Morgunblaðið - 29.08.2008, Síða 33
Morgunblaðið |33
Morgunþjálfun gefur aukinnþrótt. „Vatnsleikfimi er fyr-ir alla sem vilja þjálfa sigfyrir vinnu eða skóla,“ segir
Anna Día Erlingsdóttir íþróttafræð-
ingur. Hún kveður boðið upp á vatns-
leikfimi í innilauginni í Mýrinni í Garða-
bæ tvisvar sinnum í viku milli klukkan
sjö og átta á morgnana frá 8. september
til 1. júní.
„Allir vita hversu mikilvæg hreyfing er
og undanfarin ár hefur orðið mikil vit-
undarvakning meðal fólks um hreyfingu.
En því miður eru ekki allir þátttakendur
í þessari byltingu,“ segir Anna Día.
Margir hreyfa sig of lítið
Hún segir alltof marga hreyfa sig lítið
eða ekki neitt vegna þess að þeir eru of
þreyttir eftir skóla eða vinnu.
„Hins vegar er það nú þannig að með
því að hreyfa sig og þjálfa fyrir vinnu eða
skóla eykur það þrótt og þá skilar fólk
betra starfi.
Morgunþjálfunin er í raun ekki átak
eða neitt slíkt. Hún snýst um að þjálfa
sjálfan sig og helst sína líka. Í raun er það
mjög gott fyrir alla að æfa í vatni. Það er
minna álag t.d. fyrir of þunga en að æfa í
sal, en það er þó misjafnt hvað hentar
hverjum og einum.
Þetta snýst um það hvað hentar hverj-
um og einum og hvað hver og einn velur.
Gott fyrir alla að æfa í vatni
Það er þó gott fyrir alla, alveg sama í
hvernig formi þeir eru, að æfa í vatni.
Þjálfun í vatni getur verið mikil brennsla
fyrir líkamann. Æfingarnar eru styrkj-
andi fyrir allan líkamann. Vatnsleikfimi
er virkilega góð fyrir þá sem eru of þung-
ir, ekki síst of þung börn. Offita er mjög
stórt vandamál og þá er þessi þjálfun
mjög góð til þess að koma sér af stað. Of
þungir einstaklingar finna sig svo létta í
vatninu og svo er álagið t.d. á hnén
minna.“
Skráning í vatnsleikfimina er í síma
691-5508.
Vatnsleikfimi góð þjálfun
Vinsæl Vatnsleikfimi er vinsæl íþrótt og mjög heppileg.
Gaman Eldri borgarar í vatnsleikfimi sem liðkar.
Ég hef kennt Baujuna frá 2000 í
grunnskólum í Reykjavík, aðallega
í Grafarvogsskólum en farið víðar
um grunnskólana á höfuðborg-
arsvæðinu,“ segir Guðbjörg Thor-
oddsen, kennari, leikari og ráð-
gjafi.
„Ég er oft spurð að því hvort ég
sé ekki með þetta á framhalds-
skólastigi.
Námsráðgjafar á grunnskólastigi
hafa upp til hópa lært þessa aðferð
og nota hana í sinni vinnu.
Þetta er auðveld aðferð þar sem
fólki eru gefnir lyklar til að vinna
með og liggur styrkur hennar í
sjálfsvinnunni, þ.e. tilfinningavinnu
og slökunaröndun, og þess vegna
lækningamætti líkamans sem við
höfum öll.
Baujan skiptist í sex þrep. Það er
hægt að raða henni upp á ýmsa
vegu – hópkennslu, einstaklings-
hjálp eða kennslufyrirlestra fyrir
nemendur.
Námsráðgjafar hvöttu mig til að
hafa námskeið fyrir fagfólk með
aðferðinni og hef ég haft þau um
nokkurt skeið. Eignast þá nám-
skeiðssetar öll gögn til kennslu.
Yfir 90 námsráðgjafar hafa nú
lært þessa aðferð og eru að kenna
hana sínu fólki.
Um hundrað manns úr öðrum
greinum hafa lært Baujuna til að
kenna sínu fólki og má þar nefna
félagsráðgjafa, djákna, heilbrigð-
isstéttir, kennara, sálfræðinga og
aðra.
Næsta fagnámskeið í Baujunni
sjálfstyrkingu verður nú í haust.
Þetta er áhrifamikil aðferð og ár-
angur sjáanlegur strax og grunn-
urinn er kominn, sem er eftir þrjú
þrep.
Þess má geta að komin er út
sjálfshjálparbók með aðferðinni
sem heitir Baujan.
Baujan – sjálfsvinna
Baujan Guðbjörg Thoroddsen hef-
ur haft áhuga á líðan fólks frá því
hún man eftir sér. Hún hjálpar fólki
að vinna með tilfinningar sínar og
styrkja sjálft sig á námskeiðum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Heilsustofnun NLFÍ tekur þér opnum örmum þegar þú hugar að heilsueflingu,
þarft að hvílast og endurnýja kraftana. Við leiðbeinum þér og vísum veginn til
að taka ábyrgð á eigin heilsu í daglegu lífi.
Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði hefur yfir 50 ár haft heilsueflingu og forvarnir
að leiðarljósi. Við ráðum yfir fjölbreyttri þekkingu til að takast á við helstu
heilsufarsvandamál nútímans, þar á meðal afleiðingar af streitu, hreyfingarleysis
og kvíða. Taktu mark á því sem líkami og sál segja þér, hafðu samband við
okkur og kannaðu hvaða möguleika þú hefur til betra lífs.