Morgunblaðið - 08.04.2008, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2008 41
VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI,
KEFLAVÍK OG SELFOSSI
/ KRINGLUNNI
STÓRA PLANIÐ kl. 8 - 10:10 B.i. 10 ára
LARS AND THE REAL GIRL kl. 8 LEYFÐ
SHUTTER kl. 10:10 B.i. 10 ára
- Sigurjón M. Egilsson
Mannlíf
eeee ,,Myndin er sannarlega þess virði
að fólk flykkist á hana.“
- Páll Baldvin Baldvinnsson
Fréttablaðið
eee
,,Pétur Jóhann í toppformi
í aðalhlutverkinu í bland
við bráðskemmtilega
toppleikara og furðufugla..."
- Snæbjörn Valdimarsson
Morgunblaðið
eee
,,Góð framleiðsla með topp
leikurum í öllum hlutverkum,
sem óhætt er að skella
gæðastimplinum á."
- Stefán Birgir Stefánsson
sbs.is
SÝND Í ÁLFABAKKA
/ SELFOSSI/ KEFLAVÍK
STÓRA PLANIÐ kl. 8 - 10 B.i. 10 ára
SEMI - PRO kl. 8 LEYFÐ
JUNO kl. 10 LEYFÐ
FOOL'S GOLD kl. 6D - 8D- 10:10D B.i. 7 ára DIGITAL
STÓRA PLANIÐ kl. 8:10D - 10:10D B.i. 10 ára DIGITAL
HANNA MONTANA kl. 6 3D LEYFÐ 3D DIGITAL
JUNO kl. 8 - 10 B.i. 7 ára
UNDRAHUNDURINN ísl tal kl. 6 LEYFÐ
FOOL'S GOLD kl. 8 - 10 B.i. 7 ára
STÓRA PLANIÐ kl. 8 - 10 B.i. 10 ára
/ AKUREYRI
SÝND Á SELFOSSI
Frábær
grínmynd
SÝND Í KEFLAVÍK
SÝND Í ÁLFABAKKA
OG KRINGLUNNISÝND Í ÁLFABAKKA
eeeee
Rás 2
eeee
- 24 Stundir
eeee
- V.J.V. Topp5.is/FBL
eeee
- S.U.S. X-ið 97.7
SÝND Í KRINGLUNNI
OG KEFLAVÍKSÝND Í ÁLFABAKKA
l
SÝND Í KRINGLUNNI
Enn get ég ekki annað en grátið þaumistök að ekki skyldi gert ráð fyrirþví að Íslenska óperan hefði aðsetur í
Tónlistarhúsinu sem nú rís við Höfnina.
Langbestu rökin fyrir því að Óperan hefði átt
að eiga þar heima, voru fram reidd í Gamla
bíói á sunnudagskvöldið, þegar sem Óp-
erustúdíó Íslensku óperunnar frumsýndi Cosi
fan tutte eftir Mozart með ungu fólki, nýbúnu
í námi, eða enn í námi, í öllum hlutverkum.
Það var stórskemmtileg óperusýning, sem
gaf „fullorðins“ sýningum Íslensku óp-
erunnar lítið sem ekkert eftir; og var jafnvel
betri en sumar þeirra.
Óperustúdíó er ekki fullfleygt óperuhús. Í
þessu tilfelli voru valdir úrvalsnemendur úr
ýmsum tónlistarskólum eftir að þeir höfðu
þreytt áheyrnarpróf í söng og hljóðfæraleik.
Uppsetninguna annaðist fagfólk; Ágústa
Skúladóttir var leikstjóri; Daníel Bjarnason
var hljómsveitarstjóri, Guðrún Öyahals hann-
aði leikmynd, Katrín Þorvaldsdóttir búninga
og Páll Ragnarsson lýsingu. Það er því í góðri
samvinnu við fagfólk sem krakkarnir fá að
spreyta sig við að skapa „alvöru“ sýningu, á
allt öðru og hærra plani en gengur og gerist
með nemendasýningar.
Og þvílík ópera að glíma við í fyrstu at-rennu. Cosi fan tutte er vel valin að því
leyti, að þar er ekki mikið um stórar ein-
söngsaríur sem reyna í þolrifin á einstaka
röddum, en þeim mun meira af dásamlegum
samsöngsatriðum. Því reynir meira á sam-
söng en á einsöng, þótt vissulega hafi allar
söngvararnir í aðalhlutverkum sín númer. En
það er ekki heldur hægt að segja að Cosi fan
tutte sé léttmeti að glíma við, sama hve ljúfur
og léttur Mozart kann að virðast. Samsöng-
urinn er þrælerfiður og krest nákvæmrar
inntónunar, nákvæmra innkoma og stöðugra
tengsla við aðra á sviðinu. Og þannig er það
nánast allan tímann. Aríuleysið hefur hamlað
vinsældum Cosi fan tutte miðað við aðrar óp-
erur Mozarts eins og Brúðkaup Fígarós og
Töfraflautuna, en algjörlega að ósekju. Mér
finnst hún ekki síðri, einmitt fyrir dásamleg
samsöngsatriðin.
Sagan er mjög í anda Mozarts og segir frásætum systrum tveim, Fiordiligi og
Dorabellu, sem eiga að unnustum vini tvo,
Guglielmo og Ferrando, sem báðir eru liðs-
foringjar og flottir gaurar. Þá kemur að einu
af uppáhaldsplottum Mozarts, - að sýna hvað
þjónustufólkið er klárt og aðallinn sauðir upp
til hópa; og heimilisþjónnn systranna Don
Alfonso telur ungu mönnunum trú um að þeir
þurfi að láta reyna á hversu trúar systurnar
eru þeim. Hann fær í lið með sér þjón-
ustustúlkuna Despínu, sem er líka súperklár
og kann tökin á systrunum. Það þarf ekki að
segja meira um söguna, freistingarnar eru
sætar, en gætu bitnað harðast á þeim sem
þær leggja.
Ungu söngvararnir voru fantagóðir. Jón
Svavar Jósepsson sem Guglielmo er lýrískur
og bjartur bariton með fallega rödd, Sveinn
Dúa Hjörleifsson tenor í hlutverki Ferrandos
býr yfir einstakri rödd, sem er svo hlý og un-
aðsleg, að maður gæti hugsað sér að hlusta á
hana endalaust. Þessi efnilegi stákur hefur
sungið einsöng á tónleikum Karlakórs
Reykjavíkur í nokkur ár, en nú er þetta
leyndarmál að spyrjast út, og spurning hve
lengi enn hann syngur með kórnum. Sólveig
Samúelsdóttir sem Dorabella, er hár mezzó,
og hennar rödd er mjög fallega skóluð, jöfn
og breið á öllu raddsviðinu. Steinunn Skjens-
tad sópran, í hlutverki Fiordiligi á kannski
aðeins lengra í land raddlega, en stóð sig af-
skaplega vel. Hún þarf að taka út meiri
þroska og syngja meira, og henni verða allir
vegir færir. Þorvaldur Þorvaldsson og Unnur
Möller voru kostuleg og kómísk í hlutverkum
möndlaranna.
Þá var ekki síður gleðjandi að sjá ungan og
sprækan kór á sviði Íslensku óperunnar.
Þetta var firnagóð sýning og framúrskar-andi skemmtileg, full af húmor, gleði og
Mozartískum léttleika. Það var ekki síst stór-
góðri hljómsveitarstjórn Daníels Bjarnasonar
að þakka hve sýningin rann vel áfram. Sjálf-
ur lék hann resitatívin á sembalinn, og ein-
stöku sinnum mátti heyra hann bjarga söngv-
urum með innkomur; það var ekki þess eðlis
að það hefði ekki getað gerst á sýningu at-
vinnufólks.
Framtíðin óperu á Íslandi er björt meðslíkt á leið inn á sviðið. Stóra spurningin
er hvort þetta fólk fái sanngjörn tækifæri á
Íslandi, eða haldi áfram eins og kynslóðin á
undan þeim, að gleðja þýska óperugesti.
Freistingarnar unaðslegu
AF LISTUM
Bergþóra Jónsdóttir
Góð Jón Svavar, Steinunn, Þorvaldur, Sólveig og Sveinn Dúa í hlutverkum sínum.
» Stóra spurningin er hvortþetta fólk fái sanngjörn
tækifæri á Íslandi, eða haldi
áfram eins og kynslóðin á
undan þeim, að gleðja
þýska óperugesti.
begga@mbl.is
„EINLEIKARAR þurfa að kaupa
sér undirleikara, leigja sal og þurfa
að vera heilmikið í því að auglýsa
sig upp. Þetta er mikið mál og það
eru ekki alltaf þeir bestu sem verða
frægir, það er fullt af góðu fólki
sem er bara ekki mikið að láta bera
á sér,“ segir Kristinn Örn Krist-
insson píanóleikari og einn stofn-
enda Félags til stuðnings ungu tón-
listarfólki. Það stendur á bak við
tónleikaröðina Tónsnillingar morg-
undagsins sem er að hefjast til þess
að gefa nýútskrifuðu fólki tækifæri
til þess að kynna sig. Bragi Berg-
þórsson tenór og Elfa Rún Krist-
insdóttir fiðluleikari koma fram á
fyrstu tónleikunum í kvöld.
Kristinn segir að það vanti vett-
vang fyrir fólk sem er að byrja að
vinna fyrir sér sem listamenn.
„Fólk kemur heim og þarf að vinna
við eitthvað og fer þá oft út í
kennslu. Til þess að sjá fyrir sér
þarf að kenna mjög mikið og þá
verður lítill tími fyrir annað. Það
er líka bara þannig að þegar fólk
er á þessu stigi er því nauðsynlegt
að fá tækifæri og æfingu í því að
koma fram,“ segir Kristinn. Félag-
inu tókst að ýta verkefninu úr vör
með framlagi frá Menningarsjóði
Kaupþings og vonast er til að fjár-
magn fáist til þess að halda því
áfram.
Á tónleikunum í kvöld verða flutt
verk eftir Franz Schubert, Bragi
syngur ljóðaflokkinn „Schwanen-
gesang“ og Elfa Rún flytur Sónötu
fyrir fiðlu og píanó í A-dúr, D 574.
Bragi lauk námi síðastliðið sum-
ar. „Þetta er frábært tækifæri og
gott að fá svona smástökkpall. Það
er gott að þurfa ekki að vera að
harka og koma sér á framfæri,“
segir hann.
Tónleikarnir fara fram í Salnum
í Kópavogi klukkan átta og að-
gangseyrir er 2.000. Tónlist-
arnemar sem eru átján ára eða
yngri fá ókeypis inn.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tónsnillingar Píanóleikarinn Kristinn Örn með þeim Elfu Rún og Braga.
„Ekki alltaf þeir bestu sem verða frægir“
www.tonsnillingar.is