Morgunblaðið - 02.04.2008, Síða 34

Morgunblaðið - 02.04.2008, Síða 34
34 MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand ÉG ER MJÖG HRIFIN AF JÓNI AH, ÉG SKIL... HVAÐ HELD ÉG UPPI MÖRGUM FINGRUM? FÆRÐU OFT HÖFUÐVERK AÐ ÁSTÆÐULAUSU? „SPARKARINN“ SNÝR AFTUR! ÞÚ ERT OF SEINN. ÉG KOMST HRINGINN ÉG ER FARINN INN EF ÞÚ HÆTTIR EKKI AÐ NOTA ÞENNAN TENNISBOLTA PABBI, HVAÐ Á FÓLK VIÐ ÞEGAR ÞAÐ SEGIR AÐ MAÐUR VERÐI GERA HLUTINA Á RÉTTUM TÍMA? AÐ GERA HLUTINA Á RÉTTUM TÍMA ER EINS OG ÞAÐ ÞEGAR ÉG GRÍP SÍÐASTA KJÚKLINGABITANN RÉTT EFTIR AÐ ÉG BENDI ÖLLUM Á ÍMYNDUÐU FLUGUNA Á VEGGNUM ÉG ÁTTI KANNSKI SKILIÐ AÐ VERA REKINN... EN ÉG ÁTTI EKKI SKILIÐ AÐ LENDA Á NEFINU! HELDUR ÞÚ VIRKILEGA AÐ FÓLK EIGI EFTIR AÐ TRÚA ÞVÍ AÐ ÞESSI FRAMBJÓÐANDI STELI GÆLUDÝRUM? ÉG ER MEÐ VITNI! ÞAÐ ERU NOKKRIR KRAKKAR SEM HAFA SAGT AÐ HANN HAFI STOLIÐ GÆLUDÝRUNUM ÞEIRRA TIL AÐ BÚA SÉR TIL VESKI HVAÐA KRAKKAR ERU ÞETTA EIGINLEGA ?? KEMUR ÞÉR EKKI VIÐ! NÝR PÓSTUR „VANTAR NOKKRA KRAKKA TIL AÐ...“ „ÉG SEGI HVAÐ SEM ER FYRIR 1.000 kr.“ EKKI SEGJA MÖMMU ÞINNI FRÁ ÞESSU ÞANNIG AÐ ÞÚ ERT RITSTJÓRI HJÁ DAGBLAÐI Í NEW YORK? ÞAÐ ER DAGBLAÐIÐ Í NEW YORK! HIÐ HEIMSÞEKKTA „DAILY BUGLE!“ ÉG FANN MYNDAVÉLINA MÍNA! BURT MEÐ ÞIG, PETER! HÚN ER AÐ TAKA VIÐTAL VIÐ MIG! GOTT HVAÐ HANN ER ATHYGLIS- SJÚKUR NÚNA GETUM VIÐ LOKSINS FENGIÐ FRIÐ FYRIR HONUM dagbók|velvakandi Dekra týnd KISAN Dekra fór frá heimili sínu við Grettisgötu páskadagsmorgun og hefur ekki sést síðan. Hugsanlegt er að hún sé lokuð inni í einhverjum skúr eða geymslu, en Dekra er með ól og eyrnamerkt (nr. 1153). Hennar er sárt saknað og er finnandi beðinn vinsamlegast að hafa samband í síma: 551-6366 eða 847-4759. Frábær menntaskóli MENNTASKÓLINN við Hamra- hlíð hefur um langt skeið verið einn af eftirsóttari framhaldsskólum landsins, ekki aðeins hjá nemendum á höfuðborgarsvæðinu heldur af landinu öllu. Þetta er engin tilviljun því í MH er hefð fyrir góðri kennslu, fjölbreyttu félagslífi og umfram allt frjórri og skapandi umræðu um flest það sem ungu fólki þykir áhugavert. Ég hvet því alla til að kynna sér skólann vel og taka upplýsta ákvörð- un í vor, því það skiptir máli að velja vel. MH er braut- ryðjandi á sviði sveigjanleika þar sem áfangkerfi var fyrst tekið upp sem síðar varð fyrirmynd fjölbrautaskóla hér á landi og er- lendis. Við höfum ótrúlegt úrval skemmtilegra áfanga og það er sí- fellt verið að búa til nýja, sem dæmi má nefna rokksögu, ferðir til Barce- lona og Parísar og marga kvik- myndaáfanga í tungumálum og fé- lagsfræði. Félagslíf í MH er margþætt þar sem hver getur fundið áhugamálum sínum farveg. Nem- endafélagið stendur fyrir afar fjöl- breyttu starfi sem er bæði fallið til afþreyingar og til þess að þroska hvern einstakling sem þar tekur þátt. Við tökum þátt í öllum helstu keppnum á landinu og höfum náð góðum árangri undanfarin ár og er- um t.a.m. að fara að keppa í úrslitum Morfís og komumst í undanúrslit í Gettu betur. Þeir sem vilja fá að kynnast frá- bærum framhaldsskóla ættu ekki að láta opið hús í MH fram hjá sér fara í kvöld, miðvikudagskvöld, kl. 18-21 og takið foreldra ykkar endilega með. Brynhildur Bolladóttir. Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Brynhildur Bolladóttir UM þessar mundir er verið að vinna að endurbótum á sjóvörnum við Ána- naust. Framkvæmdasvið Reykjavíkurborgar hefur gert tillögu að bættum sjóvörnum sem höfðu skemmst vegna óveðurs. Morgunblaðið/Valdís Thor Sjóvarnaveggur bættur BLUE Lagoon-húðvörurnar eru til- nefndar til dönsku snyrtivöruverð- launanna „Danish Beauty and Cosmetic Award“. Verðlaunahá- tíðin verður haldin á Hilton- hótelinu við Kastrup flugvöll fimmtudaginn 3. apríl. Vörurnar eru tilnefndar í eft- irfarandi flokkum: Vörumerkið Blue Lagoon er tilnefnt sem vöru- merki ársins; rakakremið Blue Lagoon Mineral Moisturizing Cream er tilnefnt sem vara ársins í flokknum vörur fyrir líkama og Blue Lagoon Silica Mud Mask, kís- ill, er tilnefnd sem vara ársins í flokknum vörur seldar og notaðar á snyrtistofum og spa stöðum. Þetta er annað árið sem verð- launahátíðin er haldin og hefur hún þegar skipað sér fastan sess og vak- ið athygli. Tólf manna dómnefnd er skipuð þekktum einstaklingum. Nánari upplýsingar um Danish Beauty Award má finna á www.dcba.dk Blue Lagoon-húðvörurnar hafa verið seldar í Danmörk í tæp tvö ár og eru þær m.a. fáanlegar í versl- uninni Magasin Du Nord og hefur vörumerkið hlotið góðar und- irtektir á þeim markaði, segir í fréttatilkynningu. Tilnefndar til danskra verðlauna FRÉTTIR DR. Dirk Buschle heldur fyr- irlestur á málstofu lagadeildar í Lögbergi, stofu 101 fimmtudaginn 3. apríl kl. 16. Nefnist fyrirlesturinn „Euro- pean Energy Policy between Climate Change and Geopolitics“. Í samspili alþjóðlegs markaðar, umhverfis og öruggs framboðs, hefur nýtt og spennandi svið Evr- ópuréttar komið fram á sjón- arsviðið. Þessi þróun helst í hend- ur við nýja tegund samninga og tengsl við þriðja aðila, en þá getur verið áhugavert að skoða í sam- anburði við EES, segir í tilkynn- ingu. Fundarstjóri verður Stefán Már Stefánsson prófessor. Allir eru velkomnir. Nánari upplýsingar má nálgast á vefslóðinni www.lagadeild.hi.is. Málstofa hjá lagadeild HÍ Leiksýning Þjóðleikhússins Í UMFJÖLLUN um sýningu á Þeim ljóta í blaðinu í gær kom fram að uppfærslan væri samstarfsverk- efni, að því stæðu Vér morðingjar og Þjóðleikhúsið. Það rétta er að sýn- ingin er alfarið Þjóðleikhússins. Frumsýning er á laugardagskvöld. LEIÐRÉTT

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.