Morgunblaðið - 02.04.2008, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 02.04.2008, Blaðsíða 36
Kvennamálin sama óleysanlega flækjan, ljótu kallarnir jafn ógeðslega ljótir … 38 » reykjavíkreykjavík Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is LAGIÐ „Beautiful“ í flutningi bandarísku söngkonunnar Taylor Dayne situr nú í efsta sæti banda- ríska Billboard-vinsældalistans í flokknum „dance/electronic“. Það væri ef til vill ekki í frásögur færandi hér á landi ef ekki væri fyrir þá stað- reynd að lagið er eftir Helga Má Hübner, Íslending sem búsettur hefur verið í Noregi undanfarin ár. Þar hefur Helgi fengist við tónlist um nokkurt skeið undir nafninu Hitesh Ceon og hefur hann fyrst og fremst unnið með R&B listamönn- um. Vann hann t.d. að laginu „Begg- in“ með norsku rappsveitinni Madcon en lagið hefur verið það vin- sælasta í Noregi undanfarnar vikur auk þess sem hróður lagsins er nú farinn að berast til Þýskalands. Þá stýrði Helgi upptökum og samdi nokkur lög á nýjustu plötu Madcon, So Dark The Con Of Man, en sveitin minnir um margt á hina bandarísku Outkast. Árangur Helga og Taylor Dayne verður annars að teljast nokkuð merkilegur en neðar á Billboard- listanum eru lög með tónlistar- mönnum á borð við Shirley Bassey, Snoop Dogg, Janet Jackson og Donnu Summer. Íslendingur á toppi Billboard Beautiful Umslag smáskífunnar. Vinsæll Helgi Már Hübner. myspace.com/hiteshceon  Dr. Gunni ger- ir það að umtals- efni á bloggsíðu sinni að vinkona hans Heiða (oft kennd við Unun) hafi verið ráðin aðstoðarmaður Steingríms J. Sig- fússonar. Segir hann að kæmi sú staða upp að doktornum yrði útveg- aður aðstoðarmaður myndi hann ekki tvínóna við að velja Gilz sem aðstoðarmann sinn. Ekki myndi hann einungis píska hann áfram í ræktinni heldur gæti vöðvatröllið reddað honum ódýrum kjúklinga- bringum í öll mál en kjúklingur er víst aðalfæða vaxtarræktarmanna. Samkvæmt doktornum eru þeir Gilz og félagar víst í viðskiptum við skuggalega kjúklingabringudílera og kaupa í hvert skipti 10 kílóa poka á 10-12 þúsund krónur og geyma svo í frystinum. Í ljósi yfirlýsinga kaupmanna um væntanlegar verðhækkanir má reikna með því að síminn hjá Gilz verði rauðglóandi á næstu vikum. Gilz verslar við skugga- lega kjúklingasala  Hljómsveitin Ný dönsk hélt mikla tónleika á Nasa síðast- liðið laug- ardagskvöld og var það mál manna að þeir félagar hefðu sjaldan verið betri. Annars bar það til tíðinda að undir lok tón- leikanna tók einn gesta sig til, stökk upp á svið og hóf að syngja með þeim félögum. Þegar Björn Jörundur áttaði sig á því að við- komandi hafði fremur takmarkaða sönghæfileika bað hann Ólaf Hólm trommara að halda takti, bað gest- inn að kynna sig og þakkaði honum svo fyrir að skemma tónleikana. Í sömu andrá var gesturinn fjar- lægður og sveitin hélt áfram eins og ekkert hefði í skorist. Fagmannleg viðbrögð Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is „ÉG hef verið að syngja alveg síðan ég man eftir mér,“ segir Margrét Edda Jónsdóttir, 19 ára söngkona úr Hafnarfirði. Margrét er tiltölulega óþekkt enn sem komið er, en það á án efa eftir að breytast því eins og heyra má á upptökum á net- inu hefur stúlkan hreint ótrúlega sönghæfileika. „Ég hef farið í nokkra skóla, til dæmis Söngskóla Maríu Bjarkar, Vox Academia, Söngskóla Þor- valds Bjarna og söngskóla úti á Álftanesi,“ segir Margrét sem er dóttir Jóns Gnarrs, og á því ekki langt að sækja hæfileikana - þótt faðir hennar sé að vísu þekktari fyrir aðra hæfileika en þá sem byggjast á söng. Aðspurð segist Margrét lítið hafa gert af því að syngja opinberlega. „Ég söng reyndar svolítið í skólanum, í keppnum og svona. Svo söng ég stundum á svölunum á Sólon á menningarnótt þegar ég var yngri,“ segir hún og bætir því við að hún hafi einnig skráð sig í X-Factor-keppnina á Stöð 2 fyrir tveimur árum. „Henni Ellý dómara leist hins vegar ekkert rosalega vel á mig. Henni fannst ég vera of ung, ég var náttúrlega bara 17 ára þegar ég tók þátt í keppninni. En ég komst samt í 12 manna úrslit í yngsta hópnum.“ Hlustar á Beethoven Hvað framtíðina varðar segist Margrét hafa mikinn áhuga á að fara í Söngskólann í Reykja- vík, en hún mun þreyta inntökupróf í maí. „Svo eru nokkrir vinir mínir í tónlist, og þeir vilja taka upp með mér. Mig langar mikið til þess, en er bara svolítið feimin við það,“ segir Margrét sem dreymir um að gera sönginn að atvinnu. „Mig langar að syngja, en mig langar líka að vera svona „performer“ – mig langar að hafa svona smá „show“.“ Margréti er fleira til lista lagt, því auk þess að vera gríðarlega efnileg söngkona æfir hún suð- urkóresku sjálfsvarnaríþróttina taekwondo af kappi. Hún segir þetta tvennt fara mjög vel sam- an. „Ég var einmitt á úrtökulandsliðsæfingum um helgina. Það er valið í A- og B-lið, ég komst í B-liðið af því að ég er ekki með nógu mikla reynslu til að komast í A-liðið. En ég stefni að því að komast í A-liðið, þeir sem komast í það fara á Evrópu- og heimsmeistaramótin,“ útskýrir hún. Þá má einnig nefna að Margrét tók þátt í Hawaiian Tropic-keppninni í fyrra, enda bráð- hugguleg stúlka. „Það gekk mjög vel og var mjög gaman, þótt ég hafi reyndar ekki komist í verðlaunasæti.“ Hvað áhrifavalda í tónlist varðar nefnir Mar- grét söngkonurnar Björk, Emilíönu Torrini, Imogen Heap og Celine Dion. „Svo hlusta ég líka mikið á klassíska tónlist, til dæmis Ludwig van Beethoven og óperutónlist,“ segir Margrét sem gæti vel hugsað sér að leggja klassískan söng fyrir sig. „Ég lærði hann svolítið í eitt ár, þegar ég var í Vox Academia. Þá var ég að vísu mjög ung og ekki mjög góð að stjórna röddinni. En það hefur oft verið sagt við mig að ég ætti að fara í klassískan söng því ég er með mjög háa rödd, Selma Björnsdóttir sagði til dæmis að það væri ótrúlegt hvað ég kæmist hátt.“ Söngur og sjálfsvörn Dóttir grínistans Jóns Gnarrs er einhver efnilegasta söngkona landsins Morgunblaðið/RAX Fjölhæf Margrét er sérstaklega efnileg söngkona, auk þess að stunda taekwondo af miklu kappi. Þeim sem vilja kynna sér gríðarlega sönghæfi- leika Margrétar er bent á svæði sem hún er með á Youtube – youtube.com/maggaedda. Þar má m.a. heyra upptökur sem hún vann að með Þor- valdi Bjarna og Selmu Björnsdóttur. ■ Á morgun kl. 19.30 Einstakur gestur Robert Levin er einhver merkasti tónlistarhugsuður okkar tíma. Hann leikur píanókonsert nr. 3 eftir Beethoven og spinnur sína eigin kadensur. Að auki er á efnisskránni forleikur eftir Dvorák og stórkost- legt tónaljóð Richard Strauss um Don Quixote þar sem Bryndís Halla Gylfadóttir bregður sellóinu sínu í hluterk riddarans sjónumhrygga. Hljómsveitarstjóri: Carlos Kalmar. Einleikari: Robert Levin Missið ekki af tónleikakynningu Vinafélags SÍ. Súpa og fyrirlestur á Hótel Sögu kl. 18. Aðeins 1.200 kr. Allir velkomnir. ■ Fös. 4. apríl kl. 21.00 Heyrðu mig nú! Öðruvísi upplifun af sinfóníutónleikum. Stuttir tónleik- ar þar sem listamennirnir kynna verkin og partí í anddyri Háskólabíós á eftir. Róbert Levin leikur píanókonsert eftir Beethoven og spinnur út frá lögum sem tónleikagestir leggja til. Heppnir tónleikagestir vinna iPod í boði FL Group. ■ Lau. 5. apríl kl. 17.00 Kristallinn – kammertónleikaröð í Þjóðmenningarhúsinu Oktett eftir Ludwig Spohr, sem á sinni tíð var talinn standa jafnfætis Beethoven og Mozart. Miðasala S. 545 2500 www.sinfonia.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.