Morgunblaðið - 02.04.2008, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 2008 41
/ AKUREYRI
STÓRA PLANIÐ kl. 8 - 10 B.i. 10 ára
10,000 BC kl. 8 B.i. 12 ára
THERE WILL BE BLOOD kl. 10 B.i. 12 ára
/ KEFLAVÍK / SELFOSSI
l
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKASÝND Í ÁLFABAKKA, AKUREYRI OG SELFOSSI
STÓRA PLANIÐ kl. 8 - 10:10 B.i. 10 ára
SPIDERWICK CHRONICLES kl. 8 B.i. 7 ára
10,000 BC kl. 10:20 B.i. 7 ára
STÓRA PLANIÐ kl. 8 - 10 B.i. 10 ára
THE EYE kl. 8 - 10 B.i. 16 ára
Frábær gamansöm
þroskasaga
með Ryan
Gosling
í aðalhlutverki
eeee
OK!
eeee
NEWSDAY
eeee
EMPIRE
eeee
- G.H.J
POPPLAND
styrkir Geðhjálp
SÝND Í ÁLFABAKKASÝND Í KRINGLUNNI
J E S S I C A A L B A
SÝND Í KEFLAVÍKSÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNISÝND Í ÁLFABAKKA
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
SÝND Í ÁLFABAKKA
„Fín Fjölskyldumynd”
- 24 Stundir
eeeeeee
„Allt smellur saman
og allt gengur upp”
- A. S., 24 Stundir
- L.I.B.
TOPP5.is/FBL.
eee
SÝND Á SELFOSSISÝND Í ÁLFABAKKA
eeee
- S.U.S. X-ið 97.7
eeee
- V.J.V. Topp5.is/FBL
eeeee
Rás 2
eeee
- 24 Stundir
SÝND Í KRINGLUNNI SÝND Í ÁLFABAKKA
FRÁ LEIKSTJÓRA
INDEPENDENCE DAY OG
THE DAY AFTER TOMORROW
Í Sögu daganna skrifar Árni Björnsson að það hafi líklega fyrst verið árið
1957 að íslenskur fjölmiðill var með aprílgabb, þegar fréttastofa Útvarps
var með beina útsendingu frá komu fljótaskipsins Vanadísar sem sigla átti
upp Ölfusárós áleiðis til Selfoss.
Gervitennur í hestinn Páfa Morgunblaðið hefur átt nokkur afbragðsgóð
aprílgöbb í gegnum árin og lá nærri að öll þjóðin léti gabbast þegar fréttir
bárust árið 1969 af því að gervitennur hefðu verið smíðaðar í hestinn Páfa
sem orðið hafði fyrir undarlegum tannskemmdum. Gabbið heppnaðist
kannski eins vel og raun varð vegna þess mikla undirbúnings sem fór í
grínið en Haukur Clausen tannlæknir útbjó gervitennurnar og þau Þóra
Friðriksdóttir og Jón Sigurbjörnsson voru fengin með í grínið ásamt Páli
Agnari Pálssyni yfirdýralækni – og margar myndir teknar af öllu ferlinu.
Munu margir hafa látið gabbast og síminn ekki stoppað hjá Hauki þann
daginn.
Silfur Egils fundið! Margir lögðu líka leið sína upp í Mosfellsdal árið 1962
þegar fréttir bárust af hestamanni sem fundið hafði silfur Egils Skalla-
grímssonar fyrir tilviljun. Meira að segja prófarkalesarar blaðsins létu
gabbast þegar þeir fengu fréttina til setningar: „Þetta hef ég alltaf sagt, að
Íslendingasögurnar eru heilagur sannleikur, það er alltaf að koma betur
og betur í ljós,“ brást einn þeirra við.
Samantekin ráð Gabbið gekk þó líklega lengst, og best, árið 1980 þegar
dagblöðin tóku sig saman um að birta öll sömu gabbfréttina: að hægt væri
að kaupa „Mihitzu“-bíla á gjafverði hjá Lýsi og Mjöli hf. í Hafnarfirði. Í
umfjöllun Morgunblaðsins um gabbið daginn eftir segir að hundruðir ef
ekki þúsundir lögðu leið sína í fjörðinn. „Á skilti einu við verksmiðjuna var
fólki vísað á „bílasýninguna“ en þeir sem fóru eftir þeim ráðleggingum
lentu nánast inni í verksmiðjunni og allri gúanólyktinni sem þar var. Marg-
ir fóru eftir þessum leiðbeiningum en hurfu frá súrir á svip er þeir rákust
þar á skilti sem á stóð 1. apríl,“ sagði Morgunblaðið af uppátækinu.
Fótósjopp Frétt um risalax var á forsíðu 1960.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Trúlegt Haukur Clausen setur nýja tanngarðinn í Páfa.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Fjársjóður Feðgarnir Guðmundur Ásmundsson og Jón Guðmundsson skoða silfur Egils.
Eftir Ásgeir Ingvarsson
asgeiri@mbl.is
FLESTIR fjölmiðlar landsins gerðu tilraun til
að gabba landsmenn í gær, 1. apríl. Virðist þó
sem ekki sé jafnauðvelt og áður að láta landann
„hlaupa apríl“, og fór engum sögum af hópum
fólks sem bitu á agnið.
Blaðamenn Morgunblaðsins voru sérlega
stríðnir í ár. Á fréttasíðum var grein um að bíl-
stjórar ætluðu að sturta möl fyrir framan Al-
þingi, og í blaðhlutanum Reykjavík Reykjavík
aftar í blaðinu voru tvær gabbfréttir. Önnur
fréttin var af óvæntum tónleikum Bob Dylans í
Austurstræti með götulistamanninum Jo Jo, en
í hinni var reynt að telja lesendum trú um að
lokaatriði stuttmyndar Gaels García Bernal yrði
kvikmyndað í kringlunni kl. 12.30 og Nick Cave
yrði á staðnum. Var ætlunin að gabba lesendur
með því að hafa aðra fréttina svo augljósa plat-
frétt, að hin þætti sennilegri.
Barst saga af einu heimili í bænum, þar sem
húsfrúin var að lesa Moggann við morgunverð-
arborðið, og sagði við manninn sinn sísvona
hvað aprílgabbið væri afskaplega lélegt þetta ár
áður en hún spurði: „En eigum við ekki að skella
okkur á Cave á eftir?“
Ólafur ekki að fara neitt
Á Mbl.is var, í tilefni dagsins, tekin í gagnið
ný þjónusta við lesendur og reyndu um 17.000
manns að hlaða niður ókeypis kvikmynd í fullri
lengd.
Mikil viðbrögð urðu svo við agnarsmárri frétt
á baksíðu 24Stunda um að Björn Ingi Hrafnsson
myndi taka við af Ólafi Stephensen sem ritstjóri
blaðsins, og að tíðinda væri að vænta af Ólafi á
borgarstjórnarfundi seinna um daginn. Munu
Birni hafa borist margar hamingjuóskir vegna
nýja starfsins og allskyns kenningar fóru fljótt á
kreik um næsta starfsvettvang Ólafs.
Snekkja og stríðsminjar
Björn Ingi kom víðar við sögu í gær því DV
birti þá frétt að hann myndi árita nýja bók sína
um REI-málið í verslun Eymundsson í Kringl-
unni. Á Vísi.is voru nokkrar fréttir yfir daginn af
að Al Gore myndi gista á lystisnekkju Saddams
Husseins í heimsókn sinni til landsins síðar í
mánuðinum, en Pálmi Haraldsson átti að hafa
keypt snekkjuna fyrir skömmu. Síðar kom frétt
um að snekkjan væri lögst að bryggju í Sunda-
höfn, og loks að Samtök hernaðarandstæðinga
hefðu lagt fram fjárnámskröfu í snekkjuna.
Á meðan flutti Fréttablaðið þau tíðindi að
bensín yrði selt með miklum afslætti hjá Skelj-
ungi við Bústaðaveg og á fréttavef Rúv var frétt
um dularfullt neðanjarðarbyrgi sem fundist
hefði í Öskjuhlíð, fullt af sprengiefnum og vopn-
um frá hernámsárunum. Að sjálfsögðu vildi svo
heppilega til að almenningur gat fengið að skoða
byrgið kl. 17 með leiðsögn Þórs Whitehead.
Fyrsti apríl í fimmtíu ár
Fjölmiðlar hafa reynt að gabba landsmenn síðan 1957 Virðist erfiðara að leika á lesendur í dag
Bestu göbbin
Morgunblaðið/RAX
Biðröð Margir vildu kaupa ódýra Mihitzu-bíla árið 1980.
Það leiðréttist hér með að fréttir af að möl hafi
verið sturtað við Alþingishúsið, óvæntum tón-
leikum Bob Dylan í Austurstræti, og kvik-
myndatökum í Kringlunni í blaðinu í gær voru
gabb. Allt í plati! Fyrsti apríl!
Leiðrétt