Morgunblaðið - 08.04.2008, Side 14

Morgunblaðið - 08.04.2008, Side 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur jmv@mbl.is UMHVERFISRÁÐHERRA Þýskalands, Sigmar Gabriel, hefur verið harkalega gagnrýndur eftir að hann tilkynnti síðastliðinn föstu- dag að fallið yrði frá áformum um- hverfisráðuneytisins um að hækka hlutfall etanóls í bensíni úr 5% í 10%. Svokallað E10-bensín verði því ekki sett á markað en áfram boðið upp á bensín með 5% hlutfalli etanóls. Samtök bílaframleiðenda í Þýska- landi (VDA) höfðu gefið umhverf- isráðuneytinu þær upplýsingar að um 300.000 ökutæki gætu ekki unn- ið úr E10-bensíninu og studdist ráðuneytið við þær tölur þrátt fyrir að Samtök bíleigenda (ADAC) hefðu þegar birt mun hærri tölur. Þegar Samtök alþjóðlegra bíla- framleiðenda (VDIK) tilkynntu loks að rúmar þrjár milljónir eldri bif- reiða í Þýskalandi réðu ekki við bensínið og eigendur þeirra yrðu knúnir til að kaupa hreinni en mun dýrari bensíntegund þótti umhverf- isráðherra ástæða til að staldra við. Sigmar Gabriel, sem kemur úr röðum jafnaðarmanna (SPD), hefur neitað ásökunum um afglöp í starfi og að hafa hlustað um of á rök bíla- iðnaðarins. Michael Glos við- skiptaráðherra ásakar Gabriel um að hafa sett hugsjónir framar stað- reyndum og krefur hann nú raun- hæfra svara um hvernig umhverf- isverndarmarkmiðum innan bílaiðnaðarins verði fullnægt. Süddeutsche Zeitung greinir frá harðri gagnrýni kristilegra demó- krata (CDU), sem eru í ríkisstjórn ásamt SPD. Þeir segi mistökin al- gerlega á ábyrgð Gabriels. Roland Pofalla, framkvæmdastjóri CDU, segi mistökin vera afleiðingu ófull- nægjandi undirbúnings, þar sem vísbendingar vísindamanna og sam- taka hafi verið virtar að vettugi. Framleiðendur leiti nýrra leiða Hækkun etanól-prósentunnar átti að vera stór liður í að framfylgja umhverfisverndaráætlun rík- isstjórnarflokkanna sem sett var í fyrra. Samkvæmt henni átti m.a. hlutfall lífræns massa í eldsneyti að verða 20% árið 2020. Með lífrænu eldsneyti átti einnig að minnka út- blástur koltvísýrings verulega fyrir árið 2012. Umhverfisráðherra segir að ekki verði hvikað frá umhverf- isverndarkröfum til bílaframleið- enda en þeir verði nú að leita nýrra leiða til að fullnægja kröfunum. Umhverfisráðherra gagnrýndur AP Hraðbraut Eigendur þriggja milljóna ökutækja hefðu verið knúnir til að kaupa dýrara bensín þar sem bílarnir þyldu ekki aukið etanólmagn. Um þrjár milljónir ökutækja í Þýska- landi hefðu ekki ráðið við nýja bensínið London. AFP. | Rannsóknarkviðdóm- ur í Bretlandi hefur komist að þeirri niðurstöðu að dauði Díönu prinsessu í ágúst 1997 hafi verið manndráp af gáleysi. Gáleysislegum akstri bíl- stjóra hennar, Henri Paul, og ljós- myndara æsifréttablaða, sem eltu bíl hennar, var kennt um áreksturinn sem varð Díönu og unnusta hennar, Dodi Al Fayed, að bana. Kviðdómurinn komst einnig að þeirri niðurstöðu að bílstjórinn hefði verið mjög drukkinn og ekið of hratt. Þau Díana og Dodi Al Fayed höfðu ekki spennt á sig sætisbelti og það stuðlaði einnig að dauða þeirra. Réttarrannsóknin á dauða Díönu í árekstri í París stóð í hálft ár. Faðir Dánardómstjórinn, Scott Baker, komst að þeirri niðurstöðu að enginn fótur væri fyrir þessari ásökun og breskur læknir, sem rannsakaði lík Díönu, sagði að hún hefði ekki verið barnshafandi. John Stevens lávarður, sem stjórnaði rannsókn bresku lögregl- unnar á málinu, kvaðst vona að nið- urstaða kviðdómsins kvæði allar samsæriskenningar um dauða Díönu niður. Áður hafði breska lögreglan staðfest þá niðurstöðu frönsku lög- reglunnar að áreksturinn hefði verið „hörmulegt slys“. Dodis, Mohamed Al Fayed, hélt því fram að Díana og Dodi hefðu ætlað að ganga í hjónaband og hún hefði verið barnshafandi þegar hún dó. Filippus drottningarmaður hefði fengið bresku leyniþjónustuna til að myrða Díönu og Dodi til að koma í veg fyrir að móðir tilvonandi kon- ungs giftist múslíma. Var ekki þunguð Al Fayed sagði niðurstöðu kvið- dómsins „mikil vonbrigði“ og enginn vafi léki á því að Díana og Dodi hefðu verið myrt. Dauði Díönu Bretaprinsessu sagður manndráp af gáleysi Rannsóknarkviðdómur hafnar samsæriskenningum um að Díana hafi verið myrt Díana prinsessa Mohamed Al Fayed ÓEIRÐALÖGREGLA hefur verið til taks víða í Egypta- landi undanfarna daga en mikill fjöldi mótmælenda hefur látið í ljós reiði vegna hækkandi vöruverðs og bágra launakjara. Til verkfalla hefur komið víða í land- inu, kveikt hefur verið í húsum auk þess sem búðir hafa verið rændar. Í Mahalla el-Kobra, þar sem þessi maður var á ferð með asnann sinn, voru um 150 manns handteknir og 80 særðust síðastliðinn sunnudag þegar til átaka kom á milli íbúa og óánægðra starfsmanna stærstu vefn- aðarverksmiðju Egyptalands. Um 40% Egypta lifa við fátæktarmörk en verð á grunnvörum eins og olíu og hrísgrjónum hefur tvöfald- ast á síðustu mánuðum. Kosið verður í sveitarstjórn- arkosningum í Egyptalandi í vikunni og hafa óeirð- irnar valdið þrýstingi á ríkisstjórn Hosni Mubaraks. Reuters Egyptar mótmæla dýrtíð Brussel. AP. | Leyft verður að nota farsíma í farþegaþotum yfir Evrópu samkvæmt nýjum reglum Evrópu- sambandsins. Líklegt er að margir farþegar fagni því að geta verið í sambandi við umheiminn en á móti kemur að þeir geta lent í því að sitja við hliðina á skrafskjóðu jafnvel tím- unum saman í langflugi. Embættismenn Evrópusam- bandsins sögðu að búist væri við því að nokkur flugfélög hæfu þessa þjónustu á næstu mánuðum. Evr- ópusambandslöndin verða þá fyrsti heimshlutinn til að afnema bann við notkun farsíma í farþegaflugi. Embættismennirnir lögðu áherslu á að nýju reglurnar myndu ekki auka hættuna á hryðjuverkum eða trufla tæki farþegaþotna. Þeir sögðu að GSM-kerfið, sem notað verður í flug- vélunum, hefði verið prófað rækilega og gerðar hefðu verið ráðstafanir til að koma í veg fyrir að það yki hættu á hryðjuverkum. Bandaríkin og mörg fleiri lönd hafa bannað notkun farsíma í flugi vegna hættunnar á því að þeir trufli tæki flugvélanna. Embættismenn ESB sögðu að hættan á því væri mjög lítill vegna þess að farsímarnir yrðu ekki beintengdir við jörðina, heldur yrði notuð GSM-grunnstöð í vélinni sem yrði tengd við gervi- hnött. Flugstjórinn getur slökkt á stöðinni og ekki verður leyft að nota farsíma í flugtaki, lendingu eða ókyrrð í flugi. Farþegarnir geta kveikt á símunum þegar vélin nær 10.000 feta (þriggja kílómetra) hæð. ESB leyfir farsíma í flugi HELSTA skipu- leggjanda kosn- ingabaráttu Hillary Clinton, Mark Penn, hef- ur verið gert að láta af störfum. Upp komst að Penn, sem er framkvæmda- stjóri hjá stóru almannatengslafyrirtæki, hafði hitt sendiherra Kólumbíu í Bandaríkj- unum í lok mars síðastliðins er hann vann að áætlunargerð til að koma fríverslunarsamningi á milli þjóðanna í gegnum þingið. Clinton er andsnúin þess konar fríversl- unarsamningi við Kólumbíu og hef- ur Penn lýst því yfir að hann hafi sýnt dómgreindarleysi með vinnu sinni að samningnum. Penn hefur verið umdeildur í herbúðum Clinton og hafði m.a. verið gagnrýndur fyrir þá áherslu sem lögð var á reynslu Clinton á meðan ráðgjafar Baracks Obama kynntu hann sem afl breytinga. Howard Wolfson og Geoff Garin, sem starfað hafa að samskipta- málum fyrir Clinton, eiga að taka við hlutverki Penns sem þó mun að einhverju leyti vera áfram í ráð- gjafarhlutverki. Ráðgjafa Clinton vikið frá Mark Penn ♦♦♦ KAUPMAÐUR í indverska ríkinu Bihar hefur glatað öllu sparifé sínu vegna þess að hvítmaurar, sem herj- uðu á öryggishólf banka, átu það upp til agna. Kaupmaðurinn Dwarika Prasad hafði geymt peningaseðla og verð- bréf að andvirði sem svarar 1,2 millj- ónum króna í öryggishólfi ríkisrek- ins banka, ásamt gull- og silfurskartgripum. Hann kvaðst hafa ætlað að lifa á sparifénu í ell- inni og geymt það í bankahólfinu til að koma í veg fyrir að kona hans og börn kæmust í það og eyddu því, að því er fram kemur á fréttavef breska ríkisútvarpsins, BBC. Stjórnendur bankans sögðu að sett hefði verið upp tilkynning í bankanum þar sem varað hefði verið við hvítmaurum í öryggishólfunum og viðskiptavinum sagt að fjarlægja alla seðla og pappíra. Þeir sögðu að bankanum bæri ekki skylda til að greiða kaupmanninum bætur. Kaupmaðurinn hafði ekki farið í bankann í marga mánuði eftir að til- kynningin var sett upp. Maurar átu allt spariféð

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.