Morgunblaðið - 02.04.2008, Qupperneq 40
40 MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
/ ÁLFABAKKA
HORTON m/ísl tali kl. 6 LEYFÐ
NO COUNTRY FOR OLD MEN kl. 10:30 B.i.16 ára
STEP UP 2 kl. 5:50 - 8 LEYFÐ
UNDRAHUNDURINN m/ísl tali kl. 6 LEYFÐ
STÓRA PLANIÐ kl. 6D - 8D - 8:30D - 10D - 10:30D B.i. 10 ára DIGITAL
HANNA MONTANA kl. 6 3D LEYFÐ 3D DIGITAL
JUNO kl. 8 - 10 B.i. 7 ára
UNDRAHUNDURINN ísl tal kl. 6 LEYFÐ
/ KRINGLUNNI
STÓRA PLANIÐ kl. 6D - 8D - 10:10D B.i. 7 ára DIGITAL
LARS AND THE REAL GIRL kl. 8 - 10:10 LEYFÐ
10,000 BC kl. 5:40 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára
10,000 BC kl. 5:40 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára LÚXUS VIP
THE BUCKET LIST kl. 8 - 10:10 B.i. 7 ára
VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG
- Sigurjón M. Egilsson
Mannlíf
eeee
,,Myndin er sannarlega þess virði
að fólk flykkist á hana.“
- Páll Baldvin Baldvinnsson
Fréttablaðið
eee
,,Pétur Jóhann í toppformi
í aðalhlutverkinu í bland
við bráðskemmtilega
toppleikara og furðufugla..."
- Snæbjörn Valdimarsson
Morgunblaðið
eee
,,Góð framleiðsla með topp
leikurum í öllum hlutverkum,
sem óhætt er að skella
gæðastimplinum á."
- Stefán Birgir Stefánsson
sbs.is
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
Löngu eftir að Íslendingarhöfðu kynnzt kiljum á ferð-um sínum erlendis og þótti
sjálfsagt að kaupa erlendar bók-
menntir í því formi voru íslenzkar
vasabrotsbækur fremur und-
antekning en regla.
En nú er öldin önnur. Á síðustu
2-3 árum hefur orðið gífurleg
aukning í kiljuútgáfu. Frum-
útgáfur þýddra skáldverka koma í
mjög auknum mæli út í kiljum,
kiljan er að sækja á sem vett-
vangur íslenzkra skáldrita, reynd-
ar ennþá sem eftirfari harð-
spjaldabókarinnar, en dregur
stöðugt á hana í tíma og hafin er
kiljuútgáfa á íslenzkum klassískum
bókmenntum.
Samkvæmt markaðsáætlun, sem
unnin var vegna undirbúnings nýj-
asta kiljuklúbbsins, Hrafnsins,
jókst kiljusala ár frá ári, eða um
16% að meðaltali frá árinu 2001.
Frá árinu 2001-2006 má áætla að
heildarvelta af seldum kiljum í
verzlunum og klúbbum hafi aukizt
úr 88 milljónum króna í 235 millj-
ónir. Ef miðað er við að vöxtur
kiljumarkaðarins verði áfram með
sama hætti má áætla að á árinu
2009 verði heildarveltan komin í
321 milljón króna. Hins vegar
benda upplýsingar til þess að vöxt-
urinn milli áranna 2006 og 2007
hafi verið nokkru minni en árin á
undan.
Og eins og allt annað í þjóð-félaginu snýst bókin hraðar
og hraðar og nú er hraðinn orðinn
slíkur, að jólabækur síðustu vertíð-
ar fást á niðursettu verði í mat-
vöruverzlunum fyrir jól, út-
söluverði á bókamarkaði í
ársbyrjun þar á eftir og eru næst-
um um leið komnar út í kiljum
eins og bækur Arnaldar Indr-
iðasonar, Jóns Kalmans Stef-
ánssonar og Sigurðar Pálssonar
eru dæmi um og held ég að Minn-
ingabók Sigurðar og Bíbí eftir
Vigdísi Grímsdóttur séu fyrstu ís-
lenzku minningabækurnar eða
ævisögurnar sem koma svo fljótt
út í kiljum. Þessi hraðferð frá jóla-
markaði til bókamarkaðar er al-
mennum lesanda þénanleg, en hef-
ur vakið spurningar um
verðlagningu bóka almennt, hvort
útgefendur ættu ekki frekar að
bjóða bækurnar strax á „lægra
verði“ og stuðla þannig að aukinni
bóksölu.
Og nú streyma kiljurnar fram ábókvöllinn sem aldrei fyrr.
Margt er þar af erlendum upp-
runa, eins og bók nóbelsverðlauna-
hafans Doris Lessing, sem var
reyndar frumútgefin á íslenzku í
kiljuformi 1988, og svo bækur sem
birtast lesendum í fyrsta skipti á
íslenzku, þ. á m. eftir danskan höf-
und og annan kínverskan.
Aðeins einn íslenzkur söguhöf-
undur hefur eingöngu verið frum-
útgefinn í kilju það ég man; Stella
Blómkvist. Önnur íslenzk skáld-
verk annarrar gerðar sem hafa
verið frumútgefin í kiljum eru
Albúm eftir Guðrúnu Evu Mín-
ervudóttur og Í frostinu eftir Jón
Atla Jónasson. Í frostinu kom út
2005 og einhverra hluta vegna
tókst ekki betur til en svo að ann-
að íslenzkt skáldverk hefur ekki
verið frumútgefið í kiljuformi á
þeim bæ. Albúm kom út í neon-
flokki Bjarts og þar komu líka
fyrst fram greinasöfn eftir Einar
Má Guðmundsson, Gyrði Elíasson
og Pétur Gunnarsson. Neon var
svo breytt úr útgáfu frumsamins
og þýdds efnis þannig að aðeins
þýddar bækur eru þar á ferðinni.
Annan kiljuklúbb Bjarts skal nefna
þar sem er Svarta línan með verk-
um á óljósum mörkum fræða og
skáldskapar. Fyrsti höfundur þar
var Þröstur Helgason með Einka-
vegum.
Ástæða þess hve íslenzk skáld-
verk rata lítt í kilju í frumútgáfu
liggur kannski í því, að við séum
ekki tilbúin til þess að telja slíkar
frumútgáfur „alvörubækur“ og
gefa þær í jólagjöf. Þótt spennu-
sögur Stellu Blómkvist hafi komið
strax út í kiljuformi hafa aðrar ís-
lenzkar spennusögur komið fyrst
út innbundnar til þess að teljast
bækur með bókum og gera sig í
jólapakkanum.
Á sínum tíma ruddi Mál ogmenning íslenzku kiljunni
braut með sérstökum kiljuklúbbi,
þar sem boðið var upp á íslenzkar
og erlendar bókmenntir í bland,
oftast endurútgefnar. Þessi klúbb-
ur má segja að lifi enn í Uglu Edd-
unnar, sem býður upp á tvær kilj-
ur annan hvern mánuð. Og Eddan
er að starta nýjum kiljuklúbbi,
Hrafninum, þar sem boðið er upp
á eina spennusögu annan hvern
mánuð.
Tvær kiljuraðir með íslenzkum
öndvegisskáldverkum eru komnar
á flot. Bjartur byrjaði sinn flokk í
fyrra með tveimur verkum Gunn-
ars Gunnarssonar; Svartfugls og
Aðventu, og hefur nú gefið út Pilt
og stúlku eftir Jón Thoroddsen.
Kiljuflokkur Forlagsins nefnist Ís-
lensk klassík og eru tvær fyrstu
bækur hans Bréf til Láru og Stein-
arnir tala eftir Þórberg Þórð-
arson. Slík upphöf hljóta að lofa
góðu.
Þannig sækir kiljan fram á öll-
um vígstöðvum. Landvinningar
hennar eru ávinningur fyrir sál
söguunnandans og seðlaveski og
um leið fyrir höfunda og útgef-
endur.
Kiljusprengjan kemur sér vel
AF LISTUM
Freysteinn Jóhannsson
» Aðeins einn íslenzk-ur söguhöfundur hef-
ur eingöngu verið frum-
útgefinn í kilju svo ég
muni: Stella Blómkvist.
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Kiljur Á síðustu 2-3 árum hefur orðið gífurleg aukning í kiljuútgáfu.
freysteinn@mbl.is
HEIMILDARMYND Martins Scorsese
Shine a Light sem fjallar um hljómsveit-
ina Rolling Stones var frumsýnd á mánu-
dag í New York og eins og búast mátti
við hópuðust ljósmyndarar allra helstu
blaða heims fyrir utan kvikmyndahúsið til
að ná myndum af hljómsveitinni, leikstjór-
anum og frægum kvikmyndagestum sem
fjölmenntu á frumsýninguna. Scorsese
hefur sagt að sá tími sem fór í að gera
myndina hafi verið mjög skemmtilegur því
tónlist hljómsveitarinnar, ára hennar og
hljómur hafi verið honum innblástur í öll
þau ár sem hann hafi staðið í kvikmynda-
gerð, allt frá Mean Streets, Raging Bull,
Goodfellas og að Casino. Þá hefur leik-
stjórinn ýjað að því að hann muni alfarið
snúa sér að heimildarmyndagerð. Scor-
sese hefur áður gert heimildarmyndina
No Direction Home sem fjallar um tón-
listarmanninn Bob Dylan sem vænt-
anlegur er hingað til lands í næsta mán-
uði.
Rolling Stones – frumsýning í New York
Hæðarmunur Mick Jagger mætti til
frumsýningarinnar í fylgd með kærustu
sinni, L’Wren Scott.
Reuters
Leikstjórinn Martin Scorsese ásamt eiginkonu sinni,
Helen Morris. Á bak við þau sést í veggspjald af Keith
Richards, gítarleikara Rolling Stones.
Hjón Jennifer Lopez og Marc Anthony
voru á meðal þeirra frægu gesta sem sóttu
frumsýninguna á mánudaginn.