Morgunblaðið - 29.08.2008, Side 38
38|Morgunblaðið
Starfsemi HeilsustofnunarNLFÍ á sér 53 ára sögu. Upphaflega voru lækn-ingar og meðferðaform
Heilsuhælis í Hveragerði, eins og
það var kallað áður fyrr, aðallega
byggð á hefðum náttúrulækninga.
Reynsla síðustu áratuga hefur mót-
að starfsemina þar sem stofnunin
hefur á ýmsan hátt sveigt sig inn á
braut hefðbundinna endurhæfing-
arlækninga, enda meirihluti starfs-
fólksins (alls 120) með hefðbundna
menntun íslenskra heilbrigðisstétta.
„Í dag er hægt að fullyrða að
stefna náttúrulækningamanna sam-
ræmist yfirlýstri stefnu Alþjóða-
heilbrigðismálastofnunarinnar og
stefnu íslenskra stjórnvalda um
forvarnir og sparnað í heilbrigð-
iskerfinu,“ segir Jan Triebel, yf-
irlæknir og endurhæfingarlæknir
með sérsvið í meðhöndlun verkja.
„Markmið meðferða á Heilsu-
stofnun er að auka færni, lífsgæði
og hæfni einstaklinga, þar með er
talin hæfni til sjálfsbjargar gagn-
vart heilsufarsbrestum. Áhersl-
urnar eru á heildræna, líf-sál-
félagslega nálgun, þverfagleg
vinnubrögð, fræðslu í formi fyr-
irlestra og einstaklingsviðtala og
hvetjandi umhverfi til lífsstílsbreyt-
inga.
Sérstaða í endurhæfingu
Um 2.000 manns dvelja á Heilsu-
stofnun árlega til endurhæfingar.
Við höfum unnið okkur inn sér-
stöðu á sviði endurhæfingarmeð-
ferðar við langvarandi verkjum, þar
með töldum bakverkjum og vefja-
gigt, einnig offitu- og lífsstílsvanda-
málum en ekki síst vegna afleiðinga
streitu og áfalla, þ.e. kvíða og
þunglyndisröskunar. Einnig er
áhersla á endurhæfingu roskins
fólks, hjartasjúklinga, gigt-
arsjúklinga, krabbameinssjúklinga
og endurhæfing eftir liðskiptaað-
gerðir, aðallega á hné- og mjaðma-
liðum.
Nútímaleg meðferðarform
HNLFÍ mun einbeita sér að því
að beita nútímalegu meðferðaformi
og læknisaðferðum við lausn heil-
brigðisvandamála sem nútímaþjóð-
félag er að glíma við. Við ætlum
okkur að vera áfram leiðandi í
einkarekinni heilbrigðisþjónustu á
landsvísu með blöndu af endurhæf-
ingarmeðferðum og náttúrulækn-
ingum,“ segir Jan Triebel enn-
fremur.
Auk yfirlæknis starfa tveir sér-
fræðilæknar á Heilsustofnun
NLFÍ. Annars vegar Ómar Ragn-
arsson heimilislæknir, sem hefur
starfað í Kópavogi sem sérfræð-
ingur í heimilislækningum og yf-
irlæknir á Heilbrigðisstofnuninn á
Blönduósi. Ómar stundaði fram-
haldsnám í heimilislækningum í
Svíþjóð.
Hins vegar Þorkell Guðbrands-
son, sérfræðingur í lyflækningum
og hjartasjúkdómum. Hann stund-
aði framhaldsnám og starfaði í Sví-
þjóð í 9 ár og varði doktorsritgerð
í læknisfræði við Gautaborgarhá-
skóla árið 1981. Hans sérsvið er of
hár blóðþrýstingur. Síðustu tvo
áratugi hefur Þorkell starfað sem
yfirlæknir á Fjórðungssjúkrahús-
inu á Akureyri og sjúkrahúsinu á
Akranesi. Þorkell hefur einnig
unnið fyrir Hjarta- og lungnaend-
urhæfingarstöðina.
Magna Fríður Birnir heitir ný-
ráðinn hjúkrunarforstjóri HNLFÍ,
hún er menntaður hjúkrunarfræð-
ingur og með MSc í stjórnun. Hún
hefur starfað í fjölda ára sem
hjúkrunarfræðingur og sem stjórn-
andi bæði hjá Eimskip, Skýrr og
síðast vann hún á LSH sem for-
stöðumaður gæðamála og innri
endurskoðunar.
Lífrænt hráefni
Í eldhúsi Heilsustofnunar er sér-
stök áhersla lögð á grófmeti úr
jurtaríkinu eins og t.d. baunir,
hýðishrísgrjón, ýmiskonar heil
korn og svo grænmeti og ávexti.
Fæðið inniheldur einnig egg,
mjólkurvörur og svo er fiskur á
matseðlinum tvo daga í viku. Leit-
ast er við að nota eins lítið af salti,
harðri fitu og sykri og mögulegt
er.
Jónas Björgvin Ólafsson yf-
irmatreiðslumaður segir:
„Við leggjum áherslu á að bjóða
dvalargestum okkar fjölbreyttan
og bragðgóðan mat og reynum að
nota sem mest lífrænt hráefni, en
mikið af grænmetinu er ræktað
hér á staðnum.“
Ábyrgð á eigin heilsu
Starfsemi Heilsustofn-
unar NLFÍ á sér 53 ára
sögu. Þangað sækir
fólk sér margvíslega
heilsubót.
Sérfróð Þau Magna Friður Birnir hjúkrunarforstjóri og
Þorkell Guðbrandsson læknir á HNLFÍ.
Yfirlæknir Jan Tribel, yfirlæknir NLFÍ, endurhæf-
ingarlæknir með sérsvið í meðhöndlun verkja.
Glæsileg Ný æfingatæki í tækjasal Heilsustofnunar. og eru eins þau gerast best í dag.
Keypt voru ellefu tæki fyrir styrktarþjálfun, sex þrekhjól og þrjú önnur upphitunartæki
Leirböð Þau hafa frá upphafi verið
stunduð á Heilsustofnun í Hvera-
gerði. Leirinn er sóttur úr leir-
hverum við Reykjafjall í nágrenni
við Hveragerði. Hægt er að nota
leirmeðferð einungis fyrir hendur,
fætur eða aðra líkamsparta. Heilsu-
stofnun NLFÍ hefur sérstaka að-
stöðu fyrir leirböðin í nýju húsnæði.
Að fara í leirbað er afar slakandi.
Heilsusamlegt Baunir og fræ eru ásamt grænmeti og ávöxt-
um mikilvæg á matborði HNLFI
Uppskrift úr eldhúsi HNLFÍ
Bygg Pilaff (fyrir 4-6 )
1 bolli bankabygg (frá Móður
Jörð)
1 stk. rauð paprika, skorin í
grófa strimla
1 stk. eggaldin, skorið í grófa
bita
1 stk. kúrbítur, skorinn í grófa
bita
2 saxaðir hvítlauksgeirar
1 msk. söxuð engiferrót
3 dl maukaðir tómatar
ólífuolía
salt og svartur pipar
Bygg er skolað vel með köldu
vatni, sett í sjóðandi vatn og soð-
ið í 10 mín. Látið standa í vatn-
inu í 20 mín. og síðan sigtað.
Paprika, kúrbítur og eggaldin er
penslað með olíu, kryddað með
salti og pipar og grillað á grilli
eða bakað í ofni við 250C° í 8
mín.
Laukur, hvítlaukur og engifer er
steikt í potti. Tómatar og bygg
sett út í og smakkað til með salti
og pipar. Að síðustu er grillaða
grænmetið sett út í og þetta svo
borið fram með brauði og góðu
salati.
Þú ert staðráðin(n) í að hætta
er það ekki?
Ís
le
ns
ka
VT
R
38
74
3
08
.2
00
7
BYRJENDANÁMSKEIÐ ERU AÐ HEFJAST
Upplýsingar eru veittar í síma 551 4003
og á heimasíðu félagsins www.thorshamar.is