Morgunblaðið - 29.08.2008, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 29.08.2008, Blaðsíða 19
Morgunblaðið |19 Margir eiga við að stríðavanlíðan af ýmsu tagi.Heilun er eitt af þvísem fólk stendur til boða að reyna. „Ég er reikimeistari og það er ein tegund af heilun, byggist á handa- yfirlagningu,“ segir Berglind Sig- urðardóttir sem rekur Heilun ehf. „En ég hef einnig lært höf- uðbeina- og spjaldhryggsjöfnun, DNA-heilun og orkupunktajöfnun og ýmiskonar nudd.“ En hvað er heppilegast að nota t.d. við gigt sem plagar mjög marga? „Gigt er einn af þeim sjúkdómum sem mér gengur illa að laga, ég get látið fólki líða betur en ekki læknað það, enda lækna ég engan. Að vísu hafa ýmsir sem koma til mín talið sig hafa læknast en ég gef mig ekki út fyrir að lækna. Ég hjálpa fólki til að það hjálpi sér sjálft, fái líkamann til að vinna rétt og fá jafnvægi á and- legu hliðina,“ segir Berglind. En hverju er þá heilun heppileg gegn? „Mér finnst reikiheilun mjög góð gagnvart ýmsum verkjum og bólg- um, sérstaklega góð á andlegt og lík- amlegt jafnvægi, þar með talið svefnleysi, þunglyndi og bakverki.“ Hvað gagnast fólki í baráttunni við svefnleysi? „Þá mæli ég með reikiheilun. Svefnleysi stafar oft af ójafnvægi og skorti á innri ró, fólki tekst ekki að losna við áhyggjur. Þetta má laga með reikiheilun. Mjög gott ráð til að losa um spennu er að bera á sig krem eða olíu og nudda laust á milli fingranna, þar eru orkupunktar sem vinna inn á andlegt jafnvægi. Streita í Reykjavík mikil Mér finnst mjög gaman að vinna með andlegu hliðina á fólki, ég tengi mig inn á það og tekst yfirleitt vel að lesa fólk, sem ég kalla, þá líður mér eins og fólkinu líður og þannig get ég skynjað breytingar á milli tíma. Mér finnst gaman að lesa í orkustöðvar hjá fólki. Ef ennisstöðin er t.d. vel opin er yfirleitt um að ræða fólk sem sér eða skynjar meira en „venjulegt“ fólk. Ef hálsstöðin er lokuð er oftast um að ræða fólk sem á erfitt með að tjá sig. Ég kalla það lokaða stöð þeg- ar orkuflæðið fer ekki um hana. Lokuð hjartastöð þýðir innilokaðar gamlar sársauka- eða reiðikenndir. Þegar sólarplexus (milli hjarta- og magastöðvar) er lokuð merkir það tilfinningavandamál í sambandi eða hjónabandi. Orkustöð fyrir magann sem er ekki rétt flæði um þýðir áhyggjur og streita t.d. vegna vinnu eða peningamála. Þegar ég er að vinna í Reykjavík koma 90% þeirra sem ég vinn með vegna þunglyndis eða streitu, álagið og hraðinn er of mikill. Ef fólk á við að stríða þrálátan höfuðverk er höfuðbeina- og spjald- hryggsjöfnun heppileg. Fólk sem líður illa andlega getur líka haft gagn af blómadropum, þeir koma inn á tilfinningalegt og andlegt svið. Ég er einnig að kenna reiki- námskeið. Þar getur fólk lært að vinna sjálft með reiki á sjálft sig og aðra og þar með að taka ábyrgð á heilsu sinni. Ég lærði reiki 18 ára og var yngsti reikimeistari í heimi 19 ára þá að sögn kennara míns. Ég lærði þetta til þess að hjálpa sjálfri mér og ætl- aði aldrei að vinna við þetta en hef nú unnið við þetta meira og minna síðan ég lauk þessu námi. Þetta átti aldrei að verða aðalstarf en það er orðið það núna eftir að ég hætti á sjónum fyrir þremur árum.“ Heilun við vanlíðan Heilun Hér er verið að vinna við að bæta líðan viðskiptavinar Heilun með handa- yfirlagningu er hlutverk reikimeistarans Berg- lindar Sigurðardóttir meðal annars. En hún hefur lært sitthvað fleira fyrir sér til að bæta líðan samborgara sinna. Í lok september verð-ur opnað Heilsuseturí Faxafeni 14.„Heilsusetrið skapar ramma utan um fjölbreytta starfsemi og verður fyrsta og eina miðstöðin á Íslandi þar sem blandað verður saman á heildrænan hátt hreyfingu, andlegri vinnu, heilandi meðferðum, sjálfs- eflingu og árangurs- þjálfun,“ segir Guðbjörg Ósk Friðriksdóttir rope jóga kennari. „Í boði er fjölbreytt úr- val af námskeiðum, nokkr- ar tegundir af jóga, dans, pilates og nýtt æfingakerfi sem við köllum heilsu og hamingju þar sem unnið er með heilsurækt og hug- arfar á mjög áhrifaríkan hátt. Auk þess verður full- komin aðstaða til líkamsræktar, úrval af opnum tímum og starfandi einkaþjálfarar.“ Að sögn Óskar verður í Heilsusetrinu samansafn af heilandi með- ferð, þar verður boðið upp á nudd, nálastungur, næringarráðgjöf, grasalækningar, höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun, lithimnugreiningu, detox, hreinsandi meðferðir o.m.fl. „Þetta verður heilsusetur sem á eftir að breyta hugmyndum og við- horfum fólks í garð heilsuræktar og tengingu hugarfars við hamingju, árangur og velgengni,“ segir hún. Í húsnæðinu verður líka heilsuveitingastaður með hollan mat og góðan djúsbar. „Þarna viljum við skapa umhverfisvænt fyrirtæki sem vinnur með náttúrunni, selur náttúrlegar heilsuafurðir. Allir kynningarbæklingar, nafnspjöld og prentefni eru úr endurunnum pappír,“ segir Ósk enn- fremur. „Við förum nýjar leiðir í kynningar og markaðsstarfi með því að auglýsa mest á póstlista sem skila sér beint til viðskiptavinanna, og geta þannig boðið frítt á kynningarnámskeið, fyrirlestra og óvæntar uppákomur. Það verður unnið markvisst með stofnunum og fyr- irtækjum til að miðla þeim möguleikum sem eru í boði til að efla heilsu, innri samskipti og viðhorf starfsmanna. Við kynnum fagra Ísland sem spennandi, hreinan og orkuríkan áfangastað fyrir „alternativ travel“ fólk þar sem við munum leggja ríka áherslu á að kynna starfsemina á þeim vettvangi erlendis.“ Heilsa og hamingja Heilsusetur Guðbjörg Ósk Friðriksdóttir er rope yoga-kennari í hinu nýja Heilsu- setri við Faxafen. Morgunblaðið/Árni Sæberg

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.