðabæ. Opið hús eldri borgara fer í heimsókn á vinnustofu Soffíu Sæmundsdóttur myndlistakonu og síðan á kaffihúsið í Hafnarborg, lagt af stað frá Litlakoti kl. 13.15. Bæna/kyrrð- arstund í Leikskólanum Holtakoti kl. 20-21. Breiðholtskirkja | Kyrrðarstund kl. 12, tónlist, hug- vekja, fyrirbænir. Léttur málsverður í safnaðarheim- ili eftir stundina, kirkjuprakkarar 7-9 ára kl. 16. TTT 10-12 ára kl. 17, æskulýðsfélag KFUM&K og kirkj- unnar kl. 20. Bústaðakirkja | Starf eldri borgara er kl. 13-16. Spil- að, föndrað, handavinna og óvænt uppákoma. Hafið samband við kirkjuvörð í síma 553-8500 ef bíla- þjónustu er óskað. Digraneskirkja | Alfanámskeið kl. 19. www.digra- neskirkja.is Dómkirkjan | Bænastund kl. 12.10-12.30. Léttur há- degisverður á kirkjuloftinu á eftir. Bænarefnum má koma á framfæri í síma 520-9700 eða með tölvu- pósti til domkirkjan@domkirkjan.is. Fríkirkjan Kefas | Unglingasamkoma kl. 20. Prédik- un, tónlist og samvera. Almenn bænastund kl. 20.30. Hægt er að senda bænarefni á netfangið ke- fas@kefas.is Grafarvogskirkja | Kyrrðarstund í hádegi kl. 12. Alt- arisganga og fyrirbænir, hádegisverður að lokinni stundinni, TTT fyrir 10-12 ára kl. 17-18 í Rimaskóla og Korpuskóla. Grensáskirkja | Samverustund aldraðra kl. 12, mat- ur og spjall. Helgistund kl. 14. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Samvera fyrir alla kl. 18-20 sem hefst með súpu og brauði gegn vægu verði, fræðsla fyrir krakkana í Royal Rangers kl. 19, kristilegu skátastrafi. Biblíulestur fyrir fullorðna fólkið, kennari David Pawson. Kristniboðssalurinn | Samkoma kl. 20. Yfirskrift samkomunnar er köllun til þjónustu, ræðumaður er Skúli Svavarsson. Frjálsir vitnisburðir og kaffi eftir samkomu. Laugarneskirkja | Foreldramorgunn kl. 10, göngu- hópurinn Sólarmegin kl. 10.30, öllum velkomið að slást í för. Kirkjuprakkarar (1.-4. bekkur) kl. 14.15, umsjón hafa sóknarprestur og kirkjuvörður. Neskirkja | Fyrirbænamessa kl. 12.15. Prestur sr. Örn Bárður Jónsson. Opið hús kl. 15. Óvissuferð, kaffiveitingar. Umsjón Hjörtur Pálsson. Opið hús er alla miðvikudaga kl. 15. Vídalínskirkja Garðasókn | Foreldramorgunn kl. 10- 12.30, foreldramorgnar Bessastaðasóknar kemur í heimsókn. Leikföng fyrir börnin og heitt á könnuni. 50 ára afmæli. HrefnaSigríður Bjartmars- dóttir, þjóðfræðingur og kennari, Esjugrund 30, Kjal- arnesi, verður fimmtug í dag 2. apríl. Maður Hrefnu er Aðalsteinn Jónsson og eiga þau fjögur börn og þrjú tengdabörn, öll mannvænleg mjög. dagbók Í dag er miðvikudagur 2. apríl, 93. dagur ársins 2008 Orð dagsins: Jesús segir við hann: „Þú trúir, af því þú hefur séð mig. Sælir eru þeir, sem hafa ekki séð og trúa þó.“ (Jh. 20.) Læknadeild HÍ býður til mál-stofu á morgun, fimmtudagkl. 16 í Læknagarði, íkennslustofu á þriðju hæð. Þar ætlar Árni Árnason dósent við sjúkraþjálfunarskor að flytja erindið Aftanlæristognanir og forvarnir. „Aftanlæristognanir eru ein algeng- ustu meiðslin í efstu deildum knatt- spyrnu karla í dag. Þessar tognanir geta oft verið langvinnar, svo leikmenn geta oft verið frá keppni lengur en þrjár vik- ur, og hafa tognanir af þessu tagi því bæði mikil áhrif á frammistöðu og feril einstaklingsins og liðsheildarinnar,“ út- skýrir Árni. „Aftanlæristognanir eru ekki aðeins bundnar við knattspyrnuna heldur sjást í flestum sprettgreinum, þar sem mikill hraði og hraðabreytingar eiga sér stað eins og er í mörgum frjáls- íþróttagreinum.“ „Talið er að flestar aftanlæristognanir í hröðu hlaupi verði þegar vöðvarnir eru að draga úr sveifluhraða fótleggsins fram á við rétt áður en fóturinn nemur við jörð. Eða þegar hællinn lendir á jörðinni en þá breytist vöðvavinnan úr því að hægja á hreyfingu í það að vöðv- inn fer að dragast saman. Sérstaklega er hætt við tognun þegar þreyta er kom- in í vöðvana og þeir því ekki eins fljótir að bregðast við,“ segir Árni en rann- sóknir sýna að aftanlæristognanir í knattspyrnu verða að meðaltali í sjö- unda til tíunda hverjum leik. Árni segir nýjan skilning á orsökum aftanlæristognana gera kleift að vinna með fyrirbyggjandi æfingar: „Komið hefur í ljós að með því að setja inn í æf- ingaáætlun leikmanna æfingar sem styrkja þennan bremsuþátt vöðvanna, fækkar aftanlæristognunum í knatt- spyrnu töluvert,“ segir Árni. „Æfingin er ekki flókin: einstaklingurinn krýpur á knjám á meðan annar heldur fótunum hans föstum niðri. Síðan lætur íþrótta- maðurinn sig síga áfram hægt og rólega eins langt niður og fram og hann getur áður en hann fellur á gólfið og tekur þá fallið af sér með höndunum. Þess þarf þó að gæta að fara varlega í þessum æf- ingum til að byrja með því vöðvarnir eru óvanir þessari hreyfingu og geta leik- menn því fengið miklar harðsperrur ef farið er of geyst fyrstu vikurnar.“ Heilsa | Fyrirlestur um forvarnir gegn aftanlæristognunum á fimmtudag Lærtognanir úr sögunni?  Árni Árnason fæddist 1963 og ólst upp á Laug- arvatni. Hann lauk BS í sjúkraþjálfun frá HÍ 1987, lauk íþróttakenn- araprófi frá Laug- arvatni 1988, meistaranámi í íþróttum frá íþróttaháskólanum í Ósló 1993 og doktorsnámi í íþrótta- sjúkraþjálfun frá Oslo Sports Trauma Research Center 2004. Árni hefur um langt skeið starfað við sjúkraþjálfun hjá Gáska og hefur frá 2003 verið dós- ent við Háskóla Íslands. Eiginkona Árna er Dóra Guðrún Wild leikskóla- kennari og eiga þau þrjú börn. Tónlist Ketilhúsið Listagili Akureyri | Kvennakórinn Embla heldur tón- leika kl. 20. Verk fyrir kvenna- kór 1120-1980. Kaffi Hljómalind | Spáleikar kl. 20.30. Alejandro Castaños, Áki Ásgeirsson, Egill Sæbjörnsson Goddur og Magnús Jensson lesa tónlist úr kaffibollum áheyrenda. Ókeypis aðgangur. Tónlistarþróunarmiðstöðin | Afmælis tónleikar heimasíð- unnar dordingull.com verða haldnir 3. apríl kl. 20, í Hellinum TÞM. Hljómsveitirnar Dormah, Sleeps like an angry bear, Skítur og ein ónefnd hljómsveit spil- a.Nánari uppl. á heimasíðunni dordingull.com Kvikmyndir Kaffi Hljómalind, lífrænt kaffi- hús | Andspyrnubíó – Terrorists: The Kids They Sentenced kl. 20, frítt inn. Nokkrir ein- staklingar á aldrinum 19-30 ára voru handteknir og dæmdir til fangelsisvistar eftir mótmæli í tengslum við ráðstefnu Evrópu- sambandsins í Gautaborg árið 2001. Lukas Moodyson talar við hin dæmdu um tilgang mótmæl- anna, handtökurnar, aðgerðir lögreglu og framtíðina. Fyrirlestrar og fundir Krabbameinsfélagið | Góðir hálsar, verða með rabbfund í húsi Krabbameinsfélagsins að Skógarhlíð 8, kl. 17. Gestir verða Sjöfn Ágústsdóttir, Heiðdís Valdimarsdóttir og Jakob Smári en þau eru að skoða líðan og lífsgæði karla með krabbamein í blöðruhálskirtli. Náttúrufræðistofnun Íslands | Guðmundur A. Guðmundsson dýravistfræðingur á Nátt- úrufræðistofnun flytur erindið „Á varpstöðvum margæsa á 80° norðlægrar breiddar.“ Fyr- irlesturinn hefst kl. 12.15 og er futtur í sal Möguleikhússins við Hlemm. Nánar á vefslóðinni http://www.ni.is/midlun-og- thjonusta/hrafnathing/greinar/ nr/749 Stofnun Vigdísar Finn- bogadóttur | Anker Gemzøe, prófessor í bókmenntum við Álaborgarháskóla, flytur fyr- irlesturinn: Slægtens og fortæll- ingens genkomst í ny dansk prosa sem fer fram í Aðalbygg- ingu Háskóla Íslands, stofu 207, kl. 16.30. Nánar á www.vigd- is.hi.is. Þjóðminjasafn Íslands | Aðal- fundur Evrópusamtakanna verð- ur haldinn í fundarsal safnsins kl. 16. Hefðbundin aðalfund- arstörf, gestur fundarins verður Árni Páll Árnason þingmaður. Fréttir og tilkynningar Mæðrastyrksnefnd Reykjavík- ur | Matar- og fataúthlutun kl. 14-17 í Hátúni 12b. Tekið við hreinum fatnaði og öðrum varn- ingi á þriðjudögum kl. 10-15. Sími 551-4349, netfang maed- ur@simnet.is Frístundir og námskeið Kvennakirkjan | Námskeið fyrir konur sem standa í skilnaði eða hafa skilið fyrir skömmu eða löngu hefst mánudaginn 7. apríl kl. 18.30. Hjálpar þeim að gera upp tilfinningar sínar og gleðj- ast yfir lífinu sem blasir við þeim. Leiðbeinandi sr. Auður Eir Vilhjálmsdóttir. Skráning í kvennakirkjan@kvennakirkjan.is eða s. 551-3934. Náttúrulækningafélag Reykja- víkur | Matreiðslunámskeiðið Grænt og gómsætt – hollustan í fyrirrúmi, verður haldið á veg- um félagsins laugardaginn 5. apríl og sunnudaginn 6. apríl í Hússtjórnarskólanum. Mat- reiddir verða gómsætir græn- metisréttir. Skráning stendur yf- ir í síma 552-8191. Takmarkaður fjöldi. MORGUNBLAÐIÐ birtir til kynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sínum að kostnaðarlausu. Til- kynningar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnu- dags- og mánudags- blað. Samþykki afmælis- barns þarf að fylgja afmælistilkynningum og/ eða nafn ábyrgð- armanns og síma- númer. Hægt er að hringja í síma 569-1100, senda tilkynningu og mynd á netfangið ritstjorn- @mbl.is, eða senda tilkynningu og mynd í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is, og velja liðinn „Senda inn efni“. Einnig er hægt að senda vélritaða til- kynningu og mynd í pósti. Bréfið skal stíla á Árnað heilla, Morgunblaðinu, Hádegismóum 2 110 Reykjavík. FRÉTTIR MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi ályktun frá Norður- orku hf. sem samþykkt var á aðal- fundi sem haldinn var 28. mars síð- astliðinn: „Aðalfundur Norðurorku hf. leggur áherslu á að almenn fyr- irtækjalöggjöf og grunnsjónarmið gildi um rekstur fyrirtækja á orku og veitusviði. Sérlögum ber að halda í lágmarki og þau taki aðeins á nauðsynlegustu atriðum sem al- menn lög ná ekki yfir. Mikilvægt er að sjálfstæði fyr- irtækjanna sé virt og sérlög rýri hvorki verðgildi þeirra né mögu- leika eigenda til þess að njóta eðli- legs arðs. Sú varð því miður raunin um raforkudreifinguna. Þessu verður að breyta nú þegar og mik- ilvægt að sagan endurtaki sig ekki gagnvart hitaveitum. Fundurinn telur því brýnt að fullt samráð verði haft við hagsmunaaðila og sjón- armið þeirra virt. Fundurinn lýsir jafnframt áhyggjum sínum af getu flutnings- kerfis raforku og krefst þess að úr verði bætt. Ófullnægjandi aðgengi að raforku hamlar uppbyggingu iðnaðar þar sem svo háttar. Bilanir í Sultartangastöð í vetur sýna að nauðsynlegt er að byggðalína verði styrkt hið fyrsta með hagsmuni allra landsmanna í huga. Það er álit aðalfundar Norður- orku hf. að óhjákvæmilegt sé að nú þegar verði ráðist í styrkingu á kerfi Landsnets og fjármunir til þess verks komi úr ríkissjóði. Hér er um sameiginlegt hagsmunamál allra landsmanna að ræða því líta ber á flutningskerfi raforku á sama hátt og þjóðvegi, hafnir og flugvelli landsins.“ Sérlögum ber að halda í lágmarki FERÐAMÁLASETUR Íslands veit- ir nú í þriðja sinn 100.000 króna verðlaun fyrir framúrskarandi lokaverkefni um ferðamál sem unn- ið er af nemanda við háskóla hér á landi. Verðlaunin verða afhent á aðalfundi Samtaka ferðaþjónust- unnar (SAF) 2008 á hótel Sögu fimmtudaginn 3. apríl kl. 15. Dómnefnd sem skipuð er stjórn og forstöðumanni FMSÍ hefur met- ið átta verkefni skólaársins 2007 sem þóttu afar góð og/eða mjög at- hyglisverð: Niðurstaða dómnefndar er að verðlaunin í ár hljóti Hildur Krist- jánsdóttir fyrir B.Sc. ritgerð sína Samvinna fyrirtækja í samkeppni á íslenskum ráðstefnumarkaði – Við- horf fagaðila til sameiginlegs gagnagrunns. Ritgerðina er hægt að nálgast hjá Stúdentamiðlun v/Hringbraut á vefsíðunni www.am.is. Háskóli Íslands, Háskólinn á Ak- ureyri og Hólaskóli, ásamt Ferða- málastofu og SAF starfrækja sam- eiginlega Ferðamálasetur Íslands, sem er miðstöð rannsókna, fræðslu og samstarfs í greinum sem tengj- ast ferðamálum. Verðlaun fyrir lokaverkefni í ferðamálafræði FRÁ og með 1. apríl tók Landlækn- isembættið við því hlutverki að veita heilbrigðisstéttum starfsleyfi en það hefur til þessa verið á verk- sviði heilbrigðisráðuneytisins. Heilbrigðisstéttir í landinu eru alls 32 og njóta þær lögverndaðs starfsheitis. Er kveðið á um skilyrði fyrir veitingu starfsleyfa í ýmsum lögum og reglugerðum um starfs- réttindi heilbrigðisstétta en með ofangreindum lögum er gerð sú breyting að landlæknir gefur út starfsleyfi þessara stétta í stað heil- brigðisráðherra, að því er segir á vef heilbrigðisráðuneytisins. Landlæknir veitir starfsleyfi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.