Lesbók Morgunblaðsins - 06.09.2008, Blaðsíða 5
með jarðskjálftanum. Ég spilaði svo úr verkinu
á Ísafirði á hátíðinni Við Djúpið.
Ég er búin að fara yfir ferilinn þetta langa
æfingatímabil, og ég get sagt að ég sé búin að
vera að frá 9. júní í fyrra. Síðan þá eru liðnir
ansi margir klukkutímar,“ segir Anna Guðný
brött, og það er engan veginn hægt að merkja
að það sé komin þreyta í langa vegferð hennar
með þessu stóra verki Messiaens, þvert á móti.
Hvað var það sérstaklega sem fékk þig til að
segja já við Messiaen og taka þessa stóru
glímu?
„Það var Koss Jesúbarnsins,“ segir Anna
Guðný, þagnar, og horfir beint í augun á mér.
Jú víst er þetta sá kafli verksins sem maður
getur vart ímyndað sér að láti nokkra mann-
eskju ósnortna. „Hvernig er hægt að neita því
að spila eitthvað sem er svona himneskt og fal-
legt,“ bætir hún íhugul við.
„Það eru ekki allir kaflar verksins alveg
brjálæðislega erfiðir, en það getur samt verið
erfitt að ná andanum og kyrrðinni sem í þeim
býr. Þegar ég var alveg að tapa mér í erfiðustu
köflunum var gott að geta sagt við sjálfa mig:
Ja, ég get nú spilað þann fjórða, og ég get spilað
þann fyrsta.“
Hvernig byrjaðirðu? Hvernig var 9. júní
2007?
„Ég byrjaði bara á fyrsta kaflanum, sem er
hjartað í verkinu. Það er tillit föðurins sem seg-
ir: „Þetta er minn elskaði sonur sem ég hef vel-
þóknun á.“ Þar er stef Guðs sem gengur í gegn-
um allt verkið. Allan tímann hef ég æft hann
með öðrum þáttum verksins, til þess að ná
hljómnum, friðnum og kyrrðinni. Það er mjög
erfitt. Púlsinn í tilliti föðurins er heldur ekki
mannlegur og þarf að standa utan við allt. Ég
hef lært alveg ótrúlega mikið á þessu.“
Hvernig undirbjóstu þig áður en þú byrjaðir
að æfa verkið?
„Alveg frá því að ég ákvað að gera þetta var
hugmyndin um að takast á við verkefnið að búa
um sig í huga mínum og hjarta. Þótt ég væri
ekki að æfa mig mikið skoðaði ég nóturnar,
horfði á þær, og hlustaði svolítið – ekki of mikið.
Ég keypti mjög flotta upptöku með Steven Os-
borne, sem kemur hingað í vetur að spila Tur-
angalila eftir Messiaen með Sinfóníunni. Mér
finnst óþægilegt að hlusta of mikið á verk sem
ég er sjálf að byrja að æfa. Allt þetta var samt
góður undirbúningur, og kannski ekki ósvipað
því að undirbúa sig fyrir langa fjallgöngu. Ég
fór líka á Dale Carnegie-námskeið. Ég hafði
ætlað að gera það lengi því mér hefur alltaf þótt
erfitt að tala fyrir framan fólk – miklu auðveld-
ara að spila. Þegar ég var búin gerði ég mér
grein fyrir því að það var líka hluti af ferlinu að
vinna verkið.“
„Framan af var ég í vafa …“
Hefurðu einhverja hugmynd um hve margar
klukkustundir hafa farið í æfingarnar?
„Ég held að þær séu að nálgast þrjú hundr-
uð. En hver klukkutími af svona vinnu finnst
mér jafnast á við þrjá fjóra tíma af öðru. Sér-
staklega þegar maður þarf að ná tökum á því
sem erfiðast er og gengur nærri sjálfum sér.
Svo komu líka tímar þegar ég gat slakað á og
notið þess að spila það sem var komið í fing-
urna. Ég hélt þetta út vegna þess að þetta er
stórkostleg músík. Það skiptust auðvitað á skin
og skúrir og framan af var ég í vafa um að ég
myndi hafa þetta af. Ég hef aldrei tekist á við
neitt af þessari stærðargráðu áður.“
Hefur æfingaferlið á einhvern hátt breytt
mynd þinni af tónskáldinu?
„Já, hún er dýpri og stærri. Fyrsta stóra
verkið eftir Messiaen sem ég æfði var Frá
gljúfrunum til stjarnanna, með Kammersveit-
inni. Ég hef alltaf litið á það sem algjöra eldsk-
írn og gleymi því aldrei hvað það var erfitt. Það
er tónmál Messiaens sem er svo erfitt. Hann fer
fram á allt aðra hluti hjá píanistanum en önnur
tónskáld. Ég er mjög fljót að lesa nótur, en það
er mjög erfitt að festa verkin hans í fingrunum.
Maður er með báðar hendur fullar allan tím-
ann. Í dag er ég eldri og kannski eitthvað
þroskaðri, og það er öðruvísi að spila verk sóló
en með öðrum.“
Ertu trúuð?
„Já.“
Finnst þér tónlist Messiaens snerta þig á
andlegan hátt eða tala til þín á trúarlegan
máta?
„Já. Ég er líka búin að lesa mikið um Messia-
en. Í tilefni af afmæli hans í ár hafa komið út
nokkrar áhugaverðar bækur sem ég hef verið
að lesa. Þessi stóri maður og stóra tónskáld,
sem átti þennan glæsilega feril sem organisti,
kennari og tónskáld, var svo merkilegur. Undir
öllu þessu var sterk trú sem var næstum barns-
leg, og hann var alltaf einlægur með það – hann
hafði þor til að viðurkenna það og hikaði ekki
við að tilkynna það á ráðstefnu að hann hefði
fæðst trúaður. Þó var hann ekki af sérstaklega
trúuðu fólki kominn. Þetta var einhvers konar
frumeðli í honum.
Í tónlistinni bjó Messiaen til sitt eigið tungu-
mál. Hann fór alla leið með seríalismann, en það
dugði honum ekki. Hann samdi til dæmis píanó-
verk þar sem hann fór eftir ströngustu kröfum
raðtónlistarinnar. En hann vildi fara lengra, og
fór miklu, miklu lengra og víðar.“
Heldurðu að það hafi verið leit hans að ein-
hverju æðra og meira?
„Ég held að hann hafi alltaf verið að semja
fyrir Guð. Algjörlega. Maður sér það bara í
verkunum og titlunum. Hann sótti þangað án
þess að það yrði nokkurn tíma slepjulegt eða
væmið. Það er hrein trúarsannfæring.“
Þú sagðir að þú hefðir verið með fullar hend-
ur af nótum allan æfingatímann. Hvernig er
Messiaen frábrugðinn öðrum tónskáldum í
tækni?
„Já, þetta var blóð, sviti og tár. Messiaen
kemur beint úr hefð Debussys. Hans litir og
tónmál að mörgu leyti á sinn grunn þar. Mér
hefur líka alltaf þótt erfitt að spila Debussy.
Maður þarf að hafa fullkomið vald yfir tóninum
og mikið ímyndunarafl. Ég hef mikið hugsað
um þá staðreynd að Messiaen sá liti þegar hann
heyrði tónlist. Hann bjó til sitt eigið tónmál,
eins og ég sagði þér – hann bjó til sína eigin tón-
stiga, en það eru hljómarnir sem eru svo sér-
stakir, til dæmis þegar hann lýsir náttúrunni í
tónlistinni – og fuglunum. Þegar hann lýsir
þrumum og eldingum gengur mikið á. Hljóma-
raðirnar hans eru sérstakar. Hægri höndin
spilar hljóm sem vinstri höndin spilar einum
sextándaparti á eftir. Það er ekki eins og hann
leyfi manni að spila sama hljóminn í báðum
höndum, heldur eltir hvor höndin aðra. Það
festist ekkert á augabragði. Það eru líka gíf-
urlega hraðir og flottir kaflar í verkinu og mikill
rytmi, og til þess að fá tónlistina til að dansa
verður maður að kunna hana vel.“
Hvernig hefur þér gengið að skapa þér næði
og frið til að æfa þig? Hefur það ekki krafist
mikillar einbeitingar?
„Jú, ég tók mér ekki mikið frí í sumar. Það
var gott skref að fara út í tíma í febrúar, en þá
var ég komin með verkið nokkurn veginn í fing-
urna. Þegar ég lít til baka held ég að ég hafi
nýtt þessa áskorun mjög vel og lært margt. Svo
hefur maðurinn minn séð um restina,“ segir
Anna Guðný og hlær. „Ég hef ekki dýft hendi í
kalt vatn í sumar – ekki heldur í moldina í garð-
inum.
Stórmál að geta gefið sér tíma
Það er í rauninni stórmál að gefa sér tíma í
svona stórverkefni, miðað við það hvernig við
Íslendingar vinnum – ekki síst tónlistarmenn.
Það er alltaf nóg að gera og um leið og einir tón-
leikar eru búnir er maður farinn að undirbúa þá
næstu. Það að geta gert þetta hefur verið mér
dýrmætt og ég er mjög stolt af því að Rík-
isútvarpið skuli hafa gefið mér þetta tækifæri.
Ég fékk starfslaun listamanna sem hjálpaði
mikið til.“
Anna Guðný hljóðritaði Tuttugu tillit til Jes-
úbarnsins í ágúst undir stjórn Bjarna Rúnars
Bjarnasonar, tónmeistara útvarpsins. En þegar
hún var að spá í hvað hún ætti að gera í tilefni
afmælis síns lá það beint við að halda tónleika.
„Ég ætlaði fyrst að spila bara hluta verksins –
fyrir afmælisgesti, en þeir sem vissu að ég var
að æfa þetta voru stöðugt að spyrja hvort ég
ætlaði ekki að spila verkið, svo ég ákvað að
halda tónleika – og það tvenna.“
Eiginmaður Önnu Guðnýjar er Sigurður
Ingvi Snorrason, klarinettuleikari í Sinfón-
íuhljómsveit Íslands. Þau eiga fjögur börn, tvö
saman og tvö af fyrra sambandi Sigurðar. Anna
Guðný kveðst alltaf hafa unnið mikið – „eins og
tónlistarmenn á Íslandi gera“. Fyrir fáum árum
kenndi hún heila stöðu við Listaháskólann auk
verkefna hjá Sinfó, og spilamennskan … ja,
hún bættist ofan á þetta. Hvernig er líf tónlist-
armannsins?
„Þetta er mikið hark Óneitanlega er það þó
fjölbreytt og mjög skemmtilegt. Sigurður er
búinn að spila með Sinfó í þrjátíu ár og hefur
alltaf kennt með, auk þess að spila í Óperunni.
En þannig er bara lífið. Maður heldur sér ekki í
þjálfun nema að spila. Tónlistarfólk þarf að láta
enda ná saman eins og aðrir.“
Hefur harkið kosti?
„Já, það hefur kosti. Maður getur til dæmis
ráðið vinnutíma sínum sjálfur að einhverju
leyti. Á tímabili hittumst við hjónin bara í dyra-
gættinni, en þegar börnin voru lítil gátum við
skipst á að vera heima eftir hádegi. Þetta er
aldrei 9-5-vinna og maður getur alltaf sagt nei
við verkefnum sem mann langar ekki að vinna,
eða ef maður vill ekki fórna tíma frá fjölskyld-
unni. Við Siggi höfum þó alltaf stutt hvort ann-
að þannig að við höfum ekki þurft að segja nei
við verkefnum sem okkur hefur langað mjög að
taka að okkur, hvort sem þau gefa eitthvað í
aðra hönd eða ekki. Að því leyti er það kostur
þegar tveir tónlistarmenn búa saman.
Partíboð á pósttilkynningum
Við eigum líka 25 ára sambúðarafmæli. 6. sept-
ember fyrir 25 árum héldum við fyrsta hús-
vígslupartíið okkar. Þá leigðum við á Klappar-
stíg 17. Í þá daga þurfti maður að fylla út kort
frá póstinum til að tilkynna nýtt heimilisfang.
Ég notaði tækifærið og laumaði á kortin boði í
partí. Þarna var ég 25 ára og að byrja sambúð
með Sigga og strákunum hans, sem voru þá sjö
og átta ára. Siggi reyndi að vara mig við að
þetta yrði erfitt, en hélt mér samt nógu fast
með hinni hendinni.“
Spilið þið og hlustið hvort á annað og gagn-
rýnið?
„Já, við gerum það. Siggi er nú búinn að
hlusta á nokkur hundruð klukkutíma af Messia-
en ofan af lofti og ég dáist að honum. Ég spurði
hann stundum hvort hann þyrfti ekki að fara út,
því ég ætlaði ekki að hamra þetta enn einu sinni
yfir höfðinu á honum. En hann hefur alltaf sagt:
„Hafðu ekki áhyggjur af því,“ honum finnst
verkið yndislegt og fallegt. Þegar við vinnum
saman erum við fljót, því við þekkjum hvort
annað vel.“
Anna Guðný segist framan af ekki hafa haft
miklar hugmyndir eða væntingar um píanóleik-
araferil sinn. „Ég efaðist oft …“ Í menntó var
margt annað sem togaði í hana, félagsstarf og
kórinn. En eftir nám hér heima fór hún í fram-
haldsnám í Guildhall-skólanum í London, þar
sem hún sérhæfði sig í meðleik. Í dag er það
hins vegar einleikarinn Anna Guðný sem er í
sviðsljósinu. En hvernig kann hún við einleik-
arann í sér sem nú er að koma í ljós?
„Ég kann mjög vel við hann. Messiaen hefur
bætt við mig víddum sem munu gagnast mér og
fylgja mér alla ævi.“
unnið hálftíma á dag
» Meðal þátta í verkinu er Tillit stjörnunnar og Tillit
krossins. Þannig spannar verkið ævi Krists og meira
til að sögn Önnu Guðnýjar. „Það er allt undir; heim-
urinn, náttúran og himinhvolfin.“
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 2008 5
Olivier Messiaen fæddist 10. desember 1908 í Avig-
non í Suður-Frakklandi. Þegar fyrri heimsstyrjöldin
braust út tvístraðist fjölskyldan; faðirinn fór í herinn
en móðirin fluttist ásamt Olivier og Alain, yngri
bróður hans, austur í Alpahéruð Frakklands, nálægt
Grenoble. Þar byrjaði Messiaen að semja tónlist og
kenna sjálfum sér á píanó. Hann tók miklu ástfóstri
við héraðið og alla ævi hélt hann áfram að heim-
sækja æskustöðvarnar í fjöllunum, meðal annars til
þess að skrá fuglasöng. Árið 1919 flutti fjölskyldan
til Parísar og Messiaen hóf nám við Conservatoire
de Paris. Meðal kennara hans voru tónskáldin Paul
Dukas (tónsmíðar) og Marcel Dupré (orgel).
Messiaen var afkastamikið tónskáld og í fram-
varðasveit í tónlistarlífi Parísar allt frá náms-
árunum. Hann átti sér marga aðdáendur, en tónlist
hans var einnig gagnrýnd harkalega. Mörgum þótti
bæði barnalegt og óviðeigandi hvernig hann bland-
aði saman sinni einkaguðfræði, tónfræði og heim-
speki. Messiaen þróaði eigið tónmál, meðal annars
með sérstökum tónstigum og rytma sem hann sótti í
indverskar og grískar hefðir. Hann sagði sjálfur að
grunnurinn að tónmáli sínu lægi í orgelspuna, enda
var snilld hans á því sviði ótvíræð.
Messiaen var organisti við Trinité-kirkjuna í París
í hartnær 60 ár. Honum var starfið mjög kært, og fátt annað en fjarvera frá París kom í veg
fyrir að hann spilaði þar hvern sunnudag, stundum í fjórum messum. Framlag hans til org-
elbókmenntanna er ómetanlegt og gengur tvímælalaust næst sjálfum J.S. Bach. Olivier
Messiaen sagði þrennt mikilvægast í lífi sínu og starfi: Guð, ástina og náttúruna. Trúin
gengur eins og leiðarstef í gegnum allt hans höfundarverk. Ástin á sitt sterka stef í tónlist
hans og náttúran er alltumlykjandi. Messiaen var ástríðufullur fuglaskoðari og hljóðritaði
söng fuglanna vina sinna sem hann dáði svo mjög, bæði í Frakklandi, Japan og Indónesíu.
Fuglasöngur kemur fyrir í flestum verka hans.
Guð, ástin og náttúran
Tónskáldið Olvier Messiaen 1945,
um það leyti er verkið Tuttugu til-
lit til Jesúbarnsins var frumflutt.
„Við borðum vel. Siggi slakar á við eldavélina og ég nýt góðs af því. Þetta er mikið
áhugamál. Á meðan sit ég hér við eldhúsborðið með hvítvínsglas og við spjöllum saman.
Við þurfum ekkert að fara á veitingahús – nema í útlöndum. En það er ekki tími fyrir
mörg áhugamál. Mig hefur hins vegar lengi langað á dansnámskeið. Það er þó svo, að um
leið og maður er búinn að bóka sig fast öll þriðjudagskvöld, þá geturðu verið viss um að
helmingurinn dettur út vegna vinnunnar.
En ég er mikill lestrarhestur. Mér finnst gaman að lesa bækur sem hrífa mig strax. Ég
er búin að lesa margt af því sem Ian McEwan hefur skrifað. Mér finnst hann meiriháttar.
Ég las Friðþægingu. Svo kom myndin, og þá ákvað ég að lesa bókina aftur. Ég sá mynd-
ina hins vegar ekki fyrir en núna um daginn. Svo kom Laugardagur, Barnið og tíminn,
og nú sú nýjasta, Brúðkaupsnóttin. Hann er rithöfundur sem ég myndi aldrei leggja frá
mér með það í huga að tímanum væri ekki vel varið.“
Er líf fyrir utan tónlistina?
Vingt Regards sur l’Enfant-Jésus - Tuttugu tillit til Jesúbarnsins var samið árið 1944.
Verkið er tileinkað Yvonne Loriod, sem síðar varð eiginkona Messiaens, og hún frum-
flutti það 26. mars 1945. Tillitin áttu upphaflega að vera tólf, en verkið þandist út fyrir
þann ramma sem því var upphaflega ætlaður. Frekar en að líta á klukkuna hefur Messia-
en ef til vill litið upp til fugla himinsins og hugsað sem svo að þar sem mannsævin er ekki
nema andrá í eilífðinni þyrfti varla að hafa áhyggjur af nokkrum mínútum.
Anna Guðný Guðmundsdóttir