Lesbók Morgunblaðsins - 06.09.2008, Page 15
ÍSLENSKU Sjónlistaverðlaunin verða veitt í
þriðja sinn í ár og eins og undanfarin ár setur
Listasafn Akureyrar upp sýningu á verkum
þeirra listamanna og hönnuða sem tilnefndir
eru.
Steingrímur Eyfjörð er hér vegna framlags
síns á Feneyjatvíæringnum árið 2007, Mar-
grét H. Blöndal er tilnefnd fyrir sýninguna
Þreifað á himnunni í Listasafni Reykjavíkur,
en Ragnar Kjartansson fyrir innsetninguna
Guð í Nýlistasafninu.
Starf hönnuða er ekki endilega bundið
ákveðnum sýningum en Guðbjörg Kristín
Ingvarsdóttir er tilnefnd fyrir fimm skart-
gripalínur, Sigurður Eggertsson fyrir störf
sín árið 2007 og Hjalti Geir Kristjánsson fyrir
sýningu á stólum í Gallerí 101.
Sjónlistasýningin ber sterkan keim af
þessu fyrirkomulagi, en hún er að nokkru
bundin því að sýna þau verk sem tilnefnd eru.
Það er enginn hægðarleikur að standa uppi
með jafn ólík og sundurleit listaverk og hönn-
un sem raunin er og eiga að koma því öllu
fyrir í sölum Listasafnsins. Enda tekst ekki
nema mátulega vel til.
Innsetning Steingríms Eyfjörð stenst einna
helst álagið enda fær hún rými út af fyrir sig,
en minna verður úr magnaðri innsetningu
Ragnars Kjartanssonar hér í þröngu rými
bak við skilrúm. Viðkvæm listaverk Mar-
grétar H. Blöndal ná sér ekki á strik við hlið
massífra og formfastra stóla Hjalta Geirs
Kristjánssonar. Framlag Hjalta Geirs Krist-
jánssonar til íslenskrar hönnunar er mikið og
stólar hans sígildir en salur þeirra Margrétar
og Hjalta er í miklu ójafnvægi með öllum
þunganum öðrum megin og himinn og haf
skilur að nálgun þeirra við list sína og hönn-
un.
Sigurður Eggertsson hefur vakið athygli
fyrir vinnu sína sem byggist á vinnu með
möguleika niðurnjörvaðra forma og hefur náð
ágætum árangri, en veggmyndir Sigurðar
týnast hálfpartinn hér og þar í rýminu. Skart-
gripir Guðbjargar Kristínar eru bæði per-
sónulegir, frumlegir og flottir, hún hefur
fundið sína eigin leið og tenging hennar við
land og náttúru er fínleg og sannfærandi.
Framsetning skartgripa Guðbjargar er því
miður öllu hefðbundnari og ólífrænni en vinn-
an í gripunum sjálfum.
Sýningin sem slík fær engin verðlaun að
þessu sinni, og framlag einstakra listamanna
og hönnuða er mun eftirminnilegra en sýn-
ingin í heild.
Sitt af hverju tagi
Morgunblaðið/Hjálmar S. Brynjólfsson
Sjónlist „Viðkvæm listaverk Margrétar H. Blöndal ná sér ekki á strik við hlið massífra og
formfastra stóla Hjalta Geirs Kristjánssonar,“ segir gagnrýnandinn meðal annars í dómnum.
Ragna Sigurðardóttir
MYNDLIST
Listasafn Akureyrar
Til 19. október. Opið alla daga nema mán.
frá kl. 12–17.
Sjónlist 2008
bbbnn
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 2008 15
Hlustarinn
Ég mæli með óperu- og ljóðasöng finnsku
sópransöngkonunnar Soile Isokoski. Soile
lærði við Sibeliusarakademíuna í Helsinki en
að loknu námi hefur hún sungið við öll
helstu óperuhús heims og komið fram á
ljóðatónleikum víða um lönd. Hún hefur ný-
lega verið útnefnd kammersöngkona við
Vínaróperuna en þar hefur hún margoft
sungið í óperum við mikla hrifningu gagn-
rýnenda og áhorfenda. Í vetur mun hún
syngja þar aðalkvenhlutverkið í Rósaridd-
aranum Richard Strauss (1864–1949). Ég sá
hana í þessu hlutverki í sýningu í Hels-
inkióperunni. Glæsilegri flutning er vart
hægt að hugsa sér. Soile Isokoski hefur ein-
mitt lagt sig sérstaklega eftir að flytja róm-
antíska tónlist Richards Strauss. Fyrir
nokkrum árum var gefinn út geisladiskur
hennar með ljóðasöngvum Strauss við undir-
leik útvarpshljómsveitar Berlínarborgar
undir stjórn Mareks Janowski. Þessi diskur
var verðlaunaður fyrir gæði. Þar syngur
Soile Vier letzten Lieder Stauss, m.a. Sept-
ember við ljóð Hermanns Hesse: „Der Gar-
ten trauert, kühl sinkt in die Blumen der
Regen.“ Ég mæli með að hlusta á flutning
Soile Isokoski á þessu lagi nú í sept-
emberbyrjun. Í flutningi hennar á laginu
ríkir fegurðin ein.
Úlfar Bragason, rannsóknarprófessor, Stofn-
un Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.
Morgunblaðið/ Jim Smart
Úlfar Mælir með að hlustað sé á söng Soile Isokoski.
Lesarinn
Ég tók nokkrar íslenskar bækurmeð mér hingað út til Afgan-
istan sem ég hafði ekki náð að
gagnrýna áður en ég hætti á Við-
skiptablaðinu. Kannski af því að í
vinnu minni hér er ég mikið að lesa
skýrslur og tilfinningalausan texta
um fallna borgara eða hermenn í
skrítnu stríði, þá finnast mér þess-
ar bækur sem ég tók með mér hver
annarri betri. Núna um daginn las
ég Vaxandi nánd sem er fyrsta bók
höfundarins Guðmundar Ósk-
arssonar sem ku vinna í Lands-
bankanum. En það finnst ekki af
lyktinni að hún sé send úr banka;
hvorki eru nefndar hagtölur né
bent á gróðavonir. Maður hefði
haldið að hugarheimur banka-
manna væri annar en flestir héldu
líka að hugarheimar lögfræðinga
væri annar en sá sem þeir kynntust
hjá Franz Kafka. Þetta eru fallegar
örsögur af dauðum spörfuglum,
barni sem horfir á sömu videóspól-
una aftur og aftur á meðan mamma
hennar reynir að finna nálægð í
öðru en henni, sögur af óeðlilegum
hliðarskrefum, hlátri, handleggja-
sveiflum og hvítum baðspeglum.
Þetta er flott fyrsta bók höfundar.
Maður nánast öfundar hann. „Svo
getur hann skrifað líka ofan á allar
milljónirnar sem hann hlýtur að
hafa grætt í bankanum.“ hugsar
maður með sjálfum sér. En svo er
hann kannski bara húsvörður í
bankanum og þeir eru kannski á
sömu launum og maður sjálfur
þannig að það er allt í lagi. Í öllu
falli gott að eiga kvöldstund með
honum í Afganistan.
Börkur Gunnarsson, rithöfundur og
varatalsmaður NATO í Afganistan.
Börkur Mælir með Vaxandi nánd sem er fyrsta bók höf-
undarins Guðmundar Óskarssonar.
LISTMUNAUPPBOÐ
verður haldið sunnudagskvöldið 7. september,
kl. 19, á Hótel Sögu, Súlnasal
Á uppboðinu verður að venju gott úrval verka,
meðal annars fjölmörg verk gömlu meistaranna.
Boðin verða upp um það bil 130 listaverk.
Öll verkin eru sýnd í Galleríi Fold við Rauðarárstíg
föstudag 10–18, laugardag 11–17 og sunnudag 12–17.
Hægt er að skoða uppboðsskrána
með myndum á vefslóðinni myndlist.is.
Rau›arárstíg 14, sími 5510400 · www.myndlist.is Gallerí Fold · þekkt fyrir trausta þjónustu
Kristján Davíðsson
Jóhannes S. Kjarval