Morgunblaðið - 29.08.2008, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 29.08.2008, Blaðsíða 10
10|Morgunblaðið Morgunblaðið/Ómar Nudd Hér er kínverskur nuddari hjá Mecca Spa að störfum. Þegar öll sund virðast lokuðreyna margir að fara í kín-verskt nudd, sem flokkasthér á landi undir óhefð- bundnar lækningar. „Nuddið hjá Kínverjunum á heima- slóðum flokkast undir venjulegar lækningar þótt við flokkum þetta ekki þannig hér,“ segir Elín Skúla- dóttir, markaðsstjóri hjá Mecca Spa. En hvað er svona merkilegt við þetta nudd? „Kínverskar lækningar eru reynd- ar komnar aðeins inn í heilbrigð- iskerfið hér, einkum eru nálastung- urnar notaðar af ljósmæðrum á sjúkrahúsum. Nátengd nálastungum er þrýstipunktameðferðin sem við köllum kínverskt nudd,“ segir Elín. „Þetta nudd byggist bæði á þrýsti- punktaaðferðinni og einnig á hefð- bundnari nuddaðferðum þar sem stroknir eru vöðvar, svokölluðu djúp- nuddi. Í rauninni má segja að kín- verskt nudd sé fyrirmynd að því nuddi sem kennt er hér á landi.“ En hvað er þrýstipunktakerfi? „Það er ævafornt og þróað í Aust- urlöndum, einkum Kína. Þeir hafa staðsett sérstaka punkta á mannslík- amanum og með því að ýta á þá kemst af stað flæði um líkamann og þetta hefur áhrif á innri líffæri líka. Hjá okkur starfar kínverskur nudd- ari sem lærði sitt fag í Kína og hefur starfað hér í nokkuð mörg ár.“ Við hverju er kínverskt nudd eink- um gott? „Fyrst og fremst við alls konar kvillum í stoðkerfi, svo sem spenntum vöðvum, vöðvabólgum, höfuðverk og bakverk og fleiru slíku. Almennt eyk- Morgunblaðið/Ómar Álag Elín Skúladóttir segist fara í kínverskt nudd við miklu álagi ur svo nudd vellíðan, hvort sem það er kínverskt nudd eða annað nudd. Persónulega hjálpar mér ekkert bet- ur en kínverska nuddið. Ég er þol- fimikennari og reyni því oft mikið á líkamann og þegar ég er að- framkomin fer ég í kínverskt nudd. Einnig fór ég oft í slíkt nudd meðan ég gekk með son minn og það hjálp- aði mikið. Til gamans má geta þess að ég var „sett af stað“ með nálast- ungum þegar kom að fæðingu. Ég mæli því eindregið með kínversku nuddi.“ Kínverskt nudd svínvirkar Þegar allt er orðið í skralli í líkamanum og allir vöðvar bólgnir fara margir í kínverskt nudd – það er heillaráð að mati Elínar Skúla- dóttur sem sjálf hefur með góðum árangri fengið slíkt nudd þegar hún hefur verið „að- framkomin“. Það er ekki ofsögum sagt að fólk verður feitara og feitara í hinum vestræna heimi og þessarar þróun- ar hefur gætt hér á landi í vaxandi mæli. En það eru samtök hér sem hafa lagt sig eftir að breyta þessari þróun. „Fullt af fólki verður of feitt ein- faldlega af ofáti og þarf bara spark í rassinn, ef svo má segja, til að taka sig á, borða minna og hreyfa sig meira,“ segir félagi GSA, sem er tólf spora samtök matarfíkla, en þar má fólk ekki koma fram undir nafni. „Matarfíknin er sjúkdómur sem býr í huganum og verður ekki læknaður með megrun eða skurð- aðgerð.“ En hvað er þá til ráða? „Það sem virkar fyrir okkur mat- arfíkla er að halda okkur frá mat sem vekur matarfíkn, svo sem sykri, sterkju og hveiti. Ef fólk heldur sig frá þessum tegundum vaknar ekki þessi fíkn og fólk grennist. Við þurfum samt að borða og GSA býður upp á matarplan þar sem rétt næring er sett á blað og trúnaðarmaður er til ráðgjafar, einnig eru upplýsingar á gsa.is. Það eru fjórir fundir hjá okkur í viku hér á Íslandi. Á mánduögum kl. 20.30 í Vídalínskirkju, á þriðju- dögum í Fella- og Hólakirkju kl. 20, á miðvikudögum í gömlu kirkjunni í Grindavík kl. 20.30 og fimmtudög- um í gula húsinu, Tjarnargötu 20, kl. 20.30. Þess má geta að Íslands- deild GSA er sú stærsta í Evrópu.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Ekki Matarfíklar þurfa að halda sig frá sykri, sterkju og hveiti svo tert- ur eru varla heppileg fæða fyrir þá. Matarfíklar geta grennst HEILSURÆKT Mecca Spa leikfimisalir tækjasalur sundlaug spa meðferðir nudd snyrtistofa Nýbýlavegi 24, Kópavogi | 511 2111 | www.meccaspa.is Leiðbeinendur: Lovísa Árnadóttir, Margrét Skúladóttir, Sóley Jóhannsdóttir & Fjóla Þorsteinsdóttir Meðgöngujóga Lífsstíll níutíu kíló plús Lífsstíll níutíu kíló plús er opið námskeið sem er sérstaklega ætlað konum sem vilja ná niður líkamsþyngd, létta sál og fá ötulan stuðning, aðhald og ráðgjöf í þyngdarstjórnun. námskeiðið hefst 8. september 12 mánuðir Er ekki orðið nokkuð ljóst að ef ná skal varanlegum árangri duga vart 6 - 8 vikna kraftaverkanám- skeiðin engan veginn. Jóga fyrir verðandi mæður Jóga fyrir móðir og barn saman Jóga og átak fyrir mæður eftir fæðingu Meðgöngujóga í vatni Leiðbeinandi: Fjóla Þorsteinsdóttir Meðgöngujógakennari: Maggý er notaleg og persónuleg stöð þar sem boðið er upp á fjölbreytta hóptíma, einkaþjálfun, jóga, vaxtamótun, dans, teygjutíma, gönguferðir og margt fleira.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.