Morgunblaðið - 29.08.2008, Side 11

Morgunblaðið - 29.08.2008, Side 11
Pilatestækni hefur átt vaxandi vinsæld-um að fagna hérlendis undanfarið envinsæl hefur hún verið í rösk 70 árerlendis, eða allt frá því hún kom fram. „Heilbrigðri sál í óheilbrigðum líkama, þar sem aðeins ríkir jafnvægi að hálfu leyti milli líkama og sálar, má líkja við hús með kop- arþaki en byggt á sandi,“ segir Ástrós Gunn- arsdóttir pilatesþjálfari og vitnar þar í þýð- ingu sína á texta Josephs Hubertus Pilates sem skrifaði þetta árið 1934, en hann er frum- kvöðull þessarar tækni. Fyrrgreindur texti er úr bókinni „Your Health“, eftirJ. Pilates, sem fyrirtækið Pre- sentation Dynamics Inc. endurútgaf árið 1998. „Í heilbrigðum líkama sem hýsir óheil- brigða sál má segja að einnig sé aðeins jafn- vægi að hálfu, þessu má líkja við hús byggt á bjargi en með pappírsþak,“ segir í textanum ennfremur. „Heilbrigð sál í heilbrigðum líkama, þar sem ríkir hundrað prósent jafnvægi, er sem hús með koparþaki byggt á bjargi.“ Hvað segja þessar staðhæfingar og hlutföll? „Greinilega það að hvorki líkami né hugur er æðra hinu að mati J. Pilates,“ svarar Ást- rós. „Annað getur ekki verið sett neðar hinu. Samræmi verður að vera milli hvors tveggja, ekki einungis til að fá sem mestan árangur án þess að eyða of mikilli andlegri og líkamlegri orku, heldur einnig til að lifa sem lengst við eðlilega heilsu og njóta ávinnings gagnlegs og hamingjuríks lífs.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Dansari Ástrós Gunn- arsdóttir kennir Pila- tes og segir tæknina góða fyrir bæði kynin. Jafnvægi líkama og sálar Morgunblaðið |11 BIOVÖRUR ALLOS - SUNVAL - GEO - FRIGGS - LOGONA - PUKKA - CLEARSPRING - LA SELVA - BODE NATURKOST OG FLEIRI FRÁBÆRVÖRUMERKI www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25 Viltu sitja eða standa? Muvman fyrir breytilega hæð • Bakið beint • Dýpri öndun • Aukin virkni • Sveigjanleiki Einstakur stóll

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.