Morgunblaðið - 08.04.2008, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 08.04.2008, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2008 15 MENNING TÓNAR við hafið verða í Versölum í Þorlákshöfn kl. 20 í kvöld. Þar verður leikin tónlist eftir ýmsa tónsnillinga og af ólíkum meiði. Flutt verður syrpa þekktra laga Bítl- anna og í kjölfarið flutt- ur hluti af kvartett eftir Beethoven, leikinn verð- ur rólegur blús og síðan aftur boðið upp á Beetho- ven. Þá verður líka spiluð sígaunatónlist og annað það sem meðlimum Sardas-kvartettsins dettur í hug. Kvartettinn skipa þeir Martin Frewer og Kristján Matthíasson á fiðlu, Guðmundur Krist- mundsson á víólu og Arnþór Jónsson á selló. Tónlist Beethoven og Bítl- arnir tóna við hafið Sardas kvartettinn SKÁLDASPÍRUR hafa nú hreiðrað um sig í Skagafirð- inum og í kvöld verður 96. Skáldaspírukvöld e. Kr. haldið í Villa Nova á Sauðárkróki, í samvinnu við söngskóla Alex- öndru! Skáldaspírukvöldið hefst kl. 20 og þeir sem lesa upp að þessu sinni eru: Gísli Þór Ólafsson sem les úr nýút- gefinni bók: Ég bið að heilsa þér og leikur höfundur jafn- framt frumsamin lög á gítar. Jón Ormar Ormsson les ljóð eftir Þorstein frá Hamri og Sigfús Daðason. Benedikt S. Lafleur, les úr skáldsögunni Brotlending. Bókmenntir Skáldaspírur í Villa Nova á Króknum Villa Nova Sauð- árkróki, suður og austurhlið Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is STJÓRN Hönnunarmiðstöðvar Ís- lands réði nýverið Höllu Helgadótt- ur hönnuð í stöðu framkvæmda- stjóra miðstöðvarinnar. Halla er einn af upphafsmönnum og stofnendum auglýsingastofanna Grafíts og Fíton og hefur víðtæka reynslu úr heimi grafískrar hönn- unar og auglýsinga en hún hefur einnig unnið sem hönnunarstjóri, listrænn stjórnandi, verkefnastjóri, teiknistofustjóri, haft umsjón með viðskiptatengslum, áætlanagerð og viðskiptaráðgjöf. Hún hefur unnið náið að auglýsinga- og markaðs- málum fyrir marga viðskiptavini í ólíkum geirum. Halla hefur einnig kennt í hönn- unardeild Listaháskóla Íslands ásamt því að vera prófdómari. Hún hefur komið fram í fjölmiðlum og víða haldið fyrirlestra um auglýs- inga- og markaðsmál. Einnig hefur hún setið í mörgum stjórnum félaga sem tengjast hagsmunamálum hönnuða á Íslandi og erlendis. Hönnuðir við stjórnvölinn Starfræksla Hönnunarmiðstöðvar er ný af nálinni og langþráður draumur íslenskra hönnuða og áhugafólks um hönnun. Forveri hennar er Hönnunarvettvangur sem var tímabundið verkefni. Halla segir Hönnunarmiðstöðina verða sjálfstæða stofnun og að þar muni hönnuðir fara með stjórn- artaumana. Til að byrja með verður miðstöðin til húsa í Fógetahúsinu í Aðalstræti. „Eitt af fyrstu verkefnum okkar er að finna miðstöðinni varanlegt húsnæði í átt við það sem hönn- unarmiðstöðvar erlendis búa við. Svo er að móta og skapa Íslenska hönnunarmiðstöð. Aðalverkefni okkar eins og þau hafa verið skil- greind verða að standa fyrir sýn- ingum og fyrirlestrum og efla ímynd íslenskrar hönnunar bæði hérlendis og erlendis. Þá er það ekki síst stórt verkefni að koma á öflugu samstarfi milli hönnuða og atvinnulífsins. Stór þáttur í starf- seminni ætti að verða að koma á ný- sköpun í atvinnulífinu. Það er stóra markmiðið að slíkt samstarf verið byggt upp og að framgangur hönn- unar í atvinnulífinu verði tryggður. Hönnun gæti orðið stór atvinnuveg- ur, þótt við byrjum ekki þar á fyrsta degi.“ Halla segir íslenskri hönnun hafi vaxið gríðarlega ásmegin síðustu ár. „Grasrótin í hönnuninni hér er mjög öflug og mjög tímabært að Hönn- unarmiðstöð verði opnuð. Það er mikilvægt að vinna að kynningu á íslenskri hönnun, þannig að þetta er mjög spennandi og ögrandi starf. Ráðuneyti tryggja rekstur Iðnaðarráðuneytið og mennta- málaráðuneytið hafa gert samning til þriggja ára við Hönnunarmið- stöðina og í honum felst að mið- stöðin vinni ákveðin verkefni, sam- kvæmt markmiðaskrá, en fái 20 milljónir á ári til rekstrarins. „Þetta fjármagn á að tryggja reksturinn. Verkefnin sem við komum til með að vinna að verða væntanlega flest í samstarfi við aðra og það þarf að standa fyrir fjáröflun til þeirra,“ segir Halla Helgadóttir fram- kvæmdastjóri Hönnunarmiðstöðvar Íslands. Halla Helgadóttir er nýráðinn framkvæmdastjóri Hönnunarmiðstöðvar Íslands Hönnun gæti orðið stór atvinnuvegur STOFNENDUR hönnunarmiðstöðvarinnar eru níu fagfélög hönnuða og arkitekta; Félag vöru- og iðnhönnuða, Fatahönnunarfélag Íslands, Félag íslenskra gullsmiða, Félag íslenskra landslagsarkitekta, Textílfélagið, Fé- lag húsgagna- og innanhúsarkitekta, Félag íslenskra teiknara, Arkitekta- félag Íslands og Leirlistarfélag Íslands. Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Níu félög hönnuða og arkitekta VERKEFNIÐ New Writing Vent- ures sem hóf göngu sína hjá útgáfu- risanum Macmillan fyrir tveimur árum felst í því að öllum kostnaði við útgáfuna er haldið í lágmarki. Höfundar fá engar fyrirfram- greiðslur en fá á móti stærri hluta af sölutekjum og eru hvattir til þess að útvega sjálfir ritstjórn og yfirlestur á verkum sínum. Bóksalar hafa heldur ekki skilarétt á óseldum bók- um eins og hefð er fyrir. Útgáfufyr- irtækið tekur því litla áhættu með útgáfunni heldur eru það rithöfund- urinn og bókaverslanirnar sem sitja uppi með tapið ef bækurnar seljast ekki. Breska dagblaðið Guardian segir þetta vera það sem koma skuli í bókaútgáfu og líkir þessum vinnu- brögðum við þau sem tíðkast hjá lággjaldaflugfélögum, að allur óþarfakostnaður sé skorinn burt. Robert S. Collins, sem mun stýra svipuðu verkefni hjá Harper- Collins, segir markmiðið ekki ein- göngu að spara heldur að gefa út fjölbreyttari bókmenntaverk. „Vin- sælir höfundar eru undir miklum þrýstingi að bæta fyrri sölutölur og óþekktir höfundar eiga sífellt erf- iðara með að fá verk sín útgefin,“ segir Miller. Með því að minnka áhættuna fyrir útgefendur fá rithöf- undarnir meira svigrúm og þurfa ekki að standa undir jafn mikilli sölu til þess að réttlæta útgáfu. Bókaútgáfa í endurskoðun Engar fyrirfram- greiðslur, engin skil MAXIM Vengerov, fiðlusnilling- urinn rússneski sem heimsótti okk- ur á Listahátíð fyrir nokkrum ár- um, ætlar að hætta að spila á fiðlu opinberlega í bili, að því er erlendir miðlar greina frá. Vengerov hefur átt við þrálát axlarmeiðsli að stríða, og hefur ekki komð fram á tónleikum síðan í júní í fyrra, en nú sér fyrir endann á þeim og öxlin orðin góð. Vengerov, sem er 33 ára, kveðst ætla að nota þau tímamót til að söðla um, leggja fiðluna frá sér og sinna hljómsveitarstjórn í meira mæli en hann hefur áður gert. „Ég er samt ekki hættur að spila, en ég veit ekki hvenær að því kemur að ég tek fiðluna aftur fram,“ sagði hann í samtali við Times í London. Vengerov hefur tekið að sér að sitja í dómnefnd Yehudi Menuhin- fiðlukeppninnar í Cardiff á föstu- daginn, og þar mun hann jafnframt stjórna tónleikum þar sem annar fiðlusnillingur og Íslandsgestur, Joshua Bell, leikur einleik. Vengerov hættur í bili Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is HARPAN ómar með söngröddinni á hádegistónleikum í Íslensku óp- erunni á morgun. Fulltrúi söng- raddarinnar er Ágúst Ólafsson barítonsöngvari en Elísabet Waage leikur á hörpuna. Meðal verkanna á efnisskránni eru tvö íslensk verk sem eiga sér sögu en hafa ekki heyrst áður, þótt nærri tíu ár séu frá því að þau voru samin. Þorkell Sigurbjörnsson samdi annað þeirra og John Speight hitt. „Ég var þá um tíma að vinna með hollenskum söngvara og lögin voru hugsuð fyrir hann“, segir El- ísabet Waage. „Maðurinn veiktist og gekk síðan í klaustur, þannig að aldrei varð neitt úr flutningnum. Ég spurði svo Ágúst, sem er frá- bær söngvari, hvort hann vildi ekki flytja þau með mér og hann var til í það.“ Verk Þorkels heitir Músík, að sögn Elísabetar, og er samið við ljóð eftir Rainer Maria Rilke. Verk Johns Speight er hins vegar við ljóð Göthes, Söngva hörpuleik- arans, en fjölmörg tónskáld hafa samið tónlist við þau. Að auki flytja Ágúst og Elísabet önnur íslensk sönglög, eftir Emil Thoroddsen, Sigvalda Kaldalóns og Jórunni Við- ar í útsetningum fyrir söngrödd og hörpu. Ekki bara hljómar og raul Í dag er það sérstakt að heyra saman söngrödd og hörpu en kær- leikur hefur þó lengi verið með þeim, ekki síst í keltneskri tónlist. „Jú, í þeim löndum þar sem löng hefð hefur verið fyrir hörpuleik og þjóðlagasögn, þá er algengt að hörpuleikarinn syngi sjálfur. Í Wa- les var sérstök hefð sem var svo flókin að það voru ekki bara spil- aðir hljómar undir einhverju rauli, heldur eru bæði hljóðfærið og söng- röddin með sér línu. Í upphafi finnst manni eins og það muni ekki ganga saman, því strófurnar passi ekki, en svo fellur allt saman. Jú, auðvitað hefur harpan alltaf fylgt söng. Hins vegar held ég að það sem til er fyrir hörpu og rödd sé fyrir hærri raddir. Sjálfri finnst mér dekkri raddirnar hæfa henni betur. Þá kemur mýktin betur í ljós – og andstæðurnar.“ Tónleikarnir hefjast kl. 12.15 en þess má geta að Ágúst Ólafsson var tilnefndur til Íslensku tónlist- arverðlaunanna 2007. Söngrödd og harpa frumflytja tvö verk á hádegistónleikum í Óperunni á morgun Harpan hefur alltaf fylgt söngröddinni Morgunblaðið/Árni Sæberg Hörpuljóð Elísabet Waage segir dökkar raddir ekki síður góðar með hörp- unni en bjartar. Hér eru þau Ágúst Ólafsson á æfingu. Í HNOTSKURN » Halla Helgadóttir er graf-ískur hönnuður að mennt og hefur starfað í auglýsingabrans- anum í 20 ár. » Hönnunarmiðstöð Íslandsmun verða staðsett til bráða- birgða í Aðalstræti 10, þar sem rekin er m.a. hönnunarverslunin Kraum og Handverk og Hönnun hefur aðsetur. » Hönnunarmiðstöðin nýtur 20milljóna kr. styrks frá menntamála- og iðnaðarráðu- neytum en ber í staðinn að vinna að ákveðnum verkefnum sam- kvæmt markmiðaskrá. ♦♦♦ SÍÐASTI fyrirlestur Mann- fræðifélagsins á þessu starfs- ári verður í kvöld kl. 20 í Reykjavíkurakademíunni. Þá talar Helga Þórey Björnsdóttir um efnið „Hið sanna macho: hugmyndir um karlmennsku, líkama og atbeina“. Efni fyr- irlestrarins er sótt í dokt- orsrannsókn Helgu í mann- fræði við Háskóla Íslands. Rannsóknin skoðar menning- ar- og félagslegar hugmyndir um karlmennsku og kyngervi í tengslum við Íslensku friðargæsluna. Helga Þórey Björnsdóttir lauk MA-prófi í mann- fræði við Háskóla Íslands árið 2004. Fræði Mannfræðingar ræða karlmennið Karlmennska, ein tegund.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.