Morgunblaðið - 08.04.2008, Side 27
sér í hressingu út á „Skalla“ í Lækjar-
götunni. Þá skrafaði hann um alla
heima og geima, svo hress og kátur að
mér fannst ég sjálf vera óttalega leið-
inleg fyrir svo skemmtilegan mann.
Seinna, þegar ég varð aðeins eldri
var mér svo treyst til að verða síma-
dama á BSR. Þá svaraði maður í síma
og sendi bíla í gegnum talstöð um allan
bæ. Það var ekki lítil upphefð.
Sumrin á BSR voru viðburðarík og
björt. Ég var glöð og stolt að vera
frænka forstjórans því ég fann að öll-
um þótti vænt um hann.
Það eru mörg ár síðan þá. En alltaf
hitti ég hann af og til. Hann var au-
fúsugestur heima í Njörvasundi hjá
foreldrum mínum og þó að aldurinn
færðist yfir var enn þetta stríðnisblik í
auga og snaggaralega viðmót.
Síðustu árin dvaldist Eggert á
hjúkrunarheimilinu Sóltúni með eig-
inkonu sinni Kristbjörgu en hún lést á
síðasta ári. Þau eignuðust einn son
Guðmund Börk sem nú stýrir BSR.
Ég votta systrum Eggerts, Guð-
mundi Berki og afastrákum innilega
samúð mína.
Ingunn Thorarensen.
Nú þegar móðurbróðir minn Egg-
ert Thorarensen er allur, hverfur hug-
ur minn í myndasafn minninganna. Ég
er stödd í skúrnum hans Eggerts í
BSR-portinu við Lækjargötu. Mætt til
vinnu 13 ára gömul. Auðvitað getur
stelpukorn dælt bensíni og olíu á alla
fínu leigubílana sem aka fyrir BSR.
Eggert tekur á móti mér með kank-
vísu brosi og blíðu augnaráði og dreg-
ur uppúr pússi sínu skínandi nýja
vinnuvettlinga. Nú skal kenna þeirri
stuttu handtökin við dæluna. Fyrsta
lexía: Er þetta bensín- eða dísilbíll?
Það fer um stelpuræfilinn, hvernig í
ósköpunum er hægt að vita það? Jú á
hljóðinu stelpa mín. En fyrsti bíllinn
er kominn. Eggert stekkur upp, kvik-
ur í hreyfingu hleypur hann við fót að
dælunni, „Sjáðu nú“ og kennir á dæl-
una. Stuttu síðar er stelpukornið orðin
dæludrottning Íslands, fullviss um
eigið ágæti og vísdóm um eldsneyti og
bíla. En lítið veit hún. Fyrstu mistökin
bíða rétt handan við hornið. „Fyll’ann“
hrópar stór og mikill bílstjóri. Kot-
roskin og til þjónustu reiðubúin fyllir
hún drekann. Sótrauður birtist hann
aftur bílstjórinn; „hvað ertu að gera
stelpa seturðu bensín á dísilbíl“.
Strangur á svip kemur Eggert til
hjálpar. Titrandi bíður hún í skúrnum
eftir skömmum en hlýlega strýkur
frændinn tárvotan vangann „svona,
svona maður lærir af mistökunum,“
gott ef hann felur ekki bros. Sólin skín
á ný.
Nokkur ár líða. Stöðuhækkun. For-
láta símaborð og talstöð, kennarinn er
Eggert frændi nú sem fyrr. Stelpu-
gopinn er orðin símadama. „Háaleiti,
Háaleitissvæði“. Vinnur á vöktum og
fylgist með næturlífi Reykvíkinga sem
oft á tíðum er skrautlegt. Fólk bíður í
röðum fyrir utan eftir bílum, orðræð-
an stundum miður falleg. Fyrsta lexía:
Við tölum ekki um viðskiptavinina.
Óskráð regla, við erum bundin þagn-
areið. Það er gaman í vinnunni. Það er
komið að fyrstu launagreiðslu fyrir
nýtt starf. Símadaman gengur í gegn-
um bílstjóraherbergið, einkennilegan
karlaheim í huga unglingsstúlku og
inn á skrifstofu til Eggerts sem með
viðurkenningarsvip réttir henni þykkt
umslag stútfullt af brúnum fimmþús-
undkrónaseðlum. Mikið er hún glöð og
stolt. Og enn skín sólin. Þau eru nokk-
ur sólrík sumrin sem hún á eftir að
vinna á BSR.
Ég minnist frænda míns með hlýju
og þakklæti. Hann var snar og kvikur í
hreyfingu og lund og einstaklega
barngóður. Vandur að virðingu sinni
en alltaf stutt í hlýtt augnaráðið og
kankvíst brosið. Strangur en sann-
gjarn vinnuveitandi og gekk sjálfur í
öll störf ef svo bar undir. Hann kenndi
mér að vinna. Þegar stórfjölskyldan
kom saman birtist hann skyndilega,
hló hátt, skellti sér á lær, tók í nefið og
snýtti sér virðulega með rauðum tób-
aksklútnum. Alltaf gustaði hressilega
af honum og svo var hann horfinn jafn
skyndilega og hann birtist. Um leið og
ég kveð móðurbróður minn vil ég
votta einkasyni hans Guðmundi Berki
og öllum aðstandendum mína innileg-
ustu samúð. Blessuð sé minning Egg-
erts Thorarensen.
Ingunn Ósk
Sturludóttir.
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2008 27
Alvöru blómabúð
Allar skreytingar unnar af fagfólki
Kransar • Krossar • Kistuskreytingar
Sími: 553 1099 • Fax: 568 4499
Heimasíða: www.blomabud.is
Netfang: blomabud@blomabud.is
Fallegir legsteinar
á góðu verði
Englasteinar
Helluhrauni 10
Sími 565 2566 - www.englasteinar.is
Sendum
myndalista
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma,
KRISTÍN JÓNA GUÐBJARTSDÓTTIR,
áður til heimilis að Grenimel 26,
Reykjavík,
lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund laugar-
daginn 29. mars
Að eigin ósk var hún jarðsungin í kyrrþey frá
Fossvogskapellu mánudaginn 7. apríl.
Guðsteinn Bjarnason, Heiðrún Kristín Guðvarðardóttir,
Hermann Elías Bjarnason,
Steinunn Rós Guðsteinsdóttir, Kolbrún Soffía Arnfinnsdóttir.
✝
Elskulegur eiginmaður og vinur, faðir, tengdafaðir
og afi,
GUNNAR ÖRN GUNNARSSON
myndlistamaður,
Kambi,
Holtum,
lést 28. mars á gjörgæsludeild Landspítalans við
Hringbraut.
Útför hans fer fram frá Neskirkju í Reykjavík,
föstudaginn 11. apríl kl. 13.00.
Jarðsett verður í Hagakirkjugarði.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim
sem vildu minnast hans er bent á að láta SÁÁ njóta
þess.
Þórdís Ingólfsdóttir,
Sigríður Gunnarsdóttir, Rúnar V. Þórmundsson,
Vilhjálmur Jón Gunnarsson,
Gunnar Guðsteinn Gunnarsson, Hafdís Sigurjónsdóttir,
Rósalind María Gunnarsdóttir,
María Björk Gunnarsdóttir, Rasmus Winstrup Johansen,
Snæbjörg Guðmunda Gunnarsdóttir
og barnabörn.
✝
Ástkær faðir minn, tengdafaðir og afi,
GUNNAR G. GUÐMUNDSSON
frá Rafnkelsstöðum, Garði,
Kirkjuvegi 5,
Keflavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja,
þriðjudaginn 1. apríl.
Gunnar verður jarðsunginn frá Útskálakirkju fimmtudaginn
10. apríl kl. 14.00.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á að styrkja Heilbrigðis-
stofnun Suðurnesja. Þar er einstakur hópur starfsfólks.
Unnur Sigurðardóttir, Hreiðar Gíslason,
Thelma María og Aron Ingi.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
EIRÍKUR JÚLÍUS SIGURÐSSON
vélstjóri,
Smáratúni 12,
Keflavík,
verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju, fimmtu-
daginn 10. apríl kl. 14.00.
Anna Vernharðsdóttir,
Leifur Eiríksson, Hildur Ingvarsdóttir,
Guðbjörg Hrefna Blanar, Richard Blanar,
Örn Sævar Eiríksson, Guðlaug Hulda Halldórsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og
langafi,
HÓLMAR FINNBOGASON,
Frostafold 44,
Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi sunnu-
daginn 6. apríl.
Útförin verður auglýst síðar.
Karitas Magný Guðmundsdóttir,
Íris Hildigunn Hólmarsdóttir, Gerald Leonard,
Rut Hólmarsdóttir, Morten Wenneberg,
Halla Björk Hólmarsdóttir, Ríkharður Örn Ríkharðsson,
Jóna Brynja Hólmarsdóttir,
Heimir Örn Hólmarsson, Þórunn Karólína Pétursdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir
og amma,
KRISTÍN MARTEINSDÓTTIR,
Hafraholti 30,
Ísafirði,
varð bráðkvödd laugardaginn 5. apríl.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Svanbjörn Tryggvason,
Brynjar Svanbjörnsson, Bára Berg Sævarsdóttir,
Marteinn Svanbjörnsson, Elín Hólm,
Tryggvi Svanbjörnsson,
Aron Svanbjörnsson
og barnabörn.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir
og afi,
BJARNI PÉTURSSON,
Hjallabraut 15,
Hafnarfirði,
lést af slysförum laugardaginn 5. apríl.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Þórunn S. Kristinsdóttir,
Bjarni Þór Bjarnason, Þórunn Guðmundsdóttir,
Kristinn Ásgeir Bjarnason, Helga Lára Kristinsdóttir,
Berglind Bjarnadóttir, Jón Andrés Valberg,
Gústaf Bjarni og Emil Gauti Valberg.
✝
JENS GUÐMUNDSSON,
áður til heimilis á Hörpugötu 4,
Reykjavík,
lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund, laugar-
daginn 5. apríl.
Útförin verður auglýst síðar.
Júlíus Óskarsson, Þorgerður Jónsdóttir,
Sigurður Óskarsson, Málfríður Björnsdóttir,
Trausti Óskarsson, Sólveig Ívarsdóttir,
Jóhann Óskarsson, Ragnheiður Davíðsdóttir,
Jón Óskarsson, Erla Hálfdánardóttir,
Jens Óskarsson, Íris Helgadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
MARTA SVEINSDÓTTIR,
lést fimmtudaginn 3. apríl að hjúkrunarheimilinu
Skógarbæ.
Ævar Guðmundsson, Sigrún Fríða Óladóttir,
Sveinn Guðmundsson, Sigurveig Sigmundsdóttir,
María Guðmundsdóttir, Kjartan Jóhannesson,
Jörundur Guðmundsson,
Marta Rut, Dagný María og Guðmundur Sigurðarbörn,
barnabörn og barnabarnabörn.