Morgunblaðið - 08.04.2008, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 08.04.2008, Blaðsíða 44
ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 99. DAGUR ÁRSINS 2008 »MEST LESIÐ Á mbl.is »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2800 HELGARÁSKRIFT 1700 PDF Á MBL.IS 1700 SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana ÞETTA HELST» Al Gore á Íslandi  Nóbelsverðlaunahafinn og fyrr- verandi varaforseti Bandaríkjanna Al Gore kom til Íslands í gær og hitti forseta Íslands að máli og íslenska vísindamenn. Gore er einn þekktasti talsmaður þess að gripið verði til að- gerða til að sporna gegn áhrifum loftslagsbreytinga. » Miðopna Frá hafi og haga til maga  Lögð er áhersla á að samræma löggjöf og eftirlit með matvælum á öllu Evrópska efnahagssvæðinu, „frá hafi og haga til maga“ og bann við innflutningi á hráu kjöti skv. frumvarpi til nýrra mat- vælalaga. » Forsíða Hrossum bjargað úr eldi  Átta hrossum var bjargað úr hest- húsahverfi Sörla í Hafnarfirði þegar eldur kviknaði í kaffistofu og hnakkageymslu þar við hlið í gær. Nokkrir hestar fengu þó snert af reykeitrun. » 2 Ólympíueldurinn slökktur  Ólympíueldurinn var slökktur nokkrum sinnum í París í gær vegna mótmæla þegar hlaupið var með hann um borgina. Kínverskir skipu- leggjendur hlaupsins gáfust á end- anum upp þegar kyndillinn hafði verið borinn um helming leiðarinnar sem átti að hlaupa. » Miðopna SKOÐANIR» Ljósvakinn: Hljóðneminn kominn til sögunnar Staksteinar: Ráðherrar og einkaþot- ur Forystugreinar: Stóriðjustefna í uppnámi | Rýmum til fyrir gangandi fólki UMRÆÐAN» Hrósum fyrir gott samstarf Bolla svarað Hervæðing Íslands Krossgötur  #*  * * *%  %*%#% #* 5 )6+ 1 . ) 7      3  %% *#% #*  * *# *#% *# %* #* 0 8 3 +  #*  * * *  %* #* 9:;;<=> +?@=;>A7+BCA9 8<A<9<9:;;<=> 9DA+88=EA< A:=+88=EA< +FA+88=EA< +4>++AG=<A8> H<B<A+8?H@A +9= @4=< 7@A7>+4.+>?<;< Heitast 0° C | Kaldast -7° C Norðaustan og aust- an 5-10 m/s og stöku él en léttskýjað að mestu suðvestanlands og skúrir á Suðurlandi. » 10 Páll Óskar hefur kynnt sér framlag annarra þjóða til Evróvisjón og segir að róðurinn verði þungur. » 36 TÓNLIST» Í góðum höndum LEIKLIST» Maðurinn sem uppgötvar að hann er ljótur. » 43 Einn er risastórt barn, hinn hógvær; ein frek, hin vill fara. Martin S. Regal skrifar um Gítarleik- arana. » 39 LEIKLIST» Perlum hent inn TÓNLIST» Freistingarnar unaðs- legar og sætar. » 41 MYNDLIST» Leyfum upplifuninni að hellast yfir okkur. » 36 reykjavíkreykjavík VEÐUR» 1. Feðgin eiga barn saman 2. Skotið á flutningabíl? 3. Andlát: Geir Gunnarsson 4. „Fimm loftsteinar ekki tilviljun“  Íslenska krónan styrktist um 2,3% SEXTÁN ára gömul íslensk stúlka, Kristín Krisúla Tsoukala, er komin í gríska landsliðið í sundknattleik. „Það er auðvitað bara æði að vera komin í lands- liðið,“ sagði Kristín í samtali við Morgun- blaðið. Gríska kvennalandsliðið er þegar búið að tryggja sér rétt til keppni á Ólympíuleik- unum í Peking í sumar og stefnir Kristín að því að keppa þar, en gríska landsliðið hreppti silf- urverðlaun í sundknattleik á síð- ustu Ólympíuleikum. Kristín á íslenska móður og grískan föður og er fædd og uppal- in í Grikklandi en segist elska að koma til Íslands og ætlar að setj- ast hér að þegar hún verður orðin aðeins eldri. | Íþróttir Í grísku landsliði Kristín Krisúla Tsoukala HRÓÐUR frístundakorts ÍTR hefur borist út fyrir landsteinana og hugs- anlega verður það tekið upp að ís- lenskri fyrirmynd í öðrum Evrópu- löndum. Í það minnsta vantaði ekki hrifn- ingu þingmanna Evrópuþingsins er þeir fengu kynningu á kortinu ný- verið og eru þingmenn að kanna möguleika á upptöku kortsins. | 4 Frístunda- kort í útrás Morgunblaðið/ÞÖK HÚN hafði verið skilin eftir í bíl í marga daga og var illa hirt þegar hún loks komst í athvarf katta í Kattholti í gær. Það var starfsfólk Kynnisferða sem kom læðunni til bjargar og í Kattholti fékk hún fyrsta flokks með- ferð, m.a. skoðun hjá dýralæknum sem segja hana á batavegi. Til að kanna hvort kisa væri örmerkt og hægt væri að hafa uppi á eigandanum, var hún skönn- uð í bak og fyrir og lét sér örugg handtök dýralækn- anna vel lynda. Hún reyndist ómerkt og eigandinn enn óþekktur. | 6 Flókin kisa fékk fyrstu hjálp Læða fannst í bíl fyrir utan BSÍ illa á sig komin Morgunblaðið/Árni Sæberg Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson orsi@mbl.is KRISTJÁN Bóasson vélsleðamað- ur, sem slasaðist í snjóflóði undir Kollaleirutindi í Reyðarfirði á sunnudag, er á batavegi og útskrif- aðist af sjúkrahúsi í gær. Hann slapp við beinbrot en hlaut heilahristing og marðist nokkuð. Kristján hefur um langt árabil stundað vélsleðaakstur án þess að lenda í óhappi og var mjög vel útbúinn til aksturs þegar slysið varð. Hann var á sleða af gerðinni Polaris 800 RMK og með honum voru félagar hans á öðrum sleðum. Lá leiðin undir Kollaleirutind og tók Kristján stefnuna upp í hlíð fjallsins til að taka u-beygju eins og vélsleða- menn gera gjarnan sér til gamans. „Það var bjart og fallegt veður þegar við vorum að leika okkur,“ segir hann. „Ég tók fallega u-beygju í fjallshlíðinni sem þó var ekki brött miðað við aðrar brekkur sem ég hef ekið upp. Þegar ég byrjaði að snúa sleðanum undan halla tók ég eftir því að sprunga hafði myndast í snjónum fyrir neðan. Þetta olli því að það myndaðist um 150 cm hár kantur sem ég ók fram af á niðurleiðinni. Ég átti enga möguleika á að beygja frá sprungunni.“ Sleði Kristjáns lenti því á harð- fenni sem var undir snjóflekanum sem rann niður brekkuna en sjálfur lenti Kristján ekki undir flóðinu heldur féll af sleðanum og kútveltist niður harðfennið. „Þetta gerðist gífurlega hratt, lík- lega á sekúndubroti. Ég hef verið á vélsleðum í mörg ár en þetta er í fyrsta sinn sem ég slasa mig. Ég tel mig allajafna fara gætilega en maður veit þó aldrei hvenær slys geta orð- ið.“ Kristján var í sérstakri brynju fyrir vélsleðamenn sem ver þá gegn höggum og auk þess var hann með olnboga- og hnjáhlífar auk hlífðar- hjálms. Segir hann brynjuna hafa mikið notagildi. Kristján hlaut sár á vör og blóð- nasir sem hann telur hafa komið þegar hjálmurinn slóst til í byltunni en í fyrstu var talið að aðskotahlutur hefði þrengt sér inn í hjálminn og sært Kristján. Segir hann skipta miklu máli að búa sig rétt þegar farið er í vélsleðaferðir. Kristján vill koma á framfæri þökkum til allra þeirra sem komu að björgun og umönnun eftir slysið. „Gerðist gífurlega hratt“ Kristján Bóasson vélsleðamaður sem ók ofan í sprungu eftir flekahlaup í Kollaleirutindi á Reyðarfirði er á batavegi Morgunblaðið/Ómar Vélsleðaakstur Vinsæl útivist en ekki hættulaus með öllu. ♦♦♦ MIKILL bati hefur orðið í atvinnu- lífinu á Austurlandi í kjölfar virkj- unar- og stóriðjuframkvæmda. At- vinnuleysi hefur þó aukist frá því í október sl. en hafði þá verið í lág- marki í rúm fjögur ár. Vaxandi vönt- un er á fólki í leik- og grunnskóla, fé- lagsþjónustu og til starfa á sjúkra- húsum. | 16 Vantar fólk í skólana

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.