Morgunblaðið - 29.08.2008, Blaðsíða 14
14|Morgunblaðið
Íslendingar hafa notað lækn-ingajurtir frá upphafi Ís-landsbyggðar. Ætihvönn varnotuð bæði sem matjurt og
einnig sem lækningajurt. Hvönnin
var einkum talin góð fyrir þá sem
voru að ná sér eftir erfið veikindi,
til að fá aukið þrek og kraft.
Hvönnin var notuð við melting-
artruflunum s.s. krampa og vind-
gangi og gegn kvillum í lifur.
Hvönnin var talin góð til að losa
slím úr öndunarfærum og var hún
notuð við lungnakvillum,“ segir Sig-
mundur Guðbjarnason, prófessor
emeritus.
„Hvönn var notuð til að græða
sár og hvannafræ þóttu góð við
krabbameinum. Hvannarætur og
fræ voru notuð til að búa til úr
þeim jurtaveigar. Hvannarót-
arbrennivín er þekkt og tilsvarandi
brennivín var búið til úr hvanna-
fræjum.
Saga Medica-Heilsujurtir ehf. var
stofnað árið 2000 og setti sína
fyrstu vöru, Angelicu, á markað í
ársbyrjun 2002. Markmiðið var að
veita landsmönnum hlutdeild í
þeirri heilsubót sem ætihvönnin
getur veitt og örva fæðubót-
arefnaiðnað sem byggðist á heilsu-
bótarefnum úr íslenskum lækn-
ingajurtum. Þekkingin var annars
vegar reynslu-þekking forfeðranna
og hins vegar vísindaleg þekking
sem byggðist á rannsóknum á
lækningajurtum víða um heim.
Neytendur afurða Saga Medica,
Angelicu, Voxis og SagaPro, veittu
okkur upplýsingar um reynslu sína
af afurðum okkar. Sumt virtist okk-
ur vera ósennilegt og ímyndun en
þegar leitað var mögulegra skýr-
inga og skilnings fundum við oftast
trúverðug rök sem studdu frásagnir
þeirra. Hér á eftir fara nokkur
dæmi um óvænt áhrif.
1. SagaPro getur hjálpað við of-
virkri blöðru.
SagaPro hefur verið markaðssett
fyrir karlmenn með stækkun á
blöðruhálskirtli og tíð þvaglát á
nóttu. Neytendur hafa verið ánægð-
ir með vöruna enda hefur salan ver-
ið góð og vaxið ár hvert.
Komið hefur í ljós að SagaPro
virkar einnig við ofvirkri blöðru en
það vandamál er fyrir hendi bæði
hjá körlum og konum, og vex vand-
inn með aldrinum. Konur hafa í
vaxandi mæli notað SagaPro með
góðum árangri.
2. SagaPro getur hjálpað við
astma.
SagaPro hefur nýlega verið notað
við astma í Bandaríkjunum með
góðum árangri. SagaPro hefur líf-
virka flavonoida sem hindra sam-
drátt í lungnapíplum hjá til-
raunadýrum með því að hindra
myndun á efni (leukotrien D4) sem
veldur slíkum samdrætti og loft-
nauð. Þessi efni gætu verið mik-
ilvæg við meðferð á astma en ekki
hefur enn verið sannað að þessir fa-
vonoidar slaki með sama hætti á
sléttum vöðvafrumum í þvagrásinni.
Saga Medica bendir á nýlegar
heimildir, greinar um vísindarann-
sóknir sem menn geta kynnt sér ef
áhugi er á afla frekari vitneskju um
lífvirk efni sem gætu verið hér að
verki og virkni þeirra.
3. Angelica getur hjálpað við kyn-
deyfð og ristruflunum.
Í grein „Um hvannir og hvanna-
neyslu“ eftir Helga Hallgrímsson
grasafræðing (Ársrit rækt-
unarfélags Norðurlands 1962; bls.
97-107) er getið um notkun hvanna-
rinnar til blöndunar ýmiss konar
drykkjarfanga. Strax á miðöldum
er getið um notkun hvannar í ást-
ardrykki er þá tíðkuðust. Ábend-
ingar hafa borist um að ætihvönnin
hafi á árum áður verið kölluð „grað-
hvönn“ og er það staðfest í orðabók
Menningarsjóðs.
Athugun var gerð á því hvort
notkun á hvönn í ástardrykki gæti
átt við rök að styðjast með því að
leita upplýsinga um rannsóknir á
virkni þeirra efna sem er að finna í
hvönn. Þessi athugun bendir til
þess að efni í hvönn geti haft slík
áhrif. Rannsóknir hafa sýnt að fjög-
ur efni eru í hvönn, einkum hvanna-
fræjum, sem hafa þau áhrif að
slaka á æðaveggjum og auka blóð-
streymi í svampkenndum vef í limn-
um sem fyllist blóði við stinningu
og virka efnin á svipaðan hátt og
Viagra. Þessi efni eru einnig í kín-
verskri jurt sem er notuð sem
jurtalyf til að bæta skerta kyngetu
karla.
4. Angelica getur aukið framtaks-
semi og dugnað.
Margir neytendur Angelicu hafa
bent á að framtakssemi þeirra hafi
aukist og þeir hafi loksins lokið
verkefnum sem hafa setið á hak-
anum að undanförnu. Þakka þeir
það notkun á Angelicu. Þessi
reynsla er í samræmi við reynslu
manna fyrr á árum þegar hvönn
var notuð til að auka þrek og kraft
eftir erfið veikindi.
5. Angelica getur haft áhrif á
minnið.
Komið hefur í ljós að í Angelicu
eru efni sem geta dregið úr
gleymsku og bætt minnið. Þetta
eru efni sem auka magn taugaboð-
efnis í heila sem er mjög mikilvægt
fyrir minnið. Hindra þessi efni í
Angelicu niðurbrot taugaboðefn-
isins acetylchólins og auka styrk
þessa efnis í heila og bæta þannig
minnið. Þessi efni virka á sama hátt
og flest lyf sem notuð eru við Alz-
heimers-sjúkdómi en þessi lyf tefja
framvindu sjúkdómsins. Er Saga
Medica að undirbúa framleiðslu á
nýrri afurð úr hvönn og blágresi
sem hefur enn meiri áhrif til að
bæta minnið. Þessi nýja afurð verð-
ur nefnd SagaMemo en Memo vísar
til memory eða minnis á ensku.
6. Áhrif á hárvöxt?
Neytendur bæði SagaPro og
Angelicu hafa vakið athygli á því að
hárvöxtur þeirra hafi aukist veru-
lega. Þetta er í athugun en ekki
liggja fyrir vísindalegar rannsóknir
á þessum þætti.
Víst er að heilsujurtir, þ.e. græn-
meti, ávextir og lækningajurtir,
innihalda ýmis náttúruefni sem
styrkja forvarnir gegn ýmsum sjúk-
dómum. Þessi heilsubótarefni eru
oft breiðvirk og sýna oft samvirkni
en þau geta einnig verið beisk og
bragðvond. Hafa framleiðendur
leitast við að fjarlægja þessi efni úr
matjurtunum með kynbótum og
öðrum aðferðum til að geta boðið
bragðbetri vörur án þess að gera
sér grein fyrir því að þeir voru jafn-
framt að fjarlægja mikilvæg heilsu-
bótarefni. Unnt er nú að bjóða
neytendum upp á valkosti en það
eru þessi heilsubótarefni í formi
fæðubótarefna, t.d. Angelicu og Sa-
gaPro úr ætihvönn o.fl. vörur.“
Þess ber að geta að um þessar
upplýsingar hefur Sigmundur hinar
fjölbreyttustu heimildir.
Frekari upplýsingar má fá hjá
Saga Medica-Heilsujurtum ehf.
www.sagamedica.is eða www.sa-
gamedica.com
Hvönn í ástardrykki
Morgunblaðið/Frikki
Holljurt Víst er að afurðir úr ætihvönn gera fólki gagn segir Dr. Sigmundur Guðbjarnason prófessor emeritus sem er meðal stofnenda Saga Medica.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Lækningajurt Ætihvönn er bæði
holl og líka til prýði í landinu..
Komið hafa í ljós óvænt
áhrif Angelicu, Voxis
og SagaPro sem Saga
Medica framleiðir. Sig-
mundur Guðbjarnason
prófessor segir hér
fréttir af óvæntum
áhrifum afurða úr æti-
hvönninni íslensku,
m.a. á minni fólks, kyn-
getu karla og í ást-
ardrykki.
Ég hef þurft að glíma við aukakíló í nokkur ár. Hef prófað ýmsa kúra
og ekkert gengið. Það er ekki fyrr en ég kynnist Ultratone að
sentímetrar og kíló fjúka af. Komin úr stærð sextán í stærð tólf í
buxum og úr átján í fjórtán í bolum. Og svo er ég komin með mitti
sem eg vissi ekki af. Er líka ánægðari með sjálfa mig. Staffið er
æðislegt og umhverfið þægilegt. Búin að vera í Ultratone í fimm
vikur og mæli með þessu.
- Rósa Sigurðardóttir
Loksins eitthvað vem virkar! Á þessum mánuði, sem ég er
búin að vera í Ultratone hef ég misst sex kíló og mittismálið
minnkað um ellefu sentímetra. Maginn, sem var togaður og
teygður eftir fimm meðgöngur er loksins stinnari (og ekki bara
skvap). Ég hlakka alltaf til að mæta, þjónustan er frábær og svo líður
mér svo vel, líkamlega og andlega eftir hvern tíma. Bara frábært í alla staði.
- Margrét Sigurpálsdóttir STAFG
ANGA
ÁHRIFA
RÍK LE
IÐ
TIL LÍK
AMSRÆ
KTAR
www.stafganga.is
BYRJENDANÁMSKEIÐ 10 TÍMAR
FRAMHALDSHÓPUR FYRIR VANA