Morgunblaðið - 01.06.2008, Qupperneq 6
6 B SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Höfðaskóli auglýsir:
Lausar stöður
grunnskólakennara
Við leitum að íslenskukennara á unglinga-
stig til afleysinga vegna fæðingarorlofs.
Umsóknarfrestur er til 16. júní.
Höfðaskóli á Skagaströnd er grunnskóli með
rúmlega 100 nemendum. Skólinn er vel búinn
til kennslu og vinnuaðstaða kennara er góð.
Endurmenntun og þróunarstarf er skipulagt í
samvinnu við fræðslustjóra og grunnskólana í
Húnavatnssýslum.
Nánari upplýsingar veita Hildur Ingólfsdóttir
skólastjóri, vs. 452 2800, gsm 849 0370 og Elva
Þórisdóttir aðstoðarskólastjóri, gsm. 845 2991.
Hægt er að senda umsóknir á netfangið
hofdaskoli@skagastrond.is
Við bjóðum barnvænt umhverfi, gott sam-
starfsfólk, ódýra húsaleigu og flutnings-
styrk.
Skagaströnd er kauptún með um 530 íbúum.
Þar er leikskóli, íþróttahús, heilsugæsla og öll
almenn þjónusta. Aðeins eru 30 km á
skíðasvæðið á Tindastóli, 160 km til Akureyrar
og 260 km til Reykjavíkur.
Við leitum að metnaðarfullum vöruhúsastjóra til að þróa og reka nýtt vöruhús og vöruhúsakerfi.
Við þurfum ekki jakkafatatýpuna heldur leitum við að duglegum og framsæknum aðila .
Ölgerðin
Með nýju 12.500 fm húsnæði sem tekið verður í notkun í janúar verður bylting í vörumeðhöndlun og dreifingu hjá fyrirtækinu.
Í húsinu verða um 7.000 vörunúmer, 12.500 pallettur og 50 starfsmenn. Eitt af meginmarkmiðum fyrirtækisins er að bæta þjónustu
við viðskiptavini og auka hagkvæmni í rekstri og stuðla þannig að lægra vöruverði í landinu.
Menntunar/Hæfniskröfur:
Reynsla af stjórnun æskileg
Jákvæðni
Hæfni í mannlegum samskiptum
Frumkvæði og geta til að vinna sjálfstætt undir álagi
Góð almenn tölvukunnátta
Starfssvið:
Ábyrgð á daglegum rekstri vöruhúss
Samskipti við innri og ytri viðskiptavini
Starfsmannastjórnun
Innleiðing á ferlum
Uppbygging liðsheildar
Umsjón með starfinu hafa Sigrún Ýr Árnadóttir (sigrun.yr.arnadottir@
capacent.is) og Brynhildur Steindórsdóttir (brynhildur.steindorsdottir@
capacent.is) hjá Capacent Ráðningum. Umsóknarfrestur er til og með
9. júní nk. Umsækjendur eru vinsamlega beðnir að sækja um starfið á
heimasíðu Capacent Ráðninga, www.capacent.is.
LEIÐTOGI Í VÖRUHÚS
Grjóthálsi 7-11
110 Reykjavík
Sími 412 80 00
Fax 412 80 09
olgerdin@olgerdin.is
www.olgerdin.is