Morgunblaðið - 02.04.2008, Síða 38
38 MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
* Gildir á allar
sýningar merktar
með rauðu
*
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Borgarbíó
Sími 551 9000 Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
Þú færð 5 %
endurgreitt
í SmárabíóSími 564 0000
eee
-24 Stundir
Frá framleiðendum The Devils Wears Prada
SÝND Í REGNBOGANUM
Sími 462 3500
- ÓHT, Rás 2
eee
eeee
- E.E, D.V.
- Empire
eeee
SÝND Í REGNBOGANUM
Í BRUGGE
SÝND Í SMÁRABÍÓI
- S.V., MBL
eeee
SÝND Í SMÁRABÍÓI SÝND Í REGNBOGANUM
- L.I.B.
Topp5.is/FBL
eeee
Frábær
grínmynd
eee
- S.V. MBL
SÝND Í SMÁRABÍÓI OG HÁSKÓLABÍÓI SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
SÝND Í BORGARBÍÓI
- V.J.V. Topp5.is/FBL
eee
SÝND Í REGNBOGANUM
eeeee
-H.J., Mbl
J E S S I C A A L B A
- LIB,
Topp5.is/FBL
eee
SÝND Í SMÁRABÍÓI, REGNBOGANUM OG BORGARBÍÓI
Vantage Point kl. 8 - 10 B.i. 16 ára
Spiderwick Chronicles kl. 6 B.i. 7 ára
Horton m/ísl. tali kl. 6
Lovewrecked kl. 8 - 10
Spiderwick chronicles kl. 3:30 - 5:45 B.i. 7 ára
Horton enskt tal kl. 4 - 6
Horton m/ísl. tali kl. 4 - 6
Semi-Pro kl. 8 - 10:10 B.i. 12 ára
Vantage Point kl. 6 - 8 - 10 B.i. 16 ára
In Bruges kl. 5:45 - 8 - 10:10 B.i. 16 ára
Horton m/ensku tali kl. 6
The Orphanage kl. 8 - 10 B.i. 16 ára
Be kind rewind kl. 10:30
27 dresses kl. 5:30 - 8
eee
-L.I.B.
TOPP5is/FBL.
Vantage Point kl. 3:45 - 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 16 ára
Vantage Point kl. 3:45 - 5:50 - 8 - 10:10 LÚXUS
The other Boleyn girl kl. 8 - 10:30 B.i. 10 ára
Shutter kl. 8 - 10 B.i. 16 ára
1
50 kr. afsláttur ef þú kaupir bíómiðann á
Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú borgar bíómiðann með Kreditkorti tengdu Aukakrónum!
ÞAÐ GETUR VERIÐ SKELFILEGT AÐ SJÁ
Frábær spennutryllir sem svíkur engan!
550
KRÓNUR
Í BÍÓ
COMMISSARIO Brunetti er fjöl-
skylduvinur fyrir mörgum; lögreglu-
foringi í Feneyjum sem glímir við
glæpi í þeirri
annars kyrrlátu
borg, borðar frá-
bæran mat og
nýtur menningar-
innar. Hann er
hugarfóstur
skáldkonunnar
Donna Leon sem
búið hefur í Fen-
eyjum í á þriðja
áratug og skrifað um Brunetti 17
bætur á síðustu 16 árum.
Glæpirnir sem Brunetti glímir við
eru ólíkir, nýtt eða nýstárlegt afbrot
í hverri bók ef svo má segja, þó að
morð og manndráp séu jafnan í aðal-
hlutverki. Að sama skapi er misjafnt
hvað verður um sökudólgana en
flestir fá þeir óhefðbundna refsingu
og fæstir makleg málagjöld að því er
manni finnst.
Feneyjar eru í stóru hlutverki í
bókinni, greinilegt að Leon er af-
skaplega hrifin af heimabæ sínum,
en ekki er það sannfærandi að mað-
ur sem alist hefur upp í borginni sé
sífellt að dásama fegurð hennar með
sjálfum sér. Að sama skapi er erfitt
að taka trúanlegt að eiginkona hans
eldi veislurétti á hverjum degi og
þau séu sífellt a dreypa á eðalvínum
– mér þykir líklegt að ítalskar hús-
mæður og -feður séu alveg jafn lík-
leg til að grípa til skyndibita eða
-lausna í amstri daganna og tíðkast
víðast í Vesturálfu.
Að þessu sögðu þá eru bækurnar
um Brunetti dægilegar, áreynslu-
lausir krimmar sem draga upp mynd
af borg sem er frábær að heim-
sækja, en líklega erfitt að búa í.
Fjölskyldu-
vinur
The Girl of His Dreams eftir Donna Leon.
William Heinemann gefur út. 288 bls.
Árni Matthíasson
BÆKUR» METSÖLULISTAR»
1. Change of Heart – Jodi Picoult.
2. The Appeal – John Grisham
3. Remember Me? – Sophie
Kinsella.
4. Dead Heat – Joel C. Rosenberg.
5. 7th Heaven – James Patterson
& Maxine Paetro
6. A Prisoner of Birth – Jeffrey
Archer.
7. A Thousand Splendid Suns –
Khaled Hosseini.
8. Lush Life – Richard Price.
9. Killer Heat – Linda Fairstein.
10. Black Widow – Randy Wayne
White
New York Times
1. Engleby – Sebastian Faulks
2. The Gathering – Anne Enright
3. A Thousand Splendid Suns –
Khaled Hosseini
4. On Chesil Beach – Ian McEwan
5. The Miracle at Speedy Motors –
Alexander McCall Smith
6. The Kite Runner – Khaled
Hosseini
7. Two Caravans – Marina
Lewycka
8. The Book Thief – Markus Zusak
9. Mister Pip – Lloyd Jones
10. The Yiddish Policemen’s Union
– Michael Chabon
Waterstone’s
1. Exit Music – Ian Rankin
2. Stalins Ghost – Martin Cruz
Smith
3. Night Train to Lisbon – Pascal
Mercier
4. Obsession – Jonathan Kell-
erman
5. 6th Target – James Patterson
6. Tin Roof Blowdown – James
Lee Burke
7. Dexter in the Dark –
Jeff Lindsay
8. Daring to Dream – Nora Ro-
berts
9. Suffer Little Children – Donna
Leon
10. Devil Who Tamed Her –
Johanna Lindsey
Eymundsson
Eftir Árna Matthíasson
arnim@mbl.is
BANDARÍSKI rithöfundurinn
Walter Mosley er höfundur bóka-
raðar um einkaspæjarann Ezekiel
’Easy’ Rawlins sem gerist í Los
Angeles á sjötta og sjöunda áratug
síðustu aldar.
Rawlins er svartur og glímir því
við öll þau óteljandi vandamál sem
blasti við svertingjum á þeim tíma,
fordóma og kúgun, fátækt og von-
leysi, ofbeldi og öryggisleysi. Hann
fæst aðallega við vandamál meðal
litra íbúa borgarinnar, enda á hann
hægara um við að komast að hinu
sanna í snúnum málum en hvítir
menn sem eru eðlilega tortryggðir í
fátækrahverfum Los Angeles.
Samskipti hans við hvítingjana
sem öllu ráða eru stormasöm svo
ekki sé meira sagt, sífelldir árekstr-
ar og togstreita, þó Rawlins hafi náð
að koma ár sinni vel fyrir borð og sé
meðal annars fjárhagslega sjálf-
stæður (þó erfitt sé að henda reiður
á þeim hlutum, svo ruglingslega er
frá þeim sagt).
Uppáhald Bills Clintons
Mosley sló í gegn með sinni fyrstu
bók, „Devil in a Blue Dress“, sem
hlaut hvarvetna góða dóma og var
kvikmynduð með Denzel Wash-
ington í aðalhlutverki. Svo miklar
urðu vinsældir Mosleys að hann var
um tíma uppáhaldshöfundur Bills
Clintons Bandaríkjaforseta.
Líkt og vill vera með persónur
sem ganga aftur í hverri sögunni af
annarri, sjá til að mynda bækur
James Lee Burke um Dave Robic-
heaux og Hieronymus „Harry“
Bosch í bókum Michaels Connellys,
þá hefur Easy Rawlings smám sam-
an orðið að skrípamynd af sjálfum
sér.
Það er alsiða að höfundar beiti
persónulegum vandamálum til að
gera persónuna forvitnilegri, vin-
sælt að hafa þá alkóhólista (Robic-
heaux og Rawlings), hórkarla (Rawl-
ings) eða vandræðamenn í
kvennamálum (Robicheaux, Rawl-
ings og Bosch). Viðbót við Rawlings
er svo að hann er svartur og þarf því
að glíma við fordóma á hverjum
degi, fordóma sem við bleiknefjar
þekkjum ekki nema af afspurn.
Sífellt sama sífrið
Að þessu sögðu þá er það alltaf
þreytandi að heyra sífellt sama
sífrið, sífellt sömu frásagnirnar af
sömu vandamálunum. Í nýjustu bók-
inni um Easy Rawlins, Blonde Faith,
er Mosley við sama heygarðshornið,
kvennamálin sama óleysanlega
flækjan, ljótu kallarnir jafn ógeðs-
lega ljótir og fordómarnir þrúgandi
sem forðum. Eini ljósi punkturinn er
að í lokin svipti Rawlins sig lífi að því
er virðist – lesanda er létt, en svo
koma bakþankarnir; frásögnin er í
fyrstu persónu og hver getur lýst
eigin sjálfsvígi nema hann lifi af?
Mosley hefur lýst því yfir op-
inberlega að þetta verði síðasta bók-
in sem hann muni skrifa um Easy
Rawlins, hann sé þegar búinn að
skrifa um hann 3.000 síður og þær
verði ekki fleiri. Hann er með margt
annað á prjónunum, leikrit og ým-
iskonar skáldverk, glæpasögur sem
og alvarlegri bókmenntir. Í gegnum
tíðina hefur Mosley líka gert ýmsar
tilraunir til að skrifa bækur um ann-
að en Rawlins en það hefur ekki
gengið nema miðlungi vel. Það má
því gera því skóna að Rawlins muni
snúa aftur, bitur og þrúgaður.
Kannski hann ætti að prófa að láta
hann flytja næst.
Forvitnilegar bækur: Svartur einkaspæjari
Easy Rawlins allur
Spæjó Denzel Washington sem Easy Rawlins í Devil in a Blue Dress.