Morgunblaðið - 13.05.2008, Qupperneq 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 13. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
SLÖKKVILIÐ höfuðborgarsvæð-
isins sendi tvo bíla að Vogabakka í
Sundahöfn um klukkan ellefu í
gærmorgun. Þar höfðu 300-600
lítrar af svartolíu farið í sjóinn úr
flutningaskipinu Medemborg, sem
er í leigusiglingum fyrir Eimskip.
Skv. upplýsingum frá slökkviliði
virðist olían hafa sprautast út um
loka á skipinu rétt áður en skip frá
Olíudreifingu lagðist að Medem-
borg til að dæla í það olíu. Ekki er
vitað hvort um bilun eða mannleg
mistök var að ræða.
Að sögn var strax haft samband
við slökkvilið og voru 10-12 manns í
vinnu lungann úr gærdeginum við
hreinsunarstörf. Slökkvilið setti
flotgirðingar í höfnina til að hefta
útbreiðslu olíunnar og dældi svo
upp þeirri olíu sem hægt var að ná,
með fulltingi þriggja bíla frá Upp-
dælingu ehf. Samhliða því var farið
í að þrífa skrokkinn á skipinu, en á
honum var 30-40 fermetra flötur
þakinn olíu. Svartolían er afar
þykk og þurfti að skafa hana af áð-
ur en skipið var þvegið með heitu
vatni. Þegar rætt var við slökkvilið
átti eftir að framkvæma prófun á
lögnum og leiðslum í skipinu og
hreinsa allan búnað slökkviliðsins,
sem var mestallur olíusmitaður.
Aðgerðirnar voru því mjög tíma-
frekar, miðað við umfang lekans.
Svartolíuleki í Sundahöfn
300-600 lítrar láku
úr flutningaskip-
inu Medemborg
Morgunblaðið/Golli
Olía Hægt gekk að dæla olíunni upp og þrífa síðu Medemborgar. Búnaður slökkviliðs varð líka útataður í olíu.
ÚTFÖR Aðalsteins Jónssonar útgerðarmanns fór
fram frá Eskifjarðarkirkju sl. laugardag. Séra Davíð
Baldursson jarðsöng.
Þeir sem báru kistuna voru Kristinn Aðalsteins-
son, Elfar Aðalsteinsson, Þorsteinn Kristjánsson,
Daði Þorsteinsson, Jens Garðar Helgason, Aðal-
steinn Jónsson Þorsteinsson, Haukur Björnsson og
Magnús Bjarnason. Svo þekktur og vel liðinn var Að-
alsteinn að kirkjan var yfirfull af fólki og var jarð-
arförinni að auki sjónvarpað í félagsheimilið Valhöll
á Eskifirði.
Aðalsteinn, sem stundum var kallaður Alli ríki,
lést 30. apríl, 86 ára að aldri. Hann var lengi einn af
helstu forystumönnum í íslenskum sjávarútvegi, var
hann m.a. forstjóri sjávarútvegsfyrirtækisins Eskju í
41 ár auk þess að gegna mörgum trúnaðarstörfum.
Morgunblaðið/Helgi Garðarsson
Aðalsteinn Jónsson borinn til grafar
ENGINN hefur verið handtekinn í
tengslum við greiðslukortasvindl
sem átti sér stað hér á landi fyrir
helgi, skv. upplýsingum frá lögregl-
unni í Reykjavík.
Á föstudag varð vart við óeðlilega
miklar og margar úttektir af erlend-
um kortum og í ljós kom að ekki var
allt með felldu. Að sögn Hauks
Oddssonar, framkvæmdastjóra
Borgunar hf., tókst að svo gott sem
einangra þau kortanúmer sem um
var að ræða og loka á frekari úttekt-
ir af þeim. Starfsmenn Borgunar
urðu svo varir við að reynt var að
taka meira út af kortunum um
helgina, en viðkomandi fékk þá ein-
ungis höfnun á kortið. Haukur segir
upphæðirnar sem náðust út af kort-
um sem Borgun þjónustar hafa ver-
ið óverulegar, eða undir 100 þúsund
krónum í heildina. Að sögn Þórðar
Jónssonar, sviðsstjóra hjá Valitor,
voru samsvarandi upphæðir hjá
þeim á bilinu 200-300 þúsund krón-
ur. Gripið var til svipaðra aðgerða
hjá Valitor, að takmarka úttektir af
kortum með óeðlilega virkni.
Korta-
svindlarar
enn lausir
Á fjórða hundrað
þúsunda svikin út
MBL.IS og Morgunblaðið eru þeir
fjölmiðlar sem svonefndir áhrifa-
valdar leita fyrst eftir fréttum úr
viðskiptalífinu. Þetta má lesa út úr
niðurstöðum trausts- og trúverðug-
leikakönnunar Capacent Gallup, er
gerð var meðal þeirra sem alþjóð-
lega ráðgjafarfyrirtækið Edelman
skilgreinir sem áhrifavalda, þ.e. há-
skólamenntaðra stjórnenda og sér-
fræðinga á aldrinum 25-64 ára, sem
eru í tekjuhæsta fjórðungi og fylgj-
ast með umræðu um stjórnmál og
viðskipti. Um ríflega 200 manna úr-
tak var að ræða í netkönnun sem
framkvæmd var 23. apríl til 4. maí
sl. Um 70% svarenda voru karlar.
Um 60% aðspurðra sögðust leita
fyrst á mbl.is eftir fréttum úr við-
skiptalífinu, 13% nefndu Morgun-
blaðið og þ.m.t. viðskiptablaðið,
11% nefndu Viðskiptablaðið og vef
þess, 8% nefndu miðla Ríkisút-
varpsins, jafnmargir nefndu miðla
365 og 7% nefndu Fréttablaðið og
þ.m.t. Markaðinn. Í könnuninni
nefndu 5% áhrifavalda vefinn m5.is,
sem miðlar fréttum úr viðskiptalíf-
inu.
Einnig var spurt í könnunni
hversu oft var fylgst með viðskipta-
fréttum í fjölmiðlunum. Flestir
fylgjast oft með fréttum Sjónvarps-
ins, eða 83%, 81% fylgjast oft með
mbl.is, 70% með Fréttablaðinu, 61%
með Morgunblaðinu, 57% fylgjast
oft með fréttum Stöðvar 2, 54%
með útvarpsfréttum RÚV og jafn-
margir með Viðskiptablaði Morg-
unblaðsins. Næstu miðlar þar á eft-
ir sjást á meðfylgjandi súluriti.
Könnun meðal stjórnenda og sérfræðinga
Leita fyrst frétta
á mbl.is og í
Morgunblaðinu
!
"
#
"# !$
%
#
&'
%
#
%%
'
(
)
(
!
!
! "
#
# #
$
*
+
#
'
#
, ,+
&#
+
#
'
-
()'
./
*+,&'
!.
-
+
# ,%
)
.
/
0
#
1
23%#
#
4!
"
"
5,6+7
8
"
!%%
% 9::%:::
;
<,71
!
*<=
#
ÁKVEÐIÐ var á aðal-
fundi Veiðifélags Laxár
og Krákár á laug-
ardagskvöldið að fara í
viðræður við tvo til-
boðsgjafa um leigu á
urriðasvæði Laxár í
Mývatnssveit.
Samkvæmt heim-
ildum Morgunblaðsins
munu aðilarnir tveir vera Stangaveiði-
félag Reykjavíkur og Orri Vigfússon. Ekki
verður rætt við Braga Blumenstein sem
átti hæsta tilboðið upp á 285 milljónir
króna þar sem lögmaður veiðifélagsins
mat tilboðið ekki gilt.
Að sögn Jóns Benediktssonar, formanns
Veiðifélags Laxár og Krákár, myndaðist
ákveðin togstreita á aðalfundinum þar sem
stjórnin áleit það ekki hagkvæmara að
leigja svæðið út en að veiðifélagið sæi
sjálft um reksturinn líkt og áður. Meiri-
hluti aðalfundargesta var hins vegar á
annarri skoðun og felldi tillöguna. Hann
segist ekki líta á það sem vantraust á
stjórn þar sem tillagan hafi ekki komið frá
stjórninni og að sjálfsögðu muni stjórnin
fara að vilja aðalfundar.
Að sögn Jóns eru tilboðin bindandi til
þriðja júlí eða tveimur mánuðum eftir að
þau voru opnuð. Það sé sá tími sem veiði-
félagið og tilboðsgjafar hafa til að ganga
frá samningi um leigu á svæðinu til fimm
ára.
Hæsta tilboð í fimm ára leigu urriða-
svæðis Laxár í Mývatnssveit var eins og
áður sagði 285 milljónir króna frá Braga
Blumenstein. Tilboð Stangaveiðifélags
Reykjavíkur hljóðaði hins vegar upp á 253
milljónir króna og tilboð Orra Vigfússonar
upp á ríflega 250,5 milljónir króna.
Ræða við SVFR
og Orra Vigfússon
LÖGREGLAN á Sauðárkróki var kölluð í
Vatnsskarð skammt frá bænum Brekku á
föstudagskvöldið. Þar lenti bíll á öðrum
kyrrstæðum bíl sem lagt var í vegarkanti,
á meðan eigandinn gerði tjónaskýrslu
vegna óhapps sem varð skömmu áður.
Varð maðurinn fyrir bílnum sem hafði
verið kyrrstæður og hafnaði úti í skurði.
Hann var fluttur á Sauðárkrók en meiðsl
hans reyndust minniháttar.
Bíll þeyttist á
vegfaranda
LÖGREGLAN á Akranesi færði um 25
unglinga á lögreglustöð á aðfaranótt laug-
ardags vegna ölvunar. Ungmennin, sem
vildu fagna lokum samræmdu prófanna,
höfðu blásið til hálfgerðrar útihátíðar í
skógræktarlandi rétt við golfvöll bæj-
arins.
Að sögn lögreglu voru vel yfir 50 manns
á svæðinu þegar lögreglu bar að garði og
minni hluti þeirra undir áhrifum. Sam-
koman var leyst upp og foreldrum margra
gert viðvart svo þeir gætu sótt börn sín á
lögreglustöðina.
25 ölvaðir
eftir próflokin